Alþýðublaðið - 11.08.1993, Blaðsíða 1
Fyrstifundur Rannveigar sem þingflokksformanns. Góð samstaða
ríkir íþingflokknum þrátt Jyrir nokkuð hörð átök fyrr í sumar.
Þingflokkur Alþýðuflokksins kom
saman til fundar í gærkvöldi og er það í
fyrsta sinn sem þingflokkurinn kemur
saman eftir átökin um breytingar á rík-
isstjórninni í byrjun júní. Fundurinn var
einnig sá fyrsti sem nýr þingflokksfor-
maður, Rannveig Guðmundsdóttir,
stýrði. Rannveig er fyrsta konan sem
gegnt hefur embætti formanns þing-
flokks Alþýðuflokksins í 77 ára sögu
flokksins.
Rannveig sagði í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær, að væntanlega yrði farið yfir
stöðuna í fjárlagagcrðinni og skipulag á
störfum þingflokksins á næstunni. „Það
hefur verið hlé nú í sumar á störfum þings-
ins og þingflokksins. Þingmenn hafa verið
að sinna öðmm störfum bæði hér heima og
erlendis og því er full þörf á að koma sam-
an aftur og spá í verkefnin framundan,“
sagði Rannveig ennfremur.
Samkvæmt heimildum Alþýðublaðsins
var mjög góð samstaða meðal þingmanna
og ráðherra Alþýðuflokksins á þingflokks-
fundinum og góður andi sveif yfir vötnum.
Greinilegt að menn vom búnir að jafna sig
á þeim átökum sem urðu vegna ráðherra-
skiptanna og kjörs nýs varaformanns
flokksins, Rannveigar Guðmundsdóttur,
íyrr í sumar.
Sögulegur þingflokksfundur var haldinn hjá
Alþýðuflokknum í gær þegar Rannveig Guð-
mundsdóttir stýrði sínum fyrsta fundi sem
þingflokksformaður, en hún er fyrsta konan
sem gegnir því embætti í 77 ára sögu Alþýðu-
flokksins.
- Alþýðublaðsmynd / Einar Olason
LEIÐARINN OG
ÖNNUR SJÓNARMIÐ
Fjallað er um hlutverk fangelsa í
ieiðaranum. // í Öðrum sjónarmið-
um er tekin fyrir grein um landbún-
aðartillögur ungra framsóknar-
manna (sem þykja vanskapaður og
innihaldslaus frasi).
- Blaðsíða 2
SKIPASMÍÐAR OG
BÚNAÐARBANKINN
Staða samkeppnishæfra skipa-
iðnaðarfyrirtækja er orðin svo veik
að til auðnar horfir. // Bankastjórn
Búnaðarbankans mun í dag hækka
vexti á óverðtryggðum útlánum um
3,5% til 4,25%.
- Blaðsíða 3
450 ÞJÓÐVERJAR
OG ALLABALLAR
Á miðvikudaginn eftir viku munu
450 þjóðverjar heimsækja Reykja-
vík — allir eru þeir jafnaðarmenn. //
Alþýðubandalagið auglýsir um
þessar mundir eftir áhugasömum
forystusauðum.
- Blaðsíða 4
SAMEINING EÐA
SUNDRUNG?
Framtíð Evrópu þykir til mikils
munar vera óljósari eftir hrun evr-
ópska myntsamstarfsins. Þær
raddir gerast háværari sem segja
Maastricht samkomulagið mistök.
Fréttaskýring um málið.
- Blaðsíða 5
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
í BLÁA LÓNINU
Ferðamenn sem teymdir eru efa-
semdarfullir í Bláa lónið af íslend-
ingum taka undantekningarlaust
slfku ástfóstri við staðið að það
hálfa þykir nóg. Einar Óla skoðaði
mannlífið þar.
- Blaðsíða 7
Jarð3rber