Alþýðublaðið - 18.03.1994, Síða 9

Alþýðublaðið - 18.03.1994, Síða 9
Föstudagur 18. mars 1994 B ÍLA.S ÍÐAK SKYNDIKYNNI: SkOdA fAvOrIj Þessi bíll er ekki stöðutákn heldur farartceki á afar góðu verði sem hœgt er að treysta á (athugið að bíllinn á myndinni er Skoda Forman - langbakur). 80 ár eru liðin síðan fyrstu bílarnir voru fram- leiddir í Skoda-verksmiðjunum og eru þœr þriðju elstu bifreiðaverksmiðjur lieims, grundvöllur að þeim var lagður árið 1894. Við hönnun Skoda Favorit var leitað með útlitið til Italíu en innvolsið er byggt á þýskum grunni. Gœðabíll. Eftir mörg mögur ár virðast verksmiðjur Skoda nú vera að sækja í sig veðrið. Munar þar mest um kaup Volkswagen- verksmiðj- anna á hlut í þeint en orðspor VW varðandi verkvöndun er strax farið að segja til sín í umræðum um Skodann. Hér á landi átti Skodinn hin síðari ár undir högg að sækja en með tilkomu Favorit fann maður að andinn gagnvart Skoda og umtalið um hann byrjaði að breytast. Ekki að ófyri- synju því þó einhverjir byrjunarörðugleikar hafi verið þá virðast þeir að baki. Það er ekki á allra vitorði en Skoda verksmiðjum- ar eiga sér langa og glæsta sögu og það em meira en 80 ár síðan fyrstu bílamir vom framleiddir í þeim. Verksmiðjumar em þannig þriðju elstu bifreiðaverksmiðjur heims, en gmndvöllur að þeim var lagður árið 1894. HEIMSMEISTARAR Skoda hefur unnið nokkra glæsta alþjóð- lega sigra í kappakstri. Arið 1936 náði Skoda að sigra í Monte Carlo rallakstrin- um. En árin 1991 og 1992 sigmðu þeir í flokki 1300 cc bíla í heimsmeistarakeppni rallökumanna. Við útlitshönnun Favorit fóm þeir hjá Skoda í smiðju Bertone á Ital- íu og þegar að vélbúnaði kom var farið í smiðju þeirra hjá Porche. Vélin er byggð á hönnun frá Porche og rafstýrð innspýtingin er frá Boch. Gangverkið ætti því að bera þýskri hugkvæmni og vandvirkni vitni. Bíllinn sem ég fékk lánaðan var FAVORIT 1300, 5 gíra og 55 hestafla. Þjöppun er 8,8:1, kveikjan er rafeindastýrð og hann notar 92 oktana bensín. Það vafðist nokkuð fyrir mér þegar veður breyttist hvort ég ætti að fá 4x4 bíl í skyndikynnin eða halda mínu striki og fá lánaðan „venjulegan“ Skoda hjá umboðinu. Þar sem ég hef heyrt nokkuð vel látið af Skodanunt sem nota- legum keyrslubíl þá langaði mig að reyna þessi 55 hestöfl á malbiki og möl. Ekki til að bera saman við dýrari bíla heldur að meta hann samkvæmt því lága verði sent hann er boðinn á. En minnugur þess hve gamli Skodinn var seigur í snjó ákvað ég að fá þann nýja og sjá hvað hann gæti og bera hann lauslega saman við þá bíla sem ég er búinn að aka að undanförnu við mis- jafnar aðstæður. Ég á mér uppáhalds götu- slóða hér rétt fyrir ofan bæ, þar er lítil um- ferða að vetrarlagi og skorin hjólför því ekki farartálmi, því er auðvelt að fara til baka þegar í óefni er komið. Ég hef að vísu komið mér upp tveim gúmmíklæddum kubbum sem smeygt er undir hjól ef allt annað bregst en það er nú bara til öryggis. Skodinn var því lagður í fönnina, seiglaðist áfram og virtist fátt að vanbúnaði. Þar kom að hann mótmælti, ég stoppaði bakkaði að- eins og reyndi á ný og sjá, hann þvældist töluvert í viðbót en svo kom að ekki var lengra haldið. Snjórinn var það drjúgur að ég taldi að full þörf yrði fyrir kubbana svo hægt væri að koma sér á stað og bakka til baka. ÁGÆTUR BÍLL Ekki þurfti nema örlitla þolinmæði og nudda fram og til baka, þar til bíllinn var laus og fór auðveldlega til baka. Eins og ég sagði áður