Alþýðublaðið - 25.06.1993, Side 9
Föstudagur 25. júní 1993
9
FERÐAST UM ÍSLAND
Með Baldri yfir Breiðafiörð
Strandir
GIST A VESTASTA HOTELIEVROPU
Vestfjarðqferð má allt eins hefja í Stykkishólmi, og suðurferðin á Brjánslœk á Barðaströnd. Flóa-
báturinn Baldur, sá nýi, er kominn í gagnið og ferðafólki fjölgar semfer úr Hólminum og þaðan
yfir að Brjánslœk með Baldri, sumir með bíla sína með sér.
áætlunarbílsins við
Hrikaleg fjallasýn
Vestfjarðaleið tengir áætlun sína
við Baldur og er það mjög til bóta. I
stuttu máli er þjónusta Vestfjarða-
leiðar þannig að fólki gefst kostur á
að halda til Breiðuvíkur og gista þar
á vestlægasta hóteli Evrópu og
skoða í leiðinni Látrabjarg, sem
margir munu hafa gaman af. Hins-
vegar er ekið til Isafjarðar. Þetta er
góð tenging, og það sama má segja
um tengingu
Hólmavík.
Þeir sem velja Breiðuvík til gist-
ingar eiga kost á að fara með Vest-
IJarðaleið að kvöldlagi út á bjargið,
en þangað er 20 mínútna akstur.
Bjargið er vestasti oddi Evrópu.
Þeir á Azoreyjum hafa viljað eigna
sér þetta tignarheiti, en það er hæp-
in landafræði að sá eyjaklasi í
miðju hafinu tilheyri Evrópu, þótt
Portúgalsmenn ráði þar ríkjum.
Þama vestast í Evrópu gefst
mönnum kostur á svefnpokaplássi í
góðu rúmi í sérherbergi, eða uppá-
búnu rúmi fyrirHítið fé. Hægt er að
skjótast með stöngina í silungsveiði
og fjallgöngur og fjöruráp eru vin-
sæl afþreying.
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Líffræðikennari
(1/1 staða)
og
Hjúkrunarkennari
(1/1 staða)
óskast að skólanum næsta skólaár.
Umsóknir berist eigi síðar en 1. júlí nk.
Skólameistari
Land til leigu
Leigutilboð óskast í hluta jarðarinnar Sogn í Ölfusi til ársloka 1996.
Um er að ræða land sunnan og vestan vegar að Vistheimilinu og að
landamörkunum að vestan, ásamt útihúsum og spildu kringum þau.
Ræktað land er um það bil 40 ha og óbrotið land um 40 ha.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri að Borgartúni, 7, Reykjavík
föstudaginn 2. júlí 1993, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
nOHOAHTUNI 7. 10S RE tKJAVIK
Strandaskoðun er einn af
áhugaverðu möguleikunum
fyrir ferðafólk, sérstaklega
þá sem heillast af hrikaleg-
um fjöllum. Af þeim er nóg
norðarlega á Ströndunum.
Frá Hrútafjarðarbotni er
landslagið fremur rólegt,
lágir ásar og fjöll, en norð-
an Hólmavíkur og allt norð-
ur í Ingólfsfjörð er landslag-
ið stórskorið og hrikalegt,
og gerist ekki öllu tilkomu-
meira á landi hér.
Vegir norður að Eyri við Ingólfs-
íjörð eru yfirleitt heldur slakir, en
Strandavegur að sunnanverðu og til
Hólmavíkur oftast með miklum
ágætum og fer batnandi ár ffá ári,
malbikuðu köflunum íjölgar á
hverju sumri.
Ströndum hefur talsvert verið
gert til að taka almennilega á móti
ferðamönnum. I Djúpuvík, þar sem
Hrafn Gunnlaugsson tók hina
meistaralegu kvikmynd sína, Blóð-
rautt sólarlag, er nú starfrækt hótel -
meira að segja allan ársins hring.
Það verður ekki annað sagt en að
þar er skemmtilega staðið að verki
hjá ungum hótelhöldurum staðar-
ins. Þeim var ekki spáð góðu í byij-
un, en vel hefur ræst úr hjá þeim.
Djúpavík er líka skemmtilega
draugalegt þorp, minningar liðinna
stórveldisára eru þar á hveiju strái, -
en sjómenn hafa þama sumardvöl
og róa á miðin og koma inn með
þann gráa undir kvöld og landa við
bryggjumar.
ORUGG OG ANÆGJULEG
... eru ekki tryggð nema með vönduðum ferðakortum.
An þeirra verða ferðalög lítið annað en vegurinn framundan
og fjöllin nafnlausar þústir í landslaginu.
FERÐUMST ALDREIÁN K0RTA!
Korlaverstun
OPNUNARTÍMI:
9-18 Mánud. - Föstud. (Sumar)
10-17 Mánud. - Föstud. (Vetur)
IANDMÆUNGAR
ISLANDS
i i i i
LAUGAVEGUR 178-105 REYKJAVÍK • SÍMI (91) 680 999
Bátsferð, göngutúr,
rómantík og fuglasöngur
Gómsætar veitingar...
N j óttu þess b esta
...og gisting í
fallegu umhverfi
-njóttu þess á Hótel Valhöll
/ ••
Einstök n á tt ú r u f eg u r ð
og friðsæld
U a t c k u r c k k i n c m a 3 S m í n ú t n r a ð
a k a f r á R c y k j a v í k t i l Þ i n v a 11 a
HOTEL VALHOLL
ÞINGVOLLUM - SIMI 98 22 6 22 - FAX 98 21553