Alþýðublaðið - 02.06.1993, Qupperneq 5
Miðvikudagur 2. júnf 1993
5
Er harmleikur að hœtti „Júgóslavíu“ í uppsiglingu?
Blóðug fortíð vitjar Transylvaníu
- Tœplega tvœr milljónir Ungverja búa í Rúmeníu og spennan vex í Transylvaníu sem verið hefur bitbein Ungverja
og Rúmena um aldir. Þjóðernisöfgamenn í lykilstöðum
Fréttaskýring: Hrafn Jökulsson
„Rúmenskir hermenn hafa tvisvar á öldinni komið til
Búdapest,“ segir Gheorghe Funar, rúmenskur stjórn-
málamaður sem hefur sópað til sín fylgi með hatursfullum
áróðri gegn ungverska minnihlutanum í Rúmeníu. Hon-
um hefur verið líkt við Milosevic, forseta Serbíu, og sjálf-
ur segir Funar að blóðugt borgarastríð geti hafist í Rúm-
eníu - og jafnvel stríð milli Rúmeníu og Ungverjalands.
Hann segir: „Rúmenar rata til Búdapest, og hvort þetta
gerist allt aftur, veltur eingöngu á aðgerðum ungverskra
stjórnvalda.“
Funar er borgarstjóri í Cluj-Na-
poca, stærstu borg Transylvaníu í
Rúmeníu. Transylvanía hefur öld-
um saman verið bitbein Ungverja
og Rúmena og þar býr nú 1,8 millj-
ón manna af ungverskum uppruna.
Heildaríbúafjöldi Rúmeníu er um
24 milljónir.
Transylvanía var hluti Ungverja-
Iands frá elleftu til sextándu aldar;
tilheyrði Tyrkjaveldi á sextándu og
sautjándu öld en varð aftur hluti af
Ungverjalandi á nítjándu öld. Eftir
ósigur Austurríkis-Ungverjalands í
fymi heimsstyrjöldinni varTransyl-
vanía innlimuð í Rúmeníu sem
hafði barist með bandamönnum. I
seinni heimsstyrjöldinni endur-
heimtu Ungverjar tvo fímmtu hluta
Transylvaníu en í stríðslok fengu
Rúmenar aftur yftrráð yfir öllu
landsvæðinu.
ÁRÓÐUR HATURSINS
Funar komst til valda í Cluj-Na-
poca með stuðningi rúmenskra
bænda sem flosnuðu í stórum stfl
upp af jörðum sínum á valdaárum
Ceausescus og fengu störf í verk-
smiðjum í borginni. Atvinnulíf
Rúmeníu er í rúslum og verksmiðj-
umar í Cluj-Napoci þagna ein af
annarri. Funar skellir skuldinni á
ungverska minnihlutann. Hann er
eitursnjall lýðskrumari og áróður
hatursins færgóðan hljómgrunn hjá
rúmenskum kjósendum. Funar varð
þriðji í síðustu forsetakosningum í
Rúmeníu.
CFAUSESCU VAR
„GOÐUR RUMENI“
Funar hikar ekki við að segja að
Nicolae Ceausescu liafi verið „góð-
ur Rúmeni" - einu mistök hans hafi
verið linkind gagnvart „ótryggum"
Ungverjum. Þau mistök ætlar Fun-
ar ekki að endurtaka. Líkt og hinn
sálaði harðstjóri er Funar þeirrar
skoðunar að einræði sé besta stjóm-
arformið.
Funar hefur lagt bann við fund-
um Ungverja og skellt skollaeyrum
við óskum þeirra unr að þeir fái að
læra og nota móðurmálið í skólutn.
Hann hefur jafnvel gengið svo
langt að láta fjarlægja götumerk-
ingar senr voru á ungversku.
í viðtali við Michael Bond,
fréttaritara The European þvertók
Funar fyrir að hann hefði eittlrvað á
nróti Ungverjum: „Enginn Rúmeni
Irefur neitt á móti Ungverjum. Það
er hinsvegar sorglegt að ungverska
minnihlutanum er í nöp við Rúm-
ena.“
Hann sakar stjómina í Búdapest,
höfuðborg Ungverjalands, um að
vinna leynt og ljóst að því að inn-
lima Transylvaníu og koma á lagg-
imar Stór-Ungverjalandi: „Ung-
verska þjóðin er haldin sjálfs-
morðshvöt og ég spái því að hún
reyni að ná þessum landsvæðum
með valdi.“ Afleiðingarnar? Jú,
eitthvað svipað og í Júgóslavíu.
STJQRNIN í BÚDAPEST
AHYGGJUFULL
Ungverjaland nútímans nær ekki
yfir nema hluta þess landsvæðis
sem eitt sinn tilheyrði hinu volduga
ríki þeirra. Stjómin í Búdapest hef-
ur lýst áhyggjum af afdrifum Ung-
verja, sem eru fjölmennir í Slóvak-
íu, Serbíu og Rúmeníu. Og ekki að
ástæðulausu.
f Slóvakíu eru um 600.000 Ung-
verjar mjög uggandi um sinn hag
enda eru þeir skotspónn slóvakískra
Funar: Rúmenar rata til Búdapest... Ótrygg framtíð: Ungversk born í Rúmeníu.
Babes-Bolayi háskolinn í Cluj: „Greni fasista, kommúnista og Gyðinga."
var ungverskur háskóli til 1959
þegar kommúnistar innlimuðu
hann í rúmenskan háskóla og lok-
uðu öllum ungverskum deildum.
