Alþýðublaðið - 18.03.1994, Blaðsíða 5
Föstudagur 18. mars 1994
VESTFIRÐIR
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
SlGHVATUR B JÖRGVINSSON:
Vestfjakðaför
*
I þriðja sinn á mjög skömmum tíma lagði
Sighvatur Björgvinsson, ráðherra viðskipta
og iðnaðarmála, land undir lot, og nú í
heimahagana Vestfírði. I för með
ráðherranum voru aðstoðarmaður hans
Margrét Björnsdóttir, skrifstofustjóri
iðnaðarráðuneytisins Arni Þór Arnason
og Sigurður Arnórsson starfsmaður
Alþýðuflokksins
Flogið var vestur í stilltu veðri að
áliðnum sunnudeginum 13. mars. Ekki
skýhnoðri á himni og út úr fjarlægðinni
birtist þessi einstaki landshluti í allri
sinni dýrð. Stórkostlegt er að líta hið
stórbrotna landslag sem teygir úr sér
fjörð af firði með snævi þaktar fjallshlíð-
ar niður í byggð. MikiII er vanmáttur
mannskepnunnar andspænis slíku. Upp
í hugann koma slitrur úr löngu lesnum
sögum og frásögnum Þórleifs Bjarnason-
ar, rithöfundar og námsstjórá, um hið
vestfirska mannlíf og samfélagið sem þar
þróaðist andspænis náttúruöflunum.
Lýsingar staðhátta atvika og einstak-
linga sem hafa greipst í minni sakir sér-
stöðu sinnar, rifjast upp. I þessum skrif-
um tókust einatt á slíkir kraftar að erfitt
var að ímynda sér þann raunveruleika
sem nú nálgast æ meir. Býr hér ennþá
fólk, sem hægt er að leita samsvörunar
við í þessar sagnir? Er kraftur bjargsins
virkilega eins yfirþyrmandi og af var lát-
ið? Þegar hjól vélarinnar snerta braut-
ina hefur myndast enn meiri áhugi en
áður á því að kynnast þessu samfélagi af
eigin raun, eins og til stendur að gera
næstu dagana.
Fundur um stöðu
atvinnu og ferðamála
Þessi fundur er upphaf vinnunnar hér fyr-
ir vestan. A fundinn mættu þau Finnbogi
Rútur Jóhannesson, framkvæmdastjóri
Atvinnuráðgjafar Vestfjarða, sem reyndar
hefur undirbúið komu okkar í þaula og að-
stoðar okkur alla ferðina, Sævar Oskars-
son, formaður atvinnumálanefndar Isa-
fjarðarkaupstaðar, Anna Margrét Guð-
jónsdóttir ferðamálafulltrúi og Elsa Guð-
mundsdóttir sem vinnur við átaksverkefni
fyrir konur á þessu landssvæði. Talsverðar
umræður spunnust um smáiðnaðarverkefni,
hlutverk ITÍ og ferðajöfnuð starfsmanna
þeirrar stofnunar, ásamt miklum vænting-
um heimamanna um aukinn ferðamanna-
straum. Virðist auðsætt samkvæmt fram-
setningu þessara aðila á sínum málum að
vel er að þessum hlutum staðið og áhuginn
mikill. Mjög athyglisverð verkefni em í
vinnslu varðandi ferðamálin.
Fundur með
Alþýðuflojíksfólki
a Hótel Isafírði
Á fjölmennum fundi ráðherra með Al-
þýðuflokksfólki af svæðinu kynnti hann
þau mál sem efst em á baugi bæði varðandi
Vestfírði auk þess að íjalla um þau mál sem
ríkisstjómin vinnur nú að. Karvel Pálma-
son stjómaði fundinum af alkunnri rögg-
semi eins og honum er einum lagið. Mikill
fjöldi
fyrirspuma barst úr salnunt um hin ólík-
ustu máí og ljóst var að áhugi fundarmanna
á aðgerðum ríkisstjómarinnar vegna að-
steðjandi vanda Vestfjarða var mikill, að
ekki sé minnst á skipan í embætti Seðla-
bankastjóra. Vemlegur tími fundarins fór
þó í umræðu um þau vestfirsku málin og
aðgerðir sem tengjast þeim. Þessi fundur
var í alla staði mjög vel heppnaður og stóð
fram undir miðnætti.
Samstarfsverkefni
í málmiðnaði
Að morgni mánudagsins mættu til fund-
ar við ráðhenann fulltrúar nokkuna ntálm-
iðnaðarfyrirtækja sem undanfarið hafa unn-
ið að sameiginlegum hagsmunum sfnum á
all sérstakan hátt. Vom þar mættir Sigurð-
ur Jónsson Tæknimiðum hf., Víðir Jóns-
son Vélvirkjanum sf., Eiríkur Karlsson og
Finnbogi Bernódusson Vélsmiðjunni
Mjölni hf.