langaði mig að reyna hann við almcnnan akstur en það var því miður ekki færðin til þess en í snjó er hann ekki síðri en þeir bílar sem ég hef verið að aka. Þó vélin sé ekki nema 55 hestöfl skilar hún bílnum vel áfram og er nokkuð drjúg ef þess er gætt að nota gírana af ákveðni. Mælar í bílnum em auðlesanlegir en þar rná sjá, hraðamæli, snúningshraðamæli, hitamæli og eldsneytismæli. Þurrkurofar og stefnuljósarofar em mjög aðgengilegir, miðstöð er þriggja hraða og hitaði ágæt- lega, en ég hefði gjaman viljað sjá stilling- ar í snúningsrofum. Sæti em góð miðað við stutt kynni og klæðning að innan öll hin ágætasta. Samt hefði ég viljað sjá fleiri hirslur undir smádót. Það er auðvelt að stíga inn í bílinn, hvort sem er að aftan eða framan og nokkurt dót má setja fyrir aftan aftursæti. LANGBAKUR FÁANLEGUR Ekki á ég von á að stallbakur verði fáan- legur í þessari útgáfu en langbakur er fáan- legur og er verð hans nokkm hærra, eða 778.000 og ætla ég fljótt á litið að hann sé hverrar krónu virði. Þegar verið er að tala um nýjan bíl og verð sem er rétt rúmlega 700 þúsund þá geta ýmsir þankar vaknað, en Skodinn hefur verið ódýr í gegnum tíð- ina og svo er enn. Maður heyrði að til hefði staðið að hækka hann í verði en tekist hefði að koma í veg fyrir það. Skyndikynni gefa manni ekki færi á nákvæmri skoðun, það em fyrstu áhrifin sem maður lætur ráða, en svo er það hvers og eins á hvem hátt hann tekur því. Agætur kunningi minn sem keypti Skoda fyrir tveim ámm er að fá sér nýjan. Rök hans em einföld. Bfilinn er ódýr, hann er spameytinn og hann er þægi- legur í langkeyrslu. Það er fljótlegt að út- búa í honum svefnrými þegar ntaður er á ferðalagi. Ég er ekki að kaupa stöðutákn ég er að fá mér farartæki á viðráðanlegu verði sem ég get treyst, segir hann. UMSJÓNARMAÐUR BÍLASÍÐU ER JÓNAS S. ÁSTRÁÐSSON DOLLARAGRIN: AFTURTIL FORTÍÐAR Það var árið 1955 sem hrist var upp í hæglátum heimi unglinganna hér á landi. Ekki aðeins að rokkið væri farið að heyrast í kananum, heldur var bifreiðainnflutningur gefinn fijáls. Áður en það gerðist þekktir flestir áhugasantir strákar (í þá tíð vom stelpurnar ylirleitt ekki gjaldgengar ef rætt var unt bfia) tegundir þeirra bfia sem á göt- um borgarinnar óku. Árgerð bflanna vafðist ekki fyrir nokkmm manni og eins líklegt að nöt'n og heimilisföng eigendanna væm lika á tæm. í þá tíð nægði meðalgreindum strák að sjá brot úr afturljósi, krómlista eða brett- issnifsi til þess að geta sagt með sanni hver tegund og árgerð þess bfis væri sem við- kontandi afgangar tilheyrðu. Eftir að Heimsstyrjöldinni síðari Iauk var farið að llytja bfia enn á ný til landsins. Þá mátti meðal annars sjá stöku Buick, Oldsmobile, Chevrolet, Ford, Mercury, Pontiac, Dodge, Hudson, Kaiser, Studebaker aka um göt- urnar. Aka er stón orð því þá var malbikið ekki fyrir hendi og bílar þvældust á holótt- um götum hvort sem var innan bæjar eða utan. Þegar Heimsstyrjöldinni var lokið hófst ný barátta, en hún var um viðskipta- vini. Bílamir breyttust oftar cn æskilegt var og þá var það krómið og annað í útlitinu sem skipti höfuðmáli. Til glöggvunar lang- ar mig að lýsa lerli Chevrolet bílana frá GM á ámnum 1950 til 1960, í trausti þess að ntinnið geri ntér ekki ólcik. BÍLUNUM BREYTT Við byrjum á ámnum 1950 og 1951, en þá var engin breyting, á lettanum, árið 1952 urðu afturbrctti verklegri og smá ljósabreyting. 