Alþýðublaðið - 08.06.1993, Blaðsíða 5
Þriðjuudagur 8. júní 1993
MENNINGIN
5
/
Oháð listahátíð í Reykjavík
Sjö hundruð
leika listir sínar
Pað verður líf og fjör í Reykjavík út
júnímánuð og list af öllu tagi blómstrar.
Oháða listahátíðin er nú haldin annað ár-
ið í röð af fjölmennri sveit listamanna úr
öllum áttum. Það þarf dauðan mann til
að finna ekki eitthvað við sitt hæfi: Rokk,
jazz, nútímatónlist, dans, leiklist, bók-
menntir, kvikmyndir, myndlist, Ijós-
myndir, gjörningar og spuni eru á dag-
skránni.
Listahátíðin hefst á morgun klukkan 16 á
uíitaflinu við Lækjargötu með „Slagverk-
sorgíu" á vegum samtaka sem bera hið til-
komumikla nafn Regnhlífarsamtök um Al-
mennan Spuna. Öllum er frjálst að koma og
leika á slagverk í þessari „tónaorgíu.
Annað kvöld, frá klukkan átta til eitt eftir
miðnætti, verður rokkað og rólað í Faxa-
skála (gegnt Seðlabankanum), af sveitum
sem ýmist eru nýskriðnar út úr bílskúmum
ellegar hafa skipað sér í fremstu víglínu ís-
lenskrar tónlistar. Nöfn sveitanna bera auð-
ugu ímyndunarafli ungra íslenskra tónlistar-
manna vitni: Slipidídú, Mistök, The dum
Blonde brunette duet, Speni frændi og sifja-
spellamir, Súkkat, Reptillicus og stórsveitin
Todmobile. Verð aðgöngumiða er 800
krónur.
Tónlist af öðmm toga svífur yfir vötnum í
Tjamarsal á sama tíma annað kvöld. Þar
verða tónleikar ungra tónskálda. Flutt verða
verkin Flautufuglinn eftir Elínu Gunnars-
dóttur, Um ljóð og notendur eftir Hildigunni
Forsprakkarnir. Óháða listahátíðin kynnt: Rokk, jazz, nútímatónlist, dans, leiklist, bókmenntir,
kvikmyndir, gjörningar, spuni, myndlist, Ijósmyndir... (E.ÓI.)
Rúnarsdóttur og Vita in Camefassus (Líf í
kjötfarsi) eftir Jón Guðmundsson. Flytjend-
ur em flestir ungir og að sama skapi efnileg-
ir: Helga Sighvatsdóttir, Þórunn Bjömsdótt-
ir, Ragnheiður Haraldsdóttir, Helga Jóns-
dóttir, Hallveig Rúnarsdóttir, Hildigunnur
Halldórsdóttir, Sigurður Halldórsson, Am-
geir Heiðar Hauksson, Jón Guðmundsson
og Kolbeinn Einarsson. Miðaverð er aðeins
300 krónur.
Næstu daga og vikur rekur sfðan hver
viðburðurinn annan. Tónleikar verða tíðir í
Faxaskála, og alls munu um 90 hljómsveitir
troða upp. Kaffihús miðborgarinnar verða
vettvangur skálda og fleiri listamanna; en
alls leggja um sjö hundmð manns hönd á
plóginn og leika listir sínar fyrir borgarbúa.
Listahátíð í Hafnarfirði
Fljúgandi start og
f jölmenni við opnun
- 3000-4000 manns á opnunarhátíðinni í Kaplakrika
Listahátíðin í Hafnarfirði hófst með
glæsibrag á föstudagskvöldið þegar vel á
fjórða þúsund manns komu á tónleika í
Iþróttahúsinu í Kaplakrika. Hátíðin hófst
með tónleikum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands, söng hafnfirskra kóra og einsöng
Sigrúnar Hjálmtýsdóttur.
Við upphaf tónleikanna fluttu ávörp
Gunnar Gunnarsson, formaður stjómar
Listahátíðar í Hafnarfirði og Guðmundur
Ámi Stefánsson bæjarstjóri, sem setti hátíð-
ina. Síðan var flutt verkið Gloria eftir Pou-
lenc fyrir hljómsveit, kór og einsöngvara og
síðar Sinfónía nr. I eftir Brahms. Þetta voru
seinustu tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar undir stjóm Finnans Petri
Sakari.
Guðmundur Ámi sagði í
opnunarávarpi sínu m.a: „Við
Hafnfirðingar höfum notið
þessum um langan aldur að
eiga hér í bænum frábært lista-
fólk og með reynslu þess og
fagmennsku í för, ásamt vilja
bæjaryfirvalda til að gera enn
betur á vegi listar og menning-
ar, hafa kraftar leyst úr læðingi
- þeir eldri eflst og yngri græð-
lingar skotið rótum og síðan
látið til sín taka.“
En um stefnu Hafnfirðinga í
menningu og listum sagði
Guðmundur Ámi að fmm-
kvæði, stjóm og listræn ábyrgð
væri eingöngu á hendi lista-
mannanna sjálfra en af bæjar-
ins hálfu nytu þeir fjárhagslegs
og siðferðilegs stuðnings.
