Alþýðublaðið - 08.07.1993, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 8. júlí 1993
5
Afkvæmi Kjarvals skiluðu föðurnum næstum í heiðursverðiaunaflokk. Hann
hefur sjálfsagt vel haldið uppá það hjá hryssum sínum útí haga. en eigandinn
Guðmundur Sveinsson dylur ekki ánægju sína með bikarana á lofti.
Átta efstu í B - flokki gæðinga, frá hægri: Vignir og Þyrili, Egill og Penni, Gísii
og Ofeigur, Höskuidur og Þytur, Jónas og Glampi, Jóhann og Brynjar, Ragnar
og Spenna og Eyjólfur Skrúðlausi.
Átta efstu í A - flokknum, frá hægri. Baldvin Ari og Hrafntinna, Elvar og Fiðia,
Sigurbjörn og Hjúpur, Þorvar og Nökkvi, Sigrún og Dama, Jóhann og Prins,
Egill og Kola og Höskuidur og Vordís. Ljósmyndir : G. T. K.
Halldór Blöndal landbúnaðarráðhcrra og þingmaður Norðurlands eystra og
Saiome Þorkelsdóttir forseti Aiþingis íslendinga á hestbaki í garði Norðlend-
ingsins Tryggva Gunnarssonar frá Laufási við Eyjafjörð í tilefni af norðlensk-
um hestadögum í Rciðhöllinni í vor.
Afkvæmi Oturs fyrir áhorfendum.
sigurvegarar f unglingaflokknum, frá hægri: Ragnar og Punktur, Friðgeir
Kolbrún og Söivi, Hrafnhildur og Kólumbus, Isólfur og Móri, Líney og
Glettingur, Friðgeir og Gýmir og Sveinn og Leiri.
Þríheilagt
hjá Norð-
lendingum
Myndir og texti: Guðlaugur Tryggvi Karlsson
Aldeilis er í mörg horn að
líta hjá Norðlendingum
þessa dagana. Nýlokið er
fjórðungsmóti norðlenskra
hestamanna á Vindheima-
melum í Skagafirði, en að-
dragandinn af því er margra
mánaða vinna hundruða
manna í sambandi við kyn-
bótadóma, því margir grip-
irnir eru kallaðir en því miður
Dagskrá Islandsmóts í hestaíþróttum
Fimmtudagur 22.júlí. kl.15:00 Dómarafundur. kl.16:00 Knapafundur. kl.18:00 Fjórgangur fullorðinna. Föstudagur 23.júlí. Kl. 08:00 Fjórgangur ungmenna. Kl. 09:30 Fjórgangur unglinga. Kl. 11:00 Fjórgangur barna. Matarhlé. Kl. 13:00 Fimmgangur fullorðinna. Kl. 16:00 Fimmgangur ungmenna. Kl. 17:00 Fimmgangur unglinga. Fösfudagskvöld: Opið hús í Skeifunni. Laugardagur 24.júlí. Kl. 08:00 Hlýðnikeppni fullorðinna, ungmenna, unglinga og barna. Kl. 10:30 Tölt unglinga og barna. Matarhlé. Kl. 13:00 Hindrunarstökk (við samkomuhúsið). Kl. 16:00 Tölt fullorðinna. Laugardagskvöld: Kl.20:30 KA-húsið, grillveisla, dansleikur. Sunnudagur 25.júlí. Kl. 09:00 Gæðingaskeið. Kl. 10:00 Tölt ungmenna. Kl. 11:00 Fjórgangur, úrslit fullorðinna, ungmenna, unglinga og barna. Matarhlé kl. 13:30 Fimmgangur, úrslit fullorðinna, ungmenna og unglinga. kl. 15:00 Tölt, úrslit fullorðinna, ungmenna, unglinga og barna. Kl. 16:30 Verðlaunaafhending.
Birt með fyrirvara. Framkvæmdanefnd íslandsmóts 1993
ekki útvaldir á stórmótin. Þá
þarf aldeilis að æfa gæðing-
ana fyrir hinar hörðu keppnir
á stórmótunum og unglinga-
starfið er ekki bara hrist
fram úr erminni fyrir þau
mót. Huga þarf einnig að
ástandi svæðisins, veitinga-
sala að vera í góðum hönd-
um og æfa þarf skemmtiat-
riði fyrir kvöldvökurnar.
Um næstu helgi verða svo hátíðisdagar
hestamannafélaganna í Eyjafírði, Léttis,
Funa og Þráins á Melgerðismelunum, en ef
að líkum lætur verður fjölmenni á þeim
fagra stað.
Helgina þar á eftir verður svo sjálft ís-
landsmótið í hestaíþróttum á Akureyri, þar
sem allir helstu knapar landsins og gæðing-
ar mæta í íþróttakeppni.
Meðfylgjandi mynd var aftur á móti tekin
þegar Norðlendingar stonnuðu til Reykja-
víkur í vor og héldu frábæra hestadaga í
Reiðhöllinni í Víðidal. í tilefni af þvíbrugðu
landbúnaðarráðherrann, Halldór Blöndal,
þingmaður Norðurlands eystra og forseti
Alþingis, Salome Þorkelsdóttir, sér á hest-
bak við Alþingishúsið, í garði Tryggva
Gunnarssonar frá Laufási við Eyjafjörð.
REIÐSPORl
FAXAFENI 10 • SÍMI 682345
VAXJAKKAR
VAXSKÁLMAR
Allar stærðir
Bamastærðir líka
10 tegundir
Mesta úrval landsins
Verð frá kr. 3.950,-
- Póstsendum -