Alþýðublaðið - 11.03.1994, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Föstudagur 11. mars 1994
Kjarvalsstofa í París
Kjarvalsstofa í París er íbúð og vinnustofa, sem ætluð er til dvalar fyrir ís-
lenska listamenn. Reykjavíkurborg, menntamálaráðuneytið og Seðlabanki
íslands, lögðu fram fé til þess að koma upp slíkri starfsaðstöðu í Parísarborg
með samningi við stofnun, sem nefnist Cité Internationale des Arts, og var
samningurinn gerður á árinu 1986. Kjarvalsstofa er í miðborg Parísar,
skammt frá Notre Dame dómkirkjunni.
Sérstök stjórnarnefnd fer með málefni Kjarvalsstofu, og gerir hún tillögu um
úthlutun dvalartíma þar til stjórnar Cité Internationale des Arts, er tekur end-
anlega ákvörðun um málið. Dvalartími er skemmstur tveir mánuðir en lengst
er heimilt að veita listamanni afnot af Kjarvalsstofu í eitt ár. Vegna fjölda um-
sókna undanfarin ár hefur dvalartími að jafnaði verið tveir mánuðir.
Þeir, sem dvelja í Kjarvalsstofu, greiða dvalargjöld, sem ákveðin eru af
stjórn Cité Internationale des Arts og miðast við kostnað af rekstri hennar og.
þess búnaðar, sem þeir þarfnast. Þessi gjöld eru lægri en almenn leiga í
Parísarborg og er nú Fr. frankar 1400 á mánuði. Dvalargestir skuldbinda sig
til þess að hlíta reglum Cité Internationale des Arts varðandi afnot af hús-
næði og vinnuaðstöðu.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um afnot Kjarvalsstofu, en stjórnin mun
á fundi sínum í mars fjalla um afnot listamanna af stofunni tímabilið 1. ágúst
1994 til 31. júlí 1995. Skal stíla umsóknir til stjórnarnefndar Kjarvalsstofu.
Tekið er á móti umsóknum til stjórnarnefndarinnar í skjalasafni borgarskrif-
stofanna í Ráðhúsinu, en þar liggja einnig frammi umsóknareyðublöð og af-
rit af þeim reglum, sem gilda um afnot af Kjarvalsstofu.
Fyrri umsóknir þarf að endurnýja, eigi þær að koma til greina við þessa út-
hlutun.
Umsóknum skal skila í síðasta lagi 28. mars 1994.
Stjórn Kjarvalsstofu.
Aðalfundur Eimskips:
Utflutningur á þjónustu
yfír milljarður á ári
ÞJONUSTUUTFLUTN-
INGUR Eimskips er nú um
1.250 milljónir króna á ári
eða um 15% af veltu félags-
ins. Þessar útflutningstekj-
ur verða til vegna flutninga
með skipum félagsins milli
erlendra hafna, þóknunar
af flutningsmiðlun, af-
greiðslu erlendra skipa og
margvíslegrar flutninga-
þjónustu. I fyrra voru
starfsmenn Eimskips er-
lendis 137 taisins, þar af 13
Islendingar. Fyrir 10 árum
var einn starfsmaður er-
lendis. Á síðasta ári fluttu
skip félagsins 79 þúsund
tonn af vörum milli hafna
erlendis sem er 7% aukning
frá árinu áður.
Þessar upplýsingar komu
fram á aðalfundi Eimskips
sem haldinn var í gær. í Bret-
landi rekur Eimskip dótturfyr-
irtækið MGH Ltd. Hjá fyrir-
tækinu starfa 68 manns og
heildartekjur þess á síðasta ári
voru 228 miiljónir króna. í
Rotterdam rekur Eimskip
dótturfyrirtækið Transport
BV og þar starfa 24. Þar hefur
verið lögð áhersla á þjónustu
við þriðja aðila til dæmis með
flutningamiðlun og umboðs-
mennsku fyrir önnur skipafé-
I
Launagreiðendur - Launþegar
Staðgreiðsla
a£ hlunnindum
Kostnaður
vegna ferða til og ■“ ■■■ *■■ ■“
frá vinnustað
Kostnað launþega við ferðir til og frá vinnustað
ber að telja til persónulegra útgjalda. Greiði vinnuveitandi
þennan kostnað að öllu leyti eða að hluta skal telja þau persónulegu útgjöld
sem þannig sparast launþega til staðgreiðsluskyldra tekna hans.
Greiði vinnuveitandi kostnað vegna ferða launamanns til og frá vinnustað ber
að standa skil á staðgreiðslu af þeim greiðslum.
Ókeypis flutning til og frá vinnustað ber að meta til staðgreiðsluskyldra
hlunninda. Á svæðum þar sem almenningsvagnar ganga skal miða hina
skattskyldu fjárhæð við vagn-
fargjöldin á hverjum tíma
(á Stór-Reykjavíkursvæði fí
skal miða við kostnaðarverð
mánaðarkorta).
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Heildarflutningar EIMSKIPS ífyrra voru 990þúsund tonn og hagnaður af starfsem-
inni nam 368 milljónum króna.
lög. Nýjasta dæmið þar um er
umboð fyrir Société Navale
Guinéenne en það félag ann-
ast áætlunarsiglingar til og frá
Gíneu.
Verulegur hagnaður
Heildartekjur Eimskips og
dótturfélaga þess í fyrra námu
8,6 milljörðum króna og
hagnaður af rekstri félagsins
nam 368 milljónum króna.
