Alþýðublaðið - 08.07.1993, Qupperneq 2
2
Fimmtudagur 8. júlí 1993
MPYDUBim
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóður Sigurðsson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.200 á mánuði. Verð f lausasölu kr. 110
Nauðganir og sjálfs-
virðing samfélagsins
>»
A mánudaginn skýrði DV frá því inni í miðri frétt á blaðsíðu tvö
að „eitthvað hefði verið um nauðganir“ á útihátíðinni í Þjórsár-
dal. ÖIlu fréttnæmara var það nú ekki, að mati DV. Hinsvegar var
slæm umgengni ungmenna tíunduð í löngu máli og myndum.
Morgunblaðið, blað allra landsmanna, sá í gær ástæðu til að
skrifa harðorða forystugrein um „útihátíðir og sjálfsvirðingu
ungs fólks“. Morgunblaðinu fannst það heldur engar sérstakar
fréttir þótt mörgum stúlkum hefði verið nauðgað í Þjórsárdal um
helgina. Morgunblaðið var að kvarta undan rusli í Hallslaut í
Þjórsárdal.
Alþýðublaðið sagði frá því á þriðjudaginn að fímm ungar stúlk-
ur hefðu leitað til starfsmanna Stígamóta í Þjórsárdal. Þeim hafði
verið nauðgað. Starfsmaður Stígamóta sagði í samtali við Al-
þýðublaðið að þessi tilvik hefðu „aðeins verið hluti af þeim
nauðgunum sem áttu sér stað.“ Jafnframt sagði starfsmaðurinn
að allt benti til þess að ofbeldismennimir þyrftu aldrei að svara til
saka fyrir glæpi sína. Stúlkumar kæra í flestum tilvikum ekki.
Nauðgun er ömurlegur glæpur, og það er eitthvað að í því mann-
félagi þarsem fómarlömbin treysta sér ekki til þess að leggja fram
kæm. Meðferð lögreglu á fómarlömbum nauðgana sætti lengi
ámæli og sannarlega ekki að ástæðulausu. í kjölfar baráttu Stíga-
móta og fleiri aðila hefur orðið breyting til batnaðar enda hjálpa
starfsmenn Stígamóta stúlkunum í gegnum yfirheyrslur og máls-
meðferð.
Dómskerfið hefur tekið á glæpamönnunum af ótrúlegri linkind.
Dæmi em um að nauðgarar fái einungis skilorðsbundna dóma,
og flestir virðast sleppa mjög létt. Allt samræmi hefur vantað af
hálfu dómskerfisins í meðferð þessara mála, og örsjaldan er
hörðustu viðurlögum beitt. Þetta verður að breytast. Ella er
dómsvaldið að lýsa því yfir að nauðganir séu smámál, þær séu
vart refsiverðar.
Fleira þarf til þess að breyta hugarfari fólks. Meðal annars þarf
að efla til muna fræðslu í skólum og meðal almennings um eðli
nauðgana og afleiðingar.
Sumir þolendur kynferðislegs ofbeldis ná sér aldrei. Hertir dóm-
ar yfir kynferðisafbrotamönnum breyta ekki þeirri staðreynd en
hafa hinsvegar fyrirbyggjandi áhrif. Ofbeldismennimir eiga að fá
makleg málagjöld.
Það segir sína sögu að helsta fréttaefnið úr Þjórsárdal skuli vera
um slæma umgengni ungmenna. Raunar er mjög málum blandið
hvort við unglingana er að sakast í þeim efnum. Mótshaldarar
virðast hafa kastað höndunum til undirbúnings og gæslu, og ein-
ungis reknir áfram af gróðavon.
Tal hins virðulega Morgunblaðs um „útihátíðir og sjálfsvirðingu
ungs fólks“ er í senn broslegt og raunalegt. Ungt fólk nú um
stundir umgengst náttúru Islands alveg áreiðanlega ekki af meira
virðingarleysi en eldri kynslóðir Islendinga. Það er engin ný bóla
að kvartað sé yfir umgengni ungs fólks. Leiðarahöfundi Morgun-
blaðsins er nóg að fletta blaði sínu fáeina áratugi aftur í tímann til
þess að sjá álíka nöldur útaf þeim kynslóðum sem nú hneykslast
á unga fólkinu.
