Alþýðublaðið - 24.03.1994, Page 3
Fimmtudagur 24. mars 1994
FRETTIR
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
Landssamband kúabænda stofnar fyrirtæki
um verðhækkun á nautakjöti - Landssamband
sláturleyfishafa með í ráðum
Bændur þvingaðir
til að taka þátt í að
hnýta eigin snöru
- segir Jónas Þór kjötiðnaðarmaður uni sölusamtök
kúabænda um verðhækkun á nautakjöti. Jónas Þór
segir að óbreytt verð og öflugt markaðsátak liefði
skilað bændum meiri árangri og tekjuin
JÓNAS ÞÓR: „íþessu máli er veríð að knýja kúabœndur til að hœkka verð-
ið af ótta við að verðlœkkun á nautakjöti leiði til lœkkunar á verði lamba-
kjöts. Svo á að búa til nýtt kerfi með þessum fyrírhuguðu sölusamtökum. Ef
það er eitthvað sem bœndurþurfa ekki á að halda þá er það útvíkkun land-
búnaðarkerfisins. “
Alþýðublaösmynd / Einar Ólason
„ÞARNA er verið að vinna
gegn hagsmunum framleið-
enda og þetta eru kaldar
kveðjur tit neytenda. Það get-
ur varla verið hlutverk fram-
leiðenda nautakjöts að
hækka verð á nautakjöti til
að halda uppi verði á lamba-
kjöti. Með því að knýja fram
verðhækkun á nautakjöti er
verið að þvinga bændur til að
taka þátt í að hnýta eigin
snöru. Óbreytt verð og mynd-
arlegt markaðsátak til sölu á
nautakjöti hefði skilað bænd-
um meiri tekjum og velvild
neytenda,“ sagði Jónas Þór
Jónasson kjötiðnaðarmaður í
samtali við blaðið.
Landssamband kúabænda er
að vinna að samningi við
Landssamtök sláturleyfishafa
um að taka 500 tonn af nauta-
kjöti út af markaði. Sagt er að
þetta sé gert til að koma í veg
fyrir áframhaldandi lækkun á
verði nautakjöts vegna offram-
boðs. Jafnframt er verið að und-
irbúa stofnun fyrirtækis eða
sölusamtaka á vegum Lands-
sarttbands kúabænda.
I drögum að samkomulagi
um stofnun slíkra sölusamtaka
er gert ráð fyrir að framleiðend-
ur nautgripakjöts skuldbindi sig
til að ráðstafa að minnsta kosti
þriðjungi af því nautgripakjöti í
flokkunum UN I, UN II og UN
IIF, sem þeir óska eftir að slát-
urleyfishafar taki til slátrunar
inn á sérstaka uppgjörs- og um-
sýslusamninga.
Ráðstafanirnar
skaða bændur
„Það er sagt að þetta sér gert
til að stöðva verðlækkun á
nautakjöti en það er ekki rétt.
Megintilgangurinn er að hækka
verðið. Obreytt verð hefði hins
vegar leitt til þess að tekist
hefði að koma út stómm hluta
kjötbirgðanna. Verðið hefði
vart farið neðar en nú er en með
því að efna til markaðsátaks í
vor og sumar og nota grilltím-
ann hefði tekist að selja þessar
birgðir sem menn em að vand-
ræðast með. Það hefur ekki ver-
ið reynt að selja nautakjöt á
grillið ennþá, en kjötið er ein-
mitt best beint af grillinu,"
sagði Jónas Þór.
Jónas taldi flest benda til þess
að bændur stórsköðuðust á
þeim ráðstöfunum sem_nú_er
verið að grípa til. Hann tók sem
dæmi bónda sem í dag legði inn
þrjú 200 kílóa naut til slátmnar
og fengi 200 króna skilaverð á
kíló. Því fengi bóndinn samtals
120 þúsund fyrir nautin. Ef far-
ið yrði eftir þeim reglum sem
nú er verið að undirbúa skuld-
binda bændur sig til að leggja
þriðjung ffamleiðslu í frysti.
Þetta þýðir þá að bóndi með
þrjú 200 kílóa naut fengi greitt
fyrir tvö þeirra núna. Ef skila-
verðið hækkaði í 240 krónur
fengi bóndinn þá 96 þúsund
krónur. Þriðja nautið í frystin-
um fengist kannski greitt eftir
eitt eða tvö ár en á hvaða verði
vissi enginn. Einhver þyrfti að
greiða geymslukostnaðinn og
það gæti farið svo að bóndinn
fengi aldrei neitt fyrir ffysti-
kjötið. Þá væri skilaverð naut-
anna þriggja í raun komið niður
í 165 krónur á kíló.
Vandi bænda
ofmetinn
Jónas Þór kjötiðnaðarmaður
sagðist telja vanda kúabænda
ofmetinn.
