Alþýðublaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 30.06.1993, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 30. júní 1993 3 Neytendablaðið jjallar um vatnsvemdarmál Saurkólígerla má finna í vatnsbólum víða um land „Skipulagi vatnsverndarmála er ábótavant, frágangur vatnsbóla er ófullnægjandi á mörgum stöðum og upplýsingar um dreifikerfi vatn- sveita eru ófullnægjandi. íbúar sem að staðaldri búa við gerla- mengað vatn eru taldir mynda mótefni í líkama sínum gegn skað- legum áhrifum og dregur það úr hættu á sýkingum. Áhættan er meiri fyrir ungabörn og aðra við- kvæma einstaklinga, til dæmis aldraða og sjúka. Til dæmis er með öllu óásættanlegt að í neyslu- vatni skuli finnast kólígerlar og þá sérstaklega saurkólígerlar," segir í niðurstöðum skýrslu Sigríðar Á. Ásgrímsdóttur verkfræðings. Sig- ríður vann skýrsluna á vegum veitunefndar Neytendasamtak- anna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í grein um gæði neysluvatns í nýjasta tölublaði Neytendablaðsins. Niðurstöður skýrslu Sigríðar eru byggðar á sýnum sem tekin voru af heilbrigðisfull- taium víðs vegar um landið á árunum 1985 til 1992. Því sé engin ástæða til að ótti grípi um sig. I inngangi greinar Neytendablaðs- ins segir: „Flestir landsmenn hafa gott neysluvatn og geta teygað það áhyggjulaus- ir. En goðsögnin um hið hreina og ómeng- aða vatn á ekki alls staðar við. Sums staðar á landsbyggðinni telst vatn vera ónothæft vegna mengunar saurkólígerla, en slík mengun getur verið vísbending um tilvist hættulegra sjúkdómsgerla á borð við salm- onellu." I Neytendablaðinu er einnig haft eftir Franklín Georgssyni hjá Hollustuvemd rík- isins að gerlar þessir séu ekki alltaf sjúk- Islensk stjómvöld Gagnrýna stríðið Islensk stjórnvöld hafa gagn- rýnt harðlega aðgerðir UNITA skæruliða í Angóla. Skærulið- arnir hafa staðið fyrir skemmdaverkum og morðum á óbreyttum borgurum að undanförnu og hafa ekki viljað una niðurstöðum frjálsra kosninga sem haldnar voru í landinu síðastliðið haust. Sendiherra Angóla á íslandi Garcia Vaz Contreiras, sem aðsetur hefur í Stokk- hólmi, kom hingað til lands í síðustu viku og átti viðræður við íslensk stjómvöld og forystumenn islenskra stjómmálaflokka. I kjölfarið sendi utanríkisráðuneytið frá sér harðorða fréttatilkynningu um ástandið í Angóla. I fréttatilkynningunni segir: „íslensk stjómvöld harma að fulluúar frelsishreyf- ingar Angóla (UNITA) hafa ekki viijað una niðurstöðum kosninganna sem haldn- ar vom í Angóla 29. og 30. september 1992 og fóm fram á lýðræðislegan hátt að mati þeirra sem fylgdust með kosningun- um. UNITA hefur gripið til hryðjuverka dómsvaldandi. Þeir séu hins vegar vísbend- ing um saurmengun frá mönnum eða dýr- um. I saur þeirra geti leynst hættulegir og sjúkdómsvaldandi gerlar á borð við salm- onellu. Sýking af þeirra völdum geti verið stórhættuleg, jafnvel fólki í besta ástandi. Franklín segist hiklaust ráðleggja fólki sem býr á svæðum þar sem vatnið sé hættulega mengað að sjóða allt neysluvatn. A Vestfjörðum er ástandið hvað verst. Vestfirðingar em hins vegar harðgerðari en fólk er flest, eins og ótal mörg dæmi hafa sannað. Það kemur glögglega í tilvitnun Neytendablaðsins í Anton Helgason, heil- brigðisfulltrúa Vestljarða: „Innfæddir finna lítið fýrir mengun vatnsins en aðkomufólk, til dæmis á Isafirði, hefúr orðið vart við magakveisur vegna vatnsins. Ég tel hins vegar að innan þriggja ára verði neysluvatn orðið gott á Vestfjörðum. Mjög víða er unn- ið að úrbótum.“ í Angóla gegn saklausum borgumm og skemmda- verka sem bitnað hafa á efnahag landsins og umhverfi. Afleiðingar þess em m.a. þær, að ófremdarástand ríkir í Angóla og em nú um tvær milljónir manna á hrakhól- um í landinu. íslensk stjómvöld fordæma ofbeldisað- gerðir UNITA og lýsa fullurn stuðningi við lýðræðislega kjörin stjómvöld í An- góla. Jafnframt skora þau á fulltrúa UN- ITA að sýna friðarvilja og mæta til samn- ingaviðræðnanna um frið í Angóla, sem nú fara fram í Abijan á Fílabeinsströnd- inni.