Alþýðublaðið - 18.05.1993, Page 7

Alþýðublaðið - 18.05.1993, Page 7
Þriðjudagur 18. maí 1993 7 Minning: Astríður Einarsdóttir Finnland Kratar á uppleið f. 7. maí 1902 d. 8. maí 1993 Látin er í hárri elli Ástríður Einarsdóttir, Hring- braut 53. Reykjavík. Hún kvaddi þetta líf á Landa- kotsspítala laugardaginn 8. ntaí, en daginn áður varð hún níutíu og eins árs. Atvikin höguðu því þannig að við Pétur Axel Jónsson, sonur hennar, urðum bekkjarbræður til landsprófs í Gagnfræðaskóla Austurbæjar veturinn 1954-55 og síðan sambekkingar allt til stúdents- prófs. Þau árin var ég tíður gestur á heimili Ástríð- ar og manns hennar, Jóns Áxels Péturssonar, for- stjóra Bæjarútgerðar Reykjavfkur og síðar banka- stjóra Landsbanka Islands. Það gustaði stundum af Ástríði í samskiptum við okkur unglingana. Hún lét okkur hispurslaust heyra álit sitt á tiltektum okkar félaganna sem áreiðanlega, eftir á að hyggja, voru ekki allar jafn hrósverðar á þessum árurn. Hún var heldur ekki þeirrar gerðar að skafa neitt utan af skoðunum sín- um og var þá sama hver í hlut átti. En undir skap- heitu yfirborði, sem sumum kannski virtist hrjúft, sló hlýtt hjarta gætt mikilli samúð með þeim sem minna máttu sín. Á þessum árum stýrði Jón Axel einu stærsta út- gerðarfyrirtæki landsins, Bæjanítgerð Reykjavík- ur, og það fór ekki franthjá neinum hve mjög þau bæði, hún ekki sfður en hann, báru hag þess fyrir brjósti sér. BÚR, Alþýðuflokkurinn og Alþýðu- blaðið voru í öndvegi þar á bæ. Um árabil var Jón Axel bæjarfulltrúi í Reykjavík og einn af helstu forystumönnum Alþýðuflokksins. Þá hefur áreið- anlega stundum mætt á húsmóðurinni og ekki allt- af verið næðissamt á Hringbrautinni. í samtölum okkar Ástríðar seinni árin lá hún ekki á skoðunum sínum um pólitíkina og Alþýðuflokkinn. fremuren fyrri daginn, og var órnyrk í máli um aðgerðir eða aðgerðaleysi flokksforystunnar. Ástríður Einarsdóttir hlaut sinn skerf af and- streymi í hTtnu. Hún missti dóttur sína af fyrra hjónabandi, Þóru, í blónta lífsins. Einkasonurinnn, Pétur Axel, lést á besta aldri sumarið 1983, en mann sinn missti hún 1980. Eftir lát Jóns Axels bjó Ástríður ein á Hringbrautinni, en síðustu mánuðina naut hún góðrar umönnunar á hjúkrunardeild Landakotsspítala. í ellinni hafði hún góðan stuðn- ing af bamabömum sínum. Ástríður Einarsdóttir var kona hávaxin og það sópaði að henni. Hún naut þess áreiðanlega alla ævi að hafa verið afrekskona í fimleikum á yngri árum. Hún var vel gerð kona og þeir voru margir sem hún og Jón Axel réttu hjálparhönd, þótt ekki væri hátt um talað. Þegar dró að stúdentsprófi hjá okkur félögunum vorið 1959 þá var það ekki bara einkasonurinn sem var sendur til virðulegs klæð- skera til að láta þar sauma á hann smóking, heldur líka sá sem þetta ritar, þar sem efni voru ekki mik- il í garði. Um það voru ekki höfð mörg orð. Að leiðarlokum þakka ég Ástríði velgjörðir og vináttu. Það