Alþýðublaðið - 01.07.1993, Side 3
Fimmtudagur 1. júlí 1993
3
Fyrirtœki í Noregi sjá tœkifœri í EES og:
Leita ráða hjá íslendingum
um fullvinnslu sjávarafurða
Norðmenn œtla að nota Ólympíuleikanna í Lille-
hemmer sem kynningarátakfyrir fiskrétti inn á
*
heimsmarkaðinn. Islenskfiskvinnslufyrirtœki hafa
ekki verið opin fyrir jullvinnslu afþessu tagi, segir
Steindór Haraldsson hjá Euromat
Sölusamtök fiskvinnslufyrir-
tækja í Finnmörk í Norð-
ur-Noregi hafa leitað til ís-
lenskra aðila og óskað eftir
samvinnu við þróun og
markaðssetningu á fullunn-
um sjávarréttum. Þessir
norsku aðilar munu að öllum
líkindum sjá um fiskrétti fyrir
Ólympíuþorpið í Lillehamm-
er á næstá ári og ætla því
að nota leikanna sem kynn-
ingarbás fyrir nörskar sjáv-
arafurðir. Ef þetta heppnast
vel getur það opnað fyrir
mikil viðskipti á Evrópu-
markað og aðra markaði í
heiminum í kjölfarið.
Steindór Haraldsson verkefnisstjóri hjá
Euromat segir að fulltrúar frá Sölusamtök-
unum í Finnmörk hafi haft samband við sig
í síðustu viku og óskað efdr viðræðum.
Euromat er það verkefni hér á landi sem
hvað lengst er komið í þróun á fullunnum
sjávarréttum til útflutnings á EES markað-
inn, þegar hann opnast. Þar hafa menn farið
í gegnum allt tfamleiðsluferlið, frá vöruþró-
un til markaðssetningar og hefur verkefnið
þegar dregið að sér innlenda framleiðendur
og erlenda kaupendur. Steindór segir að
Norðmenn geri sér mjög vel grein fyrir
þeim tækifæmm sem opnast ef EES verður
að veruleika og þeir leggi því kapp á að
koma á fót framleiðslu á fullunnum fiskrétt-
um fyrir verslanir, veitingahús og stór
mötuneyti. En mjög stór markaður er fyrir
slíkar vörur í Evrópu í dag, vegna breytinga
á matreiðslu og lífsvenjum fólks.
Steindór segist ekki hafa svarað endan-
lega þessari fyrirspum norsku sölusamtak-
anna. Ef af samstarfi verður þá þarf verk-
efnið að vera komið í gang fyrir áramót. „-
Þetta er hins vegar spuming um siðferði. A
ég að nýta mér þessa þekkingu og selja hana
til Norðmanna, vitandi það að þeir nái þá
forskoti á Islendinga í þessum efnum? Eða
er ekki bara rétt að selja alla þá þekkingu
sem maður býr yfir? Þetta em þær spum-
ingar sem ég stend frammi fyrir í dag. Það
verður hins vegar að segjast al veg eins og er
að þrátt fyrir að ég hafi getað sýnt íslensk-
um aðilum ffam á að Euromat verkefnið
lofi góðu þá virðast þeir ekki opnir fyrir
framleiðslu á tilbúnum sjávarréttum. Is-
lensk fiskvinnslufyrirtæki hafa verið hrá-
efnisframleiðendur svo lengi að það er erfitt
að fá þá til að trúa á annað“, sagði Steindór.
Aðspurður um það afhvetju aðilar í
Norður-Noregi leituðu til Islands, sagði
Steindór að það þýddi ekki endilega að
Norðmenn væm yfirleitt á eftir Islendingum
í þróun og framleiðslu á tilbúnum fiskrétt-
um. Það væri miklu líklegra að Sölusam-
tökin í Finnmörk vildu fremur leita til ís-
lendinga en samkeppnisaðilanna annarstað-
ar í Noregi.
