Alþýðublaðið - 30.11.1993, Qupperneq 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Landsfundur allaballa
Hinn gratbroslegi ellefti landsfundur Alþýðubanda-
lagsins hefur orðið skáldum okkar að yrkisefni. Þessi
staka var okkur send á föstudaginn þegar formaðurinn til-
kynnti alþjóð að innan Alþýðubandalagsins væri enga
„artna" að finna:
Forystunnar rátnu raus
rœðst á þarm sem flokkinn kaus.
Alþýðán eramlalaus
því andinn beeði dó og fraus.
Þingmenn segja „já takk!“
Best heppnaða kynningarátak íslensks iðnaðar til þessa
stendur yfir. Menn segja Jslenskt já takk" - og meina
það. Kynningamefndin hefur unnið gott starf og viðrað
sterkt slagorð, sem tekið er eftir. {dag er röðin komin að
alþingismönnum að segja já takk! Þingmönnum verður
afhent barmmerki átaksins fyrir þingfund í dag. Þá mun
það gerast sem ekki er algengt, kórsöngur í Alþingishús-
inu. Kór Öldutúnsskóla undir stjóm Egils Friðleifsson-
ar mun syngja tvö lög. Það er við hæft, kórinn hefur um
árabil sýnt og sannað á erlendri grund að hann er í hópi
hinna bestu í heiminum.
Ferðavakinn fluttur út
íslenskt upplýsingakerfí fyrirferðamenn varð fyrir val-
inu þegar Accson Information AB í Svíþjóð valdi slíkt
kerfi til ffamleiðslu. Ferðavakinn er upplýsingakerfi sem
tnenn þekkja frá flugstöðvum hér á landi, kerftð er ís-
lenskt hugvit og töldu Svíamir hjá Accson kerfið hafa
yfirburði yfir sambærileg erlend kerfi. Accson hyggst
setja kerfið upp í Sviþjóð, Noregi og í Danmörku, en get-
ur einnig framselt leyfið til Þýskalands háifu ári eftir að
kerftð hefur verið sett upp í Svíþjóð, en þar verður það í
flugstöðvum, í ferjum og íleiri ferðamannastöðum, -
einnig í sendiráðum. Breskir aðilar koma um helgina til
samningagerðar um ffamleiðslu á Ferðavakanum f sínu
heimalandi, og viðræður fara fram við bandaríska aðila.
Stjómarformaður Ferðavakans hf. er Ragnar S, HaU-
dórsson, fyrrverandi forstjóri ísal hf.
Frá undirritun samninga miUi Ferðavakans hf. og Accson
Infonnation AB í Svíþjóð - íslenskur hugbúnaður cr cnn
cinu sinni útflutningsvara.
Nánasarleg „laun” til
heyrnarlausra
Svo ótrúlcgt sem það kann að hljóma, þá em laun tákn-
máisfréttamanna við Sjónvarpið aðeins 1.279 krónur fyr-
ir hvetja framkomu í ntiðlinum. Félag heymarlausra
hefur ítrekað sfðustu þijú árin reynt að fá leiðréttingu
mála fyrir sitt fólk, sem stendur í fréttaflutningnum, án
árangurs. Þessi nánasarlegu laun hafa staðið í stað allan
þennan tíma. Haukur Vilhjálntsson, ffamkvæmdastjóri
hjá Félagi heymarlausra, segir að samkvæmt útreikning-
um þeirra ættu launin að vera 4.139 krónur fyrir hvert
skipti. Þetta vilja menn fá leiðrétt aftur í tímann til 1. nóv-
ember 1990. Þá hefur félagið mótmælt harðlega breyttum
útsendingartíma táknmálsfréttanna, sem em nú sendar út
kl. 17.50 og 17.25 á miðvikudögum. Skiljanlega sé þetta
afleitur tími fyrir alla heymarlausa. Engu sé líkara en að
litið sé á táknmálsfféttimar sem uppfyllingarefni hjá
Sjónvarpinu.
Lesið í Borgarbókasafni
Birgir Sigurðsson rithöfúndur les úr bók sinni Hengi-
flugitS í aðalsafni Borgarbókasafnsins við Þingholts-
stræti, efri hæð, á fimmtudaginn klukkan 20. Undanfarið
hafa höfundar ýmissa bóka verið að lesa í Borgarbóka-
safninu úr nýjum bókum sínum. Þeirra á meðal em Ótt-
ar Guðmundsson, læknir, og Stefán Jón Hafstein. Von
er á fleiri höfundum í heimsókn hjá Borgarbókasafni og
munu þeir lesa í aðalsafni og í útibúum safnsins.
