Alþýðublaðið - 16.03.1994, Síða 7
Miðvikudagur 16. mars 1994
ERLENT
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
Umræðan í Stórþingi Norðmanna fer stundum
niður á lágt plan. rétt eins og á Alþingi
fslendinga enda þjóðirnar náskvldar;
THORBJÖRN JAGLAND, - þarf lágmarks-
„STJÓRNAR-
ANDSTAÐAN gagn-
rýnir stöðuveitingar
ríkisstjórnarinnar án
þess að hafa minnstu
efni á slíku“, sagði
Thorbjörn Jagland,
þingflokksformaður
jafnaðarmanna í
Noregi í heitri um-
ræðu á Stórþinginu
fyrir nokkru. Það er
nefnilega víðar en á
íslandi sem stöðuveit-
ingar eru gagnrýnd-
ar, - og það stundum
á svo fáránlegan hátt
að manninum á göt-
unni blöskrar. Minni-
hlutamenn virðast oft
telja að lausar stöður
skuli falla sér og sín-
um í skaut, en alls
ekki þeim aðhyllast
þá sem fara með völd-
in hverju sinni. Slíkar
stöðuveitingar þykir
þeim ósiðlegar!
kröfur um málatilbúnað.
Venjulega verður
skyndileg hugarfars-
breyting í þessum
efnum, þegar minni-
hluti verður að meiri-
hluta. Allt þetta
þekkjum við allt of
vel.
Flokkur
framyfir þjóð
Jagland vísaði á bug
gagnrýni stjómaiandstöð-
unnar í Stórþinginu með
þessum orðum:
„Þegar Petter Thom-
massen fulltrúi Höyre seil-
ist svo langt að fullyrða að
í gildi sé lögmálið „flokk-
urinn framyfir þjóðina" þá
hlýtur hann að hafa náð
botninum í staðleysum og
ósannindum. Hjá Höyre
hefur það verið venjan að
setja fótinn fyrir Verka-
mannaflokkinn í staðinn
fyrir að uppheíja eigin
stjómmálastefnu. Fulltrúi
SV, Kjellbjörg Lunde,
leyfir sér að segja að
Verkamannaflokkurinn
hjálpi sínu fólki til að fá
stöður sem það hafi ekki
menntun eða verðleika til
að gegna, og þá hlýt ég að
spyija: Höfum við unnið
svo slælega? Em það ekki
heldur SV og Höyre sem
hafa tekið sitt fólk fram yf-
ir hagsmuni þjóðarinnar
með blygðunarlausri tæki-
færismennsku sem við
höfum séð koma í ljós á
síðustu árum“, sagði Jag-
land og óskaði eftir eilítið
meiri íþróttaanda og prúð-
mennsku á tímum Olymp-
íuleika.
Leitað að
þeim hæfasta
„Það sem er dæmigerð-
ast fyrir stöðuveitingar í
embætti, hvort sem þær
em að undirlagi Verka-
mannaflokksins eða borg-
aralegra nkisstjórna er að
menn hafa leitast við að
finna þá hæfustu í hópi
umsækjenda og þá sem
mesta hafa mannkostina“,
sagði Jagland.
Thorbjöm Jagland sýndi
fram á í umræðunum að
bæði borgaralegar ríkis-
stjómir og ríkisstjómir
Verkamannaflokksins hafi
skipað fólk í stöður án til-
lits til flokkstengsla við-
komandi. Um skipun
Bjöm Skogstad Aamo sem
forstjóra Bankaeftirlits
sagði Jagland meðal ann-
ars:
Hræddi aðra frá
að sækja um!
„Hann var skipaður
vegna þess að hann var
best til starfans fallinn. Það
er heldur enginn sem þorir
að bera brigður á þetta.
Hver er þá ákæran? Jú,
Bjöm Skogstad Aamo hef-
ur komið í veg fyrir að aðr-
ir hæfir einstaklingar
sækm um?
En hveijir em það? Séu
menn í stakk búnir að
kasta frarn ásökunum í
umræðum á Stórþinginu
þá þyrfti að setja vissar
lágmarkskröfur um mála-
tilbúnað þeirra. Hvernig
átti hann að hræða ein-
hvem frá að sækja um þeg-
ar hann sjálfur sótti um
stöðuna eftir að umsóknar-
frestur var liðinn“, spurði
Jagland og fullyili að
framgangur stjórnarand-
stöðunnar f umræðunum
væri ekki annað en flokks-
pólitísk árás á Verka-
mannaflokkinn.
„Hér er höfð uppi ómak-
leg gagnrýni og það af
stjómarandstöðu sem
hafði ábyrgð í ríkisstjóm
en lét hana af hendi“, sagði
Jagland meðal annars í
umræðunum í Stórþing-
inu.
Ætli menn þekki ekki
þessa umræðu. Hún hefði
allt eins getað átt sér stað á
þjóðþinginu okkar við
Austurvöll. Og hún átti sér
reyndar stað, - en við vor-
um á undan frændum vor-
um í Noregi í mark að
þessu sinni. Enda emm við
Islendingar Norðmönnum
fremri í þrætubókalist
meðan þeir skara fram úr á
Vetrarólympíuleikunum.
ALÞINGI - þar var ásökunum varpað fram vegna stöðuveitinga, meðal annars þegar Jón Sig-
urðsson var skipaður Seðlabankastjóri.