Sundahöfn í 25 ár
Hcrfnardagur
í Sundahöfn
Hafnardagurinn í Sundahöfn
verður að þessu sinni hald-
inn laugardaginn 3. júlí
næstkomandi. Aðalhátíðar-
svæðið verður við Klettavör,
næst Viðeyjarferju, en hátíð-
arsvæðið nær frá Laugar-
nesi að Holtabakka. Við
Klettavör verður 600 fer-
metra tjald sem mun hýsa
nýlenduvörutorg. Torgið á
að endurspegla vöruúrvalið
frá hinum fjarlægari heims-
hlutum. Reynt verður að
sýna þátt Reykjavíkurhafnar
og hinna ýmsu fyrirtækja á
hafnarsvæðinu í að koma
vörunum til neytenda. Á
torginu munu kaupmenn
bjóða úrval af nýlenduvörum
svo sem kaffi, te, sykur,
kandís, fjölda ávaxtateg-
unda og margt fleira.
Við hliðina á tjaldinu verður sögusýning
um þróun og framkvæmdir við Sundahöfn
en í júlí eru liðin 25 ár frá því að höfnin var
tekin í notkun. Sýningin spannar tímabilið
frá því að umræður hófust um mannvirkja-
gerðina til dagsins í dag.
Á hátíðasvæðinu verður komið fyrir sjó-
sportsýning þar sem fyrirtæki munu sýna
báta, sjóskottur, seglbretti og fleira tengt
sjóíþróttum.
Samskip, Eimskip, Tollvörugeymslan,
Olís og flutningafyrirtækið E&T taka þátt í
Hafnardegi með eigin dagskrám. Fyrirtækin
bjóða upp á mjög fjölbreytta dagskrá, svo
sem Gámarokk og bamatónleika, lyftara-
keppni, teygjuhopp, götukörfubolta og öll
munu fýrirtækin veita upplýsingar og
fræðslu um eigin starfsemi.
Til jtess að gestir geti kynnt sér Sunda-
hafnarsvæðið í heild býður höfnin upp á
ferðalög um hafiiarsvæðið. Strætisvagnar
verða í ferðum allan daginn og verða leið-
sögumenn í vögnunum. Varðskipið Ægir
verður í förum á milli hafnarsvæða Sam-
skipa og Eimskips allan daginn og verður
leiðsögumaður með skipinu. Viðeyjarferjan
verður í reglulegum ferðum til og frá Viðey
allan daginn, en þar taka leiðsögumenn við
gestum og leiða þá um eyna. Loks munu fé-
lagar í Snarfara bjóða upp á ferðir frá
Klettavör og inn á Eiðsvík og til baka, enþar
eru framtíðarhafnarsvæði Reykjvíkur. Þess-
ar ferðir eru í boði Reykjavíkurhafnar.
Bjartsýnn á að augu manna opnist
-fyrir nauðsyn þess að þjóðir á norðlœgum slóðumfái ífriði að nýta auð-
lindir sínar, segir Sigbjöm Gunnarsson, alþingismaður, formaður fisk-
veiðinefndar Evrópuráðsins.
„Nefndin sem ég veiti for-
stöðu er sammála um að
auðlindir hafsins skuli nýttar,
en að sjálfsögðu verði gengið
út frá sjálfbærri þróun og
mannúðlegra veiða á hvölum.
Auk þess er hvatt til þess að
auknar verði rannsóknir á líf-
ríki hafsins", sagði Sigbjörn
Gunnarsson, alþingismaður,
þegar Alþýðublaðið ræddi við
hann í Strasbourg í gær.
Sigbjöm hefur, ásamt þýska íhalds-
þingmanninum Biihler, samið og haft
framsögu um ályktun þar sem gert er ráð
fyrir að hvalveiðar í ágóðaskyni verði
leyfðar í Norðurhöfum. Fiskveiðinefndin
styður þessa ályktun og verður hún lögð
fram á fundum í Evrópuráðinu í ágúst-
mánuði.
Sigbjöm sagði það skjóta , nokkuð
skökku við að á meðan
þjóðir heims hefðu um árabil varið
óheyrilegum fjárfúlgum í að kanna himin-
geiminn og smíða drápsvopn, væri næsta
lítið vitað um líffíki hafsins. Gera þyrfti
ráð fyrir mun meira IJármagni til slfkra
rannsókna á höfunum á komandi ámm.
Fram hefur komið í máli Ray Gambell
forseta vísindaráðs Hvalveiðiráðsins að
ráðið muni ekki leyfa hvalveiðar af neinu
tagi í lengd eða bráð.
