Alþýðublaðið - 16.07.1993, Qupperneq 2
2
Föstudagur 16. júlí 1993
MMÐIIBim
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóður Sigurðsson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.200 á mánuöi. Verð í lausasölu kr. 110
Stríð SÞ í Sómalíu
Hörmungarástand ríkir enn í Sómalíu þrátt fyrir að Sameinuðu
þjóðimar hafi ætlað að koma landinu til hjálpar. I landinu hefur
nú geisað borgarastríð um nokkurra ára skeið og hungursneyð
hefur verið þar viðvarandi. Sómalskir stríðsherrar hafa barist um
yfirráðin í Sómalíu og virðist lítið hafa breyst við tilkomu her-
sveita á vegum Sameinuðu þjóðanna nema hvað þær virðast hafa
þjappað Sómölum saman gegn þeim erlendu hersveitum sem þar
eru á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Það hefur verið vandsvömð siðferðileg spuming, hvenær rétt-
lætanlegt er að fara með hemaði á hendur einu ríki vegna innan-
landsástands þess. Reynslan sýnir að þegar þriðji aðili, hvort
heldur það em Bandaríkin, Sameinuðu þjóðimar eða einhveijir
aðrir, skerst í leikinn magnast oft átökin og jafnvel fyrrum fjand-
menn og svamir óvinir sameinast gegn þessum þriðja aðila.
Þannig getur vilji til að stofna til friðar með hervaldi virkað sem
olía á eld þar sem deilur em fyrir. Því hljóta menn að velta fyrir
sér hvað tilgangi svokölluð friðargæsla Sameinuðu þjóðanna
þjóni nú í Sómalíu þegar herir á þeirra vegum em komnir á kaf í
innanlandsátökin.
Þá hafa komið upp innbyrðis deilur milli heija Sameinuðu þjóð-
anna. ítalir, sem em fyrrverandi nýlenduherrar Suður- Sómalíu,
hafa lent upp á kant við yfirstjóm heija SÞ. Hafa þeir m.a. gagn-
rýnt það að hemaður SÞ snúist meira um það að beija á ákveðn-
um stríðshermm og hefna fyrir árásir á hermenn Sameinuðu
þjóðanna en að koma bágstöddu og hungmðu fólki til hjálpar.
Enda er svo komið að almenningur sem fagnaði komu heija SÞ í
upphafi virðist hafa snúist gegn þeim. Því hljóta menn að spyija
sig hvort ekki sé rétt að herir SÞ snúi þaðan aftur til síns heima.
Nýr bæjarstjóri í
Hafnarfirði
Hafnaríjörður er sterkasta vígi Alþýðuflokksins um þessar
mundir. Það er eina sveitarfélagið á landinu þar sem Alþýðu-
flokkurinn er með hreinan meirihluta. í byijun þessa mánaðar
urðu bæjarstjóraskipti í Hafnarfirði og tók þá Ingvar Viktorsson
við af Guðmundi Ama Stefánssyni sem er orðinn heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra.
Ingvar Viktorsson er rótgróinn jafnaðarmaður og á langan ferill
að baki í Alþýðuflokknum og áður meðal ungra jafnaðarmanna.
Hann er vel liðinn meðal Hafnfirðinga, kraftmikill og hefur ver-
ið einn að þungavigtarmönnum Alþýðuflokksins í Hafnarfirði frá
því að hann var fyrst kosinn í bæjarstjóm fyrir sjö ámm. Ingvar
var áður formaður bæjarráðs Hafnaríjarðar og hefur auk þess
gengt ýmsum trúnaðarstörfum á vegum sveitarfélaga. Hann er
m.a. varaformaður stjómar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
✓
I Hafnarfirði er öflug sveit jafnaðarmanna og lengst af öldinni
hefur Alþýðuflokkurinn verið þar í forystu. Eftir að Alþýðu-
flokkurinn, eftir tvo áratugi í minnihluta, komst aftur til valda
fyrir sjö ámm í Hafnarfírði, hefur Hafnarfjörður tekið stakka-
skiptum. Mikill uppgangur hefur verið á öllum sviðum. Ekki er
að efa að svo verður áfram meðan Ingvar og hin öfluga sveit jafn-
aðarmanna í Hafnarfirði verða þar í forystu. Þótt margt hafi þar
verið gert á umliðnum ámm em mörg verkefni framundan sem
bíða farsællar úrlausnar.
AS'i‘DA‘g'1 'umv'nz nðs
henda, um það urðu konumar
sammála. Ayatholla-Kata sagði
að best væri að brúka það í af-
leggjara upp á hálendið. Hún
ákvað þegar þangað kom að þar
skildu reistar vinnubúðir því nóg
var enn af gijótinu. Hún ákvað
ennfremur að þar skyldi rísa hin
heilaga háborg: SEM- KONA.
Þegar SEM-KONA var full-
byggð var enginn karlmaður
lengur til. Árin liðu. Tíminn var
drepinn með sjóvarpsglápi. A
dagskránni var alltaf það sama,
Helen nútímakona, hálfrar aldar
gamall þáttur sem enginn fékk
leið á.
En hún AyaíhoUa-Kata kom
nú ekki alveg hreint fram. Þegar
aðrir sváfu dró hún prívat mynd-
segulband undan rúmi og horfði
á gamlar faróamyndir með uppá-
haldsleikaranum sínum, honum
Herbert Lom. Nú og ef henni
leiddist þá las hún íslenska orða-
bók, Bókaútgáfa menningar-
sjóðs, Reykavík 1963. (sam-
kvæmt gamla tímatali.)
