Alþýðublaðið - 18.03.1994, Side 11
Föstudagur 18. mars 1994
GETRAUNIR
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 11
GETRAUNIR - „SPÁÐ í SPARKIÐ"
1 Aston Villa — Oldham
Oldham er komið í undanúrslit í bikarkeppninni eftir að hafa unnið
Bolton 1-0. Beekford komsí inn í sendingu varnarmanns og skoraði
af öryggi. Þetta gerðist þegar aðeins voru 6 mínútur eftir af venjtileg-
um leikttma. Meðan á þessu stóð spilaði Aston Villa við Ipswich á
heimavelli sínum og svo fór að Ipswich hai'ði betur í þeirri viðureign.
Aston Villa hefur ekki verið sannl'ærandi á heimavelli svo þessi
heimasigur er ekkert öruggur.
1 Leeds — Coventry
Leeds hefur fallið f skugga þess scm hefur verið að gerast undan-
farið í deildinni. Ekki hefur f'rést niikið af þeitn enda hafa þeir verið
að vinna og tapa til skiptis. Leeds hefur nú 49 stig og er á sama róli og
Aston Villa sem er í kringum 6. sætið. Leeds gerði jafntefli við
Sheffield United á laugardaginn var, 2-2. Coventry er alltaf í miðri
deildinni og hefur 38 stig. Jafntefli hér er talið líklegt en samt er
heimasigur ekki út í hött.
1 X Liverpool - Chelsea
Liverpool er í 6. sæti með 48 stig eftir 31 leik. Liverpool hafði bet-
ur í viðureigninni við Everton um helgina en leikurinn fór 2-1 cftir að
Rush og arftaki hans, Robbie Fowler, höfðu gert sitt hvort markið.
Dave Watson gerði eina mark Everton. Cheisea komst í undanúrslit í
bikarkeppninni með því að vinna Úlfana aðeins 1-0. Þeir mæta þar
sigurvegaranum úr leik West Ham og Luton.
X 2 Manchester City — Sheffleld United
C-ity mönnum hefur ekki gengið vel í deildinni og ekki batnaði neitt
þegar þeir keyptu framheijann Paul Walsh frá Portsmouth. Þeir töp-
uðu nefnilega á heimavelli sínum í leik á móti Wimbledon sem er
þekkt fyrir að vera slakt útilið. Leikurinn fór 1-0 og voru menn ekki
ánægðir með það. Sheffield United gerði jafntefli við Leeds og það
var Gayle sem gerði jöfnunarmaricið á 89. mínútu leiksins.
1 QPR — Wfmbledon
Bæði þessi lið unnu sína leiki um síðustu helgi og einnig höfðu þau
það sameiginlegt að vera á útivelli. Wimbledon sigraði Manchester
City og QPR sigraði Norwich. QPR vann 4-3 í hörku leik þar sem
sveiflumar voru miklar. Norwich komst yfir 1-0 og síðan 2-1 en þá
gerði QPR 3 mörk í röð. Norwich náði að minnka muninn í 3-4 í lok-
in. Earle gerði eina mark Wimbledon f leiknum við Man City og
tryggði þeim 3 stig. Wimbledon er með 42 stig eftir 30 leiki.
2 Southampton - Arsenal
Arsenal náði því afreki að komst í undanúrslit í Evrópukeppni bik-
arhafa þegar þeir sigruðu Torínó með 1-0 í London. Tony Adams
gerði eina markið í leiknum á 66. mínútu leiksins eftir aukaspyrnu frá
Paul Dawis. Arsenal hefur einnig verið að gera góða hluti í deildinni
að undanfömu svo að Southampton mun ekki hafa neina möguleika í
þessari viðureign. Eina sem gæti komið í veg fyrir sigur Arsenal
ntanna er vanmat.
2 Swindon - Manchester United
Leikurinn sem við höfúm verið að bíða cftir. Margir telja að sjálf-
sögðu að aðeins eitt lið verði á vellinum. Yfirleitt er það svoleiðis
þegar efstu og neðstu liðín mætast. Swindon mætir örugglega með
því hugatfari að reyna að vinna en það gæti reynst þeim dýit því Un-
ited menn eru dugíegir við að refsa liðum í upphlaupum. Það er cng-
in spurning að United vinnur þennan leik og svo spá líka fiestir spá-
menn.