“ AUGLYSING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00 1977- 2.fl. 1978- 2.fl. 1979- 2.fl. 10.09.93-10.09.94 10.09.93-10.09.94 15.09.93-15.09.94 kr. 979.936,70 kr. 626.044,80 kr. 408.114,90 FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00 1985-1.fl.A 1985- 1.fl.B 1986- 1 .fl.A 3 ár 1986-1.fl.A 4 ár 1986-1 .fl.A 6 ár 1986-1.fl.B 1986-2.fl.A 4 ár 1986- 2.fl.A 6 ár 1987- 1 .fl.A 2 ár 1987-1 .fl.A 4 ár 10.07.93-10.01.94 10.07.93-10.01.94 10.07.93-10.01.94 10.07.93-10.01.94 10.07.93-10.01.94 10.07.93-10.01.94 01.07.93-01.01.94 01.07.93-01.01.94 10.07.93-10.01.94 10.07.93-10.01.94 kr. 57.983,30 kr. 32.624.30**) kr. 39.967,10 kr. 44.365,70 kr. 45.922,20 kr. 24.061,60**) kr. 37.218,00 kr. 38.446,80 kr. 31.578,90 kr. 31.578,90 *)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. **)Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, júní 1993. SEÐLABANKI ÍSLANDS Mistökjréttastoju einnar útvarpsstöðvarinnar RÚSSA - ÓVILD? Tvö rússnesk fiskiskip voru úti á Sundum í gærdag að taka olíu. Samkvæmt fréttum einnar útvarps- stöðvarinnar var annað þessara skipa svokallað rottuskip og átti því að hafa verið meinað að koma að hafnarbakkanum vegna rottugangs um borð. Samkvæmt heimildar- manni Alþýðublaðsins á skrifstofum Reykjavíkurhafnar mun þessi frétt útvarpsstöðvarinnar vera nokkuð ónákvæm, svo ekki sé meira sagt. í fyrsta lagi: Skipin vom að taka olíu og aldrei stóð til að þau legðust að hafnar- bakkanum. Þar af leiðandi var ekki beðið um slíka heimild. í öðm lagi: Hefði svo verið, hefði heimildin hiklaust verið veitt. Astæðan er auðvitað sú að ekki mun vera vitað um nokkum rottugang um borð í þessum skipum. Annar heimildarmaður Alþýðublaðsins tjáði okkur að hann væri „orðinn hundleið- ur á þessu rottuskipatali." Rússamir væm hvorki betri né verri en aðrir að þessu leyti. Sögur af meintum óþrifahætti þeirra og al- mennum subbuskap væm stórlega færðar í stílinn að leiðinlegum, íslenskum sið. Heimildarmaðurinn bætti við: „Án nokkurs vafa mætti finna þó nokkrar bold- angsrottumar um borð í íslenskum skipum ef vel væri að gáð. Manni finnst það algjör ósvinna að íslenskir fjölmiðlar séu í gúrku- tíðinni að' níðast á Rússunum sem em að bjarga hér fiskvinnslustöðvum í stómm stfl með ágætis afla. Þetta em bestu skinn sem eiga annað og betra skilið." Rússnesku fiskiskipin úti á Sundum i gærdag að taka oiíu í sakleysi sínu. Fréttastofa útvarps- stöðvar einnar bar það á skipið hægra megin að það væri svokallað „rottuskip“. Það er airöng fullyrðing samkvæmt heimiidarmanni Alþýöublaðsins á skrifstofum Reykjavíkurhafnar. (A.mynd-E.Ól.) St. Franciskusspítali Stykkishólmi H j ú kr u narf ræði ngar - deildarstjórnun Deildarstjóri óskast á almenna deild (sem er í tengslum við fæðinga-, gjörgæslu- og skurðdeild). Deildin er staðsett í nánast nýrri aðstöðu. Deildin hefur verið rekin sem fimmdaga- deild, en fyrirhugað er að breyta henni í sjö-daga-deild í haust ef aðstæður leyfa. Deildarstjóri óskast á langlegudeild. Deildin er að hálfu í nýbyggingu (nýleg aðstaða) og í gamla hlutanum. Stykkishólmur er um 1250 manna byggðarlag, þar sem perlur breið- firðskrar náttúru glitra í hlaðvarpanum. í Stykkishólmi er góður leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn, krefjandi grunnskóli með framhaldsdeild (tvö ár) auk kröftugs tónlistarskóla. Fjölbreytt íþrótta- og félagsstarfsemi er á staðnum. Hafir þú áhuga á skemmtilegu en oft krefjandi starfi með góðum laun- um í hinu fallega umhverfi okkar, þá hafðu samband við systur Lidwinu (hjúkrunarforstjóra) í síma 93-81128. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borgar- verkfræðings, óskar eftir tilboðum í viðhald á íþróttahúsi Réttar- holtsskóla. Helstu magntöiur eru: Klæðning útveggja með loftræstri plötuklæðningu 82 m2 Dúklagning steinþaks með asfaltdúk 162 m2 Endursteypa þakkanta 6 m2 Viðgerðir á ryðguðum jámum 25 m Verktími: 15. júlí-30. ágúst 1993. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykja- vík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 7. júlí 1993, kl. 14.00. INIMKAUPASTOFNUN RÍKISINS fiUÚ^.AHTuNI i 01 ■ Ht i K :á UK

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.