Þessi málmiðnaðarfyrirtæki við Djúp
hafa stofnað með sér félag sem heitir Félag
málmiðnaðar við Djúp. Tilgangur félagsins
er að vera vettvangur fyrir samstarf um
vömþróun og markaðssetningu. Jafnframt
mun félagið vinna að sameiginlegum hags-
munamálum fyrirtækjanna og vera mál-
svari þeirra á þeim vettvangi.
Starfsvettvangur fyrirtækjanna er fyrst
og fremst þjónusta við sjávarútveg á norð-
anverðum Vestfjörðum. Þau hafa ekki farið
varhluta af þeim samdrætti sem þar hefúr
orðið. Með átaki í vömþróun ætla fyrirtæk-
in að skjóta fleiri stoðum undir reksturinn
og minnka þannig áhrifin af sveiflum í sjáv-
arútvegi á svæðinu. Með samstarfinu geta
fyrirtækin lekist á við mun stærri verkefni
en annars og á það bæði við urn vömþróun
og til dæmis viðgerðir og breytingar á fiski-
skipum.
Fyrirtækin hafa þegar gert með sér samn-
ing um fyrsta þróunarverkefnið. Fyrsti
áfangi verkefnisins er markaðskönnun og
frumhönnun á vömm til framleiðslu og á
honum að vera lokið fyrir 15. maí. Auk
málmiðnaðarfyrirtækjanna em Tæknimið
hf., á ísafirði þátttakendur í verkefninu og
annast hönnunarhluta þess.
Af sameiginlegum hagsmunamálum fyr-
irtækja í málmiðnaði má neffia bætta að-
stöðu fyrir skipaþjónustu og -viðgerðir í
höfnum á svæðinu, hagræðingu í innkaup-
um og svo bætt rekstrarumhverfi (lægra
orkuverð, lækkun opinberra gjalda og
fleira). Þá vilja fyrirtækin hafa samstarf við
Framhaldsskóla Vestljarða um verkmennt-
un í málmiðnaði og ekki síst um að efla
endur- og framhaldsmenntun í iðngrein-
inni.
Stofnfúndur félagsins var haldinn í Bol-
ungarvík laugardaginn 5. mars. Flest fyrir-
tæki í málmiðnaði á svæðinu gerðust stofn-
félagar.
Ljóst er af viðræðum við þá félagana að
hér er tekist á við verkefnið af samkennd og
miklum vilja til að ná árangri. Sú skilgrein-
ing sem þeir hafa framkvæmt á sínum hög-
um og því rekstrarumhverfi sem þeir vinna
í er forsenda þess að slikt samstarf geti
gengið, en gleymist alltof oft.
Markmiðasetning og aðferðaffæðin sem
þeir virðast beita við vöruþróunina vekur
einnig miklar vonir unt að útkoman verði
jákvæð. Hér em fyrirtæki að takast á við
sameiginlegan vanda sem aðstæður í ís-
lensku efnahagslífi hafa skapað. Ber að
fagna því þegar menn bera gæfu til að snúa
þá bökum saman með hagsmuni heildar-
innar að leiðarljósi.
Skipasmíðastöð
Marsellíusar
I þessari heimsókn tóku á móti okkur þeir
Sævar Birgisson, Sigurður Jónsson,
Guðmundur Einarsson og Ásgeir Sig-
urðsson, ásamt fleiri starfsmönnum fyrir-
tækisins. Staða þess var að sjálfsögðu rædd
og einnig í tengslum við stöðu þessarar iðn-
greinar í heild sinni. Fram kom ánægja hjá
heimamönnum um framgöngu ráðherra í
þessu máli og vom þeir nokkuð bjartsýnir
um að nú hillti undir lausnir mála sem dreg-
ist hefur mjög á langinn undanfarin ár að
leysa. I máli þeina kom fram að ljóst væri
að ef skipasmíðafyrirtækin á Istandi næðu
því að koma sér út úr aðsteðjandi vanda að
þessu sinni væri framtíðin nokkuð björt sér-
staklega í ljósi þess hve hár meðalaldur
skipastólsins er orðinn. Þróunarvinna sem
fyrirtækið hefur unnið að undanfarið var
rædd og ljóst er að hún má aldrei stöðvast ef
vel á að fara. Sérhæfing stöðvanna víðsveg-
ar um landið í þá veru að ná góðum tökum
á þáttum sem einkenna útgerð í sínu næsta
nágrenni er augljóslega rétt stefna og einnig
sú markmiðasetning að efla innan fyrir-
tækjanna þá rekstrarþætti sem styrkastir eru
fyrir.