geri ég fyrir hönd fjölskyldu minnar og okkar vina Péturs Áxels frá skólaárunum. Guð blessi minningu góðrar konu. Eiöur Guönason STUTTFRÉTTIR Ráðherrafundur Evrópuráðsins Á ráðherrafundi Evrópuráðsins á föstudag var samþykkt aðild Litháens, Eistlands og Slóveníu að ráðinu og eru aðildarríkin þá orðin 29. Hefur stofnunin þarmeð færst nær því markmiði sínu að verða samvinnuvettvangur allra Evrópuríkja. Á fundinum var meðal annars rætt um undirbúning undir leiðtogafund Evrópuráðsins, en fyrirhugað er að halda hann í Vi'narborg í október. Þá var rædd endurskoðun á dómstólakeríl Evrópuráðsins og málefni ríkja fyrrverandi Júgóslavíu. Utan- ríkisráðherra íslands, Jón Baldvin Hannibalsson tók þátt í ráðherrafundinum. Nýr dagskrárstjóri sjónvarpsins Sveinbjörn Ingvar Baldvinsson. rithöfundur, 35 ára, var ráðinn í stöðu dagskrárstjóra inn- lendrar dagskrárdeildar Sjónvarpsins á föstudaginn. Fjórir fulltrúar útvarpsráðs af sjö mæltu með honum í starfið, og útvarpsstjóri réð hann samdægurs. Auk ritstarfa hefur Sveinbjöm unnið tals- vert við fjölmiðlun og er flestum hnútum kunnugur í dagskrárgerð hjá sjónvarpinu. Sveinbjöm er kvæntur Jónu Finnsdóttur, kvikmyndagerðarmanni, og eiga þau tvö böm. Nýkjörin stjórn Rauöu kross Islands. Standandi frá vinstri: Þórir Sigurbjörnsson, Guöjón Einarsson, Guömundur Sniári Guðinundsson, Guðjón Magnússon, formaöur, Anna Brvndfs Hendriksdóttir, Bjarni Arthúrsson, Eggert Á. Sverrisson. Sitjandi talið frá vinstri; Gunnhildur Sigurðardóttir, Árni Gunnarsson, Anna Þrúður Þorkelsdóttir og Þór Halldórsson. Árið 1992 - ár mannvonskunnar „Þöríln fyrir aðstoð Rauða kross hreyfmgarinnar eykst stöðugt bæði vegna náttúruhamfara og neyðar af mannavöldum. Daglega berast okkur frásagnir af hömtulegum atburðum, fjöldamorð- um, pyndingum og grimmd. Það er ekki að ástæðulausu að árið 1992 hefur verið nefnt ár mann- vonskunnar", sagði Guðjón Magnússon, fonnaður Rauða kross íslands í ávarpi sínu til aðalfund- ar félagsins sem haldinn var um síðustu helgi. Starfsemi RKÍ á síðasta ári var mikil og fer vaxandi. A aðalfundinunt voru fleiri fulltrúar en nokkm sinni, þar á meðal fulllrúar þriggja nýrra deilda. Finnski jafnaðarmannaflokkur- inn hefur aukið talsvert fylgi sitt og mældist fyrir skömmu með um 30% fylgi í skoðanakönnun sem gerð var af Gallup í Finnlandi. Það er 7,8% meira fylgi en hann fékk í þingkosn- ingunum árið 1991. Svo virðist sem fylgi flokksins hafi aukist umtalsvert eftir að hann lenti í stjómarandstöðu. Miðflokkurinn finnski virðist hins vegar hafa tapað mestu fylgi eða um 6,5% frá síðustu þingkosningum og rnælist nú vera með rúm 18%. Fylgi annarra llokka virðist haldast nokkuð óbreytt. Meðal orsakanna fyrir auknu fylgi Jafnaðarmannaflokks Finnlands er tal- ið vera erfitt efnahagsástand heima fyr- ir og hörð niðurskurðarstefna stjómar- flokkanna í opinbemm úlgjöldum. Þá eru innan raða flokksins tveir af forset- akandftatar, þeir Kalevi Sorsa og* Martti Ahtisaari. og að sjálfsögðu dregur það þá fram í sviðsljósið. ornun i byggingariðnaði - ráðstefna haldin að Hótel Holiday Inn 18.