Árið áður var tap af rekstrin-
um sem nam 41 milljón
króna. í ræðu Indriða Pálsson-
ar stjómarformanns Eimskips
kom fram að í raun væru um-
skiptin meiri en fram kæmu í
þessu tölum. Þegar litið væri á
reikningslega niðurstöðu fyrir
skatta þá hefði verið 214
milljón króna rekstrartap á ár-
inu 1992 en árið 1993 næmi
hagnaður 527 milljónum fyrir
skatta. Rekstrarafkoma þann-
ig metin hefur því batnað um
741 milljón króna á milli ára.
Eigið fé Eimskips er 4.645
milljónir og eiginfjárhlutfall
47%. Arðsemi eigin fjár eftir
skatta er 9% sem er nálægt því
markmiði sem félagið hafði
áður sett sér.
Eimskip hefur ávallt greitt
arð til hluthafa frá árinu 1961.
Samfellt hefúr verið greiddur
10% arður frá árinu 1976 að
undanskildum árunum 1991
og 1992 er greiddur var 15%
arður. Að þessu sinni verða
gefin út jöfnunarhlutabréf
sem nema 10% af nafnverði
hlutafjár og jafnframt verður
greiddur út 10% arður til hlut-
hafa.
Á árinu 1993 voru flutt 990
þúsund tonn með skipum fé-
lagsins, samanborið við 913
þúsund tonn árið áður. Starfs-
menn Eimskips og dótturfé-
laga jress vom að jafnaði 746 í
fyrra og hafði fækkað um 50
frá árinu 1992.
Eignir nær 10 milljarðar
Heildareignir Eimskips og
14 dótturfélaga þess í árslok
1993 vom bókfærðar á 9.802
milljónir króna. Skuldir námu
5.157 milljónum króna. Eigið
fé f árslok var þvf 4.645 millj-
ónir króna og hefur aukist um
387 milljónir á árinu, eða um
9%. Eiginíjárhlutfall í árslok
1993 var 47% en 45% í lok
árs 1992.
Eimskip og dótturfélög
þess fjárfestu fyrir alls 426
milljónir króna á árinu 1993.
Á árinu var mest fjárfest í
gámum eða fyrir 165 milljón-
ir, aðallega í frystigámum.
Aðhald í rekstrí
Þegar Indriði Pálsson ræddi
afkomu Eimskips sagði hann
meðal annars:
INDRIÐI PALSSON,
stjórnarformaður Eim-
skips.
„Það em nokkrir megin-
þættir sem skýra þessi um-
skipti sem orðið hafa í rekstri
félagsins. Fyrst ber að nefna
aðhald í rekstri og lækkun
kostnaðar. Á fyrri hluta ársins
vom ekki horfur á jafn góðri
afkomu og raun ber vitni og
var þá gripið til ráðstafana til
að lækka kostnað enn frekar.
Náðist á árinu 1993 liðlega
200 milljón króna kostnaðar-
lækkun, án þess að umsvif fé-
lagsins eða þjónusta við við-
skiptavini þess væri skert.
Eimskip setti sér það mark-
mið í árslok 1991 að lækka
kostnað á hveija flutta einingu
á næstu þremur ámm um
15%. Á fyrstu tveimur ámn-
um hefur tekist að lækka
þennan kostnað um 10%.“
I ræðu sinni sagði Indriði
Pálsson ennfremur:
„Það er fjölmargt sem þarf
að fara saman svo árangur
verði viðunandi. Ekki nægir
að búa við sterka fjárhags-
stöðu og nútímalega tækni á
öllum sviðum. Árangurinn
væri ekki slíkur sem raun ber
vitni ef félagið hefði ekki far-
ið nýjar leiðir við lækkun
kostnaðar. Sífellt betur er að
koma í ljós sá góði árangur
sem náðst hefur með mark-
miðsáætlanagerð og aðferð-
um gæðastjómunar. Breyting-
ar hafa orðið á stjómunarhátt-
um og til að ná jákvæðum ár-
angri hefur félagið nýtt í vax-
andi mæli þekkingu og hugvit
allra starfsmanna. Það hefur
gefið góða raun, og skapað
samstöðu og góðan starfs-
anda, sem er mikilvægt fyrir
fyrirtæki eins og Eimskipafé-
lagið.“
Frystigeymsla í
Sundahöfn
Á undanfömun ámm hafa
orðið miklar breytingar á út-
flutningi sjávarafurða. Eim-
skip hefur veitt frystigeymslu-
þjónustu í Sundahöfn sem
rúmar um 450 tonn og í Hafn-
arfirði þar sem hægt er að
geyma um 1.100 tonn. Þörf
útflytjenda sjávarafurða fyrir
þessa þjónustu hefur aukist
verulega á síðustu ámm og
geymslugeta frystigeymslna
Eimskips er ekki lengur nægj-
anleg.
Verið er að leggja síðustu
hönd á undirbúning að bygg-
ingu á nýrri ffystigeymslu á
athafnasvæði Eimskips í
Sundahöfn, sem mun byggja
á nútíma tækni og vömstýr-
ingu. Áætlað er að geymslan
taki á bilinu tvö til þrjú þús-
und tonn miðað við hefð-
bundið hillukerfi, sem unnt er
að auka vemlega með færan-
legu hillukerfi. Ný geymsla
mun hafa margvíslegt hag-
ræði í för með sér við flokkun
og meðhöndlun og jafnframt
bæta vömmeðferð í samræmi
við aukna gæðavitund í sjáv-
arútvegi.
Endanleg ákvörðun um
byggingu geymslunnar verð-
ur tekin á vormánuðum og er
gert ráð fyrir að byggingunni
verði lokið á þessu ári.
Geymslan mun verða á
Kleppsskafti, nærri frysti-
gámavelli fyrirtækisins í sam-
ræmi við þróunaráætlun
Sundahafnarsvæðisins.