Alþýðublaðið - 15.12.1993, Blaðsíða 1
BORGARFULLTRÚI I
BARNSBURÐARLEYFI
— Olína Þorvarðardóttir vill að borgarstjórn taki af skarið og veiti borgarfulltrúum
sama rétt og öðrum launþegum til að njóta orlofsveikinda- og lífeyrisréttar
Borgarstjórn horfir fram á
lausn á alveg nýju vandaniáli, -
barnsburðarleyfi fyrir borgarfull-
trúa. Fordæmi eru fyrir því að
borgarfulltrúi forfallist af þessum
sökum. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir fór í fæðingarorlof árin
1982 og aftur 1986. Veikindafor-
föll hafa verið grcidd. En greiðslur
sem þessar eru háðar velviljuðum
embættismönnum hverju sinni.
Ólína Þorvarðardóttir, borgar-
fulltrúi Nýs vettvangs, sem á von á
sér í janúar og mun þá eignast sitt
finimta barn, ætlar á næsta borg-
arstjórnarfundi að leggja fram til-
lögu til úrbóta í þessu mannrétt-
indamáli.
Ólína sagði í gær að hún hefði
sjálf fundið lausn á sínu máli og væri
sátt við það. Hún fer f 6 ntánaða fæð-
ingarorlof um mánaðamótin. Hins-
vegar sagðist hún telja að borgar-
stjóm þyrfti í eitt skipti fyrir öll að
setja sér reglur og fá skýrar línur um
þessi mál. Aldrei hefði
reynt á vilja borgarstjóm-
ar í málum sem snúa að
fæðingarorloft, veikinda-
fríum eða lífeyrisréttind-
um borgarfulltrúa.
Mál þetta mun verða
rætt í borgarstjóm á
fimmtudaginn, á síðasta
reglulega borgarstjómar-
fundi Ólínu Þorvarðar-
dóttur. Þá ber Ólína fram
tillögu þess efnis að borg-
------------------------
ÓLÍNA ÞORVARÐAR-
DÓTTIR - ber fram tillögu
í borgarstjórn um að borg-
arfulltrúar fái að njóta rétt-
inda sem nánast allir aðrir
launþcgar njóta í dag, fæð-
ingarorlofs, veikindafría og
lífeyrisréttinda. Með licnni
á myndinni eru þrjú af fjór-
um börnum hennar, Mag-
dalcna, Pétur og Saga.
Alþýðublaðsmynd / Einar Óla.
arstjóm samþykki að láta fara fram
endurskoðun á þriðja kafla sam-
þykktar um stjóm Reykjavíkurborg-
ar og fundarsköp borgarstjómar, þar
sem kveðið er á um réttindi og skyld-
ur borgarfulltrúa. Vill Ólt'na að við
þá endurskoðun verði sett inn
ákvæði sem tryggja borgarfulltrúum
orlofs-, veikinda- og lífeyrisréttindi,
sambærileg þeim sem aðrir launþeg-
ar njóta á vinnumarkaði.
í greinargerð með tillögunni kem-
ur fram að engin sérstök ákvæði er
að finna f sveitarstjómarlögum eða
samþykktum Reykjavíkurborgar um
áðurtalin réttindi borgarfulltrúa. í 20.
grein samþykktar um stjóm borgar-
innar segirað hverjunt borgarfulitrúa
sé „skylt að sækja fundi borgar-
stjómar, nema lögnuet forföll
hamli“. I 23. grein segir að „ef borg-
arfulltrúi forfallast tekur varafulltrúi
sæti hans eftir ákvæðum 35. greinar
sveitarstjómarlaga“.
Hvorugt ákvæðið tekur af tvímæli
um rétt kjörinna fulltrúa eða vara-
manna þeirra til launagreiðslna í
„forföllum" né heldur er þar að fmna
skilgreiningu á „lögmæti" þeirra.
Þar af leiðir að réttur sveitarstjóm-
armanna er túlkunaratriði samkvæmt
lögum og samþykktum. Hefur þetta í
reynd verið háð pólitískum og per-
sónulegum vilja ráðamanna sveitar-
félags hverju sinni. Hið sama gildir í
raun unt fæðingarorlof kvenna sem
sitja á Alþingi. Vert er þ<) að vekja
athygli á að nú liggur fyrir þinginu
fmmvarp til breyttra laga um þing-
fararkaup þar sem tekið er á þessu
máli sérstaklega.
„Það er mikilsvert fyrir borgar-
fulltrúa að vita að hveiju þeir ganga
þegar þeir taka að sér störf í þágu
sveitarfélagsins. Sanngimissjónar-
mið kreljast þess að í því efni gildi
eitt fyrir alla - og að það sé ekki pól-
itísk eða embættisleg ákvörðun
hverju sinni hvemig með mál ein-
stakra fulltrúa er farið í veikindum
eða öðmm forföllum þeirra", segir í
greinargerð með tillögu Ólínu
LÍF OG FJÖR Á
AKRANESI!
Alþýðublaðinu ídagfylgir
SKAG/AW
- 8 síðua blað Alþýðuflokksfélags
Akraness. Alþýðublaðinu erafþví
tilefni dreift um Vesturland.
m
.
c ■■
Emiléruð búsáhöld
takmarkað magn
::curver
leikfangakassar.
Mikið úrval.
BÚÐIRNAR
Ármúla 42 • Sími 38775
Hafnarstræti 21 • Sími 13336