Sagði Sigbjöm það næsta ástæðulítið
að eyða tíma í karp við menn sem ekkert
mark tækju á vísindamönnum, sem telja
óhætt að hefja hvalveiðar í Norðurhöfum.
Menn gerðu sér ekki grein fyrir því að 80
hvalategundir lifðu í heimshöfunum, og
það væri fjarri lagi að þær væm allar í út-
rýmingarhættu.
„Ég er annars bjartsýnn, þrátt fyrir allt,
á að okkur takist smám saman að opna
augu manna fyrir nauðsyn þess að þjóðir á
norðlægum slóðum fái í friði að nýta auð-
Jindir sínar og þar með talið hvalastofn-
ana“, sagði Sigbjöm Gunnarsson að lok-
um.
Sigbjörn Gunnarsson alþingismaður og formaður fiskveiðinefndar Evrópuráðsins hcfur, ásamt þýska íhaldsþingmanninum Biihler, samið og
haft framsögu um ályktun þar sem gert er ráð fyrir að hvalveiðar í ágóðaskyni vcrði leyfðar í Norðurhöfum. Fiskveiðinefndin styður þcssa
ályktun.
Bónusí
Miklagqrð
Bónus hefur gert
samning við Lands-
banka íslands um
leigu á húsnæði í
Miklagarði, þar sem
Rafbúð Sambandsins
var til húsa í suður-
enda hússins. Þar
verður opnuð sjöunda
verslun fyrirtækisins
frá því það var stofnað
fyrir 4 árum.
Jóhannes Jónsson, framkvæmda-
stjóri Bónus-búðanna staðfesti í sam-
tali við Alþýðublaðið í gær að Jtetta
væri rétt. Hann sagðist ekki geta sagt
endanlega um það hvenær verslunin
yrði opnuð, en það gæti orðið áður en
langt um liði.
Þetta yrði stærsta verslun Bónuss, og
er í næsta nágrenni við fyrstu verslun
fyrirtækisins við Súðarvog og raunar
við enda þeirrar götu.
Sagði Jóhannes að versluninni við
Súðarvog yrði ekki lokað með tilkomu
verslunarinnar í Miklagarði. „Maður
heggur ekki rótina undan trénu“, sagði
hann.
í hinum stærri hluta Miklagarðs
kemur verslun IKEA, en hún mun ekki
verða opnuð fyrr en á næsta ári, jtegar
samningur fyrirtækisins við Hús versl-
unarinnar rennur út.
Akraneskaupstaður auglýsir
samkeppiti um
gerð minjagrips
Akraneskaupstaður efnir til almennrar samkeppni um gerð minja-
grips fyrir Akranes. Minjagripurinn þarf að minna á Akranes, vera
smágripur og þannig að hann sé auðvelt að framleiða. Möguleiki má
vera á framleiðslu hans í mismunandi stærðum.
Samkeppni þessi er öllum opin, en þátttakendur skulu skila inn
módeli, skriflegri lýsingu eða teikningu þar sem fram koma upplýsing-
ar um stærð, efni og kostnað þeirrar hugmyndar sem fram er sett.
Nafn höfundar, heimilisfang símanúmer skal fylgja í lokuðu um-
slagi, en tillögunni og umslaginu skal skila til bæjarstjórans á Akra-
nesi, Kirkjubraut 28, Akranesi.
Hverjum þáttakanda er heimiit lað skila fleiri en einni tillögu.
Það er markmið samkeppninngar að samið verði við einn eða fleiri
höfunda tillagna um framleiðslu þess hlutar sem tillaga er gerð um.
í dómnefnd, sem meta mun tillögur, sitja:
Gísli Gíslason,
Helena Guttormsdóttir,
Hallgrímur Jónsson,
Guðrún Geirsdóttir,
Brynja Þorbjörnsdóttir.
Fyrir bestu hugmyndina má veita verðlaun að fjárhæð 70.000,- en
2. verðlaun kr. 30.000,- og 3. verðlaun 10.000,-
Áskilinn er réttur til sýningar á þeim tillögum sem berast.
Frestur til að skila tillögum er til mánudagsins 23. ágúst 1993.
Nánari upplýsingar veitir bæjarstjórinn á Akranesi, Gísli Gíslason, í
síma 93-11211.
Bæjarstjórinn á Akranesi.