Alþýðublaðið - 12.10.1993, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 12. október 1993
VIÐTAL DAGSINS
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
Bolli Runólfur Valgarðsson, formaður Félags ungra
jafnaðarmanna í Reykjavík, í viðtali við ALÞYÐUBLAÐIÐ
um borgarmálin, Alþýðuflokkinn og ríkisstjórnina
BORGARSTJÓRNARKOSNINGAR
EFST Á BAUGINÆSTU MÁNUDI
„Við leggjum þunga áherslu á að Alþýðuflokkurinn við-
hafí opið prófkjör við val á fulltrúum á listann við næstu
borgarstjórnarkosningar. Félag ungra jafnaðarmanna í
Reykjavík hefur eytt miklum tíma í umræður um þær
kosningar. Ég er satt að segja gáttaður á því að ýmsir inn-
an flokksins róa að því öllum árum að viðhöfð verði upp-
stilling í stað opins prófkjörs. Með því eru hinir sömu að
segja að fólkið hafí ekki vit á því að velja hæfustu fulltrú-
ana. Hvorki stjórn fulltrúaráðsins né fulltrúaráðið sem
slíkt, en það telur um 100 manns, á að taka fram fyrir
hendurnar á fólki sínu með því að velja fyrir það fulltrúa
flokksins á borgarstjórnarlistann. Það væri vantraust og
vanvirðing á fólkið. Þeir sem ekki treysta sér í prófkjör
hafa ekkert að gera á listann“, segir Bolli R. Valgarðsson,
nýendurkjörinn formaður Félags ungra jafnaðarmanna í
Reykjavík í samtali við Alþýðublaðið. Nokkrar breytingar
urðu á stjórninni og lögum félagsins og höfum við greint
frá þeim hér í blaðinu. Vegna tímaskorts á aðalfundi náð-
ist ekki að afgreiða stefnuskrá félagsins og verður fram-
haldsaðalfundur því haldinn á næstunni.
Bolli Runólfur Valgarðsson, formaður Fclags ungra jafnaðarmanna í Rcykjavík.
„FUJ í Reykjavík leggur mikJa
áherslu á borgarmálin, eðli málsins
samkvæmt, og hefur formaður mál-
stofu um borgarmál, Ingvar Sverr-
isson, þegar tekið sæti í borgar-
málaráði Nýs vettvangs. Við viljum
setja okkur sem best inn í borgar-
málin og kynnast þeim“, segir Bolli
Runólfur.
- Hefur reynslan ekki sýnt að
minnihlutaflokkunum er ekki
treystandi fyrir borginni?
„Hinn svokallaði vinstrimeiri-
hluti 1978 gerði mörg axarsköftin.
Eg held hins vegar að mikjð vatn
hafi runnið til sjávar síðan sem sýn-
ir sig meðal annars í þvi að nýtt og
ungt fólk með ferskar hugmyndir
hefur gengið til liðs við flokkana á
undanfömum missemm. Það á ekki
síst við um Alþýðuflokkinn. En
það er hinsvegar alveg ljóst að ef
það á að vera eitthvert vit í Alþýðu-
bandalagsmönnum verða þeir að
endumýja sinn lista algerlega. Það
væri til dæmis eftirsóknarvert fyrir
þann flokk að velja Arthur Mort-
hens í sína forystusveit.
Það er ljóst að flokkamir munu
leggja áherslu hver á sín stefnumál í
kosningabaráttunni. Eg legg hins-
vegar mikla áherslu á það að þeir
komi sér saman unt ákveðin megin-
mál fyrir kosningamar til að berjast
fyrir þannig að þeir verði raunhæfur
valkostur við hlið Sjálfstæðis-
flokksins. Það verður að uppræta
spillinguna, sem viðgengst innan
Sjálfstæðisflokksins í borgarkerf-
inu. Það er af mörgu að taka. Eigin-
leg baráttumál Alþýðuflokksins
verða að koma fram þegar valið
hefur verið á lista flokksins en FUJ
í Reykjavík leggur mikla áherslu á
að ráðist verði í það að rétta við
fjárlagahalla borgarsjóðs. Borgar-
stjóm verður að sjálfsögðu að sýna
ábyrgð í þeim efnum eins og aðrir í
þjóðfélaginu. Það vantar mikið á að
núverandi meirihluti sýni ráðdeild í
meðferð tjármuna borgarbúa eins
og dæmin sanna“.
