Alþýðublaðið - 22.07.1993, Page 7
Fimmtudagur 22, júlí 1993
7
MENNING - TONLIST
M
BJORK GUÐMUNDSDOTTIR,
POPPÁLFUR Á UPPLEIÐ!
Ahrif Bjarkar á tónlistarheiminn þegar hún steigfram í sviðsljósið voru slík og þvíumlík að harðnaðirkarlkyns
blaðamenn tóku að rita greinar um söngkonuna sem líktust frekar ástarbréfum unglinga í millum heldur en vandlega
yfirvegaðri íhugaðri tónlistargagnrýni. Bima Helgadóttir tók eftirfarandi viðtalfyrir stórblaðið THE EUROPIAN.
Björk Guömundsdóttir: „Lýsir sjálfri sér sem „athafnakonu sem hörð er í hom að taka“ og segir hálf-af-
undin um athyglifjölmiðía eftir að sólódiskur hennar DEBUT kom út: „Ég veit ekki hvað íósköpunum alU
þetta uppnám snýst um.“
Slest viðtöl við
Björku Guð-
mundsdóttur
hljóma frekar eins
og ferðalag í
gegnum álfheima
J.R.R. Tolkiens
heldur en hefð-
bundið rabb við
poppsöngkonu;
„Álfur“, „hafmey"
og „geimvera“ eru
orð sem eiga það
til að skjóta upp
kollinum með
reglulegu millibili.
Áhersla skal lögð
á að þessar nafn-
giftir koma ekki
frá söngkonunni
sjálfri. Hún lýsir
sjálfri sér sem
„athafnakonu
sem hörð er í
horn að taka“ og
segir hálf-afundin
um athygli fjöl-
miðla eftir að
sólódiskur hennar
DEBUT kom út:
„Ég veit ekki hvað
í ósköpunum allt
þetta uppnám
snýst um.“
Frami íslendingsins
Það er hveiju orði sannara
að það hefur ríkt mikið upp-
nám í kringum þennan 27 ára
íslending síðan hún vakti
tyrst athygli f alþjóðlega tón-
listarheiminum sem söngvari
sérstæðu hljómsveitarinnar
Sykunnolarnir.
Hljómsveitin, sem nú hefur
sundrast, naut velgengni á
vinsældalistum beggja vegna
Atlantshafsins og fór meðal
annars í hljómleikaferðalag
um Bandaríkin með hinni
heimsfrægu hljómsveit U2.
En á meðan tónlistargagn-
rýnendur hrósuðu Sykurmol-
unum á hvert reipi fyrir frum-
leika og góða tónlist þá beind-
ist megnið af athygli almenn-
ings að Björku. Ffngert asískt
andlitsfall hennar, töfrum lík-
ust röddin og fjarhuga fram-
koman gerðu það að verkum
að hún varð ein af uppáhalds
forsíðukonunt tónlistarblað-
anna.
Áhrif Bjarkar á tónlistar-
heiminn þegar hún steig ffarn
í sviðsljósið voru slík og því-
umlík að harðnaðir karlkyns
blaðamenn tóku að rita grein-
ar um söngkonuna sem líktust
frekar ástarbréfum unglinga í
millum heldur en vandlega
fhugaðri tónlistargagnrýni.
DEBUT slær í gegn
Sólódiskurinn DEBUT
hlýtur jafn mikla umfjöllun
og Björk sjálf áður, en nú ein-
beita gagnrýnendumir sér að
tónlistinni.
„Heillandi," sagði einn
gagnrýnandinn. „Rödd henn-
ar ögrar og gerir ekkert úr
skilgreiningum," sagði annar.
Þegar DEBUT-diskurinn
kom út íyrir tveimur vikum
þá flaug hann beint inn í
þriðja sætið á breska vin-
sældalistanum. Margir telja
diskinn líklegan kandídat í
valinu á disk ársins hjá breska
tónlistartímaritinu New Mus-
ical Express og lítur auk þess
sterklega út fyrir að hann nái
metsölu á gervöllu megin-
landi Evrópu.
Tónlistarmyndbandið með
laginu „Human Behaviout•“
af DEBUT, sem ffanski
teiknimyndasmiðurinn Paul
Gondrey stýrði tökum á, er
stöðugt sýnt á tónlistarstöð-
inni MTV.
Farið í víking
Björk — sem einungis er
kölluð skímamafni sínu, því
föðumafnið Guðmundsdótt-
ir þykir of mikill tungubijótur
fyrir þá sem ekki em Norður-
landabúar — hefur um stund-
arsakir snúið baki við heima-
bæ sínum Reykjavík og býr nú
við síki í Litla-Feneyjahverf-
inu í London.
Sonur hennar Sindri er um
það bil að komast á skólaald-
ur og Björk gat ekki lengur
ferðast með hann á tfðum
ferðalögum sínum erlendis.
Hún ákvað því eftir nokkurt
hik að þau mæðgin væm
nauðbeygð til að yfirgefa fs-
land og flytja þangað sem
mikla vinnu var að hafa fyrir
Björk.