1953 kom Chevrolettinn með nýtt boddý (á þeini tíma töluðum við um boddý) 1954 breyttist grillið og aftur- ljósin ef ég man rétt. 1955 var enn skipt unt boddý, það var árið sem bfiunum var dælt inn í landið. 1956 breyttust afturljósin og þurfti að snúa snerli fyrir ofan afturljós svo hægt væri að dæla bensíni á bfiinn. 1957 var bætt við krómi, uggar settir að aftan og viðbót sett við frambretti. Árið 1957 þótti viðskiptavinum breytingin á Chevrolettin- um ekki nógu róttæk. En Ford og Plymouth höfðu gjörbreytt sfnum bfium hjá þeim jókst salan en salan á lettanum dróst saman. Það ár seldist Fordinn betur en lett- inn. GM réðust í það að skipta um boddý 1958 og svo aftur 1959. Heljarmiklir væng- ir prýddu afturendann og breytingin var róttæk svo vægt sé til orða tekið, en ekki hagkvæm. En árið 1960 var lettinn væng- stýfður á ný og ckki vonum seinna. Þróun annaira bfiategunda var í áttina að þessum umskiptingum. BIFREIÐABYLTINGIN Eins og sagði hér áður þá var bfium dælt inn í landið árið 1955, og allt í einu varð ekki þverfótað fyrir nýjum bfium á götum borgarinnar. Þetta var mikið áfall fyrir þá stráka sem þekktu alla bfia, og léku sér jafnvel að þvi að nafngreina eigcndur þeirra. Það tók ekki nema læpan mánuð að gera þessar alfræðibækur um bfia og eig- endur að venjulegum kiljum. Því hvaða veðurviti sem var, gat tíundað þær bfiateg- undir sem óku um götur borgarinnar. Stöku bfiar skáru sig þó úr fjöldanum og fór ekki á milli mála hveijir voru eigendur þeirra en það vissu jú allir. Ef við nefnunt örfáa þá voru það Bjöm í Kók með Cadillacinn, Þorbjörn f Borg með Pacard Clipper, Tryggvi Ofeigs með Imperialinn, það var mikill sófi. Þá vantaði ekki að leigubfistjór- amir væm vel bfiandi, ekki sfður en nú. Ber eiginlega fyrst að nefna Jarlinn sjálfan Batta Rauða, en hann var á Mercuty og varadekkið á þeim bfi var á palli rnilli aft- urstuðara og skotts. Svanurinn ók á Buick, Kammi var með Oldsmobile, Bassinn á Ford og Grettir á Pontiac. I>etla vora topp- bfiar þegar farið var á sveilaball, margir aðrir vora í sama flokki en þessir vora einna minnisstæðastir. Ekki ntá gleyma Sólarhringnum cn hann var cinn hinna hörðustu, ók á Kaiser og meira en rnaður ætlaði að hægt væri oft á tíðuin. Þetta voru nú brot sem komu upp í hugann þegar ver- ið var að skoða ntyndir frá þeim tíma þegar Drekamir áttu hug og hjarta hver unglings. Sveitaböllin betri en nokkra sinni og stelp- umai- ekki síðri félagar þá en nú. ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9 HOTZENBLITZ - ÞÝSKUR RAFBÍLL Enn einn bíllinn frá Þjóðveijum hcfur séð dagsins ljós. Þettaer rafbíll og nafnið er sterkt, HOTZENBLITZ. Þetta er einn þcirra bfia sem hægt er að leggja hvar sem er og er byggður í Ibach. Rafmótorinn er 12 kW eða 16,3 hestöfl. Viðbragðið er rúmar 6 sekúndur frá 0-60 km hraða. Há- markshraðinn er um 120 km á klukkustund. Langdrægi hans á full- hlixínum rafgeymum er um 190 kílóinetrar. Og útlitið... FORD - SÖLUHÆSTUR FYRIR WESTAN Árið 1993 áttu Ford-verksmiðjumar söluhæsta Qölskyldubfiinn á Btindaríkjamarkaði, en FORD TAURUS seldist í 360,446 cintökum og fór þar nteð uppfyrir HONDU ACCORl) í sölu, en hún scldist í 330.030 eintökuin. Þeir hjá Förd-verksmiðjunum hcfðu ekki fagnað sölutölum sem þessum árið 1957 þegar söluhæsti bfilinn í Banda- ríkjununt var frá þeim og seldist í 1,6 milljónum eintaka... ASTON MARTIN - Á FÁRRA FÆRI Eflir þriggja ára hlé er hafin framleiðsla á nýjum ASTON MARTIN ekki bara stall- bak hcldur