Alþýðublaðið - 11.03.1994, Qupperneq 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FLOKKSSTARFIÐ
Föstudagur 11. mars 1994
GETRAUNIR - „SPÁÐ í SPARKIÐ"
1 Bolton - Oldham
Bolton cr á gríðarlegri siglingu og hefur unnið hvcm lcikinn á fætur öðrum. Það
þarf bara að líta á úrslit leikja um helgina til að sanna það þvf þar unnu þeir í Bolton
frækilegan sigur á Charlton sem er í öðru sæti í deildinni. Leikurinn fór 3-2. Old-
ham beið ósigur í sfnum deildarleik um helgina. Þeir spiluðu við Everton og luuk
leiknum 2-1, Everton t hag. Trúin er á Bolton í þessum leik þar sem uppgangur
þeirra hefur verið mikil og þá sérstaklega í bikatkeppninni en þessi leikur er einmitt
í henni.
X IVIaiichester Clty — Wlmbledon
Wimbledon fór illa með Norwich þegar liðin áttust við um daginn. Norwich komst
tljótlega í 1-0 en Wimbledon gafst ekki upp og þegar flautað var til leiksloka var
staðan 3-1 fyrir Wimbledon. Earle gerði tvö en Holdsworth eitt. City fór í heim-
sókn til QPR og gerði þar jafntcfli og var það Rocastle sem gerði eina mark City.
Rocastle hefur verið að hressast undanfarið og gæti fært City sigurinn en leikurinn
verður jafn.
1 Newcastle — Swindon
Það er eiginlega skrítið að þessi leikur skuli yfirleitt vera á seðlinum þar sem Newc-
astle er svo sannarlega líklegri til sigurs. Við sáum Newcastle vinna Sheftield Wed-
ncsday t sjónvatpsleiknum um helgina en þá var það Cole sem skoraði. Hann gerði
það tveimur mfnútum fyrir leikslok og það var 34. mark hans 34 leikjum. Swindon
náði jafntefli á móti West Ham á heimavelli og var það Norðmaðurinn Fjörtoft sem
bjargaði Swindon - að vanda.
1 X Norwich - QPR
Eins og áður hefur verið greint frá tapaði Norwich fyrir Wimbledon og hafa því
ckki unnið í síðustu átta leikjum. Árangurinn cr citt tap og sjö jafntefli. Norwich er
núna í níunda sæti með 44 stig en liðið hefur gert fjórtán jafntefli á tímabilinu og er
liða duglegast í þvt'. Les Perdinand er ekki lengur f landsliðshópnum hjá Venables. í
stað hans er lan Wrighl í Arsenal kominn eftir að hafa gert þrennu á laugardaginn
var á móti Ipswich. QPR var ekki nógu sannfærandi þcgar liðið spilaði við Manc-
hester City og er sennilega ekki nógu sterkt fyrir Norwich.
1 X Southampton — Slieífleltl Wednesday
Southampton stendur í ströngu þessa dagana við að halda sér uppi í deildinni. Þeir
gerðu markalaust jafntefli við Leeds um sfðustu helgi og þykir það gott þar á bæ.
Þcir hafa verið að bæta sig undanfarið og geta vel unnið Sheffield Wedneday
(Vcddddnesdei) á góðum degi. Sheffield Wednesday tapaði fyrír Newcastlc á lnug-
ardaginn. Waddle var ekki nieð og sást það greinilega á leik liðsitis. Leikurinn var
ekki mjög skemmtilegur enda aðeins eitt mark skorað.
1 Barnsley — Tranmere
Það er ekki auðvelt að spá þegar lið eins og Bamsley á í hlut. Þeir eru mjög neðar-
lega í 1. deild og liafa atleins 34 stig. Samt eru þeir að vinna stórlið þcgar þeir spila
sem best. Barnsley var á ferðinni um helgina þegar þeir spiluðu við næstneðsta lið
deildarinnar, Birmingham. Bamsley vann 2-4). Tranmere færist stöðugt neðar og
neðar í deildinni. Þeir lögðu allt í leikinn við Aston Villa í bikamum á dögunum en
þar hafði Villa betur í vítaspymukeppninni.
