Alþýðublaðið - 23.12.1993, Page 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
LEIÐARI ROKSTOLAR & GLUGGAGÆGIR
Fimmtudagur 23. desember 1993
ftimilBíftRIB
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Siguröur Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóður Sigurðsson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140
Oafsakanlegt
framferði
Breta
✓
Akvörðun Breta um að leyfa starírækslu THORP endur-
vinnsluversins í Sellafield mun valda því, að losun geisla-
virks úrgangs beint út í andrúmsloftið og í hafið eykst veru-
lega. Þessi aðgerð er í andstöðu við allar grundvallarreglur í
samskiptum þjóða, en ekki síður í samskiptum manns og um-
hverfis.
✓
I Sellafield er þegar rekið eldra kjamorkuver, sem framleiðir
rafmagn. Þaðan hefur verið losaður geislavirkur úigangur út í
hafið, og nú er svo komið að kjamorkuvinnslan í Sellafield er
mesta uppspretta geislamengunar í norðurhöfum. Hin nýja
endurvinnslustöð mun því enn bæta í þá mengun, sem þegar
stafar af stöðinni.
I THORP stöðinni verður endumnninn kjamorkuúrgangur,
sem fluttur er víðs vegar að úr heiminum, - meðal annars alla
leið frá Japan. Að endurvinnslunni lokinni em svo afurðimar
fluttar til baka, og notaðar aftur til raforkuframleiðslu í kjam-
orkuverum. Hins vegar er það svo, að það er aldrei hægt að
girða fyrir óhöpp í fiutningi, slys á leiðinni til og frá THORP
gætu haft geigvænlegar afleiðingar í för með sér. Því miður
em reglumar, sem gilda um þessa flutninga, langt frá því að
vera nægilega tryggar, eins og kom fram í hörðum mótmæl-
um íslenska umhverfisráðuneytisins fyrr á árinu.
✓
Irar, sem mestum búsiijum sæta vegna þessa skammarlega
framferðis nágranna sinna, hafa líka bent á, að hreinsibúnað-
ur í stöðinni byggist ekki á bestu fáanlegri tækni. Þetta tvennt
speglar viðhorf af hálfu Breta, sem er óafsakanlegt.
Það tekur ekki nema 4 til 6 ár fyrir geislavirkan úrgang að
flytjast frá Sellafield til Norður-Noregs, og 6 til 8 ár að kom-
ast norður fyrir fsland. Á þessari leið þynnast hin mengandi
efni vemlega, en geislavirkur úrgangur er langlífur, og getur
því hlaðist upp í umhverfí hafsins. Rússneskir vísindamenn
hafa komist að þeirri niðurstöðu, að mengun frá Sellafield sé
ábyrg fyrir vemlegum hluta geislamengunar í nyrsta hluta
Barentshafsins, og af hennar völdum hefur geislamengun
norðan íslands tvöfaldast.
Það er hins vegar sérstök ástæða til að undirstrika, að þrátt
fyrir þetta er íslenskur fískur ennþá sá langhreinasti um víða
veröld. Þorskur fyrir norðan land, þar sem geislamengun
mælist hæst hér um slóðir, er með margfalt minna af geisla-
virkum efnum en þorskur við Norður Noreg, svo ekki sé
minnst á Norðursjó. En það er lífsspursmál fyrir íslendinga
að halda nytjastofnum sínum sem ómenguðustum, - á því
hvílir undirstaða velferðar í landinu til frambúðar. Þessvegna
verða Islendingar að taka mjög harða afstöðu gegn hinu
skammarlega framferði Breta.
Þetta hafa íslensk stjómvöld gert með þeim hætti, að vakið
hefur athygli um allan heim. Umhverfisráðuneytið í sam-
vinnu við utannkisráðuneytið hefur tvívegis á síðasta sumri
mótmælt THORP með harkalegum orðsendlngum til Breta.
Ríkisstjómin sjálf tók málið samstundis fyrir og fréttist af
starfsleyfinu í síðustu viku og samþykkti hún að kveðja
breska sendiherrann þegar til fundar við utanríkisráðherra,
sem afhenti honum hörð mótmæli íslendinga. Alþingi sjálft
tók einnig með festu á málinu, og samþykkti formleg mót-
mæli við THORP. í framhaldi er nauðsynlegt að leita eftir
samstöðu með öðmm þjóðum til að hnekkja ákvörðun Breta.
RÖKSTÓLfiR
í hvaða stjórnraiálciflokkwm eru
JÓLASVEINARNIR?
Það stóð á endum.
Þegar síðasti jólasveinninn var
að skreiðast til byggða var síðasti
þingmaðurinn að skríða úr Alþing-
ishúsinu, vansvefta eftir næturfundi
um fjárlagafrumvarp ríkisstjómar-
innar. Stjómarandstaðan hafði vik-
ið ffá hótun um málþóf til næsta
vors gegn því að fá ýmsar kröfur
viðurkenndar.
Þetta er það sem kallað er eðlileg
þingstörf.
Grýla, Leppalúði,
Gáttaþefur og
Kjötkrókur
Það em góð skipti að fá jóla-
sveinana til byggða í stað þing-
mannanna. Hins vegar hlýtur mað-
ur að spyrja: í hvaða flokki eða
flokkum em jólasveinamir?
Það liggur náttúmlega í augum
uppi að Grýla er í Kvennalistanum.
Hún er náttúmlega nógu örg og
mikill kverúlant til að vera í Al-
þýðubandalaginu en sú staðreynd
að hún kúgar jólasveinana (karl-
menn) af mikilli hörku og er ógn-
vættur heimilisins gerir hana að
klárri kvennalistakonu.