Alþýðuflokkurinn
aðaltalsmaður neytenda
- SUJ hefur oft gagnrýnt stefnu
ríkisstjórnarinnar og framgöngu
Alþýðuflokksins en minna ber á
því innan FUJ í Reykjavík. Erfor-
ysta félagsins ósammála SUJ í
þeim efnum?
„Nei, það held ég ekki. Einstakir
aðilar innan SUJ hafa stundum tek-
ið afstöðu í deilum formannsins og
fyrrverandi varaformanns. Það er
hinsvegar ekki hægt að tala um að
SUJ sé sérstakur gagnrýnandi á
framgöngu flokksins í ríkisstjóm.
Um það bera fjölmargar ályktanir
SUJ vitni.
En það má kannski segja sem svo
að innan FUJ í Reykjavík ríki al-
mennari sátt um stefnu Alþýðu-
flokksins í ríkisstjóminni. Astæðan
fyrir því er ef til vill sú að við miss-
urn aldrei sjónar á þeirri staðreynd
að erlendar skuldir ríkissjóðs og
landsmanna allra fara sífellt vax-
andi. Við viljunt ekki hvika frá því
að á þeim málum sé tekið af
ábyrgð.
Alþýðuflokkurinn hefur unnið að
því sleitulaust að breyta íslensku
löggjöfinni í fijálsræðisátt og gera
hana samanburðarhæfa við löggjöf
landanna í kringum okkur. I því
efni vill það gjaman gleymast að
flokkurinn er nú orðinn helsti
bandamaður og talsmaður neyt-
enda, alls almennings í landinu.
Baráttumál Alþýðuflokksins em
einnig í samhljóm við áherslur for-
svarsntanna iðnaðarins og verslun-
arinnar, þannig að mér sýnist að
flokkurinn sé eini raunhæfi kostur-
inn til að fylkja sér um, vilji lands-
menn á annað borð ná árangri".
Óviðunandi
fjárlagafrumvarp
- Hefur Alþýðuflokkurinn að
mati FUJ í Reykjavík sýnt nœgi-
legan skilning á þeim vanda sem
almenningur á við að stríða vegna
aukins atvinnuleysis, hœrri skatta,
niðurskurðar hjá ríkinu og ýmsu
fleiru?
„Það er alveg augljóst að þegar
tekjur ríkisins dragast saman verður
að rifa seglin. Efnahagsvandinn
stafar ekki síst af tímabundnum
aflasamdrætti og alþjóðlegri kreppu
í heimsbúskapnum. Þann vanda
verður fólk að varast að rekja til Al-
þýðuflokksins.
Enginn stjórnmálaflokkur á ís-
landi gerir sér þó betur grein fyrir
vandanum en Alþýðuflokkurinn.
Það ríkir skilningur á því innan FUJ
í Reykjavík að af þeiiri ástæðu
krefst flokkurinn frekari niður-
skurðar ríkisútgjalda til þess að
forða þjóðinni frá gjaldþroti. Fjár-
lagafrumvarpið fyrir 1994 sýnir al-
gerlega óviðunandi árangur í þeim
efnum.
Félagið varar hinsvegar við því
að á sumum sviðum er ekki hægt að
ganga lengra í niðurskurðarátt en
bendir jafnframt á að ganga megi
miklu lengra á öðrum sviðum. Það
þarf að ganga sem fyrst frá samm_* _
ingum ríkisins við sveitarfélögin í
landinu um breytta verkefnaskipan
ríkis og sveitarfélaga. Ríkissjóður á
ekki að styrkja hagsmunasamtökin
í landinu, til dæmis landbúnaðar-
samtökin, VSÍ, ASÍ og fleiri aðila.
