Alþýðublaðið - 07.09.1993, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Þriðjudagur 7. september 1993
KVIKMYNDIR: BARÐI JÓHANNSSON
Sambíóin. Rebecca De
Morney, Don Johnson,
Stephen Lang og Jack
Warden. Leikstjóri: Sidney
Lumet.
Stjörnur: ++1/2
ELDUR Á HIMNI
Bandarískur réttarmálflutn-
ingur hefur, vegna opins
forms, uppá margt spenn-
andi að bjóða. Þykir fólki í
Bandaríkjunum til að mynda
gaman að fylgjast með mál-
flutningi beint í sjónvarpi.
Enda ekki furða því að þetta
er þetta eins stemning og
að fylgjast með knattspyrnu-
leik. Hvor ætli sigri? Þessi
gífurlegi áhugi á réttarhöld-
um gerir mönnum kleift að
framleiða myndir og sjón-
varpsþætti sem teknir eru
upp að miklum hluta í réttar-
sal. Slíkt væri óhugsandi
hér á landi því dómskerfi
okkar hefur ekki uppá jafn
mikla sýndarmennsku að
bjóða.
Myndin Þrælsekur fjallar um kvenlög-
fræðing að nafni Jennifer (De Momey) sem
stendur sig allvel sem veijandi. Heillast hún
af framkomu kvennabósans Davids (John-
son) sem hefur aldrei þurft að borga neitt
vegna þess að konur hans hafa ávallt borgað
allt fyrir hann. David sem ákærður var fyrir
morð á eiginkonu sinni fær Jennifer til þess
að verja sig. David gerist skuggalegri með
degi hverjum og dregur Jennifer inní vef
sem hún á í mestum vandræðum að losa sig
úr.
Það sem heldur myndinni uppi er góður
leikur Dons og Rebeccu. Það kemur á óvart
hve Don nær vel karlrembunni
og nautninni af því að sjá aðra þjást.
Söguþráðurinn er skemmtilegur og gaman
að íylgjast með þróun samskipta bijálaðs
skjólstæðings og góðs lögfræðings.
Niðurstaða: Tilvalið að sleppa Matlock
á miðvikudagskvöldið og sjá góða réttar-
haldsmynd.
SLIVER
Sambíóin. Aðalhlutverk:
Sharon Stone, William
Baldwin og Tom Beren-
ger. Leikstjóri: Philip
Noyce. Stjörnur: ★★
Sharon Stone hefur vakið
ótrúlega athygli eftir leik
sinn í myndinni Ógnareðli.
Það er því ekki að furða
að nýjasta mynd hennar
fái mikla umfjöllun áður en
kemur að sýningu hennar.
En það er eins og gengur
að þrátt fyrir mikla auglýs-
ingu hafa margir orðið fyr-
ir vonbrigðum með Sliver.
Kay Norris sem er nýskilin við mann
sjnn tekur íbúð á leigu í háhýsi einu.
Ýmislegir atburðir áttu sér stað áður en
Norris flutti í húsið. Til dæmis hafði
fyrrverandi leigjanda íbúðar hennar ver-
ið fleygt út um glugga þar.
Kynnist hún upp úr þessu öðrum íbú-
um háhýsisins og gerist elskhugi eig-
anda hússins. Sá er hinn mesti persónu-
njósnari því hann er með sjónvarpsvél í
hverju herbergi sem tekur myndir af
leigjendum.
Myndin byijar frekar rólega en bætir
nokkuð við sig á endasprettinum, það
dugar ekki til.
Niðurstaða: Það eina sérstaka við
myndina er endirinn. ~
Stjörnubíó. Aðalhlutverk:
Clint Eastwood, John
Malkovich og Rene Russo.
Leikstjóri: Wolfgang Pet-
ersen. Stjörnur: ★★★
Eftirsjá getur oft nagað fólk
um árabil. Sérstaklega þeg-
ar mannslíf eru í húfi. Frank
Horrigan (Eastwood) var líf-
vörður John F. Kennedy
þegar hann myrtur í Dallas.
Horrigan hefði getað bjarg-
að Kennedy ef hann hefði
stokkið í veg fyrir kúluna
sem ætluð var forsetanum.
Þá hefði hann átt það á
hættu að láta lífið sjálfur.
Horrigan starfar þó enn í lögreglunni
mörgum árum síðar við að rannsaka hótan-
ir sem berast forsetanum. I einni slíkri rann-
sókn sér hann undarleg húsakynni þar sem
forsetamorðamyndir hanga á vegg og telur
greinilegt að þama sé geðsjúkur maður á
ferð. Hefur hann á réttu að standa og byrjar
geðsjúklingurinn að hringja í Horrigan og
tjá honum skoðanir sínar á kerfmu. Einnig
segist hann ætla sér að myrða forseta
Bandaríkjanna. Hefst þá spennandi eltinga-
leikur. Mikil togstreita er á milli Horrigans
og sumra yfirmanna hans eins og venja er í
myndurn sem þessum.
Það sem sérstaklega athygli vekur er
leikur Malkovich sem er unaðslegur f gerfi
geðsjúks morðingja. Eastwood er góður þó
að hann sé alltaf bestur í vestrunum. Kvik-
myndataka var í gamla stílnum á köflum og
ekkert siæmt um það að segja. Spennuatriði
myndarinnar heppnast mjög vel þó ekki séu
þau mörg. Eltingaleikur um þök húsa minn-
ir nokkuð á myndirnar um Skítuga Harry
eða Dirty Harry. Astarsena myndarinnar
fær nokkuð óvanalegan endi sem er gaman
að fylgjast með.
Niðurstaða: Skemmtileg spennumynd
þar sem aðalhetjan er komin vel yfir þrí-
tugt. Malkovich góður.
verkum að maðurinn hefur ekki getað haft
síma í 10 ár. Mikill tími myndarinnar fer í
að sýna hversu erfitt tímabil vinnufélagar
Travisar gengu í gegnum. Var talið að þeir
ættu sök á hvarfi Travisar. Engin trúði þeim
er þeir sögðu geimskip hafa numið manninn
á brott.
Niðurstaða: Myndin erhvorkifrœðandi
né skemmtileg. Efþtit þekkir Travis þá gœti
þérþótt eitthvað varið íhana.
Háskólabíó. Leikarar:
D.B.Sweeney, Robert
Patrick, Craig Sheffer
og Peter Berg. Leik-
stjóri: Robert Lieber-
man. Stjörnur ★1/2
Geimverur hafa alltaf
heillað. Ýmist sem
skrímsli (Alien) eða
vinalegar verur (E.T.).
Nú fer að líða að komu
nokkurra geimvera til ís-
lands í óopinbera heim-
sókn og verður móttöku-
nefnd, skipuð sjálfboða-
liðum, á Snæfellsnesi.
/Etli geimverurnar kann-
ist við Travis Walton?
Travis Walton er Arizonabúi sem varð
fyrir þeirri óvenjulegu lífsreynslu að skoða
geimskip og geimverur. I staðinn fengu þær
að skoða Travis, ekki óspennandi lífs-
reynsla. Það er því ekki skrýtið að forvitið
fólk vilji spjalla við manninn í tíma og
ótíma um þessa lífsreynslu.
Ágangur ýmiss fóíks hefur gert það að
7 ákO'ttítoU
ÞRÆLSEKUR