Alþýðublaðið - 18.08.1993, Page 8

Alþýðublaðið - 18.08.1993, Page 8
HANKOOK sumartijólbaröarnlr vinsslu á lága verðinu Leitiö upplýslnga og gerlö verösamanburö Barðinn hf. Skútuvogi 2 • sími 68 30 80 HANKOOK sumarhjólbaröamir vinsælu á lága veröinu Leitið upplýsinga og geríö verösamanburö Barðinn hf. Skúturogi 2 • sími 68 30 80 Ránsfengur í kven- mannslíki endurheimtur ✓ / Höggmynd eftir Magnús A. Arnason finnst á svölum í húsi við Baldursgötu. Þau tíðindi gerðust um síðustu helgi á Baldurshátíðinni svonefndu að þýfi uppgötvaðist á svölum í húsi við Baldursgötu. Hér er um að ræða höggmynd af konulíkama eftir Magnús A. Arnason heitinn en fyrir- myndin er Þórunn Asgeirsdóttir og er hún einnig eigandi verksins. Þórunn hafði haft styttuna í garðinum hjá sér á Oðinsgötu en hún hvarf um páskaleytið. Hvarfið var tilkynnt lög- reglu og í framhaldinu fór Þómnn í við- tal við Fjalar Sigurðsson þar sem hún auglýsti eftir verkinu. Það var svo síð- astliðinn laugardag þegar Baldurshátíð- in stóð sem hæst að vinkona Steinunn- ar, Kristín Atladóttir, leit upp frá máls- verði sínum á veitingastaðnum Þremur Frökkum og sá höggmyndina blasa við í öllu sínu veldi á svölum í húsi hinum megin í götunni. Kristín gerði Þómnni aðvart og fengu þær lögreglumenn til að endurheimta verkið. íbúinn sem fyrir svömm varð kannaðist ekki við verkið að öðm leyti en því að það var þar fyrir þegar hann flutti inn. Lögreglan mátti svo rogast með kvenmannsbúkinn yfir í bakgarðinn að Oðinsgötu hátíðargest- um til óblandinnar ánægju. Þómnn hefur stundum setið fyrir hjá listamönnum og var þessi umrædda höggmynd unnin af Magnúsi árið 1978. Það var svo eftir að Magnús deyr 1980 að Vífill sonur hans gefur Þómnni verk- ið. Þetta er eitt af síðustu stóm verkun- um sem Magnús vann. Hann var bæði myndhöggvari og málari og nam listina í Kaupmannahöfn og San Fransisco. Höggmyndir Magnúsar em fyrst og fremst táknræn verk og rómantísk, oft- ast mannamyndir sem em unnar í ýmis efni. Meðal þekktustu verka hans eru Maðurinn og heimurinn, Mæðgur, minnismerki á leiði Sigurbjöms Sveins- sonar í Vestmannaeyjum og mansöng- ur. Steinunn hefur nú endurheimt höggmynd- ina af sjálfri scr. Með henni á myndinni eru (talið frá vinstri) sonur hennar Asgeir H. Asgeirsson, Atli Hilmar Skúlason og dóttir- in Björg A. Ásgeirsdóttir. Atli er sonur Kristínar scm uppgiitvaði höggmyndinu á svölunum en hann varð fyrstur til að taka cftir að verkið væri horfið úr garðinuni. Alþýðublaðsmynd / Einar Olason Meint misferli í innflutningi á Þýskalands- markað ekkert hitamál Norimenn taldir vera stórtækastir - en íslenskur fiskur greinilega í myndinni - mál þýsku innflytjendanna en ekki okkar, segir Þórður Ásgeirs- son hjá Fiskistofu Frystur ufsi undir lágmarks inn- flutningsverðum Evrópubanda- lagsins virðist samkvæmt heimild- um Alþýðublaðsins að mestu leyti innflutningur á frystum ufsa frá Noregi. Trúlega eiga einhverjir ís- lenskir aðilar þátt í málinu, íslensk innflutningsfyrirtæki á þýskri grund, um það er þó ekkert hægt að fullyrða. „Þetta mál hefur á engan hátt snúið að okkur“, sagði Þórður Asgeirsson, forstjóri Fiskistofu í samtali við Al- þýðublaðið í gær. Hann sagði að eng- ar kvartanir hefðu borist stofunni, enda væri hér alfarið um að ræða mál innflytjenda í Þýskalandi. Hjá utanrík- isráðuneytinu var sama uppi á ten- ingnum, engar kvartanir, né heldur fyrirspumir um útflutning þennan. Þórður Asgeirsson sagði að hugsan- lega gæfu innflytjendur í Þýskalandi upp réttar tölur á innflutningspappír- um, en fengju síðar kreditnótur frá viðsemjendum sínum, afslátt vegna „- galla“. Þannig væri leikið á kerfið. Hinsvegar væri vitað að lágmarksverð Evrópubandalagsins gætu verið of há, miklu hærri en framboð og eftirspum gæfu tilefni til. Þórður sagði þetta mál alfarið mál innflutningsfyrirtækjanna ytra, ekki útflytjenda hér á landi. Stóm útflytjendumir, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Islenskar sjávar- afurðir kannast ekkert við útflutning af þessu tagi. Þar hafa menn þó séð reikninga sem sýna svo ekki verður um villst að viðskipti af þessu tagi em í gangi á markaðnum, og dæmi þess að smáir útflutningsaðilar á íslandi hefðu selt á mjög lágu verði. íslenski fiskurinn færi þó yfirleitt á heldur hærra verði en sá norski á þýskum markaði. Ekki verður annað séð en að frétt danska blaðsins Börsen í síðustu viku sé æsifrétt. í Þýskalandi hafa blöð ekki ljaliað um þetta mál svo kunnugt sé. Hjá mönnum í fiskbransanum í Cuxhaven og Bremerhaven er málið hreint ekki í umræðunni, helst að danskir aðilar, áskrifendur að Börsen, hafi rætt málið við íslendinga þar. Er því greinilegt að innflutningur þessi hefur ekki komið miklu róti á hugi manna ytra. „Geðhiélp" komio úl Nýverið kom út fyrsta tölublað tímaritsins GEÐHJÁLP á þessu ári. Útgefandi er Geð- hjálp - samtök geðsjúkra og aðstandenda þeirra og velunnara. 1 tímaritinu er að vanda fjöldi fróðlegra greina um ýmis málefni sem tengjast geð- og fjölskylduverndarmálum. Meðal annars er þar að finna greinina „Vel- kontin til Hollands ' eftir Emily Pearl Kingsley og „Framtíðarauður Islendinga" eftir Láru Pálsdóttur. „Konur og þróunarað- stoð“ er fyrirsögn greinar eftir Þórdísi Sigurð- ardóttur. Hörður Bergmann skrifar: „Minni umbúðir - betra líf ‘ og Helga Sigurjónsdótt- ir er höfundur: „Lestrarkennsla fyrir daga foreldrafundanna“. Einnig skrifar Páll Ol- afsson um gönguferðir og Sigrún Stefáns- dóttir um skokk. Jón Bjömsson skrifar um fé- lagsleg áhrif atvinnuleysis: „Hin ólærða lex- ía“ og Eydfs Sveinbjamardóttir skrifar um hjúkrun aðstandenda geðsjúkra: „Samskipti í fjölskyldunni“. Þá þýðir Gunnar Smári Eg- ilsson grein úr þýska vikuritinu Der Spiegel: „Andúð í garð fatlaðra" og Heiður Baldurs- dóttir skrifar um „Læsi: Tæki til að auka sjálfstæði og persónulega reisn.“ Tímarit um fíölskvlduvernd Vert þykir að hvetja allt áhugafólk um geð- og fjölskylduverndarmál til að gerast áskrifend- ur að GEÐHJÁLP og styrkja þannig gott málefni og frábært starf samtakanna sem blaðið gefa út. S T IJ T T F R íi T T I R Louisa opnar sýningu Það er ævinlega góð frétt þegar Louisa Matthíasdóttir, listakonan góðkunna, opn- ar sýningu í heimalandi sínu. A laugardaginn opnar hún á Kjarvalsstöðum sýningu á fimmtíu myndum, yfirlitssýningu, sem spannar allan feril hennar, allt ffá 1939 til dagsins í dag. Louisa hefur búið í Bandarílcjunum undanfarin 40 ár. Nýtur