Alþýðublaðið - 30.11.1993, Síða 1
Landsfundur Alþýðubandalagsins
OLAFUR RAGNAR
BROTLENDIR
Stuðningsmenn Svavars allsráðandi í miðstjórn — Kvennahreyfing Ólafs svœfð ífœðingu
— Arthúr Morthens og fleiri Birtingarmenn snerust gegn Ólafi — Gamla krafan um
ísland úr NATÓ samþykkt á nýgegn vilja formannsins og „Útflutningsleið“
hans hent í ruslið — Ólafur Ragnar: einangraður og valdalítill
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON - Formaður Alþýðubandalags-
ins þykir hafa brotlent harkalega á iandsfundi flokksins um síðustu
helgi og er nú talinn einangraður og valdalítill.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Ólafur Ragnar Gríms-
son þykir í mjög veikri
stöðu innan Alþýðu-
bandalagsins eftir lands-
fund flokksins sem hald-
inn var um síðustu helgi.
Steingrímur Jóhann Sig-
fússon þykir hinsvegar
hafa styrkt stöðu sína og
sömu sögu er að segja
um Svavar Gestsson.
Svavar þykir reyndar
sigurvegari fundarins og
koma þaðan svo sterkur
að hann kemur að sögn
kunnugra nú einna helst
til greina sem næsti for-
maður Alþýðubanda-
lagsins eftir að Ólafur
Ragnar hættir að tveim-
ur árum liðnum.
Það gerðist snemma á
fundinum að Ólafur Ragnar
missti tökin. Það atvikaðist
þannig að gerð var tillaga um
Svavar Gestsson sem for-
mann kjörstjómar er sér um
að stilla upp til kjörs á fram-
kvænidastjóm og miðstjórn
flokksins.
Það var einn af þeim sem
menn hafa talið sérstakan
stuðningsmann Ólafs Ragn-
ars, Arthúr Morthens, sem bar
fram tillöguna um Svavar.
Þetta þykir sýna glögglega
hversu mikill flótti er brostinn
í stuðningsmannahóp for-
mannsins í flokknum.
„Útflutningsleiðin“
send í endurvinnslu
Tillaga um að formenn fé-
laga innan Alþýðubandalags-
ins yrðu undanþegnir „endur-
nýjunarreglunni“ var felld.
Fór þar fyrir bí sú ætlan
stuðningsmanna Ólafs Ragn-
ars að fá hana í gegn og yfir-
færa síðan þannig að hún gilti
í tilviki Ólafs Ragnars. Það
gekk semsagt ekki eftir og því
er það talið afgreitt mál að Ól-
afur Ragnar hættir að tveimur
ámm liðnum.
Hörð og óvægin gagnrýni
kom fram á Ölaf Ragnar
vegna undirbúnings „Útflutn-
ingsleiðarinnar“ svokölluðu.
Það var mál manna að for-
maðurinn hefði verið afar ein-
ráður við gerð hennar. Hundr-
uð athugasemda voru gerðar
við þessa Útflutningsleið sem
að lokum var send aftur til
föðurhúsanna - í endur-
vinnslu hjá forystu flokksins.
Svavar og Steingrímur
með togl og haldir
Stuðningsnrenn Svavars
eru nú í yfirgnæfandi meiri-
hluta í framkvæmdastjóm og
miðstjóm flokksins.
Til marks um þau tök sem
þeir Svavar og Steingnmur
höfðu á fundinum er, að þar
stóð til að stofna sérstaka
kvennahreyfingu Alþýðu-
bandalagsins og átti með því
að búa til stökkpall fyrir
Svanfríði Jónasdóttur frá Dal-
vík, fyrrum aðstoðarmann Ól-
afs Ragnars í ljármálaráð-
herratíð hans, sem Ólafur
Ragnar vildi gera að formanni
hinnar nýju hreyfingar. And-
stæðingar formannsins, eink-
um Steingrímur, lögðust ein-
dregið gegn þessum fyrirætl-
unum og var því stofnun
hreyfmgar kvenna innan Al-
þýðubandalagsins sett á ís í
þetta skiptið.
