Alþýðublaðið - 23.02.1994, Síða 1
Verð í iausasölu kr. 140 m/vsk
Hvað þvða brevtingar búvörulaganna fvrir allan almenning? Þetta mál hefur mikið verið í umræðu
en er þó ólióst í hugum flestra. Brevtingamar þvða að mati margra það. að ísland mun hverfa aftur til
haf'tatíma framsóknar ef landbúnaðarráðherra nvtir heimildir sem honum eru ætlaðar til verðjöfnnnargjalda
INNFLUTTAR KARTÖFLUR LUXUS?
Landbúnaðarráð-
herra er ætlað með
breytingum Egils
bónda Jónssonar á
Seljavöllum á búvöru-
lögum að fá rétt til að
hafa stórfelld áhrif á
innkaup og lífsvenjur
íslenskra fjölskyldna.
Breytt lög gera ráð fyrir
að ráðherrann fái í
hcndur alræðisvald til
að Ieggja á verðjöfnun-
argjöld á ýmsar algeng-
ar neysluvörur svo
hundruðum prósenta
skiptir. Ráðhcrra átti
að fá vald til að ákveða
hvort og hvenær vörur
sem flokkaðar eru sem
landbúnaðarvörur
væru fluttar inn. Einnig
á hvaða verði þær vör-
ur væru seldar neytend-
um.
Landbúnaðarnefnd
sem Egill Jónsson stýrir
vill breyta búvörufrum-
varpinu á þann veg að
það komi í staðinn fyrir
fmmvarp ríkisstjómar-
innar. Þar er um að ræða
breytingar sem skila Is-
iendingum nokkra ára-
tugi aftur á bak, til þeirra
tíma sem kenndir em við
höft í innflutningi, en
framsóknarmenn allra
flokka hafa laðast mjög
að haftatímanum og vilj-
að innleiða hann að nýju.
Samstarf þjóðanna
Alþýðuflokkurinn hef-
ur lagt ríka áherslu á sani-
starf þjóðanna í alþjóð-
legri verslun. Engum
blandast hugur um að
slíkt samstarf á eftir að
verða þjóðinni til fram-
dráttar. Fmntvarp Egils á
Seljavöllum brýtur hins-
vegar núverandi GATT-
samning og ýmsa aðra
milliríkjasamninga sem
Island á aðild að.
Fmmvarpi ríkisstjóm-
arinnar er ætlað að
tryggja óbreyttan inn-
flutning landbúnaðarvara
frá því sem var fyrir dónt
Hæstaréttar á dögunum,
en þar var staðfest að
utanríkisráðherra lagði
rétt mat á innflutning
Hagkaups á skinku, eins
og flestum er kunnugt.
Síðan átti nefnd fimm
ráðuneyta að endurskoða
innflutningslöggjöfina
með gildistöku GATT á
næsta ári í huga.
Fmmvarp landbúnað-
arnefndar miðar hinsveg-
ar að því að ákveða strax
innflutningslöggjöfina
eins og hún verður eftir
gildistöku GATT-samn-
ingsins.
Mörgum blöskrar
I þessu frumvarpi er
gert ráð fyrir að landbún-
aðarráðherra geti beitt
verðjöfnunargjöldum á
þann veg að hann getur
nánast skrúfað fyrir allan
innflutning ýmissa mat-
væla, sýnist honum svo,
og beiti í því skyni
óvægilegum verðjöfnun-
argjöldum á matvælin.
Þannig gæti ráðherr-
ann þegar GATT tekur
gildi lagt á verðjöfnunar-
gjald, á tímabilinu 15.
mars til 1. nóvember ár
hvert, á kartöflur, 445%
samkvæmt frumvaipi
landbúnaðarnefndar;
517% á salathöfuð; 719%
á sellerí; 649% á blónt;
og 240% á tómata svo
einhver dæmi séu tekin.
Þá gæti ráðherrann lagt
hressileg gjöld á ýmsar
vörur sem ekki eru fluttar
inn í dag. Nefnum dæmi:
Svínakjöt fengi 538%
verðjöfnunargjald; kjúk-
lingar 467%; jógúrt
589%; smjör 674% og
ostur 578%.
Ljóst er að verðlag
slíkra afurða yrði með
slíkum eindæmum, að
nánast enginn gæti keypt
og innflutningur því úti-
lokaður. Blöskrar mörg-
um sá hugsunarháttur
sem að baki liggur, því
þeir telja að þjóðinni ríði
á að komast f eins gott
samband við markaði
sína erlendis og kostur
verður. Það gerist ekki
með þessu móti að sögn
talsmanna innflutnings,
enda em vinaþjóðir okkar
famar að kvarta undan
„frönskum" aðgerðunt
við íslensk tollhlið, sem
útlendum þykja lokast á
sama tíma og Islendingar
vilja hrinda erlendunt
tollmúrum.
Úr30% uppí800%
Fmmvarp Egils Jóns-
sonar og nefndannanna
hans gerir ráð fyrir vem-
lega útvíkkuðum heim-
ildum til verðjöfnunar frá
því sem er í fmmvarpi
ríkisstjómarinnar frá í
desember. Þessar heim-
ildir ná til allra landbún-
aðarafurða sem jafnframt
em framleiddar hér á
landi, - en einnig til allra
vara sem innihalda hrá-
efni ættuð frá landbúnað-
inunt, sem og allra til-
svarandi vara sem keppa
við landbúnaðarvömr.