„Með þessu móti er nýttur
frumkraftur listamannanna
sjálfra, hugmyndaauðgi þeirra
og víðsýni en á sama hátt forð-
að formfastri miðstýringu. En
til þess að svona módel gangi upp þarf að
vera fyrir hendi gagnkvæmur skilningur
allra aðila og vilji til samstarfs. Þessar for-
sendur hafa verið til staðar og því hlutir
gengið fram með albesta móti.“
A laugardaginn opnaði ÓlafurG. Einars-
son menntamálaráðherra sýningu myndlist-
armannanna Manuels Mendives frá Kúbu
og Alherto Gutierrez frá Mexíkó í Hafnar-
borg, en Jóna Ósk Guðjónsdóttir, forseti
bæjarstjómar, flutti þar ávarp. Sama dag
vom opnaðar sýningar Rögnu Róhertsdótt-
ur og þýska myndlistarmannsins, Mario
Reis, í Portinu.
Á sunnudaginn, sjómannadaginn, hélt
Peter Mate píanótónleika í Hafnarborg við
geysigóðar undirtektir áhorfenda. Þessi
tékkneski píanósnillingur, sem starfað hef-
ur síðustu árin á Stöðvarfirði og Breiðdals-
vík, er afar kröftugur píanóleikari og
skemmtilegur en hann frumflutti m.a.
Ballöðu, verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson.
I kvöld sýna 6 dansarar og tónlistarmenn
afró-kúbanska dansa við eigin söng og und-
irleik f Hafnarborg. Þeir em í rauninni stef
við verk Mandives sem málar andlit þeirra
og líkama áður en þeir hefja dansinn. Fram-
undan er svo fjölbreytt dagskrá á listahátíð-
inni sem mun standa út júnímánuð.
Sinfóníuhljómsveit íslands, hafnfirskir kórar og Sigrún Hjálmtýsdóttir á sviðinu í Kaplakrika
A-mynd: E.ÓI.
M íl N N I N (
Skáld á eyðieyju
Á dögunum kom út hjá Forlaginu ný ljóðabók
Jóns Stefánssonar, Hún spurði hvað ég tæki með
mér á eyðieyju. Jón (f. 1963) hefur áður gefið út
tvær ljóðabækur, Með byssuleyfi á eilífðina,
1988, og Úr þotuhreyflum guða, 1989, og hefur
skipað sér á bekkinn góða meðal okkar alefni-
legustu skálda. Yrkisefni Jóns em af ýmsum
toga, en ástin er þó sá rauði þráður sem skáldið
les sig eftir bókina út í gegn. Bók sem ljóðaunn-
endur ættu ekki að láta framhjá sér fara.
Tónleikar í Sigurjónssafni
Á tónleikum í Sigurjónssafni í kvöld kl. 20.30 koma fram Hermann Stefánsson
klarinettuleikari og Kiystyna Cortes píanóleikari. Á efnisskránni em athyglisverð
öndvegisverk: Sónata nr. 2 í E-dúr eftir Johannes Brahms, Dansprelúdíur eftir Witold
Lutoslawski, Not a toccata eftir Eirík Öm Pálsson og Sónata eftir Francis Poulenc.
Hermann hóf klarinettunám hjá Þóri Þórissyni á Akranesi, 14 ára gamall, en nam síð-
ar í Svíþjóð, Rotterdam og Los Angeles. Hann starfar nú sem sólóleikari með Sinfón-
fuhljómsveit Helsingjaeyrar. Krystyna Cortes er fædd í Englandi. Hún lauk einleik-
araprófi frá Royal Academy of Music í Lundúnum árið 1969 og fluttist til íslands ár-
ið eftir. Hún hefur síðan tekið virkan þátt í tónlistarlífinu hérlendis, bæði sem einleik-
ari og píanóleikari með öðmm hljóðfæraleikumm og söngvumm.
Gamlir atvinnuhættir í Árbæjarsafni
Gestum Árbæjarsafns í sumar gefst skemmtilegt tækifæri til að fá innsýn í atvinnu-
hætti veraldar sem var. Þannig verða ýmis verkstæði opin á safninu alla daga nema
mánudaga. Prentari og bókbindarar verða við vinnu í Miðhúsi og á gullsmíðaverk-
stæðinu í Suðurgötu 7 verður gullsmiður að störfum flesta daga. Hann mun vinna við
að gera eftirlíkingar af skartgripum sem fundist hafa við fomleifauppgröftinn í Viðey
undanfarin ár. I gamla Árbænum svokallaða verður einnig fjölbreytt starfsemi; konur
sinna tóvinnu og Árbæjarbóndinn skepnuhirðingu. I sumar verður í fyrsta sinn kýr í
fjósi allt sumarið, auk kinda á túni og hænsna sem vappa um víða völlu.
Hh SAGA Or
VOLSUNGi
Thi Norsi’ Knc ot
SiGURD THE D.RAGON Sl
IrttHKÍucilon and Trantiation b
JESSE L BYOCK
íslensk fræði á ensku
Út em komnar hjá enska forlaginu Hisarlik Press bækumar The Saga of the Vols-
ungs og Medieval Iceland, Society, Sagas and Power. Jesse L. Byock, prófessor í nor-
rænum fræðum við Háskólann í Kalifomíu, bjó Völsungasögu til prentunar og ritaði
inngang. Hann er ennfremur höfundur sagnfræðiritsins um ísland á miðöldum. Byock
hefur hlotið mikið lof fræðimanna fýrir rit sín sem þykja bera vott um snerpu og fmm-
leika, og skýra og skemmtilega framsetningu.