Alþýðublaðið - 10.09.1993, Page 8

Alþýðublaðið - 10.09.1993, Page 8
HANKOOK sumarhjólbaröarnir vinsaalu á lága veröinu Leitiö upplýsinga og geriö verösamanburð Barðinn hf. Skútorogi 2 • sími 68 30 80 HANKOOK sumarhjólbaröamir vinsœiu á lága veröinu Leítiö upplýsinga og geriö verösamanburð Barðinn hf. Skúturogi 2 • sími 68 30 80 vtttcti'i *lÓ-4 HÚSGUÐINN Olafur Gunnarsson skrifar Ég held að kaþólskan sé ekki útdauð með þjóðinni. Ég held að ef við ýttum því heljar harðfenni af fáfræði og fordómum sem virðist loða við kaþólsku kirkjuna í hugum alls þorra manna þá ræki okkur í roga stans: undir hefur lítið breyst frá siða- skiptum. Þegar skaflinn er horfinn er grasið grænt. íslenska þjóðin er ennþá kaþólsk í hjarta sínu. Róm er okkar höfuðborg. Staðarkirkja á Reykjanesi var helguð Ólafi konungi helga, kirkja Sancti Olai regis et matyris. í vísitazíubók Brynjólfs biskups Sveinssonar stendur þetta: 11. sept. 1647: Til er brík með þremur lausum líkneskjum, Olai, Mariæ og þriðja: item önnur máluð og gyllt með vængjum. Þegar frú Ingibjörg Sigurðardóttir frá Búðardal fluttist til Reykjavíkur 1940 hafði hún með sér trélíkneski. Hún var seinni kona Boga Sigurðarsonar afa míns. Hún minntist þess að hafa fyrst séð líkneskið árið 1905 er hún kom gestur að Búðardal. Þá hafði afi minn sagt: „Komdu frænka, ég verð að sýna þér húsguðinn." Olafur helgi stóð á borði og stjakar fyrir framan. Þegar ég var drengur á Frakkastíg 6a í Reykjavík var þessi stytta nokkurs konar bemskuvinur minn. Olafur helgi sat í hásæti klæddur skósíðri svartri skikkju sem féll í mörgum kröftugum földum um fætur hans. Á höfði bar hann gyllta kórónu og hár- ið hmndi niður herðar. I kjöltunni lá gullepli og hann hafði vinstri hönd yfir eplinu. Upp á milli fingranna reis kross. Hægri handlegg hafði hann látið á bekkjarbakið en sjálf höndin var brotin af. Skór með gylltri spennu gægðist undan skikkjufaldinum. Upp í ris var tvo bratta stiga að fara. Öll mín bemskuár var fólk að ganga stigana með kertaböggla, áheit handa Ólafi helga. Ég byrjaði þessa grein með þvf að segja að íslenska þjóðin væri enn kaþólsk í hjarta sínu. Gott þótti að heita á Ólaf helga til veðurs. Ekki mátti áheitið vera peningar. Ein- göngu kerti. Frú íngibjörg hafði ekki undan að brenna þessum kertum sem Ólafi bár- ust alls staðar af landinu. Undir súð var kertaíjall sem hækkaði í áranna rás. Þegar frú íngibjörgfóráelliheimili 1967 varþessi stabbi vel aftan í sendiferðabíl hefði hún haft tök á að flytja hann með sér. Ólafur helgi fór á Þjóðminjasafnið. Kristján Eldjám hafði lengi falast eftir honum. Ég varð 19 ára þetta sumar og á minni fyrstu reisu um Evrópu. Þegar ég kom heim var Ólafur helgi horfinn. í árbók Hins íslenska fornleifafélags 1968 er löng ritgerð Kristjáns Eldjárns um líkneskið, niðurstaða afar fróðlegrar rannsóknar hans. I ljós kom að Ólafur helgi var úr Staðarkirkju á Reykjanesi og fylgdi honum Kristur og Mar- ía eins og Brynjólfur Sveins- son nefnir árið 1647. Bríkin sýnir krýningu Maríu. Ólafur helgi var ekki Ólafur helgi eins og menn höfðu lengi haldið heldur Guð faðir. íngibjörg Sigurðardóttir frá Búðardal lést að elliheimilinu Gmnd haustið 1970. Ég bjó að Frakkastíg 6a tíl ársloka 1978 er ég fluttist til Dan- merkur. Stuttu áður en ég fór af landi brott bað ég Þór Magnússon þjóðminjavörð að sýna mér bríkina sem ekki var uppivið heldur í geymslu í kjallaranum. Þegar ég var að læsa Frakkastíg 6a kom að mér maður með böggul undir hendinni. Hann var utan af landi og hafði verið beðinn að halda undir lítilræði til Reykjavíkur. wn