Alþýðublaðið - 22.07.1993, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 22. júlí 1993
FERÐALOG
3
Ætla má að 10-15 þúsund manns ferðist mcð rútum um verslunarmannahelgina.
Verslunarmannahelgin
Hvert skal halda?
Víða má finna fallega náttúru og góð útivistarsvæði á íslandi.
Vafalaust eru margir
farnir að huga að því
hvað gera skuli um
verslunarmannahelg-
ina, mestu ferðahelgi
ársins. Útihátíðir verða
víða um land og mun
fólk væntanlega flykkj-
ast á þær, þó svo að
margir kjósi að verja
helginni í meiri róleg-
heitum. Þeir hjá BSÍ
búast við að um fimm
þúsund manns muni
leggja af stað með rút-
um frá BSÍ föstudaginn
fyrir verslunarmanna-
helgina og alls muni
um 10-15 þúsund
manns ferðast áætlun-
arbílum yfir helgina. Al-
þýðublaðið birtir hér
nokkrar upplýsingar
um það helsta sem
verður að gerast um
verslunarmannahelg-
ina.
Þjóðhátíð í Eyjura
Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum
verður á sínum stað í Herjólfsdaln-
um yfir verslunarmannahelgina og
verður hún á vegum íþróttafélags-
ins Týs. Þar munu hljómsveitimar
Pláhnetan, SSsól og Todmobile
leika á stóra pallinum, en á litla
pallinum verða HetTamenn. Þá
verður þar boðið upp á margvísleg
skemmtiatriði auk þess sem Ámi
Johnsen mun sjá um Brekkusöng.
Aðgangseyrir á Þjóðhátíðina í
Eyjum er 6.500 krónur og pakka-
ferð á vegum BSI frá Reykjavík er
9.100 krónur. Böm 13 ára og yngri
fá ffítt inn á svæðið í fylgd með
fullorðnum og sömuleiðis fá ellilíf-
eyrisþegar ókeypis aðgang.
Galtalækur
I Galtalækjarskógi verður bind-
indismót á vegum Islenskra Ung-
templara og Stórstúku Islands.
Hljómsveit Geirmundar Valtýsson-
ar leikur fyrir dansi á palli öll
kvöldin og í kúluhúsinu Heklu
leika Örkin hans Nóa, Gutlamir,
Pandemonium og Tannpína. Þá
verður fjölbreytt skemmtidagskrá f
boði.
Aðgangseyrir inn á svæði verður
5.300 krónur en kostar í forsölu í
Seglagerðinni Ægi 4.800 krónur
fram til 25. þessa mánaðar. Rútu-
ferð á svæðið frá Reykjavík fram
og til baka kostar 2.400 krónur.
Þórsmörk
Þrátt fyrir að ekkert skipulegt
mótshald verði í Þórsmörk um
verslunarmannahelgina má búast
við að þangað verði venju sam-
kvæmt talsverður straumur fólks.
Rútuferð þangað kostar 3.600 krón-
ur og tjaldgisting fyrir þijár nætur
1.200 krónur. Skálagisting í Þórs-
mörk kostar 1.000 krónur fýrir nótt-
ina.
Snæfellsás ’93
Nýaldarfólk mun verða með sína
árvissu samkomu að Hellnum á
Snæfellsnesi um verslunarmanna-
Það er vinsælt að tjalda úti í guðsgrænni náttúrunni um verslunarmannahelgina.
Þórsmörkin nýtur alltaf mikilla vinsælda, jafnt um verslunarmannahelgina
sem og aðrar hclgar sumarsins.
helgina. „Mannrækt undir jökli“ er
yfirskrift útihátíðarinnar. Þar verð-
ur andinn ræktaður og haldnir
margvíslegir fyrirlestrar. Mótsgjald
er 3.500 krónur og rútuferðir þang-
að kosta 3.300 krónur. Frítt er fyrir
böm yngri en 14 ára. Hægt er að fá
svefnpokagistingu að Amarstapa
fýrir 850 krónur nóttina.
Vík í Mýrdal
Fjölskylduhátíðin Vík ’93 er
haldin á vegum Björgunarsveitar-
innar Víkveija og Ungmennafé-
lagsins Drangs. Þar mun hljóm-
sveitin Gloría leika fyrir dansi um
verslunarmannahelgina. Á hátíð-
inni verður mest boðið upp á hreyf-
ingu ýmis konar og íþróttakeppnir.
Ekkert kostar inn á svæðið en
greiða þarf fyrir tjald, tjaldvagn eða
hjólhýsi 1.000 krónur yfir nóttina.
Þá verður boðið upp á bátsferðir,
útsýnisflug og vélsleðaferðir. Rútu-
ferð þangað aðra leið kostar 1.450
krónur.
Sfldarævintýri á Siglufirði
Siglfirðingar halda sína stórkost-
legu sfldarhátíð um verslunar-
mannahelgina. Þar verður sfldar-
söltun á Drafnarplani, útiskemmt-
anir á sviði í miðbænum, sfldar-
dansleikur og landlegudansleikur.
Það verða Miðaldamenn, Gautar,
Max og Stormar sem halda uppi
fjörinu. Sérstakt afsláttarverð með
rútu frá Reykjavík, fram og til baka,
er krónur 5.250.
Akureyri
Fjölskylduhátíð verður á Akur-
eyri um verslunarmannahelgina og
þar boðið upp á margvíslega
skemmtun. Á dansleikjum munu
Pláhnetan, Skriðjöklar og Pelikan
standa fyrir stuði. Afsláttarverð
með rútu frá Reykjavík til Akureyr-
ar og aftur til baka er 6.200 krónur.
Neistaflug ’93 á Neskaupstað
Fjölskylduhátíðin Neistaflug ’93
er haldin á vegum ferðamálaráðs
Neskaupstaðar og nágrennis ásamt
hagsmunaaðilum í bænum. Þar
verður haldið upp stanslausri dag-
skrá frá föstudegi til mánudags. Þar
munu hljómsveitimar KK-band,
Bogmil Font og milljónamæring-
amir ásamt Randver meðal annars
leika. Rútuferð frá Egilsstöðum til
Neskaupstaðar kostar 950 krónur.
Landmannaiaugar við Fjailabaksleið nyrðri hafa ávallt haft mikið aðdrátt-
arafl fyrir ferðamenn.
Ævintýraferðir
um óbyggðir
Um verslunarmanna-
helgina verður boðið
uppá ýmiskonar
ferðir á vegum BSÍ
um óbyggðir lands-
ins og fólki gefinn
kostur á að sækja
heim sérstæða staði
sem almenningur
heimsækir ekki á
hverjum degi.
Þar má nefna ferð frá Reykja-
vík um Sprengisand til Akureyr-
ar; Ferð frá Reykjavík um Fjalla-
bak nyrðra í Skaftafell; Ferð frá
Reykjavík um Sprengisand til
Mývatns; Ferðir í Landmanna-
laugar og Fjallabak syðri að
Mælifelli. Enn frernur er boðið
uppá ferðir í Þórsmörk, á Snæ-
fellsnes og Snæfellsjökul. Eins
verður boðið upp á fimm daga
tjaldferð um hálendi íslands. Það
er því ýmislegt sem hægt er að
gera um verslunarmannahelgina
og fleira f boði en stórar útihátíð-
ir.