Alþýðublaðið - 08.07.1993, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 08.07.1993, Blaðsíða 6
4 Flutningshús til sölu Óskað er eftir kauptilboðum í íbúðartiús á lóðinni nr. 29 við Bræðraborgarstíg til brottflutnings af lóðinni. Húsið er úr timbri, ein hæð og ris á hlöðnum kjallara, samtals um 78 ferm., talið byggt 1898. Ekki er vilyrði fyrir lóð undir húsið í Reykjavík. Á lóðinni eru einnig 33 ferm. geymsluskúr úr timbri frá 1907 og 25 ferm. steinhús (söluturn) frá 1920, sem á að fjarlægja af lóðinni. Tilboð geta tekið til íbúðarhússins eins, eða allra húsanna og frágangs á lóð. Húsin verða til sýnis föstudaginn 9.júlí nk. kl. 14:00 til 16:00. Skila skal tilboðum til skrifstofu borgarverkfræðings fyrirkl.16:00 miðvikudaginn 14.júlí nk. Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík. fLóöaúthlutun í Reykjavík Til úthlutunar eru lóðir undir einbýlishús, parhús, raðhús og keðjuhús fyrir samtals 67 íbúðir við Laufrima, Mosa- rima og Rósarima í Rimahverfi eins og hér segir: Einbýlishús 2 lóðir 2 íbúðir Parhús 2 lóðir 4 íbúðir Raðhús 9 lóðir 33 íbúðir Keðjuhús 8 lóðir 28 fbúðir Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði byggingarhæfar á næsta ári. Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu borgarverk- fræðings, Skúlatúni 2,3. hæð, sími 632310. Þarfást einn- ig afhent umsóknareyðublöð, skipulagsskilmálar og upp- drættir. Tekið verður við umsóknum frá og með föstudeginum 9. júlí nk. á skrifstofu borgarverkfræðings. Borgarstjórinn í Reykjavík. Ágóðinn rennur Hl Krabbameinsfélagsins Ágóði af sölu bamabókarinnar „Freyjusögur“ var færður Krabba- meinsfélagi íslands að gjöf á dögun- um, 150 þúsund krónur. Gjöfin var afhent félaginu þann 30. júní síðast- liðinn, en þann dag hefði höfúndur bókarinnar, Kristín Finnbogadóttir ffá Hítardal, orðið 65 ára, en hún lést fyrir tveim árum. Kristín eða Lalla eins og hún var ætíð kölluð, fæddist í Hítardal í Mýrasýslu árið 1928, langyngst og eina systirin í hópi 10 bræðra. Hlaut hún það uppeldi og menntun sem ungum stúlkum í sveit stóð til boða á fyrri hluta aldarinnar. Um 1950 hélt hún til Englands til leiklistamáms, giftist þar í landi og bjó til æviloka, íyrst í London og sícf ar í nágrenni við Norwich. Áður en Kristfn lést hafði hún gengið ífá fimmtán frumsömdum söguköflum af kettinum Freyju, en kettir og önnur dýr voru í miklum metum á heimili hennar. Sögumar em af því tagi sem foreldrar segja bömum sínum gjaman eftir að þau eru komin í rúmið á kvöldin. Sögum- ar las Ragnheiður Steindórsdóttir leikkona í útvarp fyrir fáum ámm. Böm Kristínar og eiginmaður höfðu forgöngu um að gefa út bókina til að heiðra minningu hennar. Að ________Fimmtudagur 8. júlí 1993 hennar ósk var Krabbameinsfélaginu færður sá ágóði sem af sölunni varð. KRISTÍN FINNBOGA- DÓTTIR, ágóðinn af barnabók hennar var lát- inn renna til starfs Krabba- meinsfélags ís- lands. w < in poRwm MINI STRIP GRAZER V I th __ i li L i_JLU P M-— [|p UiV RAFGIRÐING HESTAMANNSINS FERÐASETT •SPENNUGJAFI B - 10 (6 RAFHLÖÐUR) •20 SAMSETTIR STAURAR •STERKUR SEGLPOKI UNDIR STAURANA •200 M. ÞRÁÐVÍR •SPÓLA FYRIR ÞRÁÐINN •KAUPFÉLÖGIN UM LAND ALLT OG MR BÚÐIN [ŒniTfiShWgZEgEgfiim . sími: 95.35200 -*=3J SAMBAND UNGRA JAFNAOARMANNA ÞÓRSMERKURFERÐ HELGINA 9.-11. JÚLÍ Nú eru öll pláss að fyllast í Þórsmerkurferð ungra jafnaðarmanna. Enn eru örfá sæti laus, en það verður ekki lengi. Þessi helgi er ein af stærstu ferðahelgum ársins og vitað er að þúsund- ir manna munu leggja leið sína í Þórsmörk um þessa helgi. Fjörið verður magnþrungið! Haldið verður af stað frá Alþýðuhúsinu í Reykjavík á föstudeginum klukkan 18:15. Mæting klukkan 18:00. Verðið er ótrúlega lágt vegna afar hagstæðra samninga við Austurleið hf., aðeins krónur 3.300.-. Gist verður í skála Austurleiðar í Húsadal. Þessi staður er eins og marg- ir vita ótrúlega fallegur enda Þórsmerkursvæðið ein af perlum íslenskrar náttúru. Hvað þarf að taka með sér: Sængurfatnað, mat, veigar og góða skapið. Æ, þið vitið, allt þetta dæmigerða sem fylgir útilegum. Lysthafendur eru hvattir til að panta hér og nú (og ekki seinna en í gær) hjá Stefáni Hrafni Hagalín, framkvæmdastjóra SUJ, vs. 625566/29244, hs. 616061, fax. 629244.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.