Vinningstölur 8. sept. 1993 I VtNNiNGAR FJÖLOI VENNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING m 63,6 1 (0 á ísl.) 37.900.000 il 5 af 6 CSJ+bónus 0 446.743 [R1 5 af 6 4 87.753 IFW 4 af 6 303 1.843 Ifcjj+bónus 1.117 217 Aðaltölur: 3 I 5 128 29j[38J^40 BÓNUSTÖLUR Heildarupphæð þessa viku 39.498.573 á Isl.: 1.598.573 UPPLÝSINQAR, SÍMSVARI 91- 68 16 11 LUKKUÚNA 6» 10 00 - TBXTAVAHP 481 SIHT MB0 FVAIHVAAA UM PRENrvitLUA Starfsfólk McDonald’s safnar nú undirskríftum og hyggst mótmæla aðild að stéttarfélagi. Það skal tekið fram að ekki vitum við hvort þessi vaski starfskraftur á myndinni ætlar að vera með í því. Myndin var tckin við opnun staðarins í gær. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason Létum undan þrýstingi, segir Kjartan Örn Kjartansson forstjóri McDonald’s Starfsfólk hygast safna undirskriftum - og mótmœla þátttöku í verkalýðsfélögum „Við höfum stigið tangó með verka- lýðshreyfingunni, en mín iífsskoðun er þó sú að hver einstaklingur eigi að fá að ráða því í hvaða félagi hann er“, sagði Kjartan Örn Kjartansson, forstjóri Lystar hf., og leyfishafi McDonald’s hér á landi ásamt eiginkonu sinni, Gyðu Guðmundsdóttur. Aðspurður um hvort starfsfólk staðarins, muni sætta sig við að tekið verði af launum þess í sjóði verkalýðsfélaga, sagði Kjartan að hann viðurkenndi að hann hefði heyrt að svo væri ekki, einhverjir í starfshópnum ræddu um samtök um að kanna sinn rétt í málinu. Og svo mun vera, starfsfólkið safn- ar undirskriftum og hyggst mótmæla aðikl að stéttarfélagi. ,J2g á erfitt með að sætta mig við að taka fé af fólki, fé sem ég ekki á. Það hef ég allt- af talið rangt“, sagði Kjartan. Hann sagði að málið væri á viðkvæmu stigi og sagðist ekki geta gefið neinar yfirlýsingar um það. Kjartan sagðist aðspurður viðurkenna að McDonals og Lyst hf. hefðu neyðst til að láta undan þrýstingi gagnvart verkalýðsfé- lögunum. Hann sagðist virða skoðun verka- lýðsfélaganna, jafnvel þótt hann væri gjör- samlega ósammála þeim Kjartan sagði að hjá McDonald’s í Reykjavík væru ráðnir 97 starfsmenn, 38 í fullt starf, hinir í hlutastörfum. Aðallega væri hér um að ræða húsmæður, sem ekki hefðu haft atvinnu, sem og skólafólk, sem hyggst vinna fyrir námi sínu, en hefði ella ekki haft vinnu. Greinilegt væri að starfs- andinn hér yrði með sama móti og á 14-15 þúsund McDonald’s víða um heiminn - léttur og skemmtilegur. Starfsfólk mun vinna sveigjanlegan vinnutíma og á tímum þegar álag er mest. Aðspurður hvort Lyst hf. hafi gefist upp gegn verkalýðshreyfingunni sagði Kjartan einungis að „siðfræði handaflsins" hefði sigrað. Sjálfur hefði hann aldrei beðið fólk um að vera í neinu félagi. Óski fólk hins- vegar eftir því, væri ekkert sjálfsagðara. Kjartan lýsti yfir vonbrigðum si'num yfir því að gleðilegur atburður eins og opnun McDonaid’s í Reykjavík, væri í sviðsljós- inu vegna æsingamála út af skylduþátttöku starfsfólks í verkalýðsfélögum. Flokksstjórnarfundur Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands boðar til flokksstjórnarfundar laugardaginn 18. september, klukkan 10.00, að Borgartúni 6 í Reykjavík. DAGSKRÁ: 1. Stjórnmálaviðhorfið. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og formaður Alþýðuflokksins. 2. Önnur mál. Athugið: Fundurinn er opinn öllum flokksmönnum, en ef til atkvæðagreiðslu kemur hafa einungis kjörnir fulltrúar í flokksstjórn atkvæðisrétt. Sveitarstjórnarmenn athugið! Að loknum flokksstjórnarfundi, eða eigi síðar en kl.15.00, hefst fundur um sveitarstjórnarmál á sama stað. Formaður.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.