Það er í hæsta máta raunalegt þegar menn líta svo á, að msl í
Hallslaut í Þjórsárdal sé alvarlegra mál og stærri frétt en að ung-
um stúlkum hafi verið nauðgað - og að ofbeldismennimir sleppi.
Morgunblaðið þarf tæpast að hafa áhyggjur af sjálfsvirðingu
ungs fólks. Hinsvegar er full ástæða til að hafa áhyggjur af sjálfs-
virðingu þess samfélags sem lætur ömurlega kynferðisglæpi við-
gangast án þess að aðhafast nokkuð.
Onnur sjónarmíð. . .
Þögn fjölmiðla um SVR
Hrannar Bjöm Arnarson
skrifar snarpa ádeilu í Moggann í
gær. Þar fá sjálfstæðismenn í
Reykjavík á baukinn, semog fjöl-
rniðlar:
„Samuygging, einkavinavæðing
og annað andfélagslegt athæfi
valdaklrka hefur því miður ekki lát-
ið valdameðferð Sjálfstæðisflokks-
ins ósnortna. Og dæmin hrannast
upp. Nú er það svo að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur m.a. ægisterk tök í
fjölmiðlaheimi landsins og það er
ekki útlit fyrir að það muni breytast
á næstunni. Aðhaldið sem flokkur-
inn fær frá fjölmiðlum er því algeru
lágmarki.
Hrannar Bjöm Amarson: Mynda
þarf öflugan valkost í Rcykjavík fyrir
borgarstjómarkosningamar við hinn
þreytta og spillta Sjálfstæðisflokk.
Dæmi um mál sem hinir stóru
fjölmiðlar treysta sér ekki til að taka
faglega á eru þau áform meirihluta
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að
einkavæðing SVR. Örfáir stjóm-
málamenn og hugrakkir starfsmenn
fyrirtækisins ásamt forystumönn-
um úr samtökum þeirra hafa einir
reynt að varpa Ijósi á það sem er að
gerast. Fjölmiðlamir hafa ekki fylgt
málinu eftir, ekki farið ofan í gögn
sem fram hafa komið í málinu og
ekki krafið fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins svara við þeim fjölmörgu
áleitnu spumingum sem málið hef-
ur vakið.“
Sjálfstaeðisflokkinn
í endurhæfingu!
Hrannar Björn tekur Sjálf-
stæðisflokkinn í Reykjavík ær-
lega í bakaríið og líkir honum
jafnvel við gerspillta bófaflokka
japanskra og ítalskra stjórn-
málamanna:
„Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn
svo valdalúinn að hann hefur ekki
einu sinni næga dómgreind til að
forðast auðsæja spillingarpytti eins
og hér um ræðir. Flokkurinn verður
fómarlamb eigin lögmála, lögmála
um langvarandi völd og spillingu.
Systurflokkar Sjálfstæðisflokksins,
valdaflokkamir í Japan og á Itali'u,
hafa bmgðist við því með að leggja
sjálfa sig niður. Það kann að vera
ráð fyrir íslenska flokkinn líka.
Samt sem áður leyfi ég mér að efast
um viðbragðsflýti sjálfstæðis-
manna í þeim efnum. Borgarstjóm-
arkosningar eru nú í nánd og miklu
skiptir að einstaklingar, flokkar og
samtök myndi öflugan valkost gegn
hinum þreytta og einráða Sjálfstæð-
isflokki og sameinist um að senda
Sjálfstæðisflokkinn í siðferðilega
endurhæfingu.“
Veislan stóð stutt
Ellert B. Schram ritar forystu-
grein DV í gær og gerir bóka-
skattinn að umtalsefni:
„Frá og með síðustu mánaðamót-
um hefúr virðisaukaskattur verið
lagður á blöð, bækur, útvarp og
sjónvarp. Fjölmiðlar hafa af þessu
tilefni þurft að hækka útsöluverð og
áskriftir sem nemur 14% af virðis-
aukaskatti.
Eitt er víst að þessi skattlagning
mun ekki auðvelda ýmsum minni
dagblöðum að halda útgáfu sinni
áfram og þó hefur sífellt verið
hamrað á því að vemda skuli tján-
ingarfrelsið og skoðanaskiptin í
þjóðfélaginu. Það hefur rækilega
sannast í seinni í seinni tíð að opin
umræða og lýðræðislegt aðhald em
undir því komin að fjölmiðlun sé
sterk og fjölbreytt. Með auknum
opinbemm gjöldum er þrengt að
skoðanafrelsinu. Fjölmiðlum mun
fækka og umsvif þeirra minnka.
Val neytenda mun þrengjast og
með því verður skoðanamótunin
einhæfari.
Hitt er ekki síður alvarlegt um-
hugsunarefni að ríkisvaldið skuli
sjá sig knúið til að leggja virðis-
aukaskatt á bókaútgáfu. Það var
lengi baráttumál rithöfunda og
menntamanna að fella niður sölu-
skatt af bókum og reyndar annarri
menningarstarfsemi og svo fór fyrir
tveim árum, þegar söluskatti var
breytt í virðisauka, að þessi skatt-
lagning var felld niður. Kom það í
kjölfar viljayfirlýsinga frá stjóm-
málaflokkum og Alþingi og mæltist
vel fyrir.
Afnám bókaskattsins stóð samt
Ellert B. Schram: Það cr eins og skattlagning komi að ofan, það er eins og
stjómmálamennimir haldi að þeir séu verkfæri kerfisins en ekki iifugt-
ekki lengi og nú hefur virðisauka-
skatturinn verið lagður á bókaút-
gáfu á nýjan leik. Veislan stóð
stutt.“
Vondur skattur
Niðurlagsorð Ellerts eru á
þessa leið:
„Stjómvöld bera það fyrir sig að
undanþágur séu of margar og þeim
beri að fækka við skattlagningu
hverskonar. Skýringin á virðis-
aukaskatlinum er sögð sú að kerfið
leyfi ekki undanþágur. Það er eins
og skattlagning komi að ofan, það
er einsog stjómmálamennimir haldi
að þeir séu verkfæri kerfisins en
ekki öfugt.
Vitaskuld er það á valdi stjóm-
málamanna og ráðamanna að
ákveða hvað skuli skattlagt og hvað
ekki. Til þess emm við að velja og
kjósa menn og flokka að þeir hafa
skoðanir og vilja fylgja þeim eftir.
Menn fá pólitísk völd til að taka
pólitískar ákvarðanir. Núverandi
ráðamönnum er í lófa lagið að
ákveða að bækur og raunar fjöl-
miðlar skuli undanþegin virðis-
aukaskatti, af þeirri einföldu ástæðu
að til þess liggja veigamikil rök sem
þeir hafa áður fallist á.
Bókaskatturinn er vondur skatt-
ur.“
SPENNANDIVETTVANGUR
- segir Birgir Hermannsson, sem verður aðstoðarmaður
umhverfisráðherra
BIRGIfí HEfí-
MANNSSON, 29 ára
stjórnmálafræðingur,
var í gær ráðinn að-
stoðarmaður um-
hverfisráðherra,
Össurar Skarphéð-
inssonar.
„Þetta er spennandi vett-
vangur“, sagði Birgir Her-
mannsson í gær. „Ég er að
vísu ekki sérfræðingur í um-
hverfismálum og er frekar
pólitískur ráðgjafi ráðherra.
En ég lít á umhverfismálin
sem framtíðarmálefni, sem
skipta þjóðina miklu. Ég
mun reyna eftir megni að
láta gott af inér leiða í þessu
nýja starfi“, sagði Birgir í
gær.
Birgir er stúdent frá Fjöl-
BIRGIR HERMANNSSON - aðstodarmaður Ossurar í umhverfisráðu-
neyti.
brautaskóla Vesturlands og
stundaði nám í stjómmála-
fræði og heimspeki við Há-
skóla íslands 1984 til 1988,
og síðan í stjómmálafræði
frá 1988 til 1993 við New
School for Social Research í
New York.
Birgir hefur verið stunda-
kennari við félagsvísinda-
deild og viðskipta- og hag-
fræðideild Háskóla fslands
auk þess að kenna við sinn
gamla skóla á Akranesi. Á
þessu ári hefur Birgir stund-
að rannsóknir við Háskólann
á vegum Stefáns Olafssonar
prófessors. Birgir er í sam-
búð og á eins og hálfs árs
gamalt bam. Hann hefur
störf í umhverfisráðuneytinu
um næstu mánaðamót.