Alþýðublaðið - 15.12.1993, Síða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
LEIÐARI SJÓNARMIÐ & FLUG
Miðvikudagur 15. desember 1993
MMÐUBLMÐ
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóður Sigurðsson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140
Lýðskrumið sigrar
íRússlandi
s
Urslit kosninganna í Rússlandi hafa komið flestum á óvart.
Umbótaflokkur Borísar N. Jeltsíns Rússlandsforseta hlaut
ekki þann sigur sem búist var við meðan að flokkur öfgafullra
þjóðemissinna og flokkur hins endurreista kommúnista-
flokks Rússlands hlutu meira fylgi en talið var fyrir kosning-
ar. Séu niðurstöður kosninganna réttar, er Vladímír Zhírínov-
skíj, leiðtogi öfgaflokks þjóðemissinna, hinn sanni sigurveg-
ari kosninganna í Rússlandi. Sú niðurstaða vekur ugg meðal
manna um alian heim.
Zhírínovskíj hefur það efst á stefnuskrá sinni að endurvinna
gömul yfírráðasvæði Sovétríkjanna, meðal annars Eystrasalt-
slöndin og hefur þar að auki sagt að nauðsyn væri að hemema
Finnland. Það er því ekki óeðlilegt að Gajdar, aðstoðarforsæt-
isráðherra og helsti leiðtogi stærsta flokks umbótasinna, Val-
kosts Rússlands, segi að sigur Zhírínovskíjs geti merkt stríð.
Þá er einnig áhugavert fyrir okkur Islendinga að heyra skoð-
anir lýðskrumarans Zhírínovskíj á landi okkar og þjóð, en
hann hefur lýst því yfír að ísland væri hentugt sem fanganý-
lenda hins nýja Rússlands sem upp myndi rísa ef hann kæm-
ist til valda. Viðhorf Zhírínovskíjs mótast ekki síst af þætti Is-
lands í að viðurkenna sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna á sínum
tíma.
Gleðifréttimar úr kosningunum frá Rússlandi eru þær að
stjómarskrá Jeltsíns hlaut samþykki 60% kjósenda sem þýðir
að lýðræðið og forsetaembættið hafa styrkst. Það er einnig
gleðilegt, að kommúnistaflokkurinn endurreisti hefur neitað
allri samvinnu við þjóðemisöfgaflokk Zhírínovskíjs sem
þýðir minni hættu á valdatöku fasista og kommúnista þótt
báðir þessir flokkar verði fyrirferðamiklir á Rússlandsþingi.
Flokkur öfgafullra þjóðemissinna verður að öllum líkindum
stærsti þingflokkurinn í dúmunni, neðri deild þingsins. Það er
einnig ánægjulegt, að leiðtogar umbótasinna hafa bmgðist
hart við niðurstöðum kosninganna og hvatt til breiðfylkingar
gegn Zhírínovskíj.
Niðurstöðurnar í kosningunum í Rússlandi sýna og sanna
hve stutt lýðræðisþróunin er komin á leið. Einræðishefðin er
einfaldlega of löng og of sterk í sögu og menningu þjóðarinn-
ar. Við megum heldur ekki gleyma, að Rússar em afar miklir
þjóðemissinnar. Rússar hafa aldrei, ekki einu sinni á mektar-
dögum Sovétríkjanna, fundið samsemd með öðmm lýðveld-
um ríkjasambandsins. Þessir tveir þættir, einræðishefðin og
sterk þjóðemiskennd, hefur hafíð hinn vígreifa lýðskmmara
Zhírínovskíj til valda í kosningunum sem haldnar em á tím-
um mikillar upplausnar og óöryggis. Það verður auðvitað
meginverkefni umbótasinna að einangra öfgafulla þjóðernis-
sinna frá völdum og áhrifum til framtíðar.
Bandaríkin hafa ekki boðað breytta stefnu gagnvart Sovét-
ríkjunum í kjölfar kosninganna. Það bendir til þess að Banda-
ríkjaforseti meti úrslitin ekki sem ógnun við Vesturlönd.
Engu að síður liggur það í spilunum, að vonir um jafnvægi og
þróun lýðræðis í Rússlandi að loknum kosningum, hafa
brostið. Kosningamar hafa styrkt öfgaflokkana en ekki öfugt.
Þá er það einnig athyglisverð staðreynd, að öfgafullar stefnur
eins og fasisimi og kommúnismi, hafi mtt sér til rúms víða í
Evrópu. Dæmin frá Þýskalandi og Ítalíu og nú síðast Rúss-
landi, vekja að sjálfsögðu ugg í brjóstum manna. Þessi þróun
hlýtur að vera hvatning til leiðtoga og stjómmálaflokka á
Vesturlöndum að hlúa vel að lýðræðinu og berjast af fullum
krafti gegn einræðis- og upplausnaröflunum í lýðræðisþjóð-
félögum.
ÖNNUR SJONfÍRMIÐ
ÞEGAR STJÓRNENDUM
ER SAGT UPP STÖRFUM
VILHJÁLMUR BJARNASON:
„Það er mikil ábyrgð lögð á herðar
þess, sem segir stjórnanda upp. Til
þess verða að vera ríkar ástœður.
Illa ígrunduð uppsögn getur skaðað
Jyrirtœki í bráð og lengd, því sá sem
verður jyrir uppsögninni heldur
áfram að starfa. Getur sá í síðari
störfum skaðað fyrirtœki, sem hann
yfirgefur á ýmsan máta. Dœmi um
slíkt má sjá í kjölfar uppsagna við
sameiningu og rekstrarerfiðleika hjá
Flugleiðum hf. á liðnum árum. “
VILHJALMUR BJARNA-
SON var aðeins 27 ára
gamall þegar hann var ráð-
inn útlbússtjórl Útvegs-
bankans í Vestmannaeyj-
um. Hann missti starfið
þegar íslandsbanki var
stofnaður en þá var Vil-
hjálmur 35 ára gamall.
