Alþýðublaðið - 10.08.1993, Side 4

Alþýðublaðið - 10.08.1993, Side 4
4 Þriðjudagur 10. ágúst 1993 DOMUS MEDICA - þrjátíu ára draumur um apótek í húsi læknanna gæti ræst með nýjum lögum um lyfsölu. Stjórn hússins mun hinsvegar reikna með hárri leigu, mun hærri en lyfjafræðingar telja unnt að greiða. Ný lög um lyfsölu taka trúlega gildi í haust EINOKUN ROFIN,- EÐA STJÓRNLAUS SAMKEPPNI EINOKUNARSTARFSEMI lyfsala á íslandi, sem svo hefur verið kölluð, verður hnekkt í haust, þegar heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Guðmundur Árni Stefánsson, legg- ur fram frumvarp að nýjum lögum um lyfjasölu á íslandi. En það frumvarp hafði Sighvatur Björgvinsson haft forgöngu um að yrði samið, áður en hann skipti um ráðuneyti, en frumvarpið dagaði uppi í umrótinu á Alþingi síðustu daga þess í vor. Lyfsalar eru þó eindregið á öðru máli og telja að í óefni stefni í lyfsölumálum. Ásakanir hafa komið fram og vakið mikla athygli. ég hvergi sagt, enda óhægt um vik að sanna það“, sagði Einar Páll Svavarsson í viðtali við Alþýðublaðið í gær. „Það sem við í Domus Medica erum að gagnrýna er í rauninni sú einokunarstefna í lyfsölumálum, sem hér á landi hefur við- gengist um áratuga skeið. Læknar búa við afar mismunandi rekstrarskilyrði svo vægt sé til orða tekið“, sagði Einar Páll Svavars- son. Hagsmunatengsl rofin Það eru fleiri læknar en þeir í Domus Medica sem bíða með óþreyju eftir nýjum lögum um lyfjaverslun. Nokkrar lækna- Minni lyfjanotkun? Einar Páll Svavarsson, framkvæmda- stjóri læknahússins Domus Medica, kom af stað nokkru róti á tilfinningum ýmissa aðila í heilbrigðisstéttunum, þegar hann sagði í viðtali í kvöldfréttum nkisútvarpsins, að með þeim breytingum sem nú má telja víst að séu framundan, „muni lyfjanotkun standa í stað og það sé ekkert óraunhæfara að gera ráð fyrir að hún minnki en hún auk- ist“, eins og fréttamaður hafði eftir Einari Páli í fréttinni. „Sjúkdómum á íslandi fjölgi ekki þótt lyfjaverslun verði gefin ftjáls". í leiðara Alþýðublaðsins á föstudaginn sagði að þegar Einar Páll telji að lyfjasala kunni að minnka við þá breytingu að apó- tekum fjölgi, og af leggist sá háttur að eig- endur þeirra leggi læknum til húsnæði und- ir stofur sxnar, þá sé hann í rauninni að halda því fram, að læknar sem búa við slík vildar- kjör, gefi út ónauðsynlega marga lyfseðla. Þessu vill Einar Páll mótmæla. „Eg hef aldrei haldið því fram að læknar gæfu út ónauðsynlega lyfseðla til að borga fyrir sig hjá apótekum, sem kunna að leigja þeim húsnæði fyrir starfsemi sína. Þetta hef APÓTEK - LÆKNASTOFUR í einu og sama húsinu. Óeðliieg tengsl apótekara og lækna? Eða eðlileg samvinna og til hagsbóta fyrir sjúklingana? - A-myndir E.Ó1. miðstöðvar eiga við sama vanda að stríða. Þeir telja að með þessari lagasetningu rofni hagsmunatengsl apótekara og lækna, sem feigja aðstöðu hjá apótekunum, og greiði í einhverjum tilvikum litla eða jafnvel enga leigu. Eðvarð T. Jónsson fréttamaður sagði í frétt sinni í síðustu viku: „Raddir innan heilbrigðisstétta segja að þessir læknar séu hinsvegar duglegri að skrifa út lyfseðla en aðrir læknar“. Einar Páll segir að læknar sem starfrækja læknamiðstöðvar óháðar apótekunum, haft lagt í mikinn kostnað við