Alþýðublaðið - 16.07.1993, Blaðsíða 7
Föstudagur 16. júlf 1993
NEYTENDUR
7
Itarleg verðkönnun Neytendasamtakanna í 17 matvöruverslunum
Ódýrast að versla í Hafnarfirði
Bónus Hafnarfirði kemur best útúr verðkönnun Neytendasamtakanna. Fjarðarkaup með þriðja lœgsta verðið og einna mesta
vöruúrvalið. Allt að 443 prósent verðmunur!
Mánudaginn 5. júlí gerðu Neytendasamtökin, í samvinnu
við neytendafélögin á Akureyri, Suðurnesjum og Suður-
landi og verkalýðsfélögin í Vestmannaeyjum, verðkönnun í
matvöruverslunum á þessu svæði, auk fjögurra matvöru-
verslana á höfuðborgarsvæðinu. Kannað var verð á al-
gengum dósa- og pakkavörum, en í könnuninni eru einnig
nokkrar tegundir af kjöti, fiski og mjólkurvörum, ávöxtum og
grænmeti. Gríðarlegur verðmunur kom fram, og sýnir að
neytendur geta sparað háar upphæðir með lágmarks út-
sjónarsemi.
Verðmunur milli einstakra tegunda er
mikill. Mestur munur á lægsta og hæsta
verði reyndist vera á grænmeti og ávöxtum,
á bilinu 118-443%. Þannig kostaði kílóið af
agúrkum á bilinu 49 krónur og uppí 266
krónur, sem er hvorki meira né minna en
443 verðmunur. A tjölmörgum öðrum vör-
um var verðmunur á bilinu 40- 60% ekki
óalgengur, eða jafnvel meiri. Sem dæmi má
nefna, kostaði Ajax gluggahreinsir án úð-
ara, 500 ml., á bilinu 74 krónur og uppí 199
krónur sem er 169% verðmunur.
Lægsta verðið reyndist vera í Bónus
Hafnarfirði. Miðað við meðaltöluna 100
var verðið 78,7 á þeim bæ. Hæsta verð var
hinsvegar í Kaupfélagi Ámesinga í Vest-
mannaeyjum 115,8.
KEA Akureyri var með annað lægsta
verðið en Fjarðarkaup komu skammt á eft-
ir. I Fjarðarkaupum reyndist einna mest
vöruúrval, 105 tegundir af 107, voru til þar.
Mikill munur var á vöruúrvali í einstök-
Samanburður
milli verslana
Af 107 Hlutfalls-
vörum legur
voru til samanburður
Bónus Hafnarfirði 52 78,7
KEA 77 87,0
Fjarðarkaup Hafnarfirði 105 90,9
Hagkaup Njarðvíkum 96 92,1
Hagkaup Rcykjavík 106 92,7
Ilagkaup Akureyri 105 92,8
Nóatún vestur í bæ, Rvík 98 98,9
Kjarabót Selfossi 78 99,4
Eyjakaup Vestmannaeyjum 92 101,4
Samkaup Njarðvík 97 101,9
Vöruval Vestmannaeyjum 81 102,5
Betri bónus Vestmannaeyjum 65 103,8
Vöruhús KÁ Selfossi 97 105,9
Þríhyrningur Hellu 92 107,1
Kf. Rangæinga Hvolsvelli 93 109,4
Höfn Selfossi 99 113,7
KÁ Vestmannaeyjum 82 115,8
Bónus í Hafnarfirði er ódýrust en KÁ Vestmannaeyjum dýrust: í þessari töflu
er borið saman verð milii verslana á þeim vörum sem til voru í hverri verslun.
Hér er um hlutfallslegan verðsamanburð að ræða. Reiknað er út meðalverð
hverrar vörutegundar í öllum verslunum og það sett sem 100 og hvert einstakt
verð reiknað út í hlutfalli við það. Þegar reiknað hefur verið út hlutfallslegt verð
á hverri vöru á þennan hátt í hverri verslun, er tekið meðaltal af öllum vörunum
í hverri verslun og sú tala er birt í töfiunni. Þannig væri verslun með töluna 100
í meðallagi hvað verð varðar á þessum vörum, miðað við verð í öðrum verslun-
um. Einnig má sjá töflunni hve margar vörur voru til í einstökum verslunum.
u
1 ámM HfBfffF
ngstölur
Vinni
miðvikudaginn:
14. júlí 1993
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
E3 6af6 3 (á ísl. 0) 21.030.856
m 5 af 6 LS+bónus 1 1.718.269
fcl 5 af 6 8 59.319
E! 4af6 383 2.493
na 3 af 6 Cfi+bónus 1.492 284
Heildarupphæð þessa viku
66.663.936
á ísl.:
3.571.368
UPPLVSINGAR, SfMSVARI 91-fi8 15 11
LUKKUUNA 9910 «0 - TEXTAVARP 451
9191 UED EV91BVAB* UU PRCNVVILLU9
um verslunum. Þannig voru yfir 100 vöru-
tegundir, af þeim 107 sem könnunin náði
til, í þremur verslunum, Hagkaup Kringl-
unni og Akureyri og Fjarðarkaupum. í
versluninni með lægsta vöraverðið voru
hinsvegar aðeins til 52 af þessum vörum,
eða innan við helmingur úrtaksins.
I könnuninni er vitaskuld ekki lagt mat á
þjónustu einstakra verslana. Opnunartími
er mismunandi og að minnsta kosti tvær
taka ekki við greiðslukortum. Þá er í sum-
um tilvikum veittur staðgreiðsluafsláttur.
En könnunin undirstrikar ótvírætt nauð-
syn þess að neytendur fylgist vel með vöru-
verði og leiti jafnan eftir hagstæðasta verð-
inu. Það er líka kjarabót.
Fjarðarkaupamcnn. Gísli Sigurbergsson og Haraldur Haraldsson gcta verið ánægðir. Verslun
þcirra er með cinna lægsta verðið og mesta úrvalið. Geri aðrir betur!
„Þetta er glæsilegt og eykur áreiðanlega söluna um helgina,“ sagði Guðmundur Hafsteinsson verslunarstjóri í Bónus Hafnarfirði sem býður neyt-
endum lægsta verðið samkvæmt splunkunýrri könnun. (A-myndir: E.Ol.)
3 Góðir saman
Umboðsmenn um fand allt: Á.G. Guðmundsson sf.. Húsavik • Ásbyrgi hf.. Akuteyri • Ásgeir Bjömsson. Siglufirði • Guðrún sf..
Vopnafirði • Hafsteinn Vilhjálmsson, Isafirði • Reynir sf., Blönduðsi • Sigbjörn Brynjólfsson, Egilsstöðum • Svanberg hf., Vest-
mannaeyjum • Umboðssala Rósu Bachmann, Patreksfirði •
hf. Akureyri
t Sigbjöm B
Umboðsmenn um land allt: A.G. Guðmundsson sf., Húsavfk • Asbyrgi
Vopnafirði • Hafsteinn Vilbjálmsson, Isafirði • Reynir sf„ Blönduósi •
mannaeyjum • Umboðssala Rósu Bachmann, Patreksfirði •
• Asgeir Björnsson, Siglufirði • Guðrún sf„
rvniólfsson, Egilsstöðum • Svanberg hf„ Vest-