Alþýðublaðið - 30.07.1993, Page 11
11
Föstudagur 30. júlí 1993____________________________
KVIKMYNDAGAGNRÝNI: BARÐI JÓHANNSSON
UTLAGASVEITIN: AGÆTIS KABO]!
1«
IDC
I DðffifiXI
Barði Jóhannsson, kvikmynda-
gagntýnandi Alþýðublaðsins, er 19
ára kvikmyndaáhugamaður, MR-ing-
urog höfuðpaur Listafélags Mennta-
skólans í Reykjavík.
Stjömugjöf
Alþýðublaðsins:
Tímamótaverk: ***★★
Frábær: ★★★★
Góð: ★★★
Sæmileg: ★★
Slæm: ★
Vond: 0
ÚTLAGASVEITIN (POSSE); Mario
Van Pcebles (fyrir miðju) lcikur aðal-
hiutverkið og leikstýrir þcssum ágæta
vestra sem Háskólabíó sýnir um þessar
mundir. Vestraaðdáendur láta þessa
væntanlega ekki fram hjá sér fara.
inn Jessie Lee (Mario Van Peebles: sá
hinn sami og lék f og leikstýrði hinni ágætu
New Jack City) sem hafði áður verið með
skæting við ofurstann. Árásin á hergagna-
lestina gengur að óskum og fyrir tilviljun
finna samverkamennimir gullkistu sem þeir
svo flytja með sér til meginlandsins. Við
þetta verður Graham æfareiður því að hann
hafði hugsað sér að hirða gullið og veitir
þeim eftirför.
Á stuttu stoppi Jessie Lee og félaga í
pútnahúsi bætist svo lélegur fjárhættuspila-
svindlari, Father Time, í hópinn. Heldur
sveitin síðan af stað til krummaskuðsins
Freemanville þar sem Jessie Lee á harma að
hefna og ástar að endurheimta.
í Freemanville verður útlagasveitin fyrir
áreitni og er þar að verki fógeti bæjarins og
félagar hans. Kemur í þá ljós að fógetinn er
búinn að leggja alla hina þeldökku íbúa
bæjarins í einelti og er það í tengslum við
áform hans um uggvænlegan gróða sem
felst í sölubraski með mikið og verðmætt
landflæmi. Við þetta hefst undirbúningur
lokauppgjörs sem ekki verður nánar farið út
í hér.
Það má segja að vestrinn ÚTLAGA-
SVEITIN sé í raun tvær sjálfstæðar sögur
sem skeytt er saman í eina. Hugmyndin er
svo sem ekki ný en því miður tekst þetta
f flestum vestrum sem gerðir hafa verið
ber lítið á blökkufólki í aðalhlutverkum.
Þetta virðingarleysi við blökkumenn fannst
aðstandendum kvikmyndarinnar ÚT-
LAGASVEITIN, ntjög miður. Þeir vildu
gera almenningi grein fyrir því að blakkir
hafi ekki verið síðri kúrekar en bleiknefj-
amir. (í þessu sambandi ber þó að undan-
skilja The Unforgiven eftir Clint Eastwood
þar sem blökkumönnunt var gert óvanalega
hátt undir höfði: Morgan Freman var í einu
aðalhlutverkana.)
Útlagasveitin hefst þannig á því að gam-
all maður fræðir kvikmyndahúsagesti um
Qölda og ágæti hinna svörtu útlaga í villta
vestrinu. Því næst eru bíógestir komnir inn
í mikinn bardaga Bandarikjamanna og
Spánverja sem gerist á Kúbu. Ofursti að
nafni Graham sendir sveit manna af stað til
þess að ráðast á spænska hergagnalest.
Fremstur í flokki þessarar sveitar er einfar-
Iffifif BGfflDDf Œfflffi 1M
ttffii' IW UNE IBffi
ekki nógu vel og verður myndin því ekki
jafti góð heild og vera skyldi.
Hasaratriði eru skemmtileg enda er slíkt
nauðsynlegt til að vestrar geti talist vestrar.
Flestir þeirra sem áttu einhvem þátt í
gerð myndarinnar höfðu ekki unnið að
vestra áður. Þar með er talinn leikstjórinn
og aðalleikarinn Mario Van Peebles sem á
góða spretti og sýnir að hann hefur lært
mikið af vestrakonungnum Clint Eastwood.
Peebles á framtíðina fyrir sér sem kúreki og
væri gaman í ffamtíðinni að sjá hann og
Eastwood eigast við á hvíta tjaldinu.
Charles Lane á góðan leik sem eini hvíti
maðurinn að í útlagasveit Peebles. Aðrir
leikarar standa sig eftir atvikum vel.
Tæknihlið myndarinnar er svo gott sem
hnökralaus en annars ekki mikið um hana
að segja. Kvikmyndatökumaðurinn Peter
Menzies skilar þó góðu dagsverki.