uppbyggingu og rekstur húsnæðis síns og greiði auk þess leigu fyrir aðstöðuna. Einar Páll segist ekki vita um leigugjöld einstakra lækna sem leigja stofupláss hjá apótekurum. Þar sé án efa um misháa leigu að ræða, en erfítt sé um vik að fá sfíkar tölur gefnar upp. Hinsvegar segir hann að það sé áberandi að apótekin hafi ekki lækna í leigu, nema í þeim grein- um sem ávísa á lyf, ekki til dæmis skurð- lækna. Frumvarpi Sighvatar fagnað Stjóm Domus Medica sendi í apríl síð- astliðnum ályktun sína vegna frumvarps til lyfjalaga, til formanns heilbrigðis- og trygginganefndar Alþingis, Sigbjöms Gunnarssonar, alþingismanns. Er framkomnu fmmvarpi þar fagnað og þeim tilmælum beint til þingmanna að fmmvarpið verði samþykkt fyrir þingfrest- un, eins og ráðherra áformaði þá. Engin tilslökun á faglegum kröfum „Varðandi faglega þætti fmmvarpsins, treystir stjóm Domus Medica hf. Alþingi vel til að búa svo um hnútana, að hvergi verði slakað á faglegum kröfum varðandi meðferð og sölu Iyfja, frá þeim lögum sem gilda í dag. Er stjómin þess fullviss að svo sé, og vísar í því sambandi til athugasemda Læknafélags Islands frá 24. aprfl 1992, við drög að umræddu frumvarpi. í umfjöllun Læknafélags Islands kemur engin athuga- semd fram sem gefur tilefni til þess að álykta að um eftirgjöf á faglegum kröfum sé að ræða í frumvarpinu", segir í ályktun- inni. Apótek - 30 ára gamall draumur Domus Medica er stærsta læknamiðstöð landsins þar sem um 70 læknar starfa, og fer þeim reyndar fjölgandi, því á næstunni opna 5 röntgenlæknar stofur og röntgen- deild á jarðhæð hússins, þar sem áður var vinsæll veitingasalur. Reiknað er með enn meiri fjölgun lækna í Domus Medica. Framkvæmdir við húsið hófust 1962 af ýmsum stórhuga einstaklingum innan læknisfræðinnar. í dag er húsið í höndum annarrar kynslóðar lækna að stærstum hluta, sem annað hvort eiga sinn hluta sjálf- ir eða leigja af eigendum. Alla tíð var gert ráð fyrir að apótek yrði á jarðhæð hússins. Þótti það eðlilegt að slík þjónusta væri í húsinu, sjúklingum til þægindaauka. I greinargerð með ályktuninni segir að reyndar hefði verið eðlilegt að þeir sem byggðu húsið hefðu óskað eftir því við ein- hvem lyfjafræðing sem uppfyllti öll fagleg skilyrði að hann opnaði apótek í húsinu. En þessi hugmynd hefði aldrei komst lengra en á teikninguna. „Það sem hingað til hefur komið í veg fyrir að apótek opnaði í Domus Medica, er núverandi skömmtunar- og úthlutunarkerfi. Þetta kerfi hefur allar götur síðan staðið í vegi fyrir slíkum áformum, þrátt fyrir að nokkrum sinnum hafi verið gerð tilraun til þess að fá apótek í húsið. Gagnvart Domus Medica varð hinsvegar til annað kerfi sem núverandi lyfjasölukerfi fæddi af sér. Kerfi sem snérist um ódýra leigu lækna hjá apó- tekum, sem keppti við verðugt framtak lækna um að byggja eigið húsnæði. Og ekki einu sinni sameiginlegt átak margra lækna um byggingu og rekstur á eigin húsnæði undir læknastofur gat keppt við með góðu móti. Þetta fyrirkomulag er að mörgu leyti óréttlátt, enda hefur það lengi mismunað læknum varðandi húsnæði undir starfsemi sína“, segir í greinargerðinni með ályktun stjómar Domus Medica, sem segist eygja að 30 ára gamall draumur verði að veru- leika með hinu nýja