Alþýðublaðið - 01.07.1993, Síða 8
Markús Örn Antonsson borgarstjóri (t.h.) og Eymundur Matthíasson, framkvæmdastjóri Friðarhlaups ’93, standa hcr við skjöldinn sem settur var upp í Geysis-
húsinu í tilcfni af því að Reykjavík hefur verið lýst Sri Chinmoy friðarhöfuðborg. Er hún þá orðin ein þriggja friðarhöfuðborga hcims. Hinar tvær eru Ottawa í
Kanada og Canberra í Astralíu.
REYKJAVIK ER
FRIDARHÖFUDB0R6
- og er nú þar með helguð alheimsfriði og samlyndi milli einstaklinga og þjóða
f tengslum við Friðarhlaupið
’93 voru Reykjavík, Mosfells-
bær, Hafnarfjörður, Garðabær
og Kópavogur lýst Sri Chinmoy
friðarstaðir laugardaginn 26.
júní síðastliðinn. Þar með eru
þessi bæjarfélög komin í hóp
rúmlega 500 bæja og borga sem
helguð eru alheimsfriði og sam-
lyndi rnilli einstaklinga og þjóða.
Af þessu tilefni veittu fulltrúar
bæjarfélaganna viðtöku skildi með
áletrun þess efnis að staðimir væru
tileinkaðir friði. Hefur tveimur
þessara skjalda verið fundinn stað-
ur og verður Kópavogsskjöldurinn
festur upp í Sundlaug Kópavogs en
Reykjavíkurskildinum hefur verið
valinn staður í Geysishúsinu á
homi Vesturgötu og Aðalstrætis í
miðbæ Reykjavíkur.
Fornbílar við
fornu húsin
í Árbæ
Starfsemi Árbæjarsafns er
með eindæmum líflegt, sem
fjölmargir gestir safnsins kunna
vel að meta. Á sunnudaginn er
áherslan lögð á fombíla, sem
gaman er að skoða. Samvinna er
á milli safnsins og Fornbíla-
klúbbs íslands um að sýna einn
dag á hverju sumri. Núna verður
meðal annar sýndur í fýrsta sinni
Chevrolet björgunarbíll af ár-
gerðinni 1937, nýlega endur-
gerður af klúbbnum. Safnið er
auk þessa með hefðbundna dag-
skrá og messa verður í litlu
kirkjunni kl. 14.
Ford af árgerðinni 1930 - glæsilegur vagn þetta.
Framkvœmdir í Reykjavíkurborg
Lægstu boð spara
milljónatugi
Innkaupastofnun Reykja-
víkurborgar hefur lagt til við
borgarráð að tekið verði til-
boði lægstbjóðanda, fyrirtæk-
isins Völundarverks hf., um
smíði félagsrýmis við Selja-
skóla í Breiðholti. Tilboð þessa
fyrirtækis var upp á 14,8 millj-
ónir og var aðeins 78% af
kostnaðaráætlun borgarinnar.
Tólf verktakar sendu inn til-
boð, tvö þau hæstu rétt um og
yfir 20 milljónir.
Á sama stjómarfundi IR var
lagt til að tekið yrði tilboði ístaks
hf., lægstbjóðanda, í jarðvinnu
og þilrekstur vegna byggingar
dælu- og hreinsistöðvar vegna
skólpveitunnar miklu sem
Reykjavík, Kópavogur og
Garðabær annast um sameigin-
lega. Stöð þessi verður við Mýr-
argötu vestast í vesturbæ
Reykjavíkur og er endahnykkur-
inn á þessu merka framtaki
sveitarfélaganna til að gera fjör-
ur bæjanna hreinar. Tilboð
Istaks hf. hljóðaði upp á rétt um
25 milljónir sem er 79% af
kostnaðaráætlun, - fjórir aðilar
aðrir buðu í verkið en vom yfir
kostnaðaráætlun borgarinnar.
Þriðja verkið sem stjóm Inn-
kaupastofnunar fjallaði um er að
klæða blokkir við Yrsufell að ut-
an. Fyrirtækið Stórvirki hf. var
þarð með lægsta aðaltilboðið,
rétt um 24 milljónir króna, en
kostnaðaráætlun var eilítið
hærri. Tilboð Mariu Bimu
Gunnarsdóttur í verkið var
lægst, en ekki talið raunhæft.
Borgarráð hefur samþykkt að
taka öllum þessum tilboðum,
enda augljóst að spamaður
nokkrar milljónir, sem vel má
nota til annarra góðra verka í
þágu borgarbúa.
STUTTFRETTIll
Hvítrússi sýnir í MÍR-salnum
Um helgina lýkur sýningu hvítrússneska listamannsins Arlens
Kashkúretvitsj í MÍR-salnum að Vatnsstíg 10. Á sýningunni em 50
svartlistarmyndir, pennateikningar, steinþrykk og „au-forte“-myndir.