Góð landsbyggðarlist
Vegfarendur um Kringluna um síðustu helgi keyptu
grimmt af lista- og handverksfólki, sem þar var á göngu-
götunni með list sína og handverk ýmiskonar. Verður
ckki annað sagt en að þessi kynning hafi komið fólki
skemmtilega á óvart. Handbragðið á þeim munum sem
þama vom til sýnis og oftast til sölu, var yfirleitt mjög
gott. Einkum vakti athygli blaðamanns, skemmtileg
hönnun og handbragð á munurn frá Hvamntstanga. Einn-
ig útskurður Siggu á Grund í Villingaholtshreppi, sem
hafði þó ekkert að selja. Munimir vom fjöibreyttir, mun-
ir til að skreyta hfbýli, fatnaður úr leðri, gjafavara úr
hreindýraskinni, viði, homi, beini, ull og fleiru, aðekki sé
talað um fmmlega og flotta skartgripina. Þessu fslenska
„játakki" var vel tekið og umferðaröngþveiti við sölu-
fiWTiimifnn)
Arsfundur Ríkisspítala
Þriðjudagur 30. nóvember 1993
Aukin starfsemi, - en minni útgjöld
-ýmis tœkni sem létta mun útgjöld verður kynnt á ársfundinum áföstudag, þar á meðal steinbrjóturinn
svokallaði og tœkni til að senda röntgenmyndir landsfjórðunga á milli í tölvum
RÍKISSPÍTALAR hafa náð um
470 milljón króna raunlækkun á út-
gjöldum sínum milli áranna 1991 og
1992, - þó hefur þar átt sér stað um-
talsverð aukning á starfsemi milli
ára. Innlögnum á deildir Landspít-
alans fjölgaði um 7,5 % milli ára,
fæðingum fjölgaði úr 2.558 í 2.913
eða um nærri 14% og tekið var á
móti 232 fleiri skjólstæðingum á
bráðamóttöku spítalans.
Ársfundur Ríkisspítala verður hald-
inn á föstudaginn. Þá verður þess sér-
staklega minnst að 40 ár em nú liðin
frá opnun Blóðbankans. Starfsemi
hans hefur farið stöðugt vaxandi. Á
síðasta ári töldust nýir blóðgjafar alls
1.074 talsins. f Blóðbankanum fer
fram umfangsmikil rannsóknar- og
kennslustarfsemi.
í tengslum við ársfund Ríkisspítala
mun yfirstjóm mannvirkjagerðar á
Landspítalalóð formlega afhenda nýj-
an tengigang sem tengir tæknimiðstöð
og eldhús við aðalbyggingu. Tengi-
gangurinn er liður í framkvæmdaáætl-
un K-byggingar og forsenda þess að
unnt sé að steypa upp sjálfa K-bygg-
inguna. í nýja tengiganginum verða
jafnframt starfsmannainngangur,
símaþjónusta, líndreifing og fleira.
Þá verður kynnt á ársfundinum ný
tækni við meðferð þvagfærasteina,
svokallaður steinbrjótur. Hann var tek-
inn í notkun í haust og búist við að
notkun hans boði langtímaspamað,
enda verða innlagnir sjúklinga nú að
mestu óþarfar og veikindadögum
fækkar.
Þá mun verða kynnt nýtt tölvukerfi
til símsendingar á röntgenmyndum.
Með þessari fjargreiningartækni er
unnt að taka myndir á einum stað og
senda þær til annars staðar þar sem les-
ið er úr þeim. Hafa Landspítalinn og
Háskóli Islands unnið saman að slíkum
tilraunasendingum frá Vestmannaeyj-
um til Reykjavíkur með góðum tækni-
legum og faglegum árangri. Verkefni
þetta er að komast á framkvæmdarstig,
bæði innan sjúkrahússins og milli
staða. Samskipti sem þessi eiga að geta
sparað marga legudaga og óþægilegan
flutning sjúklinga milli staða.
L
Landsbanki
(siands
Banki ailra landsmanna
Innheimta félagsgjalda
Greiðsluþjónusta
Yfirlit yfir félagsgjöldin
Rekstrarreikningur árlega
Bókhaldsmappa í kaupbæti
Innheimta
• •
e“ „traust
„Nú er einfalt að vera
gjaldkeri því innheimta
félagsgjaldanna fer öll í
gegnum Félagasjóð.
Við fáum yfirlit mánaðarlega
og ársreikning um áramót."
Kristín Einarsdóttir,
Kvenfélagi Hallgrímskirkju.