Alþýðublaðið - 25.01.1994, Page 3

Alþýðublaðið - 25.01.1994, Page 3
Þriðjudagur 25. janúar 1994 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 MANNTAL, RÍKISSJÓÐUR & STUTTFRÉTTiR Yfír 17 þúsund Islendingar eru með lögheimili erlendis - Þar af eru rúmlega fimm þúsund íslendingar með lögheimili í Svíþjóð íslenskir ríkisborgarar með lögheimili erlendis voru 17.567 talsins 1. desember síðast liðinn samkvæmt skrá Hagstofunnar. Þar af voru 15.305 fæddir á íslandi. Af einstökum löndum voru flest- ir Islendingar erlendis með lögheimili í Svíþjóð eða 5.170. Islendingar með lögheimili í Danmörku voru 3.357 og 3.261 áttu lögheimili í Banda- ríkjunum. Hagstofan gerir marga fyrir- vara við þessar tölur. I tölumar vantar til að mynda alla sem fluttust til útlanda 1952 eða fyrr og eru enn á lífi. Árið 1993 em liðin 41 ár frá stofntíma þjóðskrár og hefur þá þessu fólki fækkað mikið, en miklu munar hér fr á 1965 þegar íslenskir ríkisborgarar með lög- heimili erlendis vom skráðir 2.558. íslendingum erlendis fjölgar því minna hlutfallslega ár frá ári en þessar tölur sína. Þá er það undir hælinn lagt, hvort hingað berst vitneskja um andlát fslendinga, sem sest hafa að í útlöndum. Á það einkum við um þá sem tengjast fjöl- skylduböndum þar. Af þessum sökum gætir nokkurrar oftaln- ingar á Islendingum erlendis. Á tölu íslenskra ríkisborgara vantar trúlega allstóran hluta bama, sem hafa fæðst erlendis, en hafa íslenskt ríkisfang að ís- lenskum lögum. Á þetta sér- staklega við utan Norðurlanda og að einhveiju leyti þar líka, en þaðan berst þó nokkuð af til- kynningum um fæðingu bama með íslensku ríkisfangi. Mann- fjöldaskýrslur frá Svíþjóð sýna að á 19 ámm, 1974-1992, fæddust þar 1.577 böm er töld- ust hafa fslenskan ríkisborgara- rétt eftir sænskum lögum. Flestir búa á Norðurlöndum íslendingar missa íslenskt ríkisfang, ef þeir öðlast erlend- an ríkisborgararétt vegna eigin umsóknar. Tilkynningar um breytt ríkisfang Islendinga em sendar frá Danmörku og Nor- egi en koma að jafnaði ekki annars staðar að. Munu því all- nokkrir einstaklingar ranglega taldir fslenskir ríkisborgarar í þjóðskrá, til dæmis þeir sem em skráðir með lögheimili í Sví- þjóð og Bandaríkjunum. Af þeim 17.567 íslendingum sem áttu lögheimili erlendis 1. desember sfðast liðinn búa 11.111 á Norðurlöndum. Lög- heimili í öðmrn Evrópulöndum áttu 2.159, í Ameríku 3.759, í Afríku 74, í Asíu 93 og í Ástral- íu 315. Þeir sem fara til útlanda til at- vinnudvalar flytja að jafnaði lögheimili sitt til viðkomandi lands en námsmenn halda sínu lögheimili á Islandi nema þeir sem fara til náms á Norðurlönd- um og leggja ífam samnoiTænt flutningsvottorð. Afkoma ríkissjóðs 1993 Rekstrarhallinn á árinu nam 9,5 milljörðum króna - Frávik frá fjárlögum er 3,2 milljarðar króna Bráðabirgðatölur um af- komu ríkissjóðs á síðasta ári liggja nú fyrir. Kekstrarhalli nam 9,5 milljörðum eða 2,4% af landsframleiðslu. Þetta er mun betri útkoma en fyrri áætlanir bentu til og ef ekki hefðu komið til sérstakar skuldbindingar í tengslum við kjarasamninga og aukið atvinnuleysi væri útkoman nánast á áætlun fjárlaga. Frávik frá fjárlögum er 3,2 milljarðar. Hrein lánstjárþötf ríkissjóðs, en það er sú fjárhæð sem ríkis- sjóður þarf að taka að láni til að fjármagna halla á rekstri og út- streymi á lánareikningum, nam 10,6 milljörðum króna í fyrra. Frávik frá íjárlögum er talsvert minna en fram kemur í tekjum og gjöldum, eða tæplega 1,7 milljarðar, en það má rekja til minna útstreymis í lánareikn- ingum en áætlað var. Árið 1993 var lánsfjár ríkis- sjóðs í fyrsta sinn alfarið aflað á markaði þar sem ekki var leng- ur heimilt að fjármagna halla- rekstur með yfirdrætti Seðla- banka, segir í upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu. Þrátt fyrir þetta fóru vextir innanlands lækkandi og voru f lok ársins lægri en verið hefur um árabil. Þannig lækkaði raunávöxtun spariskírteina úr 7,7% í upphafi árs í 4,9% í árslok og nafn- ávöxtun ríkisvíxla lækkaði úr 12% Í5,4%. Útgjöldin 112,8 milljarðar Heildarútgjöld ríkissjóðs árið 1993 námu 112,8 milljörðum króna, eða 1,8 milljörðum um- fram fjárlög. Frávikið má að mestu rekja til ákvarðana stjómvalda um r.ý útgjöld í tengslum við kjarasamningana og aukinna greiðslna atvinnu- leysisbóta. Hins vegar hefur tekist að halda öðrum útgjöld- um að mestu innan ramma fjár- laga. Utgjöld ríkissjóðs hækka lít- illega að raungildi milli áranna 1992 og 1993, eða um 0,6 millj- arða króna. Aukningin kemur einkum fram í vaxtagreiðslum og framlögum til fjárfestinga og viðhalds, en þau voru hækk- uð sérstaklega til að hamla gegn atvinnuleysi. Þá hækka rekstr- arútgjöld nokkuð vegna kjara- samninga. Á móti vegur lækk- un annarra framlaga, til dæmis til landbúnaðar. Tekiur 103,3 mílljarðar Heildartekjur ríkissjóðs árið 1993 námu 103,3 milljörðum króna, en það er nánast sama krónutala og árið 1992. Þessi niðurstaða er hins vegar 1,4 milljörðum króna undir áætlun fjárlaga. Það má einkum rekja til ákvarðana um lækkun skatta til að greiða fyrir gerð kjara- samninga síðast liðið vor, áhrifa aukins atvinnuleysis á tekjuþróun í landinu og minni tekna af sölu eigna en fjárlög gerðu ráð fyrir. Heildartekjur ríkissjóðs lækkuðu að raungildi um 1,6 milljarða króna árið 1993, en skatttekjur lækka um 0,8 millj- arða. Hlutfall skatttekna af landsframleiðslu lækkar úr 25,1% árið 1992 í 24,6% árið 1993, eða um 0,5%. Umskipti í ríkisfjármálum Á sfðustu tveimur árum hafa orðið umskipti f ríkisfjármál- um. Aðhald og spamaður í rekstri hefúr stóraukist. Jafn- framt hefur verið tekið á ýms- um kerfislægum vandamálum á útgjaldahlið (sjúkratrygging- um, greiðslum til landbúnaðar og fleira). Skuldbindingar stjómvalda til að greiða fyrir gerð hóflegra kjarasamninga og stuðla þannig að auknum stöð- ugleika í efnahagslífinu hafa hins vegar raskað áformum fjárlaga. Þetta ásamt áhrifum aukins atvinnuleysis og efna- hagssamsdráttar er meginskýr- ingin á því hvers vegna halli ríkissjóðs hefur orðið meiri en fjárlög gerðu ráð fyrir. Þrátt fyrir langvarandi halla- rekstur á ríkissjóði er staðan hér á landi skárri en í mörgum ná- grannaríkjanna. Þannig er sam- anlagður halli á rekstri ríkis og sveitarfélaga í Evrópuríkjum OECD talinn hafa numið um 6,3% af landsframleiðslu árið 1993. (Vegna mismunandi vægis ríkis og sveitarfélaga eft- ir löndum verður að skoða heildartölur fyrir opinbera bú- skapinn). Á Norðurlöndunum er hallinn 9,2% af landsfram- leiðslu. Hér á landi er hallinn mun minni eða tæplega 3%. Frekari umfjöllun um út- komu ársins 1993, jafnt tekju- hlið, gjaldahlið og lánahreyf- ingar, verður að finna í skýrslu fjármálaráðuneytis sem ráð- herra leggur fram á Alþingi síð- ari hluta febrúarmánaðar. Þá verður einnig fjallað um láns- ljárþörf annarra opinberra aðila áárinu 1993. Línurit: Efnahagsskrifstota fjármálaráðuneytisins. STIJTTFRMTIR Tónskóli Sigursveins kaupir Engjateig 1 Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar hefur kcypt eignina Engjateig 1 af Slátuifé- lagi Suðurlands. Þar vcrður framtíðaraðsetur tónskólans og leysir af hólmi húsnæðið að Hellusundi 7. Afhending hússins við Engjateig fer fram á miðju ári 1996 og gert ráð fyrir að kennsla hefjist þar það haust. Húsið er kjallari, tvær