Öruggt jarðsamband
„Ég er ekki poppstjama —
ég skapa tónlist,“ segir hún
aðspurð um hvort hún njóti
ekki frægðarinnar. Eftir að
hafa um fimm mánaða skeið
verið upptekin við kynningu á
DEBUT þá er hún skiljanlega
orðin nokkuð þreytt linnu-
lausri markaðsherferðinni.
„Ég er íslendingur þannig
að ég er vön erfiðisvinnunni
og svitanum sem henni fýlgir.
En öll þessi kynningarstarf-
semi er ekki almennileg
vinna. Ég vildi óska þess að
fólk hlustaði á tónlistina í stað
þess að vera sífellt að biðja
mig um að tala um hana,“
segir Björk þreytulega og
bætir við:
„En ég býst svo sem við að
markaðsvinnan sé bara hin
hliðin á peningnum. Ég tel
mig heppna að hafa áskotnast
nægir fjármunir til að gera
það sem ég vil og geta látið
drauma mína rætast."
Draumar sem rætast
DEBUT er afleiðing þess
að einn af þessum draumum
Bjarkar rættist. Þrátt fyrir að
titillinn DEBUT sé ef til vill
nokkuð rangnefni (debut þýð-
ir frumraun listamanns) —
Björk hefur haft atvinnu af
söngnum frá 11 ára aldri —
þá kemur hann til vegna þess
að „þetta er fýrsti diskur-
inn/hljómplatan sem ég hef
gert upp á eigin spýtur."
Björk segir diskinn inni-
halda mörg lög sem hún hefur
„gengið með“ í gegnum allan
söngferilinn. Á meðan hún
var enn í skóla upp úr 1980 þá
var hún ein af leiðandi stjöm-
um pönksins í Reykjavík. Til
að byrja með sem söngvari
Tappa Tíkarrass — nafnið
vísar til afturendans á kven-
kyns hundi — og síðar sem
meðlimur hinnar torskiljan-
legu hljómsveitar, Kuklið. Sú
hljómsveit, sem á endanum
skrifaði undir samning hjá
London-fyrirtækinu Crass,
lagði upp laupana og endur-
fæddist seinna í auðmeltan-
legra formi, Sykurmolunum.
Úrvalsblanda Bjarkar
Upptökustjóm á DEBUT
hafði Nellee Hooper með
höndum, en hann er meðlim-
ur bresku hljómsveitarinnar
Soul II Soul.
DEBUT er sannkölluð úr-
valsblanda af tækni-djassi og
poppi. Einnig hafa verið sett í
púkkið nokkur gamaldags,
dapurleg ástarlög einsog hið
klassíska lag, „Like Someone
in Love“ eftir þá Van Heusen
og Burke.
„Maður verður að vera
óeigingjam og gefa hverju
lagi það sem maður heldur
það þarfnast," segir Björk um
sköpunarferilinn á DEBUT.
Þannig fær „Like Someone
in Love“ gott veganesti frá
hinum áttræða munnhörpu-
leikara Corki Hale. Enn
fremur má taka sem dæmi
kafla úr „There’s More to
Life Than This“ sem að sögn
var hljóðritaður á salemi Milk
Bar, næturklúbbs í London.
Hið frábæra lag „ Venus as a
Boy“ fær aftur á móti ítarlega
meðhöndlun hjá tuttugu
manna hljómsveit frá
Bombay.
Listrænt sjálfstæði
Björk hefur nú þegar hafið
vinnu við annan disk og
hljómleikaferð um Evrópu er
áætluð í haust. Hún virðist
vera vel á veg kominn með að
verða sóló-stórstjama en lítil
hætta virðist vera á því að
Björk sogist inn í mark-
aðsmaskínu tónlistariðnaðar-
ins.
Sykurmolamir vom á sín-
um tíma vel þekktir í tónlist-
arheiminum fyrir þrálátlegar
kröfur sínar um „fullt lista-
mannsfrelsi" — tungumjúkir
stjómendur útgáfufyrirtækja,
sem vonuðust til að geta tælt
þessa sveitalubba (ffá norður-
hjara veraldar) til að taka upp
söluvænlegri hegðun, mættu
lítilli þolinmæði og var vísað
umsvifalaust á braut.
Björk hefur tekið upp þráð-
inn þar sem Sykurmolamir
skildu við hann. Hún ber
gunnfána Sykurmola-hefðar-
innar með því að halda fram
þóttafull, sjálfsákvörðunar-
rétti sínum sem Iistamanns.
„Venus as a Boy“
Þegar Mick Hucknall,
söngvari hinnar feikivinsælu
hljómsveitar Simply Red, lýsti
yfir eindregnum áhuga sínum
á að vinna með Björku, þá
haggaðist hún ekki og fannst
lítið til þess koma að vera
sýndur þessi „heiður". Hún
leyfði Hucknall þó að endur-
hljóðblanda „Venus as a
Boy“ fyrir næstu smáskífu
sína. Sú kentur á eftir smá-
skífunni með „Human Be-
haviour" og er búist við góð-
um móttökum.
Hins vegar krafðist Björk
þess að sú hljóðblöndun yrði
höfð á B-hlið skífunnar. „Mér
fannst endurhljóðblöndunin
ekki bæta neinu betra við
upprunalegu hljóðritunina,"
sagði hún.
sth // Byggt á
viðtalsgrein Bimu
Helgadóttur í
THE EUROPEAN.