Ljóst er að gjöld sem
lögð hafa verið á ýmsar
erlendar landbúnaðarvör-
ur hækka úr 30% sem
hefur verið hámark sam-
kvæmt tollalögum, upp í
allt að 700 til 800% eftir
gildistöku GATT, í sum-
um tilvikum enn meira.
Og landbúnaðarráð-
herra er samkvæmt frum-
vatpi landbúnaðamefnd-
ar gefið vald til að fjalla
um vömr sem innihalda
landbúnaðarhráefni, en sá
vöruflokkur er ærið stór.
Innan hans má gera ráð
fyrir vörum eins og pasta-
réttum, pítsum, kexi og-
sælgæti. Pastaréttir hafa á
síðustu ntissemm átt gíf-
urlegum vinsældum að
fagna og em orðnir vem-
leg samkeppni við inn-
lenda matvælafram-
leiðslu. Hætt er við að
landbúnaðarráðherra yrði
í lófa lagið að breyta
þeim hollu matarvenjum
nteð pennastriki einu
saman. Hann gæti jafnvel
gert poka með kartöflu-
ílögum svo dýran að eng-
inn keypti í búðinni sinnj,
gert er ráð fyrir 306%
gjaldi á „unnum kartöflu-
vömm“ en þessi vara hef-
ur verið hátolluð í 90%
tollaflokki.
Feigðarflan Egils
Alþýðublaðið hefur
rætt við ýmsa aðila innan
verslunarinnar og eru
menn sammála um að
frumvarp Egils á Selja-
völlunt sé hið mesta
feigðarflan og gjörsam-
lega úr takt við þá góðu
verslunarstrauma sem nú
leika um löndin.
„Okkur líst sannarlega
ekki á þetta. Það er ekki
hollt að veita einum ráð-
herra - slíkt ægivald“,
sagði Friðrik Guðmunds-
son, skrifstofustjóri hjá
Mata hf., einum stærsta
innflytjanda grænmetis á
landinu, en það fyrirtæki
á jafnframt góð viðskipti
við íslenska bændur. Fyr-
irtækið var i' fréttunum
fyrir ekki löngu síðan,
þegar bannaður var inn-
flutningur á gúrkunt á
þess vegum, vegna þess
að innlendir framleiðend-
ur töldu sig eiga nógar
gúrkur fyrir ntarkaðinn.
Fljótlega kom þó í ljós að
þær gúrkur fyrirfundust
hvergi og innflutningur
loks leyfður með sem-
ingi.
„Maður þorir auðvitað
ekki að hugsa þá hugsun
til enda, ef verðjöfnunar-
gjöld eins og þessi verða
lögð á. En það er alveg
Ijóst að slík gjöld mundu
ekki þjóna hagsmunum
þjóðarinnar", .sagði Frið-
rik. Aðrir innflytjendur
taka í saina streng og
segja að nógu erfitt hafi
reynst að sækja til land-
búnaðarráðuneytisins
þótt þetta bætist ekki við.
GATTbreytiröUu
Fjármálaráðherra hefur
farið með tollamál, þar
með talið verðjöfnunar-
gjald, sem hann hefur lagt
á margar þær vörur sem
hingað eru fiuttar.
Reyndar var Friðrik Sop-
husson rétt nýbúinn að fá
þessar heimildir í lögunt
sem lóku gildi um síðustu
áramót.
Athygli má vekja á því
að hvorugur stjómar-
flokkurinn hefur boðað
óheftan innfiutning á
landbúnaðarvörum. Sam-
komulag var um að end-
urreisa til bráðabirgða
bannheimildir landbún-
aðarráðherra og veita
honum heimildir til að
leggja á takmörkuð verð-
jöfnunargjöld. Stóra
breytingin á ekki að
verða fyrr en með til-
komu GATT-samnings-
ins.
SAMSTARFSVERKEFNIÐ
TÓNLIST FYRIR ALLA
Se
e*
ce^0^
,o$
23. febrúar, kl. 20.00:
Iþróttahúsinu v/ Vesturgötu
24. febrúar, kl. 20.00:
íþróttahúsi Sólvallaskóla
26. febrúar, kl. 14.00:
Iþróttahúsinu Digranesi
Hljómsveitarstjóri: Juha Nikkola
Einleikari: Sigrún Eðvaldsdóttir 'xi
Kynnir: Sverrir Guðjónsson
Danshöfundur: David Greenall /
Listdansflokkur æskunnar
EFNISSKRÁ
Richard Wagner: Forspil að 3. þætti Lohengrin
Pjotr Tsjajkofskíj: Fiðlukonsert
Sigvaldi Kaldalónslúts. P. P. P.: Á sprengisandi g
Fjöldasöngur: Hver á sér fegra föðurland |
O blessuð vertu sumarsól |
Island ögrum skorið /
Maurice Ravel: Bolero I
SINFÓNÍU HLJÓMSVEITISLANDS “
Hl|ómsveit allra Islendinga OZZZoo