hún mikils álits þar í landi sem og í sínu heimalandi, en hingað sækir hún iðulega myndefni sitt. Örugglega verður fjölmennt á sýningu Louisu, sem stendur til 12. september, opið frá 10 til 18 daglega. Alþýðublaðið og golfið Vösk sveit Alþýðublaðsmanna steðjaði norður í land um síðustu helgi með golf- kylfur sínar. Okkar menn gerðu það gott, enda harðir af sér í norðanrokinu sent belj- aði meðan fjölmiðlamótið í golfi stóð. Alþýðublaðið hreppti önnur verðlaun án for- gjafar, en þriðju verðlaun nteð forgjöf. Sveit Faxa í Keflavík sigraði í báðum flokkum í þessari keppni sem fimm sveitir tóku þátt f, Mogginn, RÚV og DV, auk Alþýðu- blaðsins og Faxa. Ferðin til Panama Leiklistin er að vakna úr sumardvala. Norður á Akureyri fréttum við að Leikfélag Akureyrar er byijað að æfa Ferðina til Panama, bamaleikrit efúr Martin Truthman, santið eftir samnefndri sögu eftir Janosch, en bækur hans eru vel þekktar hér á landi.Ingunn Jensdóttir leikstýrir nú í fyrsta sinni norðan heiða og hefur fengið úr- valsleikara LA til liðs við sig. Frumsýning verður í lok september á „óvæntum stað á Norðurlandi“, eins og Viðar Eggertsson, orðar það. Borgarveisla hjá Úrvali-Útsýn Stuttar vetrarferðir til útlanda virðast hafa orðið vinsælar hjá al- menningi hér sem í öðrum löndum. Urval-Útsýn hefur sent frá sér bæk- ling, Borgarveislu, þar sem kynntar eru fjórar borgir, sem skrifstofan leggur sérstaka áherslu á í vetur, - Manchester, Amsterdam, Trier og Edinborg. Greinilega leggur skrif- stofan þyngsta áherslu á Edinborg, enda freista verslanir þeirrar borgar landans. Boðið er upp á nærri 30 flug í leiguflugi til Edinborgar á tímabilinu frá septemberlokum og fram í desember. Manchester er einnig mikil verslunarborg, en þangað beina Úrval-Útsýn spjótum sínum f fyrsta sinn í ár. Edinborg - líldega munu ferðalangar gcra Ocira en að rápa í búðir. Biskupshjónin í Svíþjóð Sænska kirkjan hefur allt þetta ár haldið háúðlegt að fjögur hundruð ár eru liðin síðan ákveðið var að leggja Bibiíuna, trúarjátningar kirkjunnar auk Augsborgaijátningar siðbótarinnar til grundvallar boðun og kenningu í kirkj- unni. Lokaþáttur hátíðahaldanna er í Uppsölum 20.-23. ágúst. Ólafur Skúlason bisktip, og frú Ebba Sigurð- ardóttir, kona hans, taka þátt í hátíða- höldunum í boði sænsku kirkjunnar. Biskup mun taka þátt í flutningi sér- stakrar hátíðarguðsþjónustu í dóm- kirkjunni í Uppsölum á sunnudaginn. Meðal boðsgesta er til dæmis hinn frægi Desmond Tutu, biskup frá S- Afríku. Biskup íslands mun messa í Norsku kirkjunni í Gautaborg fyrir ís- lendinga í borginni, sem ítrekað hafa óskað effir íslenskri prestsþjónustu í borginni. Þá munu biskupshjónin heimsækja fslenska sjúklinga á Sa- hlgrenska sjúkrahúsinu, en þar fara meðal annars fram líffæraflutningar. SHELL-dagur í Fjölskyldugarði Shell býður upp á íjölbreytta fjölskyldudagskrá f Fjölskyldugarðinum í dag, á af- mæli Reykjavíkur. Rallmeistarar sýna Metro-ralibílinn margfræga, auk þess sem brúðuleikhús sýnir, og efnt er til skiptimyndamarkaðar og skotkeppni í körfubolta. Lúðrasveit marserar um garðinn og KR-ingar sjá um að skjóta flugeldum á Ioft um hálfúuleytið.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.