Alþýðublaðið - 19.05.1993, Blaðsíða 1
GÖNUHLAUP
BORGARSTJÓRA
-kalla minnihlutamenn í borgarstjórn Reykjavíkur bréf borgarstjóra, þar sem hann ósk-
ar eftir að viðskiptum borgarinnar verði beint til Hótel Borgar - borgarráð bíður eftir
skýringum borgarstjóra - veitingamenn mótmœla
Eigendur veitinga- og gisti-
staða mótmæltu í gær „þeim
vinnubrögðum æðsta embættis-
manns borgarinnar að mælast til
þess við aðra embættismenn að
þeir beini viðskiptum Reykjavík-
urborgar sérstaklega til eins til-
tekins fyrirtækis, þegar um
fjöldamörg sambærileg fyrirtæki
er að ræða í Reykjavík“, eins og
segir í bréfi til borgarráðs.
Jafnframt spyr stjóm Samband
veitinga- og gistihúsa hvort það sé
ný stefna borgaryfirvalda að koma
á einokun í viðskiptum með tilskip-
unum frá borgarstjóra.
Bréf borgarstjóra til undirmanna
sinna um viðskipti þessi, sem eru
við Hótel Borg, komu til umræðu í
borgarráði með viðeigandi tillögu-
flutningi og bókanastríði. Borgar-
fulltrúar minnihlutans vildu með
tillögu að tilmæli borgarstjóra yrðu
dregin til baka. Fulltrúar sjálfstæð-
ismanna sögðu aftur á móti að mál-
ið snerist um embættisathöfn borg-
arstjóra, ekki pólitíska stefnu Sjálf-
stæðisflokksins eins og gefið væri í
skyn, né heldur afstöðu einstakra
fulltrúa llokksins í borgarráði. í
bókun sjálfstæðismanna segir að
fjarvera borgarstjóra, sem nú er í
Svíþjóð, geri það að verkum að
honum veitist ómögulegt að skýra
forsendur embættisathafnar sinnar.
Var því lagt til að afgreiðslu máls-
ins yrði frestað.
Minnihlutinn bókaði þá og lýsti
yfir vanþóknun á því sem kallað
var „gönuhlaup borgarstjóra". Slík
íhlutun í markaðsaðstæður og við-
skiptalíf veitingahúsanna er að
okkar viti ekki einungis misbeiting
valds, heldur einnig alvarlegur
trúnaðarbrestur gagnvart borgar-
stjóm Reykjavíkur, sem hefur
skyldunt að gegna við alla þá aðila
sem greiða opinber gjöld í borgar-
sjóð“, segir í bókuninni. Segir þar
ennfremur að Hótel Borg eigi ekki
að njóta neinnar sérstöðu, allra síst
eftir alla þá fyrirgreiðslu sem hótel-
ið hefur þegar hlotið í fonni sér-
stakra vildarkjara varðandi kaup og
endurbætur á hótelinu.
Mál þetta er í biðstöðu þar til
Markús Öm Antonsson, borgar-
stjóri, kemur heim aftur.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Herrahorn ó Vori '93 í Hofnarfirði
Það var allt á tjá og tundri við undirbúning sýningarinnar Vor '93 sem
opnar á morgun í íþróttahöllinni í Kaplakrika í Hafnarfirði. Pessi bás var
enn sem komið var hálfgert herrahorn, enda á vegum verslunar með það
nafn. Meira um sýninguna í opnunni.
S|á grein Guðmundar Oddssonar
- Bændur, ég skal passa ykkur ef þið
passið mig! - BAKSÍÐA.
í tilefni af sýningunniVor '93 þá býður Byggðaverk hf„ fullbúnar 2ja
og 4ra herbergja íbúðir á sérstöku 30 daga kynningarverði.
. Frágangur: íbúðirnar afhendast fullbúnar með öllum
\ gólfefnum, innréttingum og taekjum, sameign er
^ fullfrágengin og lóð er þökulögð.
Afhending: "
\ I v \ ' Fyrstu íbúðirnar afhendast ý/'
1 aPr|l 1994 og þær síðustu
‘ júní sama ár. t
TxVerð:
^,2ja herb. fullbúin íbúð
kr. 5.800 þús.
4ra herb. fullbúin íbúð
kr. 7.900 þús.
Stæði í bílskýli kr. 200 þús
samanburð
Grunnmyndir íbúða í einum stigagangi
Dæmi um greiðslukjör:
4ra herb. 2ja herb.
Staðfestingargjald: 200 þús. 200 þús.
Húsbréf: 5.135 þús. 3.770 þús.
Samkomulag: 2.565 þús. 1.830 þús.
Samtals: 7.900 þús. 5.800 þús.
FLETTURIMI 31-35
Greiðslukjör okkar hafa alltaf verið með
því besta sem þekkist.
Lítið á aðstæður á byggingarstað.
Hringið og fáið sendan litprentaðan
bækling með frekari upplýsingum.
Opið sunnudag
frá kl. 1-3
ls\l byggðaverk hf.
Reykjavíkurvegi 60, 220 Hafnarfírbi.
Sími 54644, fax 54959