Pols-
rafeindavörur
Hér var verið að setja saman flokkara
sem fara átti til Noregs, og aðrir slíkir biðu í
röðum eftir að byrjað yrði að setja þá sam-
an. Þetta fyrirtæki sem aðallega hefur hasl-
að sér völl sem framleiðandi á rafeindavog-
um, hefur einnig hafið framleiðslu á tengd-
um afurðum og selur þær víða um heim.
Hér er því ekki einungis um að ræða raf-
eindafyrirtæki heldur einnig aðila sem er
vel að sér í málmsmíði. Orn Ingólfsson,
Guðmundur Marinósson og Hörður Ing-
ólfsson leiddu okkur í allan sannleikann um
starfsemina og var augljóst að hér er á ferð-
inni umfangsmikið fyrirtæki sem hefur þró-
un að leiðarljósi og hefur markað sér ljósa
stefnu til framtíðar.
Netagerð
Vestfjarða
Þeir Magni Guðmundsson og Einar
Hreinsson tóku á móti hópnum í þessu rót-
gróna vestfirska fyrirtæki. Hér er byggt á
gömlum merg og ekki tjaldað til einnar
nætur. Þessi þjónustuaðili útgerðar á Vest-
Ijörðum er þekktur af aðilum um land allt
fyrir lipra og örugga þjónustu. Innan sinna
vébanda hafa þeir sjálfstætt fyrirtæki sem
sér um þjónustu við gúmmíbáta og flot-
galla, svo umræðan snérist að sjálfsögðu
uppí öryggi sjómanna og um þann búnað
sem bestur er til að auka það. Hópnum voru
sýnd hin ýmsustu tæki sem leiða eiga af sér
aukið öryggi sjófarenda, ef þau eru notuð
rétt og sjómenn kunna réttu tökin á þeim á
örlagastundu. Hjá Netagerð Vestfjarða
vinnur hópur manna að lagfæringum á
veiðarfærum og við að búa til ný, auk þess
sem stjómendur fyrirtækisins hafa lagt sig
eftir því að kynna sér nýjungar og aðferðir
sem skila mega betri árangri. Neðansjávar-
myndavél fyrirtækisins er vitnisburður um
þann vilja sem þeir hafa til að kanna málin
frá fyrstu hendi, sem þannig leiði af sér
vöruþróun til aukins alla og jafnvel nýrra
miða.
Þuríður hf.
I samræðum við eigendur og stjómendur
þessa fyrirtækis kom fljótlega í ljós ein-
kennilegt ástand sem ríkir í Bolungarvík
varðandi fiskveiðar og fiskvinnslu. Ljóst er
að eigendur fyrirtækja á staðnum, ásamt
bæjarstjómarmönnum verða að reyna að
leita leiða til að sameina kraftana þannig að
ekki sé fluttur í burtu óunninn afli um leið
og fiskvinnslufólk gengur um atvinnulaust
og öll aðstaða til fiskvinnslu er iyrir hendi á
staðnum. Þetta samfélag er að ganga í gegn-
um mikið umrót sem er afleitt af falli Einars
Guðfinnssonar hf., og málin því viðkvæm
og flókin. Vilji virðist á báða bóga til að
málin leysist farsællega og því er ekki að
neita að í hugum okkar gestanna var ofar-
lega vonin um að það mætti takast sem
fyrst. Valdimar Lúðvík Gíslason og Jón
Guðbjartsson ræddu við hópinn og var
viða komið við og ásamt verkstjómm fyrir-
tækisins varð fjörleg urnræða um Rússafisk
og hvaðeina sem tengja má sjávarútvegi.
Ánægjulegt er að sjá þann kraft sem hér er á
hlutunum og þá ákveðni og eindrægni sem
hér ríkir.
Ósvör hf.
Þær vangaveltur sem fram koma hér að
ofan gætu alveg eins hafa verið í umfjöllun-
inni um þetta fyrirtæki, hvað varðar ástand-
ið í Bolungarvík. Björgvin Bjarnason
leiddi okkur vítt og breytt um fyrirtækið og
sýndi okkur aðstöðu þess, bæði til harðfisk-
framleiðslu og fiskvinnslu ásamt skrifstofu-
húsnæði fyrirtækisins. Taka verður undir
með honum að gæta verður mikillar varúð-
ar og vemda það hús sem áður var í eigu
Einars Guðfinnssonar en er nú notað undir
skrifstofur Osvarar. Halda verður, af fullri
virðingu, á lofti minningu þessa mikla
frumkvöðuls. Skip fyrirtækisins vom að
sjálfsögðu á sjó svo ekki gafst færi á að
beija þau augum að þessu sinni.
Bæjarstjóm
Bolungarvíkur
sem ísfirðingarkynnu vel að meta þetta fyr-
irkomulag. Stöðugur straumur var á fund
ráðherrans og að hans sögn vom erindin
eins misjöfn og þau vom mörg, en hér er
um að ræða mjög góða aðferð til að gefa
fólki kosta á að ná tali af ráðherranum eins-
lega og í trúnaði.
