Alþýðublaðið - 17.09.1993, Side 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
LEIÐARI, ROKSTOLAR & ANNALAR
Föstudagur 17. september 1993
MÞBUBI191B
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóður Sigurðsson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140
Fylgishrun
Alþýðubandalagsins
Allt þetta ár hefur Alþýðubandalagið verið á niðurleið. í upp-
hafi kjörtímabilsins náði það miklu flugi, og hafði í könnunum
næstum ijórðung af fylgi kjósenda. Síðan hefur fylgið hrunið.
í síðustu könnun Gallups hafði flokkurinn tapað meira en
helmingi frá því það var mest, og mældist þá minnstur með
aðeins 11 % fylgi. Þetta er ömurleg útkoma fyrir háværasta
stjómarandstöðuflokkinn.
Undir stjóm Ólafs Ragnars hefur fylgið dvínað við aðstæður,
sem að öllu eðlilegu ættu að vera kjömar fyrir flokk einsog Al-
þýðubandalagið, og er nú orðið talsvert minna en við síðustu
kosningar. Það segir sitt um formanninn, enda hefur hann ver-
ið harkalega gagnrýndur af flestum helstu forystumönnum
flokksins síðustu vikur. Skýringanna á hmni Alþýðubanda-
lagsins þarf hins vegar ekki að leita langt. Flokkurinn stendur
ekki fyrir neitt sérstakt. Hann var frá upphafi söguleg skekkja,
en spenna kalda stríðsins hélt í honum lífinu. Með falli Berlín-
armúrsins hmndu leifar þess sögulega gmnns, sem tilvist Al-
þýðubandalagsins hékk á. Þetta sést best, ef reynt er að svara
því, fyrir hvað Alþýðubandalagið stendur í dag.
Formaðurinn er með her og Nató, - en hvaða stefnu hefur
flokkurinn? Formaðurinn vill kvótakerfið og sölu veiðileyfa,
- en hvað með flokkinn? Formaðurinn var með EES, en er
ekki flokkurinn á móti? Formaðurinn vildi einu sinni aukið
frelsi í landbúnaðarmálum, - en er ekki flokkurinn andsnúin
því? Formaðurinn kastaði fyrstur manna fram hugmyndinni
um skólagjöld í háskólanum, - en er ekki flokkurinn á annarri
skoðun? Formaðurinn hefur lýst því, að það eigi að auka þjón-
ustugjöld, - en er ekki flokkurinn líka á móti því?
Alþýðubandalagið er ótrúverðugur flokkur, sjúkur af inn-
byrðis ágreiningi, sem er ófær um að móta stefnu í veigamikl-
um þáttum þjóðmálanna. Það býr við forystu, sem ræður ekki
við sitt hlutverk, en einbeitir sér þess í stað að upphlaupum og
rassaköstum í fjölmiðlum. Árangurinn lætur heldur ekki á sér
standa.
Umskiptingurinn
Nýlegar deilur um forstjórastöðu Tryggingastofnunar ríkisins
sýna vel gæfuleysi Alþýðubandalagsins. Flokkurinn hefur nú
opinberlega lýst yfír því, að hann vilji helst að Pétur H. Blön-
dal, sem Þjóðviljinn kallaði gróðapung og áleit ljandmann al-
mannatryggingakerfísins, verði yfírmaður þessa kjama vel-
ferðarkerfisins. Um þennan einkavin Alþýðubandalagsins,
Pétur H. Blöndal, hefur formaður flokksins skrifað sérstaka
lofgrein í Morgunblaðið um leið og hann notaði tækifærið til
að ráðast að Karli Steinari Guðnasyni.
Að vísu hefur Karl Steinar ekki menntun Blöndals, en hann
hefur alla ævi verið hlífðarlaus í einlægri baráttu sinni fyrir
hagsmunum fátæks fólks. Ævistarf hans liggur innan verka-
lýðshreyfingarinnar, sem hratt almannatryggingakerfínu úr
vör, og á Alþingi hefur hann fyrst og síðast verið málsvari
hennar.
Hvers konar umskiptingur er nú sá flokkur orðinn, sem einu
sinni taldi sig málsvara erfíðismanna á íslandi, en hefur á
þessu sumri haft upp það baráttumál í fjölmiðlum, að maður,
sem tilheyrir þeim hópi sem Alþýðubandalagið kallaði forð-
um aldrei annað en gróðapunga verði yfirmaður íslenska al-
mannatrygginga?