í mörgurn tilfellum væm
nautgripir skráðir til slátmnar á
fleiri en einum stað. Offram-
boðið væri ekki jafn mikið og
menn héldu.
„Ef það á að geyma nauta-
kjötið í frysti í eitt til tvö ár og
setja það svo í sölu þá er það
orðið annars flokks kjöt. Ekki
verður það til að hækka verðið.
Hvemig sem á þetta er litið þá
væri besgfyrir alla að halda því
verði óbreyttu sem er á kjötinu
núna en hreinsa upp birgðir
með markvissu söluátaki.
Verðið er komið niður í lág-
mark og lækkar ekki úr þessu
svo það er tóm vitleysa að bera
því við að verðhmn blasi við.
Það er ekki úrvinnslunni eða
neytendum að kenna ef bændur
framleiða meira en markaður-
inn tekur við og verðið lækkar.
í þessu rnáli er verið að knýja
kúabændur til að hækka verðið
af ótta við að verðlækkun á
nautakjöti leiði til lækkunar á
verði lambakjöts. Svo á að búa
til nýtt kerfi með þessum fyrir-
huguðu sölusamtökum. Ef það
er eitthvað sent bændur þurfa
ekki á að halda þá er það út-
víkkun landbúnaðarkerfisins,“
sagði Jónas Þór.
LYFJAMISNOTKUN iþróttamanna
orðum aukin?
í Lyjjatíðindum segir Jón Erlendsson fyrrverandi landsliðseinvaldur í handboltan-
um að það sé ekki ný bóla að íþróttamenn misnoti lyf til að bæta árangur sinn. Hann
segir núsnotkun lyfja vissulega vandamál. En hinsvcgar kemur í ljós að samkvæmt
tölum Alþjóða Ólympíunefndarinnar hafi árið 1991 verið tekin 84.088 sýni til úr-
vinnslu víða urn heiminn. Fjöldi ,jákvæðra“ sýna var 805, eða rétt unt 1%. Jón segir
að innan við 15% af sierum á svömrn markaði fari til fþróttamanna, - 85% fara á al-
mennan markað, - aðallcga til unglinga.
JÓN GUNNAR líka
í Nýlistasafninu
Sýning haldin til heiðurs Jóni Gunnari
Árnasyni myndlislarmanni stendur nú í
Nýlistasafninu að Vatnsstíg 3. Á santa
tíma heldur Ustasafn íslands mikla yfir-
litssýningu á verkum Jóns Gunnars og
kallar hana Hugarorku og sólstafi. í Ný-
listasafninu em verk 24 myndlistar-
manna, samtímamanna Jóns Gunnars í
listinni og nemenda lians. Sýningunni
lýkur á sunnudagskvöldið.
-------------------------►
SÓLVAGNINN, eitt verka Jóns Gunnars
Árnasonar.
Stóri BÓKAMARKAÐURINN
Hinn árlegi bókamaricaður Fétags tslenskra bókaútgefenda opnar í dag og stendur til
10. apríl. Markaðurinn er nokkuð seint á ferðinni þetta árið. Eins og ævinlega gera
menn kjarakaup á bókum á markaðnum, sem einu sinni vann undir slagorðinugamla
krónan í fullu gildi. Nú er verðbólgan stopp og ekki hægt að auglýsa undir þessum
formerkjum. Engu að síður em þama staflar af góðum bókum á nánast hlægilegu
verði.
Myndlistarsýningar í LISTASAFNI ASÍ
og PORTINU
Anna Gunnlaugsdóttir sýnir í Ustasafni ASÍ og er síðasta sýningarhelgin framund-
an. Anna sýnir 31 verk en þau em máluð með akríl á masónit og striga. Gunnar
Guðsteinn Gunnarsson sýnir í Portinu að Strandgötu 50 í Hafnaríirði og lýkur sýn-
ingunni á sunnudagskvöldið klukkan 18. Opið daglega frá klukkan 14 til 18.
Allir velkomnir í REYKJAVÍKURHÖFN
Skortur á aðstöðu í Reykjavíkurhöfn stendur ekki í vegi fyrir að samkeppni geti ríkt
í sjóflutningum, skipaafgreiðslu, rekstri farmstöðva eða alhliða flutningaþjónustu,
segir Hannes Valdimarsson, hafnarstjóri í Reykjavík. í kjölfar skýrslu ráðgjafatfyr-
irtækisins Drewry Shipping ConsuUants um flutningskostnað þar sem fyrirtækið
heldur þvt fram að skipafélögin ráði lögum og lofum á hafnarsvæðinu og hleypi þar
engum að. Hafharstjóri segir næga aðstöðu fyrir keppinauta og bendir á Vogabakka.
Ályktunum útlendu ráðgjafanna er alfarið hafriað.
Fallega tónlistin á KJARