Alþýðublaðið - 25.06.1993, Page 14
14
Föstudagur 25. júní 1993
FERÐAST UM ÍSLAND
Jökulsárgljújur
NÁTTÚRUPARADÍS SEM
ENGINN ÆTTIAÐ MISSA AF
Þeir sem ekki hafa komið í Jökulsárgljúfur œttu að gera sér ferð þangað. Þama eru einhver allra sérstœðustu náttúruundur landsins, fegurð sem engu er lík. Trúlega
eru þeir margir, íslendingarnir sem eiga eftir að upplifa þessi undur, Dettifoss, Ásbyrgi, Hljóðakletta og Hólmatungur.
Dettifoss er 44 metra hár, mikilúðlegur og vatnsmikill foss í Jökulsá á Fjöll-
um. Hægt er að aka að fossinum frá þjóðveginum að austan, en jeppafært að
vestan, en þaðan að sjá er fossinn e.t.v. enn hrikalegri og stórfenglegri. Með-
alrennslið í fossinum er 193 rúmmetrar vatns á sekúndu, ekki lítið það og ekki
undarlegt þótt stundum sé minnst á virkjun hans, því með slíku reginafli
mætti framleiða 300-400 þúsund kílóvött. Þessi umræða blossaði upp að nýju
fyrir skömmu - og þarf engan að undra að hún fellur flestum afar miður og
þarf ekki að undra það.
Jökulsárgljúfur eru fyrir neðan Detti-
foss, hyldjúp og stórbrotin. Þama ættu
menn að fara varlega. Danskur maður féll
eitt sinn 80 metra fall niður í gljúfrið, en
hafði heppnina með sér, kom fyrst niður á
grasflesju, meiddist furðu lítið, en náðist
ekki úr gljúfrinu fyrr en eftir margar
klukkustundir. Náði hann sér eftir fallið og
var síðast þegar fréttist læknir í Svíþjóð.
Hólmatungur er hlið í gljúfri Jökulsár
að vestan, vaxin miklum gróðri, bæði kjarr-
og grasgróðri, og þar eru fallegar stuðla-
bergsmyndanir í klettum. Mikið og fagurt
sjónarspil. I Hólmatungum er Gloppuhellir,
skepmtileg smíð náttúrunnar.
Asbyrgi er stórkostlegt náttúrufyrirbæri,
skeifulaga jarðfall rétt fyrir vestan Jökulsá.
Hamraveggimir em allt að 100 metra háir,
lægstir ffemst en fara síðan hækkandi eftir
því sem innar dregur. Inni í skeifunni er
tjöm sem heitir Botnstjöm og umhverfis
hana mikill birkigróður. I miðri hamra-
kvínni, sem er allt að 4 kfiómetrar að þver-
máli, rís mikið bjarg, sem kallast Eyjan.
Skiptir hún byrginu í tvennt.
I Asbyrgi hafa fundist sjávarminjar
frá löngu liðnum tímum. Menn hafa oft
komið fram með kenningar um hvernig
svo reglulega lagað skeifufar myndaðist
á þessum stað. Sagan segir að þarna hafi
Sleipnir, hestur Oðins, tyllt niður faeti.
Aðrir telja raunar líklegra að þarna hafi
verið árfarvegur Jökulsár í fyrndinni.
I Asbyrgi er gott tjaldstæði og þar er
sannarlega gott að vera, margt sem ber
fyrir augu og veðursæld mikil.
3 Góðir saman
K
Umboösmenn um iand allt: Á.G. Guðmundsson sf„ Húsavik • Asbyrgi hf„ Akureyri • Asgeir Bjömsson, Siglufirði • Guðrún sf„
Vopnafirði • Hafsteinn Vilhjálmsson, Isafirði • Reynir sf„ Blönduósi • Sigbjöm Brynjólfsson, Egilsstöðum • Svanberg hf„ Vest-
mannaeyjum • Umboðssala Rósu Bachmann, Patreksfirði •
Góðgætifrá Góu...
Umboðsmenn um land allt: A.G. Guðmundsson sf„ Húsavfk • Asbyrgi hf. Akureyri • Asgeir Björnsson, Siglufirði • Guðrún sf„
Vopnafirði • Hafsteinn Vilhjálmsson, Isafirði • Reynir sf„ Blönduðsi • Sigbjöm Brynjólfsson, Egilsstöðum • Svanberg hf„ Vest-
mannaeyjum • Umboðssala Rósu Bachmann. Patreksfirði •
fBMHMMBmaHMamMSM!
25 ára 1992
ÁSBYRGI - kynngimögnuö náttúrusmíð sem allir ferðamenn verða býsna skotnir í.
IALDUR
FERJA YFIR BRElÐAFJÖRÐINh
Stykkishólmi, S 93-81120,
Sigling
með Baldri
yfir Breiðafjörðinn
er ekki bara hagkvæm
stytting á langri leið, heldur
ógleymanleg ferð með fagra
ljallasýn og viðkomu
perlu Vesturlands,
Flatey.
Fax 93-81093 - Brjónslœk, "S 94-2020
Austfirðir
Elstu jarðmyndanir landsins
- íþeim er aðfinna ýmsa fagra og
litríka steina
Fjallgarðar Austfjarða, frá Vopnafirði í
norðri til Homafjarðar í suðri, eiga það sam-
eiginlegt frá jarðfræðilegu sjónarmiði að telj-
ast til elstu jarðmyndana íslands og eru hlið-
stæða mikils hluta Vestfjarða. Austfirðir em að
miklum hluta til úr hörðu og góðu blágrýti,
sem hlaðist hefur upp í tímanna rás og myndað
þykkan stafla jarðlaga. Á Austfjörðum telja
vísindamenn að ekki sé lengur um eldvirkni að
ræða. Samvkæmt landrekskenningunni hefur
þetta svæði rekið til austurs frá hinu virka jarð-
eldabelti.
Fjöll Austfjarða em sannarlega rismikil
fjöll, 800 til 1200 metra há, aðskilin af djúpum
dölum og Ijörðum, landslag sem jöklar síðasta
ísaldarskeiðs skópu. Af þessum er Reyðar-
fjörður mestur fjarðanna, en inn í hann norðan-
verðan skerst Eskifjörður.
Elstu jarðlög Áustíjarða em við Gerpi,
skammt norðan við mynni Reyðarfjarðar, við
austasta odda landsins. Aldur þessara jarðlaga
er talinn vera 13 milljónir ára.
Hið gamla berg Austfjarða býður upp á ým-
islegt óvænt. Steinar þar em með öðm og
skrautlegra móti en víðast hvar gerist hér á
landi. Mjög víða á fjörðunum finnast svokall-
aðir geislasteinar í blágrýtinu, en Teigarhom
við Berufjörð er þekktasti fundarstaður slíkra
kristalla hér á landi. Austfirskir steinar geta
verið með ýmsu móti, margir afar fallegir, og
má skoða þá m.a. í Steinagarði Petm Sveins-
dóttur í Sunnuhlíð á Stöðvarfirði.
Vinn
Mm
ngstölur
23. júní 1993
| VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ A HVERN VINNING
j 6 af 6 2 (á ísL 0) 11.990.000
|n 5 af 6 !LH+bónus 0 370.151
RH 5 af 6 3 96.944
| 4 af 6 192 2.409
i5.n 839 237
Aðaltölur:
10 13
BÓNUSTÖLUR
®0®
Heildampphæð þessa viku:
25.302.354
á ísl.:
1.322.354
UPPI.YSINOAR, SÍMSVARl 01- 681811
LUKKUUNA 09 10 00 - TEXTAVARP 451
BiftT MEÐ PYRÍRVARA UM PRENTVILLUR