Ifkti langbak sem virðist engan keppinaut hafa. Báðir bílaniir eru byggðir á lengdunt Virago-undirvagni og sérbúnir að óskum kaupenda. Homið er 2040 kíló en vélin sem er 6,4 lítra og 8 cylindra skilar 500 hestöflum. Hámarkshraði bílsins er 274 kfiómctrar á klukkustund og verðlagningu bfisins er ckki beinlínis í hóf stillt... KIA - KÓREUBÍLL TIL HEKLU Rífandi sala Bifreiða & landbúnaðarvéla á HYUNDAI bílum hefur orðið til þcss að fleiri umboð cru farin að líta hýru auga til suður-kóreskra bifreiðaframleiðenda. Hekla hf. Umboðsmenn Volkswagen og Mitsubishi eru í samningum við Kia verk- smiðjumar og ef fer sem horfir sjáunt við KIA á markaðnum innan skamms tíma. í Bandaríkjunum er hann kynntur sem bfll scm stenst japanskan gæðastaðal fullkom- lega, en sé á kóresku verði... CICO - SVAR VOLKSWAGEN GEGN TWINGO Eftir nim tvö ár má sjá afsprcngi tilraunabílsins CICO á færibandi Volkswagen-verk- smiðjanna. Vélarlilífm mun slúta nokkuð fram, en bfilinn mun verða hlaðbakur 3 til 5 dyra. Fáanlegur með 4 cylindra bensínvél cða 3 cylindra díselvél. Spennandi bíll... FORD - MEÐ DÍSELSPARIBAUK Fari allt að óskum munu Ford-verksmiðjumarsetja á markaðinn 4 cylindra, 16 ventla og 150 hestafla díeselvél í einn af Ijölskyldubílum sínum árið 1996. Díselvélar sækja stöðugtá... RENAULT - NÝR BÍLL VÆNTANLEGUR Nú er farið að líða á seinni liluta framleiðsluferils hins frábæra RENAULT 19. Arf- takinn sem kallast cnn um sinn X-66 kcmur líklega á markaðinn á næsta ári. Fram- cndinn mun líkjast TWINGO en að aftan munu mýkri línur að öllum líkindum verða ráðandi... SNIGLARNIR - PÁSKASÝNING MÓTORHJOLA Um páskana munu Bifhjólasumtök lýðveldisins, Sniglamir, og flciri gangast fyrir stórsýningu á mólorhjólum. Er ekki að efa að margan gæðagripinn verður þar að sjá, því frábær hjól hafa verið flutt til landsins undttnfarin ár... McLAREN - HUÓÐMÚRINN ROFINN? McLaren scm hefur í Ijölda mörg ár gert eitt öflugasta gengi Formula 1 bfla út, hyggst nú reyna við hraðaheimsmet bfia. Ætlunin er að brjóta hljóðmúrinn á landi og ná 1224 km hraða. Núvcrandi hraðamet cr 1018 kílómctrarog var það sett fyrir 10 ár- um af Richard nokkmm Noble... UPPLÝSINGAR - VEL ÞEGNAR Það er crlitt að elta uppi þá atburði sem fréttnæmir gcta lalist hverju sinni. Umsjónar- rnaður bílasíðunnar vill því hvetja þá aðila setn vilja vekja athygli á því sem er að gerast nýtt hjá þeim, til að skrifa eða faxa upplýsingar til blaðsins, heimilisfangið cr „Alþýöublaðið-Bfiasíða, Hverfisgata8-10,101 Reykjavík" og myndscndisnúmcrið er 629244... OPEL - „TIGRA" VERÐUR „PONTIAC“ Við höfum sagt frá tveggja manna sportaranum ftá Opel. Nú virðist allt benda til þess að hann inuni verða frantleiddur og seldur í Btuidaríkjun- um sein PONTIAC. Ekki er þetta í fyrsta skipti sem Pontiac notar fram- lciðslu fra Opcl því PONTIAC LE MÁNS sem var byggður í Suður Kór- cu hét hinu ágæta nafni KADETT hjá Þjóðvetjutn... ftfTTf Vinningstölur , miövikudaginn: 16.mars1994 VINNINGAR 6 af 6 1 5 af 6 +bónus E8 5 af 6 4 af 6 u ÍPÍ 3 af 6 Cfl+bónus FJOLDI VINNINGA 187 813 UPPHÆÐ Á HVERN VINNING 12.116.000 1.708.494 65.482 2.228 220 Aðaltölur: 10 14 16 32 36 41 BÓNUSTÖLUR (í) (28) (29) Heildarupphaeð þessa viku: 38.913.918 á Isl.: : 2.565.918 Hljjjjl Uinningur fár til: Danmerkur (2) og Svíþjóðar UPPLÝSINGAR. BlMSVARI 91- 68 15 11 LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 BIHT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.