1 Cristal Palace - WBA
Cristal Palacc átti í vandrxðum þegar liðið fór f heimsókn f Portsmouth og spilaði
þar. Palace, sem er í efsta sæti I. deildar, skoraði aðeins eitt mark. Það dugði hins
vegar til sigurs og voru menn ánægðir með það. WBA spilaði við Stoke sama dag
og fór leikurinn á þann veg sem enginn leikur á að fara, með markalausu jafntefli.
WBA á ekki roð í Palace enda eru mörg stig á milli liðanna.
1 X Derby — IVlillwall
Millwall hefur nú gert tvöjafntefli f röð og hér gæti það þriðja orðið að veruleika.
Derby hefur hins vegar verið á uppleið og er nú komið í fimmta sæti. Það er nú svo
að liðið keppti við Bristol City á útivelli og lauk leiknum eins og mörgum öðmm
með markalausu jafntefli. Sama er að segja unt leik Millwall við Leicester sem
einnig fór 0-4). Dcrby tckur sig örugglega á í þcssum leik enda þarf þess.
1 Grimsby — Birmingliam
Engin spuming hvort liðið hafi betur í þessari viðureign. Grimsby er augljóslega
betri aðilinn. Þótt ekki munið niikið á þeim þá er Grimsby í betra formi og það sást
um helgina þegar liðið tók sig til og sigraði Tranmere með 2-1 á útivelli. Birming-
ham tók sig hins vcgar til að tapaði á heimavelli fyrir Bamsley eins og áður hefur
verið greint frá. Það munar átta stigum á liðunum en það verður meira.
1 X JNotts County — Watford
llingað til hefur verið mikið spáð heimasigrum og kemur til með að halda áfram.
Notts County hafði við ofurefli að etja þegar fóm í heimsókn til Sunderland sem er
ekkert sérstakt lið. Sunderland vann 2—0 og leikmenn Notts County fóm í skammar-
krókinn eftir leikinn. Þeir hafa þó góða möguleika í þessum leik enda er Watford
ekkert lið til að hræðast.
1 X Oxford - Peterboro
Oxford er í neðsta sæti f 1. deild og er að berjast ásamt Peterboro um að haida sér
uppi í deildinni. Heimaleikur er allt í svona leikjum. Peterboro er í þriðja neðsta
sæti deildarinnar og er aðeins tveintur stigum á undan Oxford. Oxford getur þess
vegna komist úr botnsætinu ef sigur næst svo það verður geftð allt i þennan leik.
Peterboro vann sinn leik um helgina á meðan Oxford tapaði sínum.
X 2 Southend — Portsmouth
Ástæðan fyrir þessum táknum er sú að Portsmouth náði um helgina að standa vel í
Cristal Palace og að Southend tapaði 3-1 fyrir liðinu sem þá var í botnsætinu, Peter-
boro. Portsmouth er í sautjánda sæti mcð 41 stig eftir 33 leiki og Southend er með
44 stig eftir jafnmarga leiki og er í þrettánda sæti. Ekki hefur verið mikið um mögu-
leika til að spá útisigmm á þessum seðli en hér er tækifæri.
X Stoke — Nottfngham Forest
Þetta erdæmigerður jafnteflisleikur þar sem tvö góð lið eiga í hlut. Stoke getur náð
Nottingham í stigum ef sigur næst en það verður erfitt. Nottingham cr í þriðja sæti
með 54 stig og hefur ekki áhuga á að fá Stoke alveg á hæla sér. Stoke cr hins vegar
í sjötta sæti með 51 stig og þrátt fyrir að sigur náist þá kemst liðið ekki fyrir ofan
Nottingham því markatalan er ekki nærri því eins góð.
- Ólafur Uíther Einarsson.
