Alþýðublaðið - 16.03.1994, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 16. mars 1994
FRETTIR
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
Atviimuleysí
mældist 6%
ífebrúar
Atvinnuleysi mældist 6% og ekki útlit fyrir að úr því dragi í
marsmánuði. Utlit fyrir marsmánuð er dekkst á höfuðborgar-
svæðinu, Vesturlandi og Vestfjörðum en skást á Suðurnesjum
og á Suðurlandi en meiri óvissa ríkir um Norðurland og
Austurland. Atvinnulausum fækkaði mest á Norðurlandi
Eystra milli mánaða en þrátt fyrir það mælist atvinnuleysi
þar hlutfallslega mest eða um 8%
ATVINNULEYSIS-
DAGAR í febrúar jafn-
gilda því að 7.424 manns
hafi að meðaltali verið á
atvinnuleysisskrá í mán-
uðinum. Þar af eru 3.792
karlar og 3.632 konur.
Þessar tölur jafngilda 6%
af áætluðum mannafla á
vinnumarkaði samkvæmt
spá Þjóðhagsstofnunar.
Síðasta virkan dag febrú-
armánaðar voru 8.121
manns á atvinnuleysisskrá
á landinu öllu en það er
um 1.550 færri en í lok
janúarmánaðar. Atvinnu-
lausum fækkaði mest á
Norðurlandi eystra milli
mánaða en þrátt fyrir það
mælist atvinnuleysi þar
hlutfallslega mest eða um
8%.
Vinnumálaskrifstofa fé-
lagsmálaráðuneytisins segir
að skráðum atvinnuleysis-
dögum hafi fækkað um
rúmlega 45 þúsund í febrúar
frá mánuðinum á undan en
ijölgað um 27 þúsund frá
febrúarmánuði 1993. Á
landinu öllu voru skráðir
161 þúsund atvinnuleysis-
dagar og hafa ekki áður
mælst fleiri í febrúar. Síðast-
liðna 12 mánuði voru urn
5.974 manns að meðaltali
atvinnulausir eða 4,6% en
árið 1993 voru um 5.600
manns að meðaltali atvinnu-
lausir eða 4,3%.
Viðvarandi
samdráttur
Atvinnulausum fækkar í
heild að meðaltali um 22%
frá janúannánuði en hefur
fjölgað um 20% frá febrúar í
fyrra. Undanfarin 10 ár hef-
ur atvinnuleysi minnkað um
27% að meðaltali frá janúar
til febrúar. Atvinnuleysið
hefur þó minnkað meira frá
janúar vegna meiri umsvifa í
sjávarútvegi en búast mátti
við að þessu sinni. Þó afli sé
nú talsvert meiri en í janúar,
þá er afli svipaður og í
febrúar á síðasta ári. Skýr-
ingar á þessu mikla atvinnu-
leysi nú í febrúar eru því
fyrst og fremst viðvarandi
samdráttur í mörgum at-
vinnugreinum einkum í
sumum greinum iðnaðar og
verslunar og óvissu í sjávar-
útvegi vegna þess að afla-
heimildir á þessu ári eru
víða að verða búnar.
Atvinnuleysi minnkar
hlutfallslega mest á Austur-
landi, Norðurlandi og á Suð-
umesjum en minnst á höf-
uðborgarsvæðinu og Vest-
fjörðum. Atvinnuleysi er nú
minna á Suðumesjum og á
Austurlandi en í febrúar í
fyrra. Þrátt fyrir að mikil
fækkun hafi orðið á fjölda
atvinnulausra í lok mánaðar
benda aðrar upplýsingar um
atvinnuástandið til að at-
vinnuleysið aukist aftur og
geti orðið á bilinu 6% til
6,5% í mars. Atvinnuleysi í
lok marsmánaðar ætti hins
vegar að fækka nokkuð
miðað við lok febrúarmán-
aðar.
Svipað ástand
verður í mars
Mikil fækkun á fjölda at-
vinnulausra í lok febrúar
hefði getað bent til að at-
vinnuástand batnaði enn í
marsmánuði. Á það er hins
vegar að líta að fækkun at-
vinnulausra í febrúar bygg-
ist á miklum umsvifum í
sjávarútvegi samanborið við
janúar sem ekki er útlit fyrir
að haldi áfram í mars. Þá er
fjöldi atvinnulausra í lok
mánaðar mun meiri en með-
alíjöldi atvinnulausra í
febrúarmánuði þannig að út-
lit er fyrir að atvinnuleysi
hafi aukist aftur þegar líða
tók á febrúamiánuð. Þannig
virðast margir hafa haft tak-
markaða og tímabundna
vinnu vegna loðnuveiða og
annarra umsvifa í sjávarút-
vegi. Vemleg skerðing afla-
heimilda mun nú gæta meir
en áður. Þá er ekki líklegt að
áhrif átaksverkefna ríkis og
sveitarfélaga gæti að ráði
fyrr en síðar.
Búast má við því að at-
vinnuleysi aukist eitthvað í
marsmánuði víðast hvar á
landinu og geti orðið á bil-
inu 6 til 6,5% í mánuðinum.
Utlit fyrir marsmánuð er
dekkst á höfuðborgarsvæð-
inu, Vesturlandi og Vest-
fjörðum en skást á Suður-
nesjum og á Suðurlandi en
meiri óvissa ríkir um Norð-
urland og Austurland. At-
vinnulausum í lok mars-
mánaðar ætti hins vegar að
fækka nokkuð miðað við lok
febrúarmánaðar.
