Alþýðublaðið - 17.09.1993, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 17.09.1993, Qupperneq 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ SKATTSVIK, MINNING & LISTIR Föstudagur 17. september 1993 Skattsvikanefnd skilar viðamikilli skýrslu ILLUR GRUNUR STAÐFESTUR,- EN HVERNIG Á AÐ LEYSA VANDANN? ÍSLENDINGAR hafa 11 mfllj- arða króna af ríkissjóði á ári með þeirri háttsemi sinni að svíkja undan skatti með ýmsu móti. Þetta er niðurstaða nefndar, sem Friðrik Sophusson, fjármálaráð- herra, skipaði í nóvember síðast- liðnum, og hefur nú skilað áliti sínu. Ljóst er af viðamikilli bók nefndarinnar, sem kom út í gær, að hún hefur unnið kappsamlega að rannsókn íslenskra skattsvika, sem virðast fara vaxandi. Það er vissulega áhyggjuefni og benda má á að einmitt þetta stolna fé er um það bil sú upphæð sem ríkis- sjóð vanhagar um á tímurn mik- ils niðurskurðar. Skýrslan stað- festir illan grun, en leiðir að rót- um vandans eru vandfundnar sem fyrr. Svikin á við öll framlög til skóla Ellefu milljarðar sem menn stela undan eru stór tala, 9% af skatttekj- um ríkis og sveitarfélaga og 4,5% af landsframleiðslu. Til að gefa ein- hveija mynd má nefna að tekjur ATVR til ríkisins vom 9 milljarðar í fyrra. Útgjöld ríkisins til grunn- og framhaldsskóla vom líka 9 millj- arðar. í þeim mikilvæga málaflokki er skorið og skorið glórulítið að þvf sumum finnst vegna peningaskorts ríkisins. Skattsvikin em líka hærri tala en sú sem ríkið ver til að vemda landbúnaðinn, en það var 10,5 milljarðar í fyrra. Skattsvikanefndin segir að hér sé um að ræða lauslegt mat á hugsan- legu umfangi skattsvika, reiknað með tveim ólíkum aðferðum, sem þó gefa svipaðar niðurstöður. Bent er á að margir óvissuþættir séu í báðum reikniaðferðunum og beri því að líta á niðurstöður þessar sem áætluð umsvif skattsvika fremur en nákvæma tölu. Skattsvik með brosi á vör Landsmenn virðast ekki hafa stórkostlegan „móral“ þegar þeir ganga á vit skattsvikanna. Þeir fremja lögbrotin að því er virðist með bros á vör. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem gerð var í des- ember í fyrra. Nærri 77% aðspurðra höfðu síðustu 12 mánuðina átt við- skipti sem þeir töldu að ekki mundu hafa skilað sér til skatts. Um 64% þekktu einhvem sem á þessu tíma- bili hafði verið boðið upp á vöm eða þjónustu sem átti ekki að gefa upp til skatts. Fram kemur í könn- uninni að í 70% tilvika var þjónusta eða vara greidd á lægra verði en verið hefði í eðlilegum viðskiptum. Hátt VSK-hlutfalI freistar því margra til óhæfuverka, sem skatt- svik hljóta að teljast. Og það sem vekur kannski mest viðbrögð er spumingin: Efþú ættir kost á tekjum, sem þú þyrftir ekki að gefa upp til skatts, mytulir þú þá þiggja þœr? Alls sögðu 71,2% að- spurðra í könnuninni já við þeirn spumingu. Stór meirihluti er til í að taka þátt í þjóðaríþróttinni, sem sumir hafa kallað svo, skattsvikum. Hinsvegar virðast menn hafa verið varkárari, þegar þeir vom spurðir um hvort þeir hafi vantalið tfam til skatts á síðastliðnu ári. 11,1% viðurkenndu að svo væri, hinir ekki. Ætli þeir hafi allir sagt satt? Nærri 57% sögðu hinsvegar að það væri skiljanlegt að fólk reyndi að vinna fyrir tekjum sem skjóta mætti undan skatti. 68% vom þó sammála um að þungum viðurlögum ættu að beita gagnvart þeim er uppvísir verða um að skjóta tekjum undan skatti og 20,8% vom „frekar sammála". Mikil þátttaka í „þjóðaríþróttinni“ Engu er líkara en að siðferðis- kennd þjóðarinnar fari hnignandi miðað við fyrri könnun af svipuð- um toga fyrir nokkmm ámm síðan. „Svo virðist sem talsvert stærri hluti þjóðarinnar taki nú þátt í skatt- svikum en fyrir sjö ámm. Þannig íjölgar þeim um rúm 40% sem telja sig hafa keypt vöm og þjónustu sem ekki hefur verið gefin upp til skatts og þeim sem svíkja undan tekjuskatti fjölgar um rúm 50%. Sömuleiðis fjölgar þeim sem telja að skattyfirvöldum takist ekki að uppgötva skattaundandráttinn. Mun færri vilja hafa þung viðurlög við því að skjóta tekjum undan skatti. Það er einnig athyglisvert að þeim sem telja að lækka þurfi skatta fjölgar um 110% frá 1985. Hins- vegar virðast upphæðir þeirra við- skipta sem ekki em gefin upp til skatts vera heldur lægri nú en fyrir sjö árum“, segir nefndin þegar hún ályktar um svörin. Gallaður VASKUR? Fram kemur í skýrslu skattsvika- nefndarinnar að innheimta virðis- aukaskatts, sem innheimtur er hjá um 25 þúsund aðilum í landinu, helmingi fleimm en greiddu sölu- skatt, útheimtir mun Ijölmennara starfslið við eftirlit, ef vel á að vera. Ekki síst þarf að fylgjast með svo- kölluðum neikvæðum virðisauka- FLOKKSSTiÓRNARFUNDUR Athugið breyttan jundartíma ! Alþýðuflokkurinn - Jafnaðannanmflokkur íslands boðar til Flokksstjómarfundar laugardagimt 25. september klukkan 14.00 til 17.00 íÁtthagasal Hótel Sögu íReykjavík. DAGSKRÁ: 1, Stjórnmálaviðhorfið. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráðherra ogformaður Alþýðuflokksins. 2. Ávarp. Dr. Helmut Schmidt fyrrverandi kanslari Vestur-Þýskalands og leiðtogi þýskra jafnaðarmanna. 3. Önnur mál. Athugið: Fundurinn er opinn öllumflokksmönnum, en eftil atkvœðagreiðslu kemur hafa einungis kjömir fulltrúar íflokksstjóm atkvœðisrétt. Formaður. Fundarmönnum skal bentáað klukkan 12.00 hefst hádegisverðarfundur með Dr. Helmut Schmidt fyrrum kanslara Vestur-Þýskalands á Hótel Sögu. Fundurinn er á vegum Samtaka um vestrœna samvinnu og Varðbergs, ísamvinnu við Germaníu, ogmun Dr. Schmidt flytja erindi um efnahags- og stjórnmálaástandið í Evrópu. Aðgangseyrir með hádegisverði er krónur 2000. Sveitarstjórnarfulltrúar Alþýðuflokksins eru minntir á að klukkan 10.00 sama dag hefst fundur um sveitarstjórnarmál, í Skála Hótel Sögu. FRIÐRIK SOPHUSSON, fjármálaráðherra, á fundi í gærdag, þegar hann kynnti skýrslu skattsvikanefndarinnar. Góð skýrsta sem hnykkir á um stórt þjóðfélagsmein. skattsskýrslum og endurgreiðslum úr ríkissjóði, og með flóknari efnis- þáttum eins og VASK af eigin not- um í byggingarstarfsemi. Nótulaus viðskipti í VSK-kerfinu em algeng- ust hjá aðilum sem em endanlegir seljendur. Athyglisvert er í þessu sambandi að þegar VSK-kerfið var tekið upp var talið að kerfið gengi sem sjálfsmurð vél, einn hlekkurinn í viðskiptakeðjunni tryggði að sá næsti gerði skil og svo framvegis. Þetta kerfi þyrfti ekki fleiri starfs- menn en fyrir vom. Annað hefur komið á daginn. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason Gamlar lummur sem hita má upp Fremur er sá kafli tómlegur, sem fjallar um leiðir til að draga úr skatt- svikum. Þar er að finna gamlar lummur eins og hert eftirlit, auknar skattrannsóknir, breytt skipulag og starfshætti skattyfirvalda, einfölduð skattlfamtöl og fleira. En gamlar lummur má hita upp svo úr verði matur. Athygli vekur klásúla í kaflanum um hugarfarsbreytingu, sem því miður virðist eiga langt í land. Þar stendur: „Með því að virkja al- menna borgara til þátttöku gegn skattsvikum er unnt að torvelda mönnum að stunda þau, m.a. vegna hættunnar á því að upplýsingum um hina ólöglegu starfsemi yrði komið á framfæri við skattayfir- völd. Hugsanlegt væri að umbuna almenningi með afslætti af skött- um, t.d. með því að endurgreiða að hluta virðisaukaskatt til þess að koma á hugarfarsbreytingu meðal álmennings". Hætt er við að slíkt skapaði óróa af stærra taginu í þjóð- félaginu og af yrði ný Sturlungaöld. Þá er rætt um opinbera birtingu refsidóma. Nefndin telur að með birtingu slíkra dóma mætti ná veru- legum varnaðaráhrifum. Lagt er til að embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins hafi það hlutverk með höndum að kynna fjölmiðlum og almenningi niðurstöður dóma í skattsvikamálum, á fréttamanna- fundum eða með tilkynningum. Einnig þetta sýnist orka nokkurs tvímælis. Hinsvegar hljóta allir að taka undir að hugarfarsbreytingar er þörf, enda eru skattsvikin „þjóðfé- lagsleg meinsemd“, eins og nefndin segir. „Skattsvikin særa réttlætis- kennd fólks og þegar stór hópur manna kemst undan því, með býsna opinskáum hætti, að fara að lögum, veikir það trú á því að við lýði sé réttamid hér á landi. Skattsvikin skekkja aðstæður til samkeppni í at- vinnulífinu og hefta í mörgum til- fellum eðlilega og æskilega fram- þróun fyrirtækja og jafnvel heilla atvinnugreina", segir nefndin rétti- lega. En eftir stendur að Friðrik Sop- husson og hans vösku menn í fjár- málaráðuneyti standa uppi með skýrslu sem staðfestir illan grun, - en leysir engin vandamál að best verður séð. Þetta sama hafa fjár- málaráðherrar undan honum upp- lifað, en ekki tekist að uppræta vandann þrátt íyrir skeleggar atlög- ur að meininu. Minning / Ottar Proppé Ég var staddur við opnun hafnfirskrar listsýningar í Cux- haven síðastliðinn sunnudag, þegar mér barst ffegnin um and- lát vinar míns og samstarfs- manns, Óttar Proppé. Þetta var harmafregn. Horfinn var af sjón- arsviðinu góður drengur og Ifá- bær starfsmaður Hafnarfjarðar- bæjar. Flestir forráðamenn Cux- haven könnuðust við Óttar Proppé vegna starfa hans fyrir Hafnarfjarðarhöfn, en sem slíkur hafði hann heimsótt Cuxhaven nokkrum sinnum og áunnið sér virðingu og vinskap þar eins og reyndar alls staðar. Kynni okkar Óttars hófust í Flensborgarskóla, fyrst sem nemendur og síðar kenndum við þar saman. En veruleg kynni okkar hófust fyrst þegar hann hóf störf hjá Hafnarfjarðarbæ sem forstöðu- maður viðskiptasviðs Hafnar- tjarðarhafnar. Hann sinnti því starfi af einstakri natni og sam- viskusemi. Með störfúm sínum gjörbreytti hann allri tjármála- starfsemi Hafnartjarðarhafnar til hins betra og ávann sér traust allra starfsmanna bæjarfélagsins. Það er mikil eftirsjá að Óltari Proppé sem starfsmanns Hafnar- ljarðarbæjar og um leið og við Hafnfirðingar kveðjum frábæran starfsmann og góðan dreng sendum við (jölskyldu hans okk- ar einlægustu samúðarkveðjur. Ingvar Viktorsson. Óvenjuleg listsýning í Ráðhúsinu TÍU SEM BYRJUÐU SEINT í LISTINNI 67 kynslóðin heitir myndlistar- sýning sem opnuð verður í Ráð- húsi Reykjavíkur á sunnudaginn klukkan 14. Þar sýna myndlistar- menn, 67 ára og eldri, aliir óskólagengnir, og fæstir hafa þeir hafið listsköpun fyrr en á fullorð- insárum, að lokinni langri starfs- ævi. A sýningunni verða málverk og trémyndir. „Frásögnin, sagan og ævintýrið í umhverfi þeirra gengur eins og rauður þráður í gegnum verkin og ber vitni tveimur eigin- leikum sem stundum glatast í tækniheimi atvinnumennskunnar; fjölskrúðugu hugmyndaflugi og ferksri sýn á heiminn", sagði Anna Björg Sigurbjömsdóttir hjá Öldrun- arráði íslands í gær, en þau samtök standa fyrir þessari óvenjulegu list- sýningu. Aðgangur er ókeypis að sýningunni, sem stendur til 26. september.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.