ÉSamband ungra
jafnaðarmanna
ÍSLAND í
ALÞJÓÐA-
VIÐSKIPTUM
Opinn fundur um viðskipta- og
yerslunarstefnu Islands
verður haldinn í RÓSINNI þriðju-
daginn 15. mars klukkan 20.30
Á undanförnum misserum hefur
verið í smíðum á vegum viðskipta-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins
skýrsla um alþjóðaviðskipti Is-
lendinga.
Af þessu tilefni gengst utanríkis-
málanefnd Sambands ungra jafn-
aðarmanna fyrir fundi um við-
skipta- og verslunarstefnu Islands
gagnvart öðrum þjóðum.
Frummælendur verða þeir
GUNNAR SNORRI GUNNARS-
SON sendiherra og INGJALDUR
HANNIBALSSON, dósent í við-
GUNNAR
SNORRI.
INGJALDUR.
skiptafræði við Háskóla íslands og fyrrverandi
framkvæmdastjóri Útflutningsráðs.
Fundurinn verður haldinn í RÓSINNI - félagsmið-
stöð jafnaðarmanna í Reykjavík - þriðjudaginn 15.
mars klukkan 20.30.
Allir velkomnir.
- Utanríkismálanefnd
Sambands ungra jafnaðarmanna.
ÉAlþýðuflokkurinn
- Jafnaðarmannaflokkur
íslands
SAlþýðuflokkurinn
- Jafnaðarmannaflokkur
íslands
FUGLINN í
• •
• • •
ER HANN
Opinn fundur um strandlengjuna
á höfuðborgarsvæðinu
- lífríki hennar, skipulag, mengun
og mengunarvarnir -
verður haldinn á Kornhlöðuloft-
inu við Bankastræti
miðvikudagskvöldið 16. mars frá
klukkan 20.30
Erindi flytja:
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
umhverflsráðherra
INGIBJÖRG GUÐLAUGS-
DÓTTIR og ÓLAFUR HALL-
DÓRSSON
frá Borgarskipulagi Reykjavíkur
TRYGGVIIKÍRÐARSON
frá Heilbrigðiseftiriiti Reykjavík-
ur
Fyrirspurnir og umræöur að
loknum erindum
Fundarstjóri:
RÚNAR GEIRMUNDSSON
Fundurinn er öllum opinn og að-
gangur ókeypis
ÖSSUR.
INGIBJÖRG.
TRYGGVI.
- UMHVERFISMÁLANEFND
ALÞÝÐUFLOKKSINS -
Alþýðuflokksfélögin í Reykjavík,
Kópavogi, Hafnarfirði, Seltjarnar-
nesi, Garðabœ og Bessastaða-
hreppi, Mosfellsbœ og Samband
ungrajafnaðarmanna.
RÚNAR.
FJOLSKYLDU-
UÁDT TD
XlUrUlv
- HÚSNÆÐIS-
MAL
Vinnufundur FJÖLSKYLDUHÓPS verður hald-
inn næstkomandi mánudag, 14. mars, klukkan 17
til 19.
HÚSNÆÐISMÁLIN eru umfjöllunarefni þessa
fundar.
Fundurinn verður haldinn í Rósinni - félagsmið-
stöð jafnaðarmanna í Reykjavík.
Allir velkomnir.
Alþýöublaöiö sími 62-55-66
Alþýðuflokksfélag
Garðabæjar og
Bessastaðahrepps
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Alþýðuflokksfélags
Garðabæjar og Bessastaðahrepps
verður haldinn mánudaginn 14.
mars.
Fundurinn hefst klukkan 20.30 og
verður í Garðaskóla.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosningaundirbúningur.
3. Önnur mál.
Gestur fundarins verður SIGURÐUR TÓMAS
BJÖRGVINSSON, framkvæmdastjóri Alþýðu-
flokksins.
Fölmennum.
- Stjórnin.
SIGURÐUR
TÓMAS.