Alþýðublaðið - 23.02.1994, Side 6

Alþýðublaðið - 23.02.1994, Side 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ SKILABOÐ Miðvikudagur 23. febrúar 1994 ALÞÝÐUFLOKKURINN AKRANESI Góugleði á laugardaginn Góugleði Alþýðuflokksfélags Akraness verður haldin laugardaginn 26. febrúar í félagsheimilinu Röst. Gleðin hefst klukkan 20. Húsið opnar klukkan 19.30. Miðaverð aðeins krónur 1.800. Þátttaka tilkynnist eigi síðar en 21. febrúar í síma 11306 (Edda) eða 12952 (Ásta). FJÖLMENNUM! - Stjórnin. ALÞÝÐUFLOKKURINN KÓPAVOGI Prófkjör um næstu helgi Prófkjör Alþýðuflokksins í Kópavogi fer fram laugardag- inn 26. og sunnudaginn 27. febrúar. Kosið verður frá klukkan 10 til 20, báða dagana. Kosning fer fram að Hamraborg 14A, II. hæð. - Stjórnin. ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG HÚSAVÍKUR Félagsfundur í dag, þriðjudag Alþýðuflokksfélag Húsavíkur boðar til félagsfundar á veit- ingahúsinu Bakkanum þriðjudaginn 22. febrúar 1994 klukkan 20.30. Dagskrá: 1. Undirbúningur bæjarstjórnarkosninganna í vor. 2. Önnur mál. FJÖLMENNUM! - Stjórnin. ALÞÝÐUFLOKKURINN KÓPAVOGI Utankjörfundar- atkvæðagreiðsla Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í prófkjöri Alþýðu- flokksins fer fram alla virka daga fram að prófkjöri, frá klukkan 17 til 18. Kosning fer fram í Félagsmiðstöð jafnaðarmanna í Kópa- vogi, að Hamraborg 14A, II. hæð. - Stjórnin. ALÞÝÐUFLOKKURINN KÓPAVOGI Kosningaskrifstofa Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins í Kópavogi vegna prófkjörsins 26. og 27. febrúar er í Félagsmiðstöð jafnað- armanna í Kópavogi, að Hamraborg 14A, II. hæð. Opið alla virka daga. - Stjórnin. Samstarf kirkjunnar og Tryggingastofnunar: íslenskur prestur verður ráðinn til GAUTABORGAR Biskup íslands hefur auglýst lausa stöðu prests í Gautaborg. Er staðan veitt í sam- ráði við Trygginga- stofnun ríkisins, en gerður hefur verið samningur við sjúkrahús í borg- inni um að fram- kvæma líffæra- flutninga fyrir ís- lenska sjúklinga þar. Þörfin fyrir prests- þjónustu er injög brýn í Gautaborg segir í frétt frá biskupsembættinu. Það er bæði vegna sjúk- linga sem oft þurfa að bíða lengi eftir líffærum og eins vegna aðstand- enda eða fylgdarfólks sem dvelur með sjúk- lingunum í borginni. Það var fyrir eindregin tilmæli þessa fólks, sem málið var tekið upp eft- ir heimsóknir raðuneyt- isstjóra heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins, biskups og nú síðast heilbrigðisráð- herra. Nokkurt framlag fékkst á yfirstandandi fjárlögum en það sem á vantar mun Trygginga- stofnunin greiða. Þá er einnig ntjög margt fólk af íslensku bergi brotið í Gauta- borg og nágrenni og mun presturinn annast þjónustu við það, bæði með guðsþjónustu- haldi, uppfræðslu ferm- ingarbama og á hvern þann hátt sem hann get- ur orðið að liði. Einnig hefúr Íslendingafélagið í Osló óskað el'lir því að fá prestsþjónustu og hefur sendiherr- ann í Noregi stutt það eindregið. Það er því áfonnað. að íslenski presturinn í Gautaborg verji einnig ákveðnum tíma í Osló til þjónustu við landa þar. Biskup ískmds hefur rætt við starfsbræður sína í Gautaborg og Os- ló um aðstöðu fyrir fyr- irhugaða prestsþjón- ustu og var málaleitan hans tekið mjög jákvætt og af miklum skilningi. En íslenski presturinn í Kaupmannahöln hefur messað í Norsku kirkj- unni í Gautaborg og séð þessu fólki fyrir þjón- ustu eftir því sem að- stæður leyfa. Nú verður hins vegar auðveldara að koma til móts við þarfir og óskir íslend- inga á þessum svæðum. Umsóknir um stöðu prests í Gautaborg ber að senda biskupsstofu fyrir 15. mars. ALÞÝÐUFLOKKURINN VESTFJÖRÐUM H A PPDRÆ TTI Alþýðuflokksins í Vestfj arðakj ördlseml Vinningar: Flugfar fyrir tvo, Keflavík - Luxemborg - Keflavík, að verðmæti kr. 80.000.- Flugfar fyrir tvo, Keflavík - Kaupmanna- höfn - Keflavík, að verðmæti kr. 42.920.- Upplýsingar gefa Pétur Sigurðsson í síma 94 - 35 36, Snorri Hermannsson í síma 94 - 35 36 og Karitas Pálsdóttir í síma 94 - 36 64. Útgefnir miðar: 1.000 - Verð kr. 500 - Dregið verður 1. aprfl 1994. ALÞYÐUFLOKKURINN Happdrætti Alþýðuflokksins Dregið hefur verið í Happdrætti Alþýðuflokksins og hlutu handhafar eftirtalinna númera vinninga: 1. 6283 9. 6510 2. 6216 10. 2562 3. 4208 11. 4517 4. 4105 12. 2540 5. 4999 13. 1108 6. 9386 14. 3581 7. 9026 15. 9884 8. 7660 Vinningshafar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skrifstofur Alþýðuflokksins, sími 91-29244, Hverfisgötu 8- 10, Reykjavík. H7 AÐALFUNDUR Aðalfundur verður haldinn laugardaginn 26. febrúar 1994, kl. 13.00-15.00, að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf KAFFIVEITINGAR MÆTIÐ STUNDVÍSLEGA Ath. Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofunni milli kl. 16.00 og 18.00, fimmtudaginn 24. og föstudaginn 25. febrúar. STJÓRNIN. ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR Aðalfundur á miðvikudaginn Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur verður hald- inn miðvikudaginn 23. febrúar. Fundurinn verður á Kornhlöðuloftinu við Bankastræti í Reykjavík og hefst hann klukkan 20.30. Á dagskrá eru venjulega aðalfundarstörf og lagabreyting- ar. FJÖLMENNUM! - Stjómin. FLOKKSSTJÓRNARFUNDUR ✓ Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur Islands - boðar til flokksstjórnarfundar laugardaginn 5. mars 1994. Fundurinn verður haldinn á Hótel Holiday Inn í Reykjavík og hefst klukkan 10.15. Dagskrá auglýst síðar. Að venju er fundurinn opinn öllum flokksmönnum, en ef til atkvæðagreiðslu kemur hafa einungis kjörnir fulltruar í flokksstjórn atkvæðisrétt. - Formaður.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.