Tileftti er til að minnast á tónlistarhliðina,
því hún verður að teljast nokkuð óvenjuleg
íyrirþessa tegund kvikmyndar. Að því leyti
þá sérstaklega að meira er notast við
mannsröddina heldur en hina dæmigerðu
munnhörpu í slagtogi við gítar. Tveir fræg-
ir rabbtónlistarmenn leika í myndinni og
bjóst maður því hálfvegis við eins og einu
rabblagi. Og viti menn, það kemur í lok
myndarinnar.
Megin markmiðið með gerð
myndarinnar virðist greinilega hafa
verið að láta almenning gera sér
grein fyrir því að þeldökkir útlagar
voru líka til. Það ætlunarverk tókst.
Útkoman að öðm leyti er skemmtun í
rúmu meðallagi.
ÚTLAGASVEITIN
(POSSE)
Háskólabíó
★★ 1/2
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1984 -1 .fl. 01.08.93-01.02.94 kr. 62.271,00
*)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, júlí 1993.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
NORÆNN
ÖLDRUNARMÁLADAGUR
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið boðar til norrænnar
ráðstefnu um öldrunarmál að Hótel Loftleiðum fimmtudaginn 19.
ágúst 1993.
Allir frummælendur gegna lykilstöðum varðandi öldrunarmál.
Dagskrá verður, sem hér segir:
kl.09:00 Skráning
kl.09:20 Ráðstefnan sett:
Hr. Guðmundur Árni Stefánsson,
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
kl.09:30 Greiðslufyrirkomulag fyrir öldrunarþjónustu.
Fyrirlesari verður Sigbrit Holmberg, deildarstjóri frá Svíþjóð.
kl.10:00 Sjálfboðaliðar í öldrunarþjónustunni.
Fyrirlesari verður Eli Sundby, deildarstjóri, frá Noregi.
kl.10:30 Kaffihlé
kl.11:00 Breytingar á þjónustustigi.
Fyrirlesari verður Dorte Höeg, deildarstjóri, frá Danmörku.
kl.11:30 Breytingar á öldrunarþjónustunni í Finnlandi.
Fyrirlesari verður Marja Vaarama, öldrunarfræðingur, frá
Finnlandi.
kl. 12:00 Hádegisverður
kl.13:30 Fjármál og rekstur. Nýjar hugmyndir og spurningar.
Fyrirlesari verður Ásgeir Jóhannesson, formaður Samstarfs-
nefndar um málefni aldraðra, frá íslandi.
kl.14:00 Umræður verða í hópum um fyrirlestrana.
kl. 15:00 Kaffihlé
kl.15:30 Niðurstöður hópaumræðna
kl. 16:00 Dagskrálok.
íslenskum ágripum úr fyrirlestrunum veður dreift til þátttakenda. Auk
þess sem túlkur verður á staðnum.
Fundarstjóri verður Hrafn Páisson, deildastjóri öldrunarmála í Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.
Ráðstefnugjald verður 2.500 krónur. Innifalinn er hádegisverður og
kaffi. Þátttaka tilkynnist ráðuneytinu fyrir 10. ágúst 1993.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
'/'V/M
'W Útboð
Skeiða- og Hrunamannavegur
um Litlu-Laxá
Vegagerð rfkisins óskar eftir tilboðum í lagningu 1,5 km kafla á
Skeiða- og Hrunamannavegi.
Helstu magntölur: Fyllingar og neðra burðarlag 28.000 m3 fláar og efni
úr skeringu jafnað við hlið vegar 15.000 m3.
Verki skal lokið 1. desember 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Selfossi og í Borgar-
túni 5, Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 3. ágúst n.k.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 16. ágúst 1993.
Vegamálastjóri
Auglýsing
um að álagningu opinberra gjalda
á árinu 1993 sé lokið.
í samræmi við ákvæði 1. mgr. 98.gr. laga nr.75/1981 um tekjuskatt
og eignarskatt og 12.gr laga nr.113/1990, um tryggingagjald, er hér
með auglýst að álagningu opinberra gjalda á árinu 1993 er lokið á alla
aðila sem skattskyldir er skv. framangreindum lögum, sbr. I.kafla laga
nr. 75/1981 og ll.kafla laga nr. 113/1990.
Álagningarskrár verða lagðarfram í öllum skattumdæmum föstudag-
inn 30. júlí 1993 og liggja frammi á skrifstofu hvers skattumdæmis og
hjá umboðsmönnum skattstjóra í hverju sveitarfélagi dagana 30. júlí til
12. ágúst að báðum dögum meðtöldum.
Álagningarseðlar skattaðila, er sýna álögð opinber gjöld 1993, hús-
næðisbætur, vaxtabætur og barnabótaauka, hafa verið póstlagðir.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda, húsnæðisbóta, vaxta-
bóta og barnabótaauka, sem skattaðilum hefur verið tilkynnt um með
álagningarseðli 1993, þurfa að hafa borist skattstjóra eða umboðs-
manni hans eigi síðar en 30. ágúst 1993.
30. júlí 1993.
Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi. Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi. Kristján Gunnar Valdimarsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra. Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra. Sveinbjörn Sveinbjörns-
son.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi. Karl Lauritzson.
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi. Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum. Ingi T. Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi. Sigmundur Stefánsson.