Alþýðublaðið - 23.02.1994, Síða 5

Alþýðublaðið - 23.02.1994, Síða 5
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 Miðvikudagur 23. febrúar 1994 TÍÐINDI Jafnaðarmenn með einn lista í sameinuðu sveitarfélagi á Suðurnesjum LISTA - og hafa EKKI áhuga á bjóða fram með öðrum flokkum „Það verður sameigin- legt framboð jafnaðar- manna á þessu svæði sem sameinað var, Keflavík, Njarðvík og Höfnum. N- listi félagshyggjufólks í Njarðvík sendi alþýðu- flokksfélögunum í Kefla- vík og Njarðvík nýverið bréf og óskaði þar eftir viðræðum um sameigin- legan lista á svipuðum grunni og sameiginlegi listinn í Reykjavík er. Hin nýstofnaða stjórn sameiginlegs fulltrúa- ráðs jafnaðarmanna hafnaði þessari málaleit- an alfarið. Þetta er reyndar athyglisvert bréf frá N-listanum því þeir eru nú í meirihlutasam- starfi við Sjálfstæðis- flokkinn í Njarðvík sem tók klukkustund að mynda eftir síðustu kosningar. N- listinn hef- ur greinilega fengið nóg af samstarfi við sjálf- stæðismenn. Alþýðu- flokkurinn er stærsti flokkurinn á þessu svæði og við sáum ekki nokkra ástæðu til að fara í sam- eiginlegt framboð með öðrum en jafnaðar- mönnum,“ sagði Krist- ján Gunnarsson, einn af forystumönnum jafnað- armanna á Suðurnesjum í samtali við Alþýðublað- ið í gær. „Við erum mánuði seinna á ferðinni en venju- lega vegna sameiningai' sveitarfélaganna en höfum reyndar þegar ákveðið að halda opið prófkjör þar sem bindandi kosning verður í fimm efstu sætin. Alþýðuflokksfélögin í KRISTJAN GUNNARSSON: „Alþýðuflokkurinn er stœrsti flokkurinn á þessu svœði og við sáum ekki nokkra ástœðu til að fara í sameiginlegt framboð með öðrum flokkum Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason Keflavík og Njarðvík hafa ekki enn verið sameinuð en það verður á.næstunni. Fyrsta skrefið var að stofna sameiginlegt full- trúaráð. Við höfum haldið tvo stóra sameiginlega fundi og þar hefur verið gríðar- leg stemmning og virki- legur baráttuhugur í fólki. Til marks um áhugann má nefna að ekki færri en fimmtán manns hafa lýst yfir framboði í prófkjör- inu. Við höfum enn ekki ákveðið nákvæma tíma- setningu á prófkjörið en rætterum 19. mars,“ sagði Kristján. Á fundi fulltrúaráðsins var kjörin stjóm ráðsins og skipa hana Hjalti Örn Ól- afsson formaður, Valgeir Helgason varaformaður, Guðmundur R.J. Guð- mundsson ritari, Guð- mundur Finnsson gjaldkeri og Guðmundur Daníels- son meðstjómandi. Bj óða fram Hér bjóðum við upp á mjög jjölbreyttan matseðil með ítölsku ívafi, sagði Konráð Arnmundsson sem rekur veitingahúsið Verdi að Suðurlandsbraut 14. Verdi er lík- lega nýjasta veitingahúsið í borginni en er staðsett á gamalkunnum stað á Suðurlandsbrautinni þar sem Askur var lengi til húsa. Konráð lét vel af aðsókninni og sagði gesti lýsa ánœgju með þœr fjölbreyttu veitingar sem vœru í boði á hagstœðu verði. Opið er daglega frá klukkan 11.30 til 22 en föstudags- og laugardagskvöld er opið til klukkan 23. A myndinni er Konráð lengst til liœgri en við hlið hans.Erna Sigurjónsdóttir og síðan Guðmundur Þór Gunnarsson. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason Aðalfundur Jafnaðarmannafélags Eyjafjarðar: Y fir gripsmikið starf á fyrsta starfsárinu Fyrsti aðalfundur Jajn- aðarmannafélags Eyja- fjarðar eftir að félagið var stofnað 'á síðasta ári var haldinn laugardaginn 14. febrúar síðastliðinn. Félagið var stofnað eftir að jafnaðarmenn í Eyja- firði höfðu ákveðið að sameina kraftana og Kvenfélag Alþýðuflokks- ins á Akureyri og Al- þýðuflokksfélag Akur- eyrar sameinuðust. Starfið á þessu fyrsta starfsári hefur verið all yfirgripsmikið, og mun meira en með hinu eldra fyrirkomulagi. Stjómar- fundir vom haldnir flesta mánuði starí'sársins og bæjarmálafundir aðra hvetja viku. Ráðherrar fiokksins heimsóttu félagið nokkr- um sinnum á starfsárinu og einnig stóð þingmaður jafnaðannanna í kjör- dæminu, Sigbjörn Gunnarsson, ósjaldan fyrir opnu húsi á laugar- dagsmorgnum. Hefðbundinn laufa- brauðsskurður og laufa- brauðssteiking (með rú- sínuvelling í hádeginu) var á sínum stað, og síðan var haldinn basar sem skilaði all vemlegum tekjum. í tengslum við þetta má einnig geta fjöl- mcnns jólafundar en gest- ir fundarins voru Sig- hvatur Björgvinsson og frú. Sama dag og Sighvatur var í heimsókn var haldið á Akureyri þing kjör- dæmisráðs Norðurlands- kjördæmis eysU'a og mættu flestir gestir þings- ins til jólafundarins. Félagið hefur iui að- stöðu í Gránufélagsgötu 4, þar sem öll aðstaða er fyrir félags og stjómar- fundi auk allrar almennr- ar starfssemi félagsins. Ný stjóm var kjörin á aðalfundinum og er for- maður hennar Finnur Birgisson. Aðrir stjómar- menn em: Margrét Jónsdóttir, Oktavía Jó- Svipmynd frá fyrsta aðalfundi Jafnaðarmannafélags Eyjafjarðar eftir að það var stofnað á síðasta ári. Nýkjörinn formaður félagsins er Finnur Birgisson arkitekt. hannesdóttir, Jón Ingi Cæsarson, Sævar Frí- mannsson og tii vara Jónína Óskarsdóttir og Hannes Örn Blandon. í ávarpi nýkjörins for- manns kom frant að aðal- áhersiur þessa starfsárs verða í þá vem að ná til yngra fólks og fjölga því í röðum félagsmanna og einnig að styrkja starf fé- lagsins um hinar dreifðari byggðir Eyjafjarðar. Fjárhagsleg staða lé- lagsins er góð og var all- nokkur rekstrarhagnaður á síðasta ári. Er þar að verulegu ieiti um að þakka tekjum af jólablaði sem félagið hefur tiú gef- ið út tvisvar sinnum. Uppstilling á fram- boðslista stetidur nú fyrir dyrum og ntunu þeir kynntir inttan skamms. Auk Akureyrar er verið að athuga um siík ntál á Dalvík og í Ólafsjirði. VERDI F

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.