Bæjarstjórnarmenn
á Isafírði
Boðað var til íundar með hópnum af bæj-
arstjómarmönnum á Isafirði. Eins og á Bol-
ungarvík fór mikill tírni í umræður vegna
væntanlegra aðgerða ríkisstjómarinnar.
Einnig komu fram á fundinum hin ólíkustu
mál bæði af hálfu heimamanna og eins
fræddi ráðherrann þá um það sem á döfinni
væri í nokkmm málaflokkum. Umræður
vom líflegar og gagnlegar og stóð fundur-
inn í um tvær klukkustundir.
Almennur fundur
um efnahags- og
atvinnumál.
í hádegishléi bauð bæjarstjómin hópnum
til hádegisverðarfundar og vom þar mjög
ræddar nýjustu aðgerðir ríkisstjómarinnar
varðandi Vestfirði. Nokkuð skiptar skoðan-
ir vom á þeim fyrirvömm sem ríkisstjómin
setur vegna þessarar aðstoðar en Sighvatur
Björgvinsson ráðherra gerði mjög einarð-
lega grein fyrir undirbúningi málsins og
þeirn farvegi sem það hefði fallið í og yrði
ekki fært ýr. Ljóst er að skoðanaskipti sem
þessi em mjög gagnleg og nauðsynleg svo
að aðilar velkist ekkert í vafa um meginat-
riði svo mikilvægra mála.
Bakki hf.
Eftir að hafa verið í för með Sighvati
Björgvinssyni ráðherra og samstarfsfólki
hans mjög víða um land undanfarið og
skoðað ótölulegan fjölda allskyns fyrir-
tækja vomm við allt í einu komin inn í fyr-
irtæki sem á allan hátt skaraði fram úr þeim
sem við höfðúm áður séð. Skipulag allt og
aðbúnaður er nánast með ólíkindum. Hrein-
læti og metnaður eigenda fyrirtækisins fyrir
hönd framleiðslunnar og starfsfólks er
mjög rnikill. Hér er framleidd fyrsta flokks
rækja, sem seld er til Englands og boðin þar
í hillum fyrirtækjanna Sainsburys og Tesco
sem segir nokkuð um afurðina. Fylgst er
með gerlum og bakteríum af ntjög mikilli
nákvæmni til að geta boðið sem allra besta
vöm. Fyrirtækið virðist standa vel fjárhags-
lega þannig að mikill tilkostnaður við að-
búnað getur borgað sig ef hann næst allur til
baka og meira en það í auknum tekjum sem
aukin gæði leiða af sér. Það er full ástæða til
að óska eigendum þessa fyrirtækis til ham-
ingju með stórglæsilegt fyrirtæki og vona
að það verði öðmrn hvati til slíkrar fram-
sækni.
Viðtalstími
ráðherra
Auglýstur hafði verið viðtalstími ráð-
herra í Stjómsýsluhúsinu á ísafirði og virtist
Þessi fundur var haldinn að kvöldi mánu-
dagsins í Stjómsýsluhúsinu og boðað til
hans af ráðherra. Auk hans hafði framsögu
á fundinum Þorkell Helgason ráðuneytis-
stjóri. Ágætis mæting var á fundinum og
umræður líflegar, í formi ræðuhalda og fyr-
irspuma.
Lokaorð
Vegna slæmra veðurfarslegra aðstæðna
varð að fresta ferð hópsins til Suðureyrar og
Flateyrar til betri tíma.
Vestfirðir vom kvaddir í snjóíjúki, og á
tímabili var útlitið ekki alltof gott varðandi
flug. Aðstæður á fsafirði em landfræðilega
erfiðar fyrir flug og því verða menn að gæta
fyllstu varúðar í þeim málunt. Afleiðing
þessa er meiri einangmn heldur en margir
aðrir landsmenn þurfa að búa við. En ein-
angmn er þessu fólki ekkert nýtt fyrirbæri,
hún er hluti af lífinu. Það þarf talsvert til,
með allar þær kröfur sem nútíma þjóðfélag
gerir á einstaklinginn
að una hér hag sínum eins og íbúamir
virðast gera.
í upphafi þessara skrifa var vitnað til lýs-
inga á eðli og innræti þess fólks sem Vest-
firði byggði á fyrri tfmum. Þrautseigja,
dugnaður og elja ásamt því að geta glaðst í
dagsins önn vom aðalsmerkin, og sá sem
þetta skrifar getur staðfest að þetta em enn
þann dag í dag aðalsmerkin á því fólki sem
hér býr. Sem betur fer.
- S.E.A.
Svipmyndir úr
Vestfjarðaferð Sighvats
Björgvinssonar og
fylgdarliðs má sjá á
síðunni hér við hliðina.