Alþýðublaðið - 17.09.1993, Blaðsíða 7
Föstudagur 17. september 1993
SÉRUMFJÖLLUN
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN 1993
Hampiðjan með byltingarkennt tóg
Sterkt sem stál - létt sem fis
Félagarnir Bernharður Guðnason og herra Flotgalli tilbúnir í slaginn.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Fjölbreytt framleiðslafrá MAX
Nýtt efni og nýtt snið
á flotvinnugöllum
- segir Bernharður Guðnason hjá MAX sem
býður mikið úrval af hlífðarfatnaði
„Meðal þess sem við erum að
kynna hér á sýningunni er nýr og
endurbættur flotvinnugalli. Þessi
galli, sem er viðurkenndur af Sigl-
ingamálastofnun, er úr nýju efni
sem er fimm til sex sinnum sterkari
en í eldri göllum og auk þess er
það mun þjálla en áður og með
nýju sniði,“ sagði Bernharður
Guðnason sem við hittum í sýning-
arbás MAX.
Það er ýmislegt fleira sem MAX er að
kynna í Höllinni. Allir muna eftir kuldagöll-
unum sem urðu tískufatnaður í fyrravetur
öllum að óvörum. Þessir gallar eru nú
komnir í nýrri útgáfu, loðfóðraðir og í alla
staði eigulegar hlífðarflíkur í komandi vetr-
arveðmm. Auk þess má nefna margar gerð-
ir af kuldaúlpum, vélsleðasamfestinga, vatt-
fóðraða vinnujakka, rafsuðusamfestinga,
vinnusloppa og regnfamað.
- Þetta tóg er svo létt að það flýtur en hefur álíka slitstyrk og stálvír af
sama sverleika, segir Gunnar Svavarsson forstjóri Hampiðjunnar
Hausarar sem auka nýtinguna um 2 - 3%
Hampiðjan kynnir meðal
annars svokallað DYNEX
tóg sem Gunnar Svavars-
son forstjóri fullyrti að væri
sterkasta tóg í heimi og
væri afurð nýrrar tækni í
plastefnum. Það er framleitt
sem 12 þátta fléttað tóg úr
óblönduðum DYNEMAA
þráðum og húðað með
polyurethane og er svo létt
að það flýtur. Tógið hefur
álíka slitstyrk og stálvír af
sama sverleika en vegur
aðeins um 1/6 af þyngd
stálvírsins og er ólíkt liprara
í meðhöndlun.
Gunnar sagði að þetta tóg væri meðal
annars notað í nýja risatrollið frá Hampiðj-
unni, í stærstu möskvana og höfuðlínur.
Þetta væri hins vegar mun dýrt efni og lítið
notað í heiminum.
Um árabil hefur Hampiðjan framleitt
hina hefðbundnu BLAU fískilínu sem sjó-
menn þekkja mætavel. Einnig hefur fyrir-
Gunnar og hans menn í Hampiðjunni bjóða ekki bara risatroll af Gloríugerð heldur einnig sterk-
asta tóg í heimi.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
tækið framleitt aðra línu sem er kölluð
GRÆNA línan og hefur reynst mjög vel við
vissar aðstæður. Að loknu umfangsmiklu
hönnunar- og þróunarstarfi hefur Hampiðj-
an nú hafið sölu á nýrri línu, GRAU lín-
unni. Hún er höfð þríþætt til að ná hámarks
styrkleika.
Sú gráa er um það bil 25% sterkari en
eldri gerðir af sama sverleika, en léttari og
því hlutfallslega ódýrari. Aukinn styrkur
línunnar er sérlega mikilvægur fyrir línu
með sigumöglum þar sem festingar naglans
geta rýrt styrk línunnar. Línan er gerð úr
núningsþolnum þráðum sem koma í veg
fyrir að yfirborð línunnar ýfist og safni í sig
grút.
Slær á kvótaskerðinguna
Jón Pálmason hefur framleitt véi sem lætur
lítið yfir sér en getur aukið verðmæti fiskafl-
ans stórlega.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
- segirjón Pálmason um nýja hausaravél sem lagar sig að fiskinum og
nœr hámarksnýtingu
Mitt í allri umræðunni um
aflaskerðingu fer lítið fyrir
fréttum af bættri nýtingu
þess hráefnis sem berst á
land. Fiskvinnslan á Raufar-
höfn hefur um fjögurra mán-
aða skeið notað nýja haus-
aravél frá Jóni Pálmasyni á
Akureyri sem hefur aukið
nýtingu aflans um að
minnsta kosti 3%. Þetta
þýðir gífurlegar upphæðir í
beinhörðum peningum.
Jón kynnir vél sína á sjávarútvegssýning-
unni. Hann er hógvær maður sem fer var-
lega í fullyrðingar en efast ekki um gagn-
semi vélarinnar. Hann sagði að aðaltilgang-
urinn með þessari smíði væri að bæta nýt-
ingu hráefnisins og það hefði tekist sam-
kvæmt tilrauninni á Raufarhöfn. Bætt nýt-
ing um 3% fæli í sér gríðarlega fjármuni
þegar litið væri á fiskiðnaðinn í heild. Segja
mætti með sanni að þetta slægi á kvóta-
skerðinguna. Hausaravélin nefnist HGK -
1919 og afkastar 27 - 32 flskum á mínútu.
Við þorsk vinnur hún hausun, kinnun, gell-
un og klumbu sér, ufsi hausun, kinnun,
klumba sér, karfl hausun og slæging og
keila og steinbítur hausun og kinnun.
UTHLUTUN
ÚR KVIKMYNDASJÓÐIÍSLANDS1994
Kvikmyndasjóður ísiands auglýsir eftir umsóknum um
framlög til kvikmyndagerðar.
Umsóknir skulu sendar Kvikmyndasjóði fyrir
16. nóvember 1993, á umsóknareyðublöðum sjóðsins
ásamt handriti, kostnaðaráætlun, fjármögnunaráætlun og
greiðsluáætlun.
Ef sótt er um framleiðslustyrk skal fullunnið
handrit fylgja umsókn ásamt kostnaðaráætlun,
fjármögnunaráætlun og greiðsluáætlun.
Ekki er tekið við umsóknum, sem afhentar eða póstlagðar
eru eftir að umsóknarfrestur rennur út.
Öli umsóknargögn skulu berast í fjórum eintökum.
Sjóðurinn heldur eftir einu eintaki af umsóknargögnum.
Umsækjendur eru beðnir að sækja aukaeintök á skrifstofu
sjóðsins frá 15. janúar -15. febrúar 1994.
Hafí umsækjandi áður fengið úthlutað úr sjóðnum eða
fyrirtæki, sem hann hefur átt aðild að, og verki ekki lokið,
skal fullnægjandi greinargerð að mati úthlutunarnefndar,
um það verk fylgja og uppgjör áritað af löggiltum
endurskoðanda. Úthlutunarnefnd áskilur sér rétt til að
óska eftir endurskoðuðum ársreikningi vegna
viðkomandi verks, ef þörf þykir.
Umsóknareyðublöð verða afgreidd á skrifstofu
Kvikmyndasjóðs, Laugavegi 24,101 Reykjavík
frá og með 21. september.
Athygli umsækjenda er vakin á því að ný
umsóknareyðublöð hafa verið tekin í notkun.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á sama stað.