Hámark
niðuriægingarinnar
Hámark niðurlægingar for-
mannsins var svo þegar borin
var fram tillaga í andstöðu við
hann um að Island segði sig
úr NATÓ. Einn af flutnings-
mönnunum var fyrmefndur
Arthúr Morthens. (Margir
muna sjálfsagt hvemig á einni
nóttu á síðasta vetri breytti
Ólafur Ragnar afstöðu Al-
þýðubandalagsins til NATÓ
og sagði það vera þróast í átt
til friðarbandalags.) Sam-
þykkt tillögunnar um úrsögn
Islands úr NATÓ þótti nrikill
ósigur fyrir Ólaf Ragnar. For-
maðurinn sat hjá við at-
kvæðagreiðsluna og einungis
sex voru á móti. I umræðum
um þá tillögu sætti Ólafur
Ragnar harðri gagnrýni fyrir
vinnubrögð í þessu máli.
Aður en kom til atkvæða-
greiðslunnar hafði Ólafur
Ragnar reynt að fá starfshóp
sem íjallaði um stjórnmála-
ályktun landsfundarins til að
útiloka þessa tillögu um
NATÓ. Það gekk semsagt
ekki eftir.
Vúja afnolcjald
af nytíngu fiskimiða
Af öðmm athyglisverðum
samþykktum landsfundar Al-
þýðubandalagsins var að
skoða skuli afnotagjald fyrir
nýtingu fiskimiða og virðist
flokkurinn þannig vera að
færa sig upp að hlið Alþýðu-
flokksins í því máli.
Niðurstaða landsfundarins
er sú að Ólafur Ragnar er nán-
ast valdalaus orðinn r Al-
þýðubandalaginu sem nú
virðist vera nær algjörlega í
höndum Svavars Gestssonar
og Steingríms Jóhanns Sig-
fússonar. Svavar þykir hafa
styrkt stöðu sína til nruna og
þykir nú sterklega koma til
greina sem fomiaður þegar
Ölafur Ragnar hættir að
tveimur ámm loknum.
Hitaveita i'50 ár
St/órn veitustofnana ákveður að gefa
Listasafni Einars Jónssonar upphitun
að jafnvirði 1,5 milljón króna
í dag eni liðin 50 ár frá þvi fyrsta húsið var tcngt við lúlavdtu
frá Kcykjuin í Mosfellssveit. t'aO var Hnitbjörg, Ustasafn ICinars
Jónssbnar, Stjórn vdtustofnana Kcy kjavíkurborgar licfur ákvcð-
10 að núnnast þcssa afniælis með þn' að gcfa jafnvirði dnnar og
hálfrar milljóu króna til upphitunar hússins á næstu úrum. Kinn-
ig cr ákveðið að minnnst afmælisins mcð því að vdta Vinnuheim-
iiinu á Kcykjalundi fjárhagsaðstoð við kaup á hifreið sem nola á
til flutnings fatlaðra sjúklinga niilli húsa.
Hugmynd uin hitaveilu fyrir Reykjavrt; fæddist í upphafi þriðja
áratugsins og höfðu ungir íslenskir verkfræðingar forystu í því máli.
Ber þar liæst nal ii Jóns Þoriákssonar, síðar forstetisráðherra og borgar-
stjóra. Fyrstu framkvæmdir voru í Laugardal og heitu vatni hleypt á
fyrsta húsið í nóvemlx-r 1930, Austurbæjarskólann. Laugaveitan varð
hins vcgar aldrei stór og strax um 1930 fóru tnenn að líta til Rcykja í
Mosfellssveit sem forðabúrs fyrir hitaveitu Reykjavíkur. Tilraunabor-
anir hófust 1933 og menn htifðii gert sér vonir unt að framkvæmdum
lyki fyrir árslok 1940. Vegna heimsstyrjaldarinnar urðu Uifir á fram-
kvæmdum og það var ekki fynr en undir árslok 1943 að unnt var að
hleypa vatni á fyrstu húsin. Fyrsta húsið sem tengdist lúnni nýju hita-
veitu var Hnitbjörg, Listasafn Einars Jónssonar á Skólavörðuholti.
|
Góða kaffið í rauðu dósunum frá Mexico 1