RÖKSTÓLfiR
RÍKISLÖGMAÐUR OG
STARFANDI RÍKISLÖGMAÐUR
Meginmarkmið allra góðra
embættismanna er að sitja í góð-
um embættum til lífstíðar við sem
best lífskjör og minnst álag. Sum-
ir hafa komið sér þannig fyrir að
þeir þurfa helst ekki að mæta í
vinnuna og alls ekki að lyfta
hendi ef þeir álpast inn á vinnu-
stað. Hinar vinnandi stéttir þjóð-
félagsins sem strita myrkranna á
milli sjá lítið til möppudýranna í
kerfinu, enda er venjulegt fólk í
vinnunni á daginn. Hinn stritandi
almúgi þarf þó stundum að
skrópa í vinnunni til að greiða op-
inber gjöld og aðrar álögur sem
möppudýrin senda þjóðinni svo
þau fái laun frá fólkinu í landinu.
Á slíkum stundum sjá þrælar
hvunndagsins ríkisstarfsmennina
að störfum í opinberum stofnun-
um.
Vinnudýrin sem skrópa til að
borga opinberu gjöldin, standa í
endalausum röðum, úttaugaðir og
stressaðir og horfa orðlausir á
möppudýrin sem hallast upp að
borðum og milliveggjum, geisj>-
andi og klórandi sér. Eða þá að
kerfisflokkurinn stendur í hópum
og ræðir efni úr dagblöðunum
sem berast þeim í ríkisáskrift.
Vinsælasti samkomustaður stoíh-
anna er þó kaffistofan enda bera
tómar gjaldkerastúkumar og auð
skrifborðin í afgreiðslusalnum
þess vitni.
Hinn blóðmjólkaði almúgi sem
stendur taugaveiklaður í langri
halarófu sér einstaka möppudýr
sem skýst á milli kaffistofunnar
og salemisins auk þessarar einu
manneskju í gjaldkerastúkunni
sem afgreiðir menn með silagangi
og fýlusvip.
Æðri embættismenn láta að
sjálfsögðu almúgann aldrei sjá
sig. Þeir em vel varðir í hljóðein-
angmðum herbergjum á efri hæð-
um stofnanna og taka aðeins á
móti öðmm háttsettum embættis-
mönnum. Þeir forðast einnig
vinnuna eins og heitan eldinn en
gera það á yfirvegaðri hátt en
möppudýrin í afgreiðslusalnum.
Æðri möppudýr em á fundum,
væntanlegir síðar í dag eða upp-
teknir eins og stendur. Þeir hafa
komið sér upp flóknu ritarakerfi
sem ver þá gegn áreitni og ásókn.
Þannig sjá ritaramir til þess að að-
eins æðstu embættismenn fá að
tala við æðstu embættismenn.
Gagnkvæmar kurteisisheimsókn-
ir em því vinsælar í æðstu lögum
embættiskerfisins.
Sífellt er verið að búa til nýjar
stöðuræðstu embættismanna. Ár-
ið 1985 vora sett lög um ríkislög-
mann en hann á samkvæmt þess-
um lögum að annast flutning
einkamála að hálfu ríkisins sem
það er aðili að. Ríkislögmaður á
einnig að semja lögfræðilegar
álitsgerðir að ósk einstaka ráð-
herra og aðstoða við vandasama
samningsgerð.
Ríkislögmaður var ónáðaður
um daginn af fjármálaráðherra og
beðinn um álitsgerð vegna
skinkumálsins. Ríkislögmaður
skilaði álitsgerðinni en þegar
starfandi viðskiptaráðherra
óskaði að fá afrit, svaraði ríkis-
lögmaður því til að ljármálaráð-
herra hefði beðið um álitsgerðina
og honum væri óheimilt að af-
henda öðmm hana. Þá bað starf-
andi viðskiptaráðherra um sams
konar álitsgerð frá ríkislögmanni.
Ríkislögmaður hugsaði málið í
nokkra daga og ritaramir vörðu
hann gegn utanaðkomandi
áreitni. Svo kom svarið: Nei, því
miður, ráðherra. Ríkislögmaður
bar því fyrir sig að málið skinku-
ágreiningurinn færi til dómstóla
og því gæti hann ekkert verið að
vasast í einhvetjum álitsgerðum.
Starfandi viðskiptaráðherra sem
hafði verið nógu einfaldur að
halda, að æðstu embættismenn
starfi samkvæmt lögum, varð
auðvitað hissa. Lögin frá 1985
um embætti ríkislögmanns segja
skýmm stöfum að ríkislögmaður
eigi að skila áliti ef ráðherra óskar
svo. En starfandi viðskiptaráð-
herra hafði einfaldlega ekki skil-
ið, að ríkislögmaður vill ekki láta
ónáða sig með einhvetjum álits-
gerðum nótt sem nýtan dag.