Leppalúði er sennilega gamall
borgaraflokksmaður. Sennilega
genginn yfir í Sjálfstæðisflokkinn
en lætur lítið á sér kræla.
Gáttaþefur er dæmigerður fram-
sóknarmaður. Þefar af hlutunum
áður en hann tekur ákvörðun og
rennur á þá lykt sem honum finnst
best.
Sömuleiðis er Kjötkrókur ífarn-
sóknarmaður. Hvað annað? Kjöt-
krókur seilist í alla íslenska kjöt-
hleifa hvar sem þá er að finna og er
sennilega á móti EES-samkomu-
laginu svo ekki sé talað um innflutt
kjöt. Aldrei myndi til dæmis Kjöt-
krókur næla sér í danska skinku.
Nei, Kjötkrókur er sennilega gott
efni í formann þingflokks Fram-
sóknarmanna.
Giljagaur,
Hurðaskellir
og Stúfur
Giljagaur er dæmigerður krati.
Fer með látum í giljum en verður
lítið úr honum þegar hann kemur til
byggða. Giljagaur er boðberi stórra
tíðinda, gjaman á undan sinni sam-
tíð eins og nafnið bendir til.
Hurðaskellir er sennilega einnig
alþýðuflokksmaður. Ef viss þing-
kona færi af þingi myndi Hurða-
skellir sóma sér vel í hennar stað.
Hurðaskellir setur kröfur og skellir
hurðum ef ekki er orðið við þeim.
Alla vega þori ég að veðja að
Hurðaskellir yrði mjög heimilisleg-
ur á þingflokksfúndum Alþýðu-
flokksins.
Stúfur er hins vegar dæmigerður
kommi. Stúfur er lítill og þrasgjam
og er alltaf á móti þegar aðrir em
með. Stúfur er einnig dæmigerður
herstöðvarandstæðingur og á móti
NATÓ yfirleitt; Meira segja effir að
Ólafur Ragnar boðaði nýtt fagnað-
arerindi Atlantshafsbandalagsins í
flokknum.
Pottaslei ki r,
Þvörusleikir
og Askasleikir
Pottasleikir er sennilega sjálf-
stæðismaður. Pottasleikir tekur við
matargerð annarra og gerir sér mik-
inn mat úr því sem aðrir skilja eftir í
pottum og kymum. Pottasleikir hef-
ur þann hæfileika að nýta sér það
sem aðrir henda eða nenna ekki að
nýta sér.
Sömu sögu er að segja af
Þvörusleiki og Askasleiki.
Þetta gerir það að verkum að
flestir jólasveinamir em sjálfstæð-
ismenn. Sem útskýrir að hluta hvers
vegna Sjálfstæðisflokkurinn er
stærsti stjómmálaflokkur á íslandi.
Skyrgómur
og
Bjúgnakrækir
Skyrgámur er hins vegar í
Kvennalistanum. Skyrgámur hvolf-
ir sér nefnilega í gámana án þess að
horfa á aðra rétti.
Skyrgámur er jólasveinn sem
gengur beint til verks án þess að
horfa til hægri eða vinstri. Það em
ákveðnir öfgar í Skyrgámi. Hugsið
ykkur bara: Að éta aðeins skyr og
ekkert annað! Aðeins Kvennalis-
takona getur búið y fir slíku einhæfu
ofstæki. Sem sagt: Skyrgámur kýs
Kvennalistann.
Bjúgnakrækir er hins vegar al-
þýðubandalagsmaður. Hann var áð-
ur ffamsóknarmaður en gekk í Al-
þýðubandalagið eftir að Ólafur
Ragnar gerðist formaður.
Hvers vegna? Jú, vegna þess að
Ólafur Ragnar er besta fyrirmynd
sem Bjúgnakrækir gat fengið. Ólaf-
ur Ragnar krækir sér í allar hugsan-
legar stefnur sem aðrir flokkar
boða: Hann er orðinn grænn um-
hverfisssinni, NATÓ-sinni að hætti
Sjálfstæðisflokksins, byggðamaður
eins og úr Framsókn, og jafnaðar-
maður meiri en allir kratar Alþýðu-
flokksins samanlagðir.
Ólafur Ragnar sýnir snilldartakta
í að krækja sér í eitt og annað.
Bjúgnakrækir myndi aldrei tolla í
neinum öðmm flokki en Alþýðu-
bandalagi allra Bjúgnakrækja.
Stekkjastaur,
Faldafeykir og
Kertasníkir
Stekkjastaur er hins vegar í Sjálf-
stæðisflokknum. Engin spuming.
Bara nafnið eitt segir allt. Falda-
feykir er auðvitað í Kvennalistan-
um. Hvar annars staðar gætí Falda-
feykir þrifist?
Kertasníkir er hins vegar ffam-
sóknarmaður. Hann er meira að
segja kominn með fmmvarp um að
sett verði á stofn nýtt ríkisfýrirtæki:
Kertaverksmiðja ríkisins. Og þið
megið geta tvisvar hver verður þar
stjómarformaður!
Búið.
Rökstólar óska öllum jólasveinum
og öðrum landsmönnum
gleðilegra jóla!
FINNUM MANNESKJUNA SEM BER ÁBYGÐ Á ÞVÍ AÐ DRAGA
ÍSLENSKU JÓLASVEINANA AFTUR FRAM í DAGSUÓSIÐ!!!