2 Tottenham — Ipswich
Þetta er svolítil áhætta miðað við hvað aðrir spámenn segja. Þeir
hallast flestir á það að Tottenham vinni eða að leikurinn endi með
jafntefii. Ipswich sigraði Aston Villa á útivelli um helgina og slíkt
gæti vel gerst í þessum leik. Tottenham hefur ekki ýkja gott sjálfs-
traust enda tapað mörgum leikjum að undanfömu. Tottenham hefur
aðeins fengið 32 stig út úr 32 leikjum. Liðið hefur aðeins unnið 7 leiki
í deildinni.
X 2 West Ham — Newcastle
Það hefði verið gaman að sjá leikinn Newcastle gegn Swindon í
sjónvarpinu um helgina. Það voru skoruð 8 mörk f leiknum og fór
boltinn oftast í netið hjá Swindon eða alls 7 sinnum. Leikurinn fór
sern sagt 7-1 fyrir Newcastle sem var greinilega í stuði.
2 Bristol City — Portsmouth
Bristol City hefur verið að gefa eftir heima eftir að hafa verið sterkt
heimaiið framan af tíntabilinu. Bristol tapaði óvænt fyrir neðsta liði
deildarinnar á þriðjudaginn. Oxford vann 1-0 á heimavelli Bristol.
Portsmouth sigraði Últána um daginn en sá leikur fór 3-0 fyrir Port-
smouth. Hins vegar töpuðu þeir á laugardaginn fyrir Southend með
2-1. Portsmouth er frekar neðarlega en mun standa fyrir sínu næsta
laugardag.
1 X Nottingham Forest — Bolton
Bolton datt út úr bikarkcppninni á laugardagitm eftir afdrifarík mis-
tök hjá vamarmanni liðsins þegar aðeins 6 mínútur voru eftir afleikn-
urn. Leikurinn fór 1-0 fyrir Oldham sem komst áfram. Nottingham
Forest lék við Stoke um helgina og fagnaði sigri. Leikurinn, sem fram
fór á heimavelli Stoke, lyktaði rneð 1-0. Nottingham er f 3. sæti með
57 stig en Bolton er með 46 sig og er í 12. sæti.
X 2 Oxford — Tranmere
Öll lið virðast geta unnið hvaða lið sem er. Oxford tapaði um helg-
ina fyrir Peterboro sem var í þriðja neðsta sæti deildarinnar. Þremur
dögum seinna vinnur liðið Bristol City á útivelli svo ekki er að undra
þótt spámenn verði þungt hugsi. Tranmcre tapaði einnig á laugardag-
inn en vann eins og Oxford á þriðjudaginn þegar liðið keppti við
Stoke. Leikurinn fór 2-0.
2 Southend — Stoke
Stoke hefur átt erfiða leiki að undanfömu og tapað þeim fiestum.
Þeir verða virkilega að taka sig á ef þeir ætla sér upp í úrvalsdeildina.
Stoke hefur að minnsta kosti tapað tveirn síðustu leikjum sínum. Á
laugardaginn töpuðu þeir fyrir Nottingham og síðan týrri Tranmere
um daginn. Souihend vann Portsmouth um helgina en tapaði á þriðju-
daginn fyrir Middlesboro. Southend er í miðri deildinni en hefur samt
möguleika á sæti t úrvalsdeildinni.
- Ólafur Lúther Einarsson.
,$KIPA-0G
MALMIÐNAÐAR-
FYRIRTÆKI
Á grundvelli samþykktar ríkisstjómarinnar frá
í janúar síðastliðnum hefur verið ákveðið
að veita fyrirtækjum í skipa- og málmiðnaði
jöfnunaraðstoð
vegna stærri endurbóta- og viðhaldsverkefna skipa
til að innlend fyrirtæki geti keppt á jafnréttisgrunni
við erlend.
IÐNLÁNASJÓÐUR
mun annast afgreiðslu þessarar jöfnunaraðstoðar
fyrir hönd Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins.
Þórður Valdimarsson hjá Iðnlánasjóði
veitir nánari upplýsingar í síma 680400.