hæðir og ris, samtals 1.592 fermetrar. Tónskóli Sigursveins var stofnaður 1964 og verður því 30 ára á þessu ári. Um 650 nemendur eru við skólann og kennarar 66 auk skólastjóra. ENGJATEIGUR1 -þar verður aðsetur Tónskóla Sigursveins frá og með hausti 1996. Aumingja Óli enn á ferð Samskipti Ólafs Jóhannessonar, hins dáða sjónvarpsfréttamanns og veiðifrömuðar, við hunda landsins, eru sífellt höfð í flimtingum. Eitt sinn skaut hann hund í myrkri eins og ntargir muna. Núna segir hann firá þvf í veiðiblaði sínu að fluga sem hann ger- ir og er fiskin mjög, Collie Dog, er einmitt úr hárum hunda. Til þessa þarf sérstök hár, og þá er það spumingin hvemig þeirra er aflað. Ólafur segir svo: „En eftir veiðiferð- ina í Hofsá get ég játað að ég keypti mér skæri sem fóru vel í vasa og gimilegt bein. Ég hef líka, st'ðan í sumar, verið tíður gestur úti á Geirsnefi og í Heiðmörk, þar sem hundaeigendur sleppa dýmnum gjaman lausum. ég hef líka sést klappa þessum dýr- um, reyndar bara af einni tegund. Hundamir hafa verið mjög ánægðir með beinið en við eigenduma hef ég ekki lalað. Sektarsvipurinn gæti komið upp um mig“, segir Ól- afur veiðimaður. Biskup vísiteraöi í Kópavogi Á sunnudaginn vísiteraði Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, í Kópavogi með messum í Kópavogskirkju og í Hjollakirkju. Fyrirhugaðar em messur biskups í öðr- um kirkjum í Reykjavíkurprófastsdœmi í febrúar og rnars. Þá mun biskup vísitera ýmsar stofnanir innan prestakallanna, dvalarheimili aldraðra, skóla og fleiri, meðal annars mun hann koma við í Sundlaug Kópavogs á fimmtudaginn kemur, svo fátt eitt sé nefnt. Hér er um að ræða fyrstu biskupsvísitasíuna í prófastsdæminu ífá því það var stofnað 1940. Aðstoða einstæða foreldra við skatt- framtöl Það er að renna upp sá kvíðvænlegi tími þegar gera þarf skattframtölin. Félag ein- stœðra foreldra hefur ákveðið að bjóða upp á aðstoð við félagsmenn sína, sem þess þurfa með. Félagsmenn hafa spurst fyrir um þessa þjónustu eftir að Skattstofan í Reykjavík hefur hætt slíkri aðstoð. Metsala á svínakjöti í desember Sala á svínakjöti jókst um þriðjung í desember síðastliðnum í samanburði við jóla- mánuðinn árið 1992. Desembersala í mcðalári er nálægt 290 tonnum en í nýliðnum desember jókst hún um 100 tonn og varð 390 tonn. Á síðasta ári jókst sala á svínakjöti um 7,5% miðað við árið á undan. Söluaukninguna má rekja til verðlækkana síðari hluta ársins 1993. Birgðir svínakjöts minnkuðu við þetta umtalsvert, en þær voru orðnar þær mestu í fimm ár undir mánaðamótin október- nóvember. Tónleikar í óperunni í kvöld Þær Hrafnhildur Guðmundsdóttir, messósópran, og Guðríður Sigurðardóttir, pí- anóleikari, munu koma fram á tónleikum Styrktarfélags íslensku Óperunnar í kvöld klukkan 20.30. Á efnisskránni eni íslensk þjóðlög í útsetningum Fedinands Reuters og Sveinbjörns Sveinbjömssonar, ljóðasöngflokkurinn Frauneliebe und Leben effir Robert Schumann, sönglög eftir Granados, Satie og Hahn og óperuaríur eftir Gounod og Mozart. íslensk Ijóðskáld í Englandi Komnar eru út á ensku f ritröð Greyhound Press sem helguð er íslenskum bókmenntum, tvær fyrstu bækumar. Það eru ljóð Lindu Vilhjálms- dóttur og Sjón - Sigurjóns B. Sigurðarsonar. Væntanleg er á enskan markað bók með Ijóðum 8 ljóðskálda og ráðgerð útgáfa á íslenskum skáld- sögum á næstu misserum. Bók Lindu heitir Mona Lisa, en Sjón Night of the Lemon. "—u—*—i---------;-----;---rrr~r::-:——-► ' liœkur Sjón, eða Siguijóns B. Sigurðssonar, eins og hann lieitir Jiillu nafni, og Lindu Vilhjálnisrióttur, komnar út á ensku.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.