Borgarstjómin í Cluj neitaði að
verða við beiðni Ungvetja og ákvað
að láta borgarbúa greiða atkvæði
um málið. Telja má víst að þar
verði tillagan kolfelld enda eru
Rúmenar 80% íbúa í Cluj. Funar
sagði í ræðu við þetta tækifæri að
háskólinn hefði á sínum tíma verið
„greni fasista, kommúnista og Gyð-
inga“, og hvatti borgarbúa til að
leggjast af alefli gegn öllum áform-
um urn að háskólinn yrði endur-
reistur.
Fréttaskýrendur telja að ofsókn-
arbrjálæði Funars gagnvart Ung-
verjum eigi sér litla stoð í veruleik-
anunt, en benda á að stjómin f
Búdapest hefur neitað að fella niður
landakröfur á hendur Rúmenum
nema Ungverjamir í Rúmeníu fái
sjálfsstjóm af einhverju tagi.
Smaranda Enache, sem býr í
Tirgu Mures og er kunn baráttu-
kona fyrir mannréttindum, segir að
valdhafar í Búkarest noti ungverska
minnihlutann sem blóraböggul þar-
sem efnahagur landsins sé í rústum.
„Ýmsir hópar í Iöndunum báðum”
tala um Stór-Rúmeníu eða Stór-
Ungverjaland," segir hún. „Mesta
hættan er fólgin í því að þjóðemis-
sinnar komist til valda í Búkarest
eða Búdapest - og það er alls ekki
útilokað ef efnahagsástandið versn-
ar enn meira."
FUNAR í LYKILSTÖÐU
I RUMENIU
Funar, sem er mest áberandi af
þessum þjóðemissinnum, er létt-
vægur metinn sem öfgamaður af
Vestur-Evrópu. En hann er borgar-
stjóri stærstu borgar Transylvanfu
og formaður Þjóðareiningarflokks
Rúmeníu - sem gegnir lykilstöðu í
samsteypustjóm Ions Iliescus. Eng-
um í Rúmeníu eða Ungverjalandi
dettur í hug að gera lítið úr Funar.
Blóðug fortíð Transyivaníu gæti
endurtekið sig. Þjóðemisofstæki og
hatur eru þau fræ sem best dafna í
jarðvegi fátæktar og ótta. Bóndi
nokkur orðaði þetta svo í samtali
við blaðamann: „Ungverjamir í
þessu landi hafa tekið hamileik að
erfðum. Nú emm við hrædd."
Byggt á The European/H.J.
þjóðernissinna. í sjálfsstjómarhér-
aðinu Vojvodina, í norðurhluta
Serbíu, búa um 400.000 Ungverjar.
Stríðið í fyrrunt „Júgóslavíu" hefur
enn ekki teygt sig inn fyrir landa-
inæri Serbíu, og ekki hafa borist
miklar fréttir af illri meðferð á Ung-
verjunum þar. Ekki er Iíklegt að
Serbar láti til skarar skrfða gegn
þeim í bráð, enda þótt stjómin í
Búdapest sé Króötum hliðholl í
stríðinu.
Utan heimalandsins em Ungverj-
ar langfjölmennastir í Rúmeníu.
Þeir hafa nú stofnað eigin stjóm-
málaflokk sem skiptist í tvær fylk-
ingar. Sumir krefjast sjálfsstjórnar
en aðrir eru reiðubúnir að fallast á
hógværari lausnir. Laszlo Tokes,
biskup og hetja frá byltingunni
1989, er leiðtogi þeiiTa Ungverja
sem lengra vilja ganga. Það vakti
mikið fjaðrafok þegar hann lét svo
um mælt í heimsókn til Búdapest í
febrúar að Ungverjar í Transylvan-
íu ættu yfir höfði sér „þjóðhreins-
un“.
ÓTTAST BLÓÐBAÐ
Ungverjamir í Transylvaníu hata
og óttast Gheorghe Funar. Peter
Kovacs, fyrmm þingmaður sem nú
er einn af leiðtogum stjómmála-
hreyfingar Ungverja f Cluj, sagði f
viðtali við The European: „Það er
uggvænlegt að maður með svo
öfgafullar skoðanir geti náð þvílík-
um völdum með því að spila eftir
reglunum. Mesta hættan er fólgin í
hæffleika hans til að spila á þjóð-
emistilfinningar rétt eins og hann
væri að leika knattspymu."
Fyrir þremur árum leiddi útrás
þjóðemisofstækisins til stórfellds
ofbeldis gegn Ungverjum í bænurn
Tirgu Mures, skammt frá Cluj. Sex
rnanns vom drepnir.
Þeir sem tilheyra hægfara amii
hreyfingar Ungverja íTransylvaníu
óttast blóðbað ef gerðar verði of
miklar kröfur.
„GRENIFASISTA,
KOMMUNISTA OG GYÐ-
INGA!“
Ungverjamir í Cluj hafa krafist
þess að hinn 120 ára gamli Babes-
Bolayi háskóli verði aftur bækistöð
ungverskra mennta. Babes-Bolayi
Vinningstölur laugardaginn:
29. maí 1993
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
| 5 af 5 0 2.261.496
+4af 5 1 393.054
043.5 79 8.582
033.5 2.943 537
Aöaltölur:
BÓNUSTALA:
Heildarupphæð þessa viku:
kr. 4.912.919
UPPLÝSINGAR, SIMSVARI 91- 88 15 11
LUKKUUNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451