%
mar apr maf jiín júl ágii sep olct nóv dcs jan feb
Atvinnuleysi síðustu 12 mánuði
Taíla: Vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins.
Afram hasar í GAUTABORG
Enda þótt Garðar Cortes sé horf'tntt frá starft sínu sem listrænn óperustjóri viðSíora
Teatem í Gautaborg eru vantlamál hússins ekki leyst. segir í nýútkomnu Óperu-
blaði. Síðastliðið haust var Sven Gunnar Tillus, yfirstjómandi rekinn. „Máþví segja
að allt sé f háaiofti í óperuhúsinu, ekki sist þegar ofan á þetta bætist að sýningamar f
vetur hafa ekki fengið góða dóma“, segir f blaðinu.
Gamla fólkið hjá VÖLU og INGÓ
Einhver vinsælasti þáttur sjónvarpsins. í sannlcika sagt verður á dagskrá í kvöld.
Ingólfur Margeirsson sem stýrir þættinum ásamt Valgerði Mattliíasdóttur tjáði
Alþýðublaðinu í gær að fjallað yrði um málefni gamla fólksins, lff þess, ævi og ástir
svo eitthvað sé nefnt. Af nógu er að taka og verður garaan að heyra álit eldri borgar-
anna, sívaxandi aldurshóps í þjóðfélagi okkar. Á meðfylgjandi mynd er starfsfólkið
hjá SAGA-film sem framieiðir þættina.
LEIRBAÐ í Laugardalslaug
Nuddstofa Reykjavíkur starfar í Sundlauginni í Laugardal, hóf starfsemi fyrir mán-
uði síðan. Þar er eina leirbaðið í Reykjavík og lætur fólk vel af sem reynt hefur og fer
viðskiptavinum fjölgandi. Gerðar hafa verið ræktunartiiraunir á leimum og reyndist
hann gjörsamlega laus við sýklagróður. Leirmeðferðin tekur um klukkutíma. en þá
geta menn fengið nuddmeðfcrð af ýmsu tagi, slökunamudd. klassískt nudd, íþrótta-
nudd, svæðameðferð, höfuðnudd, andlitsnudd og heildrænt nudd sem svo er kallað.
Kristján Jóhannsson. sjúkranuddari, hefur umsjón með starfseminni. Leir og nudd
geta verið afar gagnleg við ýmsum kvillum og fytgir þeim djúp og mikil slökun.
Hvimleiðu RISTARHLIÐIN að hverfa?
Ökumönnum er flestum mcinilla við rist-
arhliðin sem víða eru á vegum úti á
landsbyggðinni. Vegagcrð ríkisins er nú
að próf'a nýja getð af fjárhliðum. raf-
magnshlið scm virka á svipaðan hátt og
rafmagnsgirðing og á að geta kontið í
stað hefðbundinna ristarhliða og er vin-
samlegra fyrir bflstjórana. Eitt slfkt er
komið við Hvalstððma í Hvalfirði þar sem er um 1.800 bíla umferð á sólarhring að
meðaltali. Hliðið var keypt frá Noregi og kostar 300 þúsund krónur, en til viðbótar er
kostnaður við steyptar einingar og niðursetningu 500 þúsund. Þennan kostnað má
lækka verulega með stöðlun og framleiðslu innanlands. Á meðfylgjandi mynd er
þessi nýja gerð alrafmagnshliði sem nú er kannað hvort geti komið í stað hinna hvint-
ieiðu hefðbundnu ristarhliða. (Ljósmynd Vegagerð ríkisins.)
SVANUR í 6. sæti
Sögulegur viðburður átti sér stað í Lille-
hammer í lýnadag, þegar Svanur Ing-
varsson frá Sclfossi tók fýrstur ísiend-
inga þátt í Vetrarólympíuleikum fatlaðra.
Hann keppti i 100 og 500 metra sleða-
stjaki og varð 6. í báðum greinum. í dag
keppir hann í 1000 metrunum. Svanur
hefur nú fengið sendan nýjan sleða með
góðri fyrirgreiðslu Flugleiða. Vonandi
gengur honum allt f haginn. Á meðfylgj-
andi niynd er Svanur á sleðanum sem
skilaði honum sjötta sætinu.
Listahátíö í SELTJARNARNESKIRKJU
Fastan, dauöi og púm Jesú“ er yfirskrift listahátíðar sem haldin verður í Seltjarnar-
neskirkju dagana 20. mars til 4. apríl. Þar koma fram fúlltrúar hinna ýmsu listgreina.
sýna verk sfn og koma fram og munu með því auðga menningarlíf Nessins. Hátfðin
hefst á sunnudagsmorguninn klukkan 11 með guðsþjónustu en um kvöldið rnunu
halda tónleika Sclkórinn og Gunnar Kvaran, sellósnillingur og Selúmingur flytja
verkið Jesus mein Freude eftir Bach og einlciksverk eftir Ilallgrfm Helgason. Síðan
rekurhver listviðburðurinn annan; opiðerá helgidögum frá 10 til 14 og virkadaga og
laugardaga frá 17 til 19. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.
Nýr yfirlæknir í
NESKAUPSTAÐ
Dr.Eggert Jónsson. mikilsmeúnn sérfræðingur t bæklun-
arskurðlækningum við Landspítalann, hefur verið ráðinn
yfirlæknir handiæknisdeildar Fjórðungssjúkrahússins í
Ncskaupstað. Eggert er 43 ára og lauk sérfræðinámi í Sví-
þjóð þar sem hann starfaði um hríð. Eiginkona hans er Petr-
ína Halldórsdóttir. hjúkrunarfræðingur.