Þess vegna sagði starfandi við-
skiptaráðherra sem svo: Ef mað-
urinn vill ekki vinna, á bara að
leggja starf hans niður. Ríkislög-
maður er í raun búinn að segja
sjálfum sér upp. Þetta hefði að
sjálfsögðu verið rétt ef um fijáls-
an, eðlilegan atvinnumarkað
hefði verið að ræða.
Það sem starfandi viðskiptaráð-
herra skilur ekki, er að embættis-
menn em ekki eins og venjulegt
vinnandi fólk. Þeir vilja ekki láta
tmfla sig á stofnunum. Það er
auðvitað ritara ríkislögmanns of-
viða að halda ríkislögmanni frá
viðskiptaráðherra. Þess vegna
komst ráðherra að með erindið.
Vanur ríkislögmaður skilar hins
vegar ekki álitsgerðum á færi-
bandi. Og vanur embættismaður
hlær sig auðvitað máttlausan
vegna fullyrðinga ráðherra um að
það eigi að leggja niður embættið
hans bara af því að hann vill ekki
vinna.
Stofiianaveldi Islands hristist
allt og skelfur þessa dagana í hlát-
ursrokum möppudýranna yfir
slíkum endalausum bjálfaskap
starfandi viðskiptaráðherra.
Það sem starfandi viðskiptaráð-
herra hefur ekki skilið, er að það
er ekkert til sem heitir starfandi
embættismaður.
Vmsamlega hringið dyrabjöllunni
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
finnáll 17. september 1787
Washington samþykkir
nýju stjórnarskrána
George Washington, leiðtoga Ffladdfíuþingsins, var í dag kynnt
ný stjórnarskrá Bandaríkjanna. 39 sendinefndir sem komu fram
fyrir hönd 12 af hinum 13 ríkjum (Khode Isiand var ekki með)
skrifuðu undir plaggið eftir margra mánaða umræður. Hclstu
vandkvæðin við að koma stjórnarskránni saman voru hvernig
ætti að samræma sterka ríkisstjórn við lýðræðisleg grundvallar-
atriði og sjálfstæði lylkjanna. Útkoman er blönduð ríkisstjórn:
fulltrúar í ncðri deild þingsins munu verða kosnir af almenningi
og fylkin munu hafa jafn marga fulltrúa í efri deildinni. Hvert
fylki ákveður hvernig það hyggst velja fulltrúa sína. í stjórnar-
skrána vantar enn kalla um grundvallarréttindi borgaranna og
hefúr það vakið miklar deilur. Sambandsríkissinnar segja slíkan
kafla nauðsynlegan en andstæðingar sambandsríkisins segja
hann óþarfan með öllu.
filþýðuWaðið 17. sept. 1983
Bytjað á öfugum enda
LEIÐARINN (Þ.H.)
„Þær ráðagerðir ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar að
bjóða út ýmsa verkþætti á ríkisspítulunum eru talandi dæmi um
það, hvernig hin nýja íhaidsstjórn hyggst leysa fjárhagsvanda
ríkisstjórnarinnar.
Um árabii hafa ýmis fyrirtæki í opinberrí þjónustu unnið að
svokallaðri „hagræðingu“ meðal starfsfólks síns. Það sem ein-
kennir „hagræðingu“ og sparnað meðai opinberra fyrirtækja
fram að þessu, er að jafnan er ráðist á garðinn þar sem hann er
lægstur. Það er ekki byrjað á því að fækka yfirmönnum stofnana,
hvers konar sérfræðingaliði með ómælda yfirvinnu, scm komið
hefur sér fyrir í fostum störfum innan stofnana á vegum hins op-
inbera. Jafnan þegar beita þarf aðhaldi og spamaði er byrjað á
því að segja láglaunafóiki upp, því fólki sem býr við minnsta at-
vinnuöryggið og iökust kjiirin."
UTGEFANDI: Alþýðuflokkurinn -
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Jóhannes
Guðrnundsson -
STJÓRNMÁLARITSTJÓRIOG
ÁBYRGÐARMAÐUR: Guðmundur
Ámi Stefánsson -
BLAÐAMENN: Friðrik Guðmundsson
og Þráinn Hallgrímsson -
AUGLÝSINGASTJÓRI: Helma
Jóhannesdóttir -
SETNING OG UMBROT: Alprent hf. -
PRENTUN: Blaðaprent