IÐNAÐAR- OG
VIÐSKIPTARAÐU N E YTIÐ
MÁLMUR
Samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðna&i
.SKIPA-OG
MALMIÐNAÐAR-
FYRIRTÆKI
Á grundvelli samþykktar ríkisstjómarinnar,
til stuðnings skipaiðnaði, hefur verið ákveðið að veita
fyrirtækjum í málm- og skipaiðnaði fjárhagslegan stuðning
til verkefna á sviði þróunar og markaðssóknar.
Heiti verkefnisins er:
SKIPAIÐNAÐUR '94
Alþvðusamband íslands:
Fundað um
stefnumótun í
atvinnu- «g
kj aramálum
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands ís-
lands hefur ákveðið að efna til stefnu-
mótandi umræðu innan hreyfingarinnar
um atvinnu- og kjaramál til skemmri og
lengri tíma. Fyrsti liðurinn í þessari
vinnu var upplýsingafundur sem stóð í
allan gærdag.
Á dagskrá fundarins í gær voru meðal
annars erindi Þórðar Friðjónssonar um
rannsókn OECD á atvinnuleysi, Ara Skúla-
sonar um afstöðu norrænnar og evrópskar
verkalýðshreyfmgar, Gylfa Arnbjömssonar
um horfur í atvinnumálum í náinni framtíð
og Benedikts Davíðssonar um afstöðu ASI
tilþeirra viðhorfa sem komið hafa fram á al-
þjóðlegum vettvangi ásamt stefnumótun
verkalýðshreyfingarinnar í atvinnu- og
kjaramálum.
Verkalýðshreyfingin hefur á undanföm-
um missemnr lagt fast að stjómvöldum að
þau beiti sér af meiri þunga í baráttunni við
atvinnuleysið. I beinu framhaldi af því telur
miðstjórn ASI nauðsynlegt að umræðan um
atvinnumál verði tekin fastari tökum þar
sem mótuð verði samræmd stefna í öllum
þeim málaílokkum sem stuðlað geta að ár-
angri. Framarlega í slíkri stefnumótun
hljóta að vera aðgerðir sem taka á þeim
mikla vanda sem snýr beint að þeim sem
em atvinnulausir í dag, en einnig er talið
brýnt að verkalýðshreyfingin móti sér skýra
mynd af því hvers konar störf við viljum að
hér verði í boði í framtíðinni, segir í frétt frá
ASÍ.
í framhaldi af upplýsingafundinum í gær
verður efnt til nefndarstarfa um einstaka
málaliði og einnig til kynningarferðar um
land allt með það að markmiði að undirbúa
annan fund sem haldinn yrði um mánaða-
mótin apríl/maí.
IHAFNARFJÖRÐUR
Tillaga að
aðalskipulagi Hafnarfjarðar
1992-2012
Tillaga að aðalskipulagi Hafnarfjarðar 1992-2012 ertil sýnis í Hafnarborg
til 6. apríl.
Á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00 til 18.00 er ábyrgðarmenn
viðstaddir til að útskýra tillöguna.
Nánari upplýsingar eru veittar á Bæjarskipulagi, Strandgötu 6.
Skipulagsstjóri Hafnarfjarðar.
Markaðssókn og þróun
til aukinnar samkeppnishæfni
Nánari upplýsingar veitir:
l&ntæknistofnun Islands
Karl Friðriksson, sími 687000.
IÐNAÐAR- OG
VIÐSKIPTARAÐUNEYTIÐ
MÁLMUR
Samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði
SAMIÐN
Samband iðnfélaga
Alþýöublaöiö sími 62-55-66
Mikið úrval af náttfötum og náttserkjum á fermíngarstelpur
Skartgrípaskrín - snyrtíbox
Skildir fyrír verðlaunapeninga
Bíndí - bindisnælur - leðurhanskar
Fermíngarskraut og pappír
ATHUQIÐ NÝJAN OPNUNARTÍMA:
Fdtdloftíð
opið kl 13-1 8
. ALLA DAQA’
Mdtvörudeildin
opin kl 10-21
ALLA DAQA
ARSOL
Heiðartúni 2c - Garði
Sími 27935