Vestmannaeyjablaðið
FRÉTTIR birti viðtal við Vil-
hjálm fyrirskömmu. Pví
fylgdi kafli sem Vilhjálmur
skrifaði í bókina „FRÁ
HANDAFLITIL HUGVITS".
Kaflinn heitir „Óvænt
starfslok stjórnenda og
annarra þekkingarmanna",
og birtist óstyttur i Fréttum:
„I kjölfar áhrifa af verð-
tryggingu hefur fylgt sam-
eining fyrirtækja.
Á hverju skipi er aðeins
einn skipstjóri. Fyrsta sam-
einingin í íslenskum fyrir-
tækjarekstri er sameining
Loftleiða hf. og Flugfélags
íslands hf. og stofnun Flug-
leiða hf. Sú sameining tók
rúman áratug og hefur
valdið mikilli röskun á hög-
um stjómenda og milli-
stjómenda hjá hinu nýja
fyrirtæki. Mörg önnur fyrir-
tæki hafa farið í gegnum
slíkar sameiningarraunir og
hafa fylgt því sársaukafull-
ar aðgerðir fyrir þá sem hlut
eiga að máli. Á það ekki að-
eins við um starfsmenn
heldur einnig aðila, sem
hafa verið þjónustuaðilar
við hin eldri fyrirtæki og
var hafnað eftir sameining-
una.
Rétt er að athuga aðstæð-
ur þegar stjómandi lætur af
störfum án þess að hafa
fmmkvæði að því sjálfur.
Ein leið til að takast á við
breyttar samkeppnisað-
stæður er sameining rekstr-
areininga. Samhliða sam-
einingu fer fram endur-
skipulagning á öllum
rekstri fyrirtækisins. Hlut-
verk og markmið samræmd
og fram koma breyttar
áherslur.
Sameiningar geta verið
með ýmsu móti. Könnum
tvo möguleika.
★ Sameining tveggja
eða fleiri jafnrétthárra
rekstrareininga.
★ Sá sterki yfirtekur
þann veika.
Við val á stjómendum í
kjölfar sameiningar em
mörg atriði höfð til hlið-
sjónar.
Könnum nokkur atriði:
★ Báðum fyrri stjórn-
endum er hafnað. Þetta á
sérstaklega við ef þær
rekstrareiningar, sem
sameinast eru veikar.
Þetta er einnig gert ef
koma á í veg fyrir flokka-
myndun, það er að eldri
rekstrareiningar myndi
arma. Þá er fundið nýtt
sameiningartákn.
★ Eldri stjórnendur
halda sínum stöðum í
samvirkri forystu.
★ Valið er á grundvelli
hæfileika eða annarra
sjónarmiða og öðrum
eldri stjórnanda þökkuð
störf.
I hvert skipti, sem
framkvæma þarf val,
finnst mönnum að þeir
séu að taka sársaukafulla
ákvörðun. En ákvörðun
verður að taka því oftast
er það svo, að sameining
er nauðsynleg aðgerð því
rekstrareiningarnar
hefðu ekki staðist sam-
keppnina einar og sér til
lengdar.
En hvað ræður við valið?
Útilokunaraðferð er beitt ef
einhver afburðastjómandi
er ekki í boði. Kostir og
gallar þeirra, sem í boði
em, em tíundaðir og einn er
valinn. Þeim aðila, sem er
hafnað, finnst að við útilok-
unina hafi farið ffam leit að
veikum blettum á sér, og að
sér hafi verið hafnað eftir
að málsvari myrkrahöfð-
ingjans hefur haft betur í
málflutningi. Ef myrkra-
höfðinginn væri ekki til,
væm engar siðferðiskenn-
ingar til að fara eftir.
Þau atriði sem ráða úr-
slitum í málflutningi
myrkrahöfðingjans þegar
stjómendaefnið bíður lægri
hlut em:
★ Áfengisdrykkja og
vímuefnaneysla.
★ Kvennafar eða laus-
læti.
★ Óráðsía í fjármálum.
★ Skapsmunir og um-
gengnisvenjur.
Oft á tíðum teygir mál-
svari myrkrahöfðingjans
sig langt í sínum málflutn-
ingi. Ófundarmenn leggja
sitt að mörkum og höfða til
lægstu hvata. Stjómenda-
efni hefur sjaldnast færi á
að verja sig í slíkum mál-
flutningi. Gamlar sakir og
strákapör geta vegið þungt.
Það er mikil ábyrgð lögð
á herðar þess, sem segir
stjómanda upp. Til þess
verða að vera ríkar ástæður.
Illa ígmnduð uppsögn getur
skaðað fyrirtæki í bráð og
lengd, því sá sem verður
fyrir uppsögninni heldur
áfram að starfa. Getur sá í
síðari störfum skaðað fyrir-
tæki, sem hann yfirgefur á
ýmsan máta. Dænti um
slíkt má sjá í kjölfar upp-
sagna við sameiningu og
rekstrarerfiðleika hjá Flug-
leiðum hf. á liðnum ámm.
Eftir slofnun íslandsbanka
hf. var farið rnjög varlega í
fækkun starfsmanna. Það
hcfur nteð öðm leitt til
óviðunandi afkomu bank-
ans og þess að yfirstjóm-
endur hafa ekki myndað
sterkan samstæðan baráttu-
hóp, heldur verið nánast
fulltrúar ákveðinna fylk-
inga.“
Alþýðublaðsmynd / Einar Óla.