Einn dag kom hún að litlu
orði á bls. 228 sem hún gat eng-
an veginn munað hvað merkti
jafnvel þó að skýring fylgdi.
Hún kallaði fyrir sig Ayatollah
Önnu-Jónu og Ayathollah-Siggu
en hvomg þeirra fékk neinn botn
í orðið.
Boð var látið út ganga en nú
fannst enginn lengur sem skilið
gat orðið því hinn hreini og rétti
kynstofn ríkti einn. Orðið er
samt enn í bókinni. Það er svona:
hata, -aði s, hafa hatur á.
Merking: andrætt því að
elska.
löftuö&qu* 16. Iúlí'9}
Atburðir
1791 Lúðvík sextánda var í dag vikið úr embætti þar til hann fellst á að
samþykkja frönsku stjómarskrána.
1867 Franski garðyrkjumaðurinn fékk í dag einkaleyfí á steinsteypu
styrktri af jámvírum.
1885 Louis Pasteur lagði í dag fram sannanir fyrir því að hann hafi fund-
ið upp lækningu við hundaæði.
1945 Fyrsta atómsprengjan var í dag sprengd á æfingasvæði Bandaríska
hersins í Nýju-Mexíkó.
1953 Nýtt hraðaheimsmet var sett í dag á Sabre- orrustuflugvél sem flaug
á 1.152 kílómetra hraða.
1965 Fyrstu jarðgöngin í gegnum Alpana vom opnuð í dag.
1967 Bíafra-stríðið hófst í dag með innrás nígerískra hermanna.
1990 Að minnsta kosti 100 manns lá Filippseyjum létu lífið í dag í jarð-
skjálfta.
Afmœlisdagar
Andrea del Sarto -1486 ítalskur fresku-málari.
Sir Joshua Reynolds - 1723 Enskur málari, fyrsti forseú Konunglegu
Akademíunnar.
Mary Baker Eddy - 1821 Bandarískur stofnandi Kristilegu vísinda-
hreyfingarinnar.
Roald Amundsen -1872 Norskur landkönnuður, fyrstur á Suðurpólinn.
Barbara Stanwyck -1907 Bandarísk leikkona.
Ginger Rogers -1911 Bandarísk leikkona og dansari, best þekkt fyrir að
vera helmingur Ginger & Astaire.
Margaret Court - 1942 Áströlsk tenniskona.
Rússnesku keisarafjölskyldunni slátrað
Rússneski tsarinn Nikulás II. og fjölskylda hans voru myrt í dag í rússneska
hænum Ekaterinberg eftir að hafa verið haldið í einangrun síðan í maí. Líkam-
ar þcirra voru brenndir og fleygt niður um ónotað námuop. Leiðtogi bolscvika
á staðnum er talinn hafa fyrirskipað morðin eftir að Ijóst varð að menn hans
gátu ekki varið bæinn fyrir nálgandi stórsókn Hvít-Rússa. Með aðgcrðum sín-
um hugðist bolsévikaforinginn koma í veg fyrir frelsun keisarafjölskyldunnar
af Hvít-Rússunum. Ráðandi öfl í heimsveldinu kröfðust þess á sínum tíma að
kcisarafjölskyldan væri frckar send í cinangrun til Ekaterinberg heldur en að
leyfa henni að fara úr landi. Sú ákvörðun hafði í dag afdrifaríkar afleiðingar.
Olafur Gunnarson
rithöfundur skrifar
Má ég hefja upp mína raust
í mínum fyrsta leiðara og segja
sem svo: Ég get ekki hlustað á
frekara tal um kvenréttindi.
Ég hef hlustað án þess að
æmta síðan framhaldsþáttur-
inn Helen nútímakona var
sýndur í sjónvarpinu veturinn
1970-1971. (Allir muna eftir
Helen, hún var að þroskast
hægt og bítandi og átti mann
sem var eins og rakaður ór-
angútan.)
Mælirinn fylltist þegar kona
sagði að karlar hötuðu svo mikið
að þeir eignuðust syni til þess
eins að senda þá í stríð svo hægt
væri að drepa þá.
Ég á fjóra syni. Fyrst datt mér
í hug að skrifa langa skáldsögu,
kannski fimm hundruð síður en
hana rak að feigðarósi og úr varð
lítill leiðari undir rós, ævintýrið:
SEM-KONA.
Árið 2005 var ákveðið að taka
upp nýtt tímatal vegna þess að
þá voru liðin þrjátíu ár síðan rétt-
indi voru lögtekin á Lækjartorgi.
Ayathollah-Kata átti hug-
myndina. Hún tilkynnti þetta á
Amarhóli tíu þúsund kvennvarð-
liðum sem hoppuðu fyrir framan
hana og blóðguðu sig á enni. Þá
var og lögfest að karlar skyldu
ganga með sólgult merki í barm-
inum, á því var mynd af grárri
rottu sem hvfldi makindaleg of-
an á hrauk af hrútspungum. Þetta
var til að auðkenna að þeir væm
pungrottur. Rottan var grá vegna
þess að hún var komin með gráa
fiðringinn.
Ayatholla-Sigga tilkynnti að
kominn væri tími til að karlar
gerðu eitthvað. Nú urðu þeir að
aka strætó. Púla á eyrinni. Grafa
skurði. Byggja hús. Hanga á
kontómm. Fara til sjós og svo
má lengi telja.
-Látum þá höggva
steina,hrópaði Ayatholla-Kata. -
Ég vil nýjan hringveg. Mér leið-
ist sá gamli.
Flokkamir lögðu upp ffá Ak-
ureyri og þegar þeir mættust á
Mýrdalssandi var reiðinnar býsn
af hnullungum eftir. Svona
miklu gijóti var ekki hægt að