Alþýðublaðið - 11.08.1993, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 11. ágúst 1993
3
SKIPASMÍÐAR, BANKAMÁL & FERÐALÖG
DYTTAÐ AÐ í HÚ S AVÍKURHÖFN
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
BUNAÐARBANKINN
HÆKKAR VEXTI
Bankastjóm Búnaðarbanka íslands hefur
ákveðið að í dag, miðvikudag, muni vextir
óverðtryggðra útlána bankans hækka um 3,5%
til 4,25% og vextir hækki á þeim hluta innlána
á gullbókum og metbókum sem ekki njóta
verðtryggingar. Þetta kemur fram í tilkynningu
sem Búnaðarbankinn sendi frá sér í gær. Að
sögn bankans kemur þessi vaxtahækkun til
vegna þess að hækkun verðlags í kjölfar geng-
isfellingarinnar í lok júní hafi verið mun meiri í
júlímánuði en gert hafi verið ráð fyrir. Hækkun
lánskjaravísitölunnar í mánuðinum varð 9,7%
á árskvarða en hafði verið 0,7% í júní.
Að sögn bankans liggur rekstr-
aruppgjör Búnaðarbankans fyrir
júlímánuð nú fyrir. Uppgjörið
staðfestir þá útreikninga sem áður
höfðu verið gerðir. Stjómendur
bankans kveða það skyidu sína að
bregðast við þessari þróun þannig
að jafnvægi náist í rekstrinum.
Þeir segja að jafnframt sé það
ljóst að skjót samræming vaxta-
kjara þýðir að vextir óverð-
tryggðra lána muni hækka hraðar
en ella þegar verðbólgan hjaðnar
á ný.
„Verðbætur sem bankar
greiddu á verðtryggð innlán í júlí
tóku mið af þessari miklu hækk-
un. Töluverður hluti innlánannaer
ávaxtaður f óverðtryggðum údán-
um. Séu vextir óverðtryggðra út-
lána ekki hækkaðir í takt við verð-
Iagsþróun vcldur það tapi scm
getur haft afgerandi áhrif á rekstr-
arafkomu ársins," segir í tilkynn-
ingunni.
Búnaðarbankinn hækkar í dag vexti
á óverðtryggðum útlánum.
Ferðaskrifstofan Alís fann réttu borgina
Sextán leiguflug til Newcastle
„Fyrst þegar við aug-
lýstum þessar ferðir
spurði fólk hvar í
ósköpunum þessi borg
Newcastle væri. Nú er
ekki lengur spurt um
þetta heldur bara hve-
nær ferðirnar til Newc-
astle hefjast. Við verð-
um með 16 brottfarir í
leiguflugi í haust á ein-
staklega hagstæðu
verði,“ sagði Laufey
Jóhannsdóttir hjá
Ferðaskrifstofunni Alís
í samtali við Alþýðu-
blaðið.
Það má segja að þegar enska
borgin Newcastle er nefnd hér-
lendis komi jafhan Alís upp í
hugann þar sem ferðaskrifstofan
„á“ þessa borg í hugum landans.
En af hveiju Newcastle, Laufey?
, ,Þetta bytjaði fyrir tveimur ár-
um þegar við vorum að leita að
borg utan hins hefðbundna áætl-
unarflugs. Það komu nokkrar
borgir til greina og við fórum og
kynntum okkur þær. En þegar
við höfðum kynnst Newcastle
var óþarfí að leita ffekar. Ibúam-
ir eru afskaplega elskulegir og
hjálpsamir, borgin stórskemmti-
leg og ekki spillir fyrir að þama
er sérstaklega hagstætt og gott að
versla. Viðtökur á markaðinum
hér heima urðu strax mjög góðar
fyrir tveimur ámm og sama er að
segja um haustið í fyrra. Verð á
þessum ferðum er alveg ótrúlega
lágt. Fjögurra daga ferð kostar
ekki nema 25.300 krónur á
mann. Innifalið í því verði er
flug, gisting með morgunverði í
tveggja manna herbergi, flug-
vallarskattur, forfallagjöld, ferð-
ir frá og að flugvelli erlendis og
íslensk fararstjóm. Þetta verð
miðast við að bókað sé og greitt
fyrir 10. september, en eftir það
hækkar verðið um 5-6%,“ sagði
Laufey.
Ferðimar til Newcastle verða
á tímabilinu frá 13. október til
28. nóvember á sunnudögum og
miðvikudögum og má velja um
4,5 eða 8 daga dvöl. í Newcastle
er meðal annars stærsta verslun-
armiðstöð Evrópu, Metro Cent-
er, með yfir 300 verslanir og þar
njóta íslendingar allt að 10% af-
sláttar.
Stjórn Málms - samtaka fyrirtœkja í málm- og
skipaiðnaði ályktar
Skipaiðnaður í kröggum
Alvarleg staða fyrirtœkja í skipaiðnaði
Alþýðublaðsmynd: Einar Ólason.
Hætta er á að skipasmíöamcnn verði „útdauðir“ á íslandi innan fárra ára.
Staða sam-
keppnishæfra
skipaiðnaðarfyrir-
tækja er orðin
svo veik að til
auðnar horfir og
miklum verð-
mætum í mann-
virkjum, tækjum
og verkþekkingu
kastað á glæ
með sama
áframhaldi. Þetta
er álit stjórnar
Málms - samtaka
fyrirtækja í
málm- og skipa-
iðnaði en hún
fundaði í gær.
Stjómin lýsir yfir þung-
um áhyggjum vegna alvar-
legrar stöðu margra fyrir-
tækja í skipaiðnaði. Það er
einkum tvennt sem veldur
þessu. I fyrsta lagi það að
þrátt fyrir að greinin sé
ágætlega samkeppnisfær
við erlend fyrirtæki sitja
hérlend fyrirtæki ekki við
sama borð vegna víðtækra
styrkjakerfa sem þrífast er-
lendis. 1 öðru lagi telur
stjómin að stórfelld undan-
skot verkefna til erlendra
aðila leiði til þess að staða
íslenskra skipaiðnaðarfyr-
irtækja veikist, og það svo
mjög að hætta sé á að
greinin lognist útaf.
Stjóm Málms hefur bent
á að meðal annarra þjóða
sé oftast bmgðist við slík-
um vanda með altækum
aðgerðum en ekki horft að-
gerðalaust á þar til engu
verður við bjargað. Félagið
hefur síðustu mánuði lagt
fram tillögur um aðgerðir
til úrbóta sem eiga sér
flestar fordæmi meðal
samkeppnisþjóða okkar
eða styðjast við alþjóðlega
viðskiptasamninga.
Krafa fyrirtækja í málm-
og skipaiðnaði er að hags-
munir þeirra séu metnir
þegar affakstri af fiski-
stofnunum er skipt þar sem
íslenskur skipaiðnaður
leggur sitt af mörkunum til
að unnt sé að nýta fiski-
stofnana.