Meðal myndanna em myndir listamannsins við skáldsögu Halldórs
Laxness, Atómstöðina. Listamaðurinn er í hópi kunnustu listamanna
Hvítarússlands og hefur sýnt víða um lönd. Hann hefur dvalið hér á
landi undanfamar vikur ásamt Ljúdmílu konu sinni í boði MIR -
Menningartengsla Islands og Rússlands. Frúin er einnig góðum list-
hæfileikum gædd og sýnir handprjónuð leikföng og blómakort á sýn-
ingu manns síns.
Svæðisbundin leiðsögn á Vesturlandi
íslendingar em smám saman að taka ferðamálin og þjónustu við
ferðafólk föstum tökum, öllum til góðs. Síðastliðið haust buðu Far-
skóli Vesturlands og Ferðamálasamtök Snæfellsness upp á nám í
svæðisbundinni leiðsögu á Vesturiandi. Ekki skorti áhugann og fólk á
aldrinum 25 til 68 ára kom af öllu Vesturlandi. Nýmæli er það að hóp-
urinn mun leiðsaga Islendinga eingöngu. Hinir nýju leiðsögumenn
vom útskrifaðir með pomp og pragt fyrir nokkmm dögum á Hótel
Valhöll á Þingvöllum.
Nýútskrifaðir leiðsögumenn um Vesturland. Standandi frá vinstri: Þóra
K. Stefánsdóttir, Ingi Hans Jónsson, Sigríður Þorvaldsdóttir, Bjarnfríður
Leósdóttir, Erla D. Lárusdóttir, Dóra Haraldsdóttir, Birna K. Lárusdótt-
ir, Kristín Þ. Halldórsdóttir, Guðmundur Þorsteinsson, Gyða Bergþórs-
dóttir og Kristín Gísladóttir. Fyrir framan hópinn eru Helga Gunnars-
dóttir, forstöðumaður Farskóla Vcsturlands og Lars H. Andcrsen um-
sjónarmaður námsins.
Frá hinu liöna til nútíðar
Fyrrverandi sendiherra Svía á íslandi á árunum 1977 til 1986, hefur
ritað bók ásamt konu sinni, Rakel Sigurðardóttur Rosenblad, sem Mál
og menning hefur nú gefið út. Bókin er á ensku og heitir Iceland -
From Past to Present. Bókin á erindi til útlendinga sem vilja kynna sér
landið, allt frá fomu fari til nútímans. Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, ritar inngangsorð bókarinnar. Bókin er öll hin fróðlegasta og
veglegasta og er þakkarvert framtak þeirra hjóna.
Skemmtiferð hjúkrunarfræðinga
Lífeyrisþegadeild Hjúkrunarfélags íslands, efnir til skemmti-
ferðar á miðvikudaginn kemur, þann 7. júlí. Farið verður að
Skógum undir EyjafjöIIum og byggðasafnið og fleira skoðað. Lagt
af stað frá Suðurlandsbraut 22. Nánari upplýsingar á skrifstofu
félagsins, síminn er 68-78-75.
Lífeyrisþegar með tekjutryggingu
fá uppbót
Bætur almannatrygginga vegna júlímánaðar verða greiddar út með
tekjutryggingu. Hún er í samræmi við kjarasamninga á vinnumarkaði
um greiðslu láglaunabóta. Fulla uppbót, kr. 9.996 hjá ellilífeyrisþeg-
um og kr. 10.174 hjá öryrkjum, fá þeir sem hal'a óskerta tekjutrygg-
ingu, heimilisuppbót og sérstaka heimilisuppbót. Þeir sem ekki njóta
tekjutryggingar fá enga uppbót. Tekjutryggingarauki greiðist á sama
hátt í ágúst 20% vegna orlofsuppbótar og í desember 30% vegna des-
emberuppbótar launafólks og í sama mánuði 28% tekjutryggingarauki
vegna láglaunabóta.
Myndir úr safni Markúsar
í Listasafni íslands eru til sýnis um þessar mundir myndir úr safni
Markúsar Ivarssonar, jámsmiðs og stofnanda Vélsmiðjunnar Héð-
ins hf. Markús gerðist velgjörðarmaður íslenskra listamanna þegar
hann hóf að kaupa verk þeirra laust eftir 1920. Keypti hann ekki síst
verk yngstu listamanna þessa tíma. Skömmu fyrir andlátið gaf Mark-
ús Listasaftii Islands 56 verk úr
safni sínu. Nú eru 30 þessara
verka uppi á veggjum Listasafns
íslands. Sýningin stendur til
loka ágústmánaðar.
Frá Keykjavíkurhöfn hcitir þessi
mynd Þorvaldar Skúlasonar, cn
hún var máluð 1931. Ein mynd-
anna úr safni Markúsar Ivarsson-
ar, jámsmiðs.