frumvarpi, - það er að lyfjafræðingur opni apótek í húsi læknanna sjálfra. Læknar í Domus Medica stefna að því að gera læknamiðstöðina enn öflugri en fyrr og telja að læknum þar muni fjölga um 10- 15 á næstu mánuðum. Telur stjórnin að í kjölfar breytinga í heilbrigðiskerfinu muni starfsemi sjálfstætt starfandi lækna aukast. Sé þegar ljóst að margir læknar hafi uppi áform um metnaðarfullt framtak á sviði læknavísinda og heilbrigðismála, sem til lengri tíma muni tvímælalaust spara stórar upphæðir í hinum opinbera geira heilbrigð- iskerfisins, og verði ekki síst sjúklingum til góða. Engar mútugreiðslur, segja apótek- arar Guðmundur Reykjalín, framkvæmda- stjóri Apótekarafélágs Islands, er ekki sam- mála Einari Páli Svavarssyni. Hann segir að það eigi ekki við rök að styðjast þegar menn láta að því liggja að einhverskonar mútu- greiðslur eigi sér stað í samstarfi lækna og apótekara varðandi húsnæði. Hann segist ekki hafa hugmynd um leigukjörin, en þau hljóti að vera almenn leigukjör markaðar- ins. Guðmundur segir að það hljóti að vera út í hött að álíta sem svo að læknar sem leigja af apótekurum ávísi meira á lyf en aðrir læknar. Þetta hafi í rauninni aldrei ver- ið rannsakað og undarlegt að menn skuli fullyrða á þennan veg. Kannski haldi marg- ur mig sig. Auk þess geti sjúklingar innleyst lyf sín í hvaða lyfjabúð sem er. Þrjú apótek í Glæsibæ? „Annars er ég þeirrar skoðunar að fyrst þegar og ef þessi nýju lög taka gildi, geti komið til hagsmunatengsla á þessu sviði. Þá verður samkeppnin gífurleg. Mér skilst að einir þrír aðilar vilji setja upp apótek í Glæsibæ einum. Mér sýnist að mikil fjölg- un apóteka gæti þýtt aukna sölu á lausasölu- lyQum hverskonar. Hingað til hafa apótekin ekki stundað sölumennsku, en trúlega verð- ur breyting þar á áður en langt um h'ður“, sagði Guðmundur. Guðmundur sagði ennfremur að aðeins fá apótek á höfuðborgarsvæðinu leigðu ffá sér húsnæði, örfáum læknum. Uppbygging slíkrar aðstöðu hafi orðið til á tímum þegar aðstöðu fyrir lækningastofur vantaði til- finnanlega. Þá var uppbygging heilsu- gæslustöðva miðuð við dreifbýlið. Apótek- in hefðu með þessu sparað ríkinu mikið fé og aðstoðað við að koma upp aðstöðu fyrir lækna. Á íslandi starfa í dag 43 apótek, þar af 20 á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni, 14 þeirra í Reykjavík, en 23 úti á landi. Eitt apótekanna er í eigu Háskóla íslands, Reykjavíkurapótek, skattfijálst fyrirtæki, en tvö þeirra reka kaupfélög, KEA og Kaupfélag Ámesinga. Guðmundur Reykjalín sagðist hafa séð drög að samkomulagi Domus Medica við væntanlega leigjendur úr hópi lyfjaffæð- inga. Þar væri dæminu í raun snúið við. Læknamir, eigendur Domus Medica, gerðu háar kröfur um leigugreiðslur, svo háar að Guðmundur sagðist ekki geta séð að slíkur rekstur gæti borið sig. „Nema þá að þeir hafi lofað miklum skriftum á lyfseðlum", bætti Guðmundur við. Vinningstölur laugardaginn: 7. ágúst 1993 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING a 1 5.833.306 H|+4af5 7 91.621 0 4af 5 170 6.507 EI 3af 5 5.510 468 Aðaltölur: Heildarupphæð þessa viku: kr. 10.159.523 UPPLVSINGAR, SIMBVARI 91- M 15 11 LUKKULÍNA 9910 00- TGXTAVARP 451

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.