-19. maí 1993 Dagskrá ráðstefnunnar 12.30 13.10 13.20 13.55 14.20 14.45 15.05 15.35 16.00 16.15 16.30 16.45 17.00 13.10 13.35 13.50 14.05 14.20 14.35 14.45 15.00 15.30 16.15 16.40 17.00 17.10 Fyrri dagur - þriðjudagur Skráning gesta Setning ráðstefnunnar Ingvar Guðmundsson málarameistari formaður Gæðaráðs byggingariðnaðarins Ávarp Eiður Svanberg Guðnason, umhverfisráðherra Gæði.gæðatöp og gæðastjórnun í framkvæmdaferlinu Davíð Lúðvíksson, verkfræðingur, forstöðum. þjónustu og þróunar FÍI og form. Gæðastjórnunarfélags íslands Samskipti og ábyrgð hinna ýmsu aðila í byggingariðnaði Þórarinn Magnússon, yfirverkfræðingur hjá Buseta Fyrirspurnir Kaffiveitingar Gæðakerfi í byggingariðnaði Ólafur Jakobsson, tæknifræðingur Lög um framkvæmd útboða Andrés Magnússon, lögfræðingur hjá Landssambandi iðnaðarmanna Lög og reglugerðir varðandi gæðakröfur í byggingariðnaði Hrafn Hallgrímsson, arkitekt, deildarstjóri byggingar- og skipulagsmála i Umhverfisráðuneytinu Nýbyggingar á fasteignamarkaði Magnús Axelsson, fasteignasali hjá Fasteignasölunni Laufási Fyrirspurnir Lok fyrri ráðstefnudags Síöari dagur - miövikudagur Sjónarmið og væntingar verkkaupa Steindór Guðmundsson, forstöðumaður Framkvæmdadeildar Innkaupast. ríkisins Gæðastjórnun hjá arkitektum Jón Ólafur Ólafsson arkitekt á arkitektastofunni Batteríinu Gæðastjórnun hjá verkfræðingum Ríkarður Kristjánsson, verkfræðingur hjá Linuhönnun hf. Gæðastjórnun hjá verktökum Gunnlaugur Kristjánsson, tæknifræðingur hjá Álftarósi hf. Efling gæðavitundar á lagnasviði Einar Þorsteinsson, tæknifræðingur og deildarstjóri lagnadeildar Rb. Innanhússhönnuðir og gæðastjórnun Sturla Már Jónsson, innanhússarkitekt Fyrirspurnir Kaffiveitingar Gæðastjórnun hjá nokkrum byggingarefnaframleiðendum Steypustöðin BM Vallá hf., Einar Einarsson, verkfræðingur, framleiðslustjóri Málning hf., Daníel Helgason, hagverkfræðingur, framkvæmdastjóri Límtré hf., Guðmundur Ósvaldsson, tæknifræðingur, framkvæmdastjóri Staða gæðatrygginga í byggingar- og verktakaiðnaði í Danmörku Halldór Guömundsson, rekstrartæknifræðingur og deildarstjóri hjá DTI, Byggeteknisk Institut í Danmörku Fyrirspurnir Lokaorð Ingvar Guðmundsson, formaður Gæðaráðs byggingariðnaðarins Móttaka og veitingar í boði Iðnaðarráðuenytis og Umhverfisráðuneytis Ráðstefnustjóri: Sigurður E Guðmundsson, forstjóri Húsnæðisstofnunar Þátttökugjald er kr.8.800 og eru kaffiveitingar og innbundin bók með öllum fyrirlestrum innifalin í verðinu. Þátttöku skal tilkynna til Þings hf., sem er umsjónaraðili ráðstefnunnar, í símum 91-628535, 91-626100 og 91-870310 og um fax nr. 91-626905 og 91-814740. Gæðaráð Byggingariðnaðarins

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.