Alþýðublaðið - 17.09.1993, Síða 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
SERUMFJOLLUN
Föstudagur 17. september 1993
SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN 1993
Kassagerð Reykjavíkur byggir á 60 ára reynslu
Sívaxandi framleiðsla
á neytendapakkningum
- segir Þórður Björnsson en Kassagerðin hefur nú hafið sölu
á pappaumbúðum fyrir saltfisk
Kristín Ingvadóttir og Katrín Fjeldsted Jónsdóttir sjá um að landa kúnnum fyrir Löndun hf á
sjávarútvegssýningunni.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Fjölbreytt þjónusta við skip og skipverja
Löndun gerir
meira en að landa
„Fyrirtækið Löndun hf. hefur verið
starfandi frá árinu 1987 og hefur séð
um löndun á ferskum og frosnum físki
í Reykjavík. En fyrirtækið gerir meira
en það því auk löndunar annast það
margháttaða þjónustu við skipin,“
sagði Katrín Fjeldsted Jónsdóttir hjá
Löndun hf.
Þegar flskiskip koma með afla að landi
sjá starfsmenn Löndunar um að koma afl-
anum frá borði. Auk þess sjá þeir um að
panta kost ef með þarf, viðgerðir og vara-
hluti auk alls annars sem þarf með þann
stutta tíma sem skipin hafa viðdvöl í
höfn. Katrín sagði fyrirtækið hafa ærin
verkefni á sinni könnu og þjónusta þess
væri vel þegin.
Sívaxandi framleiðsla hjá Sœplasti á Dalvík
„Framleiðsla Kassagerðarinnar stend-
ur á gömlum merg enda hóf fyrirtækið
starfssemi árið 1932. Það hefur jafnan
verið lagt kapp á að standast kröfur tím-
ans hverju sinni og aðaláherslan verið
lögð á fískumbúðir. Þar hafa miklar
breytingar og framfarir orðið í tímans
rás og nú framleiðum við mikið af um-
búðum fyrir neytendapakkningar sem
unnið er í um borð í frystitogurunum. Þá
höfum við nýlega byrjað sölu á saltfísk-
kössum úr pappa,“ sagði Þórður Björns-
son hjá Kassagerðinni.
Það færist sífellt meira í vöxt að innlend
fiskvinnslufyrirtæki bæði á sjó og landi
framleiði fisk beint í neytendapakkningar.
Þar kemur Kassagerðin til skjalanna og
ieggur til litprentaðar vandaðar umbúðir.
Meðal frystihúsa sem framleiða í neytenda-
pakkningar er frystihúsið á Dalvík.
Þórður sagði að Kassagerðin framleiddi
einnig talsvert fyrir erlendan markað. Með-
al annars eru umbúðir frá fyrirtækinu flutt-
ar út til Shetlandseyja, Færeyja og Frakk-
lands. Fullkomin grafísk hönnunardeild er
Þórður Bjömsson með sýnishorn af framleiðslu Kassagerðarinnar í baksýn.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
starfrækt hjá Kassagerðinni búin fullkomn- irtækið er bytjað á silkiprentun við góðar
um tölvuhugbúnaði. Þá má geta þess að fyr- undirtektir viðskiptavina.
Selja fiskker um
allan heim
„Það lætur nærri að helmingur
framleiðsJunnar fari á erlendan
markað. Mest seljum við til Evrópu-
landa en einnig má nefna lönd eins
og Astralíu og Chile. Viðtökur kaup-
enda hafa verið ákaflega góðar og
við erum enn að endurbæta kerin,“
sagði Þórir Matthíasson frá Sæplasti
á Dalvík.
Fiskkerin frá Sæplasti þykja orðið ómiss-
andi í fiskiðnaði. Það er sama hvort um er
að ræða fiskiskip af minnstu gerð, stærstu
ferskfisktogara, saltfiskverkun, fiskmark-
aði, rækjuvinnslu eða sfldarvinnslu. Fisk-
kerin frá Sæplasti henta alls staðar. Kerin
hafa verið löguð að þörfum markaðarins í
náinni samvinnu við notendur. Þau eru öll
tvíeinangruð og með flestum þeirra er hægt
að fá tvöföld einangruð lok. Þau eru fram-
leidd úr efnum sem eru viðurkennd til notk-
unar í matvælaiðnaði.
Þórir sagði að starfsmenn Sæplasts væm
nú 22 og tók fram að fyrirtækið væri reyk-
laus vinnustaður.
Vilhjálmur Ólafsson og Þórir Matthíasson
kynna framlciðslu Sæplasts.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
SAMABYRGÐ ISLANDS Á FISKISKIPUM
LÁGMÚLA 9,128 Reykjavík. Pósthólf 8320
Sími 681400, Fax 814645
Starfssvið Samábyrgðar:
• Afla- og veiðarfæratryggingar
• Slysatryggingar sjómanna
• Skipatryggingar
• Ábyrgðartryggingar útgerðarmanna
• Farangurstryggingar skipshafna
• Endurtryggingar fiskiskipa
undir 100 rúmlestum
Skrifstofa Samábyrgðarinnar og eftirtaldir umboðsmenn vorir veita allar nauðsyniegar
upplýsingar varðandi tryggingar þessar og taka á móti tryggingarbeiðnum.
Vélbátaábyrgðarfélagið Grótta. Reykjavík
Vélbátaábyrgðarfélag ísfirðinga, ísafirði
Skipatrygging Austfjarða. Höfn. Hornafirði
Bátatrygging Breiðafjarðar, Stykkishólmi
Vélbátatrygging Eyjafjarðar. Akureyri
Vélbátatrygging Reykjaness, Keflavík
Fyrirtœkin Tœknival og Hugur
framleiða samhœfðan hugbúnað
Viltu kaupa Hafdísi,
Agnesi eða Torfa?
svo er líka hœgt að biðja um Berg, Prófast eða
Mugg þegar hugbúnaðarkerfi Tœknivals og
Hugar er annars vegar
„Tæknival er eina fyrirtækið á
landinu sem getur boðið alla hluti í
heildarkerfi fyrir sjávarútvegsfyrir-
tæki, allt frá vélbúnaði til hugbúnað-
ar. Tæknival hf. og Hugur hf. hafa
starfað saman síðast liðið ár við sam-
hæfíngu hugbúnaðar fyrir sjávarút-
veg og nú sýnum við hér árangur-
inn,“ sagði Birgir Þormóðsson hjá
Tæknival.
Markverðustu nýjungamar sem
Tæknival kynnir á sýningunni eru ný
kynslóð hugbúnaðar, Hafdís, undir
Windows fyrir sjávarútvegsfyrirtæki
ásamt tengingum við Concorde bók-
haldshugbúnað ffá Hug hf. Einnig
skjámyndakerfí sem inniheldur stjóm-
kerfi, aðvörunar- og gæslukerfi auk
skráningakerfa lyrir fiskvinnslufyrir-
tæki og sjávarútveg. Alagsstýringar til
að stjóma orkunotkun fyrirtækja sem
og sjálfvirkur búnaður til uppbygging-
ar, endumýjunar, viðhalds og breyt-
inga á al- og hálfsjálfvirkum fram-
leiðslu-, pökkunar-, gæslu- og aðvör-
unarkerfum.
0MÍT.ACH*
Birgir Þormóðsson hjá Tæknival lætur ekki tæknina vcfjast fyrir scr.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason