Alþýðublaðið - 25.01.1994, Page 2

Alþýðublaðið - 25.01.1994, Page 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ TÍMAMÓTADÓMUR & HUGLEIÐINGAR Þriðjudagur 25. janúar 1994 MMDMrHDIÐ HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566 Útgefandi: Alprent hf. Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason Setning og umbrot: Hermóður Sigurðsson Prentun: Oddi hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566 Fax: 629244 Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140 PALLBORÐIÐ: Pétur Bjarnason skrifar Hugleiðingar - í tilefni draga að ályktun flokksstjórnar Alþýðuflokksins frá „sjávarútvegsnefnd“ flokksins Tímamótadómur Dómur Hæstaréttar í svokölluðu skinkumáli markar tímamót í íslenskum innflutningsmálum. Rétturinn ógilti úrskurð íjár- málaráðherra frá í haust um synjun Hagkaups á tollafgreiðslu á soðinni svínaskinku frá Danmörku. Meirihluti dómsins taldi að ákvæði búvörulaga frá árinu 1985 fælu ekki í sér sjálfstæða tak- mörkun Framleiðsluráðs landbúnaðarins á innflutningi búvara. Dómur Hæstaréttar tekur af öll tvímæli um, að með lögum frá 1992 hefur innflutningur umræddrar kjötvöru verið gefinn fijáls og ekkert í lögum eða millirikjasamningum bannar hann. Tak- markanir á innflutningi samkvæmt öðrum lagaákvæðum eru ekki Iengur í gildi. Dómur Hæstaréttar sannar, að ekki aðeins höfðu Hagkaupsmenn rétt fyrir sér heldur einnig bæði viðskipta- ráðherra og utanríkisráðherra sem héldu fram þeim sjónarmið- um sem varð að niðurstöðu Hæstaréttar. Þessi dómur er því mik- ill sigur fyrir þessi tvö ráðuneyti og sjónarmið Alþýðuflokksins en tveir ráðherrar flokksins fara með umgetin ráðuneyti. Dómur- inn er hins vegar áfall fyrir landbúnaðarráðherra sem héll hinu .gagnstæða fram og miðað við niðurstöðu Hæstaréttar fór land- búnaðarráðherra ekki að lögum er hann bannaði innflutning svínakjötsins. Kjami þessa máls er sá, að þama tókust á fulltrúar hins spillta og staðnaða landbúnaðarkerfis annars vegar og fulltrúar opnun- ar, frelsis og markaðssamkeppni hins vegar. Hingað til hefur hið staðnaða landbúnaðarkerfi verið ofan á, í skjóli reglugerða og lagaákvæða sem meirihluti Alþingis hefur jafnan stutt. Almenn- ingsálitinu hefur verið haldið niðri með ógnum um smitsjúk- dóma frá útlöndum, atvinnuleysi bænda og útrýmingu íslenskra búvömframleiðslu. Islenskir skattgreiðendur og neytendur hafa þurft að greiða fyrir hið sjúka landbúnaðarkerfi, sem með tíman- um hefur ekki aðeins gengið að bændastéttinni hálfdauðri held- ur sprengt upp matvöruverð á íslandi og skapað stórfelldan fjár- lagahalla á ári hverju. Alþýðuflokkurinn hefur markvisst barist gegn hinu spillta land- búnaðarkerfl allt frá ámm Viðreisnarstjómarinnar á sjöunda ára- tugnum. Sú barátta hefur verið háð gegn framsóknarmönnum allra flokka; barátta sem hefur verið Iöng og erfið og kostað AI- þýðuflokkinn talsvert fylgistap gegnum tíðina. Smám saman hefur fólkinu í landinu orðið ljós rangfærslumar og ósannindin í áróðri þeirra sem vetja óbreytt landbúnaðarkerfi. Viðhorfsbreyt- ingin hefur komið hægt og sígandi. Nýir verslunarhættir, meiri tengsl íslendinga við umheiminn og aukinn skilningur almenn- ings á verðsamanburð á matvöram erlendis og hérlendis, vakn- ing neytenda og skattgreiðenda og sleitulaus barátta Alþýðu- flokksins í ríkisstjóm í rúm sex ár: Allt hefur þetta borið árang- ur. Loks hillir undir nýjan tíma. Loks virðist gamla haftatíminn vera að kveðja. Dómurinn í skinkumálinu í Hæstarétti er ein varðan á hinni löngu leið. Því miður verður það að segjast um samstarfsflokk Alþýðu- flokksins í ríkisstjóm, að ráðandi öfl í Sjálfstæðisflokknum hafa stutt óbreytt landbúnaðarkerfi að mestu. Núverandi ríkisstjóm Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks hefur haft allar forsendur til að breyta þjóðfélaginu til opnunar, markaðslögmála og nýrra at- vinnuhátta. Framsóknarmenn Sjálfstæðisflokksins hafa því mið- ur tafið fyrir þessari framþróun. Viðbrögð tveggja ráðherra Sjálfstæðisflokksins við dómi Hæstaréttar em fráleit. Landbún- aðarráðherra fór að telja dómara í héraðsdómi og Hæstarétti, hveijir væm með og móti samanlagt. Forsætisráðherra réðist hins vegar ómaklega að Jóni Sigurðssyni fymim viðskiptaráð- herra og núverandi Seðlabankastjóra ásakaði hann fyrir að hafa Iætt lagafrumvarpi í gegnum Alþingi. Slík viðbrögð sæma ekki ráðhermm þessarar ríkisstjómar og árétta aðeins það almenn- ingsálit að ráðandi öfl í Sjálfstæðisflokknum séu meira á bandi sérhagsmuna en fijálsrar samkeppni. Það er hins vegar stað- reynd að Alþýðuflokkurinn hefur haft forystu um að opna hag- kerfið, beijast fyrir afnámi hafta og einokunar og stuðla að rétt- látara og lýðræðislegra þjóðfélagi. Drög að ályktun flokksstjómar Alþýðu- flokksins sem „sjávarút- vegsnefnd" flokksins sendi frá sér í október 1993 hafa vakið athygli. Drögin virðast koma frá milliþinganefnd sem kosin var til að vera full- trúum flokksins í tví- höfðanefndinni svoköll- uðu til ráðuneytis. Held- ur finnst mér farið frjáls- lega með nafngift nefnd- arinnar en alvarlegra er að drögin virðast samin í svipuðu hugsunarleysi. Mig langar til þess að gera nokkur atriði í drög- unum að umtalsefni. 1. í drögunum er nú- verandi aflamarkskerfi hafnað og vísað til sið- ferðilegrar og fjárhags- legrar spillingar sem því fylgir. Jafnframt er vísað í umdeildar aðferðir ein- stakra útgerða til þess að láta sjómenn taka þátt í kvótakaupum. Ekki er gerð tilraun til þess að útlista hvernig á að taka á þeim vanda sem afla- markskerfi er ætlað að leysa. í ályktun flokksstjóm- ar þarf ekki eingöngu að koma fram hvernig hlut- imir eiga ekki að vera. Það er ekki nóg að draga fram í dagsljósið galla í einu kerfi sem rökstuðn- ing á að því þurfi að hafna ef ekki er hægt að benda á annað sem betur tekur á þeim vandamál- um sem við er að fást. Tvíhöfðanefndin fór mjög nákvæmlega yfir þá valkosti sem þekktir em til þess að stjóma fiskveiðum. Aflamarks- kerfi í svipaðri mynd og við þekkjum það er ein- faldlega öðmm valkost- um betra. Reynsla hér á landi bendir til þess og reynsla annarra þjóða, sem einhverjum árangri hafa náð í að stjóma fisk- veiðum bendir til þess sama. Hitt er annað mál að full nauðsyn er á að sníða galla af núverandi kvótakerfi og að því eiga menn að beina sjónum sínum en ekki að vísa kerfinu út í hafsauga meðan ekki er hægt að benda á neitt betra. Þeir gallar sem bent er á í drögum nefndarinnar em annars vegar tengdir því að menn fái að „- braska“ með hluti sem þeir eiga ekki og hafa aldrei greitt neitt fyrir og hins vegar að menn brjóti kjarasamninga í skjóli kerfisins. Fyrra at- riðið á að leysa með því að láta menn greiða gjald PÉTUR BJARNASON: „Drög að ályktun jlokks- stjórnar Alþýðuflokksins sem „sjávarútvegsnefnd“ flokksins sendi frá sér í október 1993 hafa vakið athygli. Drögin virðast koma frá milliþinganefnd sem kosin var til að vera fulltrúum flokksins í tvíhöfðanefndinni svokölluðu til ráðuneytis. Heldur finnst mér farið frjálslega með nafngift nefndarinnar en alvarlegra er að drögin virðast samin í svipuðu hugsunarleysi... Þau drög sem hér hefur verið fjallað um eru rituð af miklum ákafa og af heitri trúarlegri sannfœringu um réttmœtri eigin gagnrýni á núverandi skipulag fiskveiðistjórnunar... Drögin geta varla vegna annmarka sinna talist umrœðugrundvöllur um sjávarútvegsstefnu. “ fyrir heimildimar en hið seinna á sama máta og önnur brot á kjarasamn- ingum. Þó finnst mér vel koma til greina að styrkja stöðu sjómanna varðandi brot á kjara- samningum með ákveðnari löggjöf en nú er í gildi. 2.1 drögunum er talið eðlilegt að leyfa frjálsa sókn í stofna sem ekki hefur tekist að fiska í samræmi við úthlutaðan kvóta. Þetta finnst mér forkastanleg skoðun. Hafa höfundar draganna ekki gert sér grein fyrir því að ástæða þess að ekki tekst að fiska út- hlutaðan kvóta er sú að minna er af fiskinum en reiknað var með? Og hvað er þá skynsamlegt við að gefa sóknina fijálsa og þar með að auka hana? Auðvitað ekkert. Við þær aðstæð- ur á að minnka sóknina og takmarka veiðar enn frekar en ætlað var. 3. í drögunum er því algjörlega hafnað að setja krókaleyfisbáta á aflamark. Aflaheimildir smábáta hafa alla tíð ver- ið fyrirferðarmesta deilumálið í umræðum um fiskveiðistjómun. Tími er kominn til að eitthvert vit færist í þá umræðu. Fyrir það fyrsta þá verður að taka það fram að fyrir sjómann á smábáti og útgerð báts- ins skiptir það ekki máli hvort hann fiskar sinn afla eftir sóknarmarki eða aflamarki. Fiskurinn fæst á sömu slóðum og fyrir hann fæst sama verð óháð því eftir hvaða kerfi er fiskað. Það sem skiptir sjó- og útgerðar- manninn máli er hve mikið hann má fiska. Andstaða þeirra, sem hafa atvinnu af trillu- veiðum, við aflamark er fyrst og fremst tilkomin vegna ótta um að afla- kvóti verði rýrður; að aflaheimildir verði minnkaðar. Fyrir trillu- karlinn sem byggir lífs- afkomu sína á veiðum er að öðm leyti miklu betra að fá ákveðið aflamark úthlutað og geta sótt sjó- inn þegar það hentar honum en ekki eftir ein- hveijum ákveðnum sóknardögum sem ákveðnir em fyrirfram að vemlegu leyti. Hins vegar get ég vel skilið að þeir sem hafa trilluveið- ar að tómstundastarfi geti vel fellt sig við sóknartakmarkanir á borð við þær sem rætt er um. En þarf ekki að huga frekar að þessu máli? Er nokkuð komist hjá því að takmarka afla smá- báta? Verðum við ekki, þrátt fyrir þær þmngnu tilfinningar sem ráða af- stöðu einstakra manna, að ætla þessum flota ákveðið magn? Eða ætla menn að sjá til hvað smábátaflotinn getur veitt með þessuin sókn- arreglum sem rætt er um og draga síðan þann afla frá úthlutun til annarra sjómanna við Island? Vilja þeir sem ekki treysta sér til að styggja háværan hóp trillukarla ekki útskýra fyrir öðmm sjómönnum þessa lands hvers vegna veiði- og at- vinnuréttur trillukarla er heilagri en veiðiréttur annarra sjómanna? 4. í drögunum er bent á að engin fiskifræðilegu rök séu fyrir því að nauðsynlegt sé að tak- marka veiðar á öngla. Þessi fullyrðing er makalaus og stenst ekki nema að sá fiskur sem tekin er á öngla lifi eðli- legu lífi á eftir og taki þátt í hrygningu eins og ekkert hafi í skorist. Þessu er auðvitað ekki svo farið. Fiskur sem drepst á handfæraveið- um er jafn dauður og sá fiskur sem drepst á tog- veiðum. Fráfall þess handfæraveidda hefur því sömu áhrif á hrygn- ingar- og veiðistofn og fráfall þess togveidda. Annað stenst engin rök, (ef rök skipta einhveiju máli). Þau drög sem hér hef- ur verið fjallað um em rituð af miklum ákafa og af heitri trúarlegri sann- færingu um réttmætri eigin gagnrýni á núver- andi skipulag fiskveiði- stjómunar. Þau leggja hins vegar ekkert til nema frelsi krókaleyfis- báta til lítt heftra veiða og vísa frekar í óljós um- hverfismarkmið heldur en mikilvægi þess að sjávarútvegur standi undir lífsafkomu okkar og atvinnu fjölda fólks. Drögin geta varla vegna annmarka sinna talist umræðugmndvöllur um sjávarútvegsstefnu. Akureyri, 19. janúar, 1994. Hölundur er fiskifræðingur og framkvæmdastjóri Féiags rækju- og hórpudiskframieiðenda.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.