Hversvegna í ósköpunum er rík-
ið til dæmis að styrkja Alþýðusam-
bandið um á annan tug milljóna á
ári, samtök sem eru með um 65
þúsund félagsmenn innan sinna vé-
banda? Það þarf ekki annað en fara
í gengum fjái'lögin til að sjá að í
þeirri bók eru margar tímaskekkj-
umar“.
Flokkurinn þarf á
samheldni ao halda —«
- Hefur FUJ ekki áhyggjur af
innanflokkserjum íAlþýðuflokkn-
um?
„Jú, vissulega, þótt félagið sem
slíkt hafi ekki tekið neina sérstaka
afstöðu í því efni. í mínum huga er
ágreiningurinn takmarkaður við fá-
einar persónur. Staðreyndin er sú
að á flokksþinginu í Kópavogi, öll-
um flokksstjómarfundum síðan og
almennum fundum félaganna um
allt land, hefur þessi klofningur
ekki komið ffarn. Að sjálfsögðu
hafa menn deildar meiningar í ýms-
um málum, misjafnlega þó. Svo vill
til að sá sem einkum hefur gagnrýnt
stefnu flokksins er ráðherra og fyrr- 'm"
verandi varaformaður. Gagnrýni
flokksmanns, sem er í slíkri áhrifa-
stöðu innan stjómmálaflokks, hlýt-
ur jafnan að vekja athygli í fjöl-
miðlum.
En það er auðvitað ljóst að for-
maðurinn og fyrrverandi varafor-
rnaður verða að slíðra sverðin fyrir
alvöm, ef þau ætla ekki að skilja
eftir sig sviðna jörð f flokknum. Ál-
þýðuflokkurinn þarf nefnilega á
fullkominni samstöðu flokksmanna
sinna að halda. En sennilega þurfa
þau bæði á rassskellingu að halda.
Það kann vel að vera að flokkur-
inn fari illa út úr næstu kosningum.
Eg tel að það verði betra fyrir flokk-
inn að vera utan ríkisstjómar að
tveimur ámm liðnum heldur en að
selja stefnu sfna fyrir tímabundnar
vinsældir með ábyrgðarlausum
kosningaloforðum, sem verði ávís-
aðar á komandi kynsióðir. Þeirri
stefnu hafnar Félag ungra jafnaðar-
manna í Reykjavík. Við emm nú
þegar að greiða skuldasukk foreldra
okkar. Abyrgðartilfinning okkar
segir okkur að nú sé tími til kominn
að nema staðar, eigi kontandi kyn-
slóðir ekki að sitja í súpunni alla
sína ævi. Urn það snýst stefna Al-
þýðuflokksins um þessar mundir
og henni fylgir FUJ í Reykjavík",
sagði Bolli Runólfur Valgarðsson,
formaður ungra jafnaðarmanna í
Reykjavík að lokum.
„Við leggjumþunga áherslu á að Alþýðuflokkurinn viðhafi opið
prófkjör við val á fulltrúum á listann við nœstu borgarstjórnar-
kosningar. Félag ungra jafnaðarmanna í Reykjavík hefur eytt
miklum tíma í umrœður um þœr kosningar. Eg er satt að segja
gáttaður á því að ýmsir innan flokksins róa að því öllum árum að
viðhöfð verði uppstilling ístað opins prófkjörs. Með þvíeru hinir
sömu að segja að fólkið hafi ekki vit á því að velja hœfustu fulltrú-
ana. Hvorki stjórn fulltrúaráðsins né fulltrúaráðið sem slíkt, en
það telur um 100 manns, á að takafram fyrir hendurnar áfólki
sínu með því að velja fyrir það fulltrúa flokksins á borgarstjórnar-
listann. Það vœri vantraust og vanvirðing á fólkið. Þeir sem ekki
treysta sér íprófkjör hafa ekkert að gera á listann “
„það er auðvitað Ijóst að formaðurinn og
fyrrverandi varaformaður verða að slíðra
sverðinfyrir alvöru, efþau œtla ekki að
skilja eftir sig sviðna jörð íflokknum. Al-
þýðuflokkurinn þarf nefnilega á fullkom-
inni samstöðu flokksmanna sinna að
halda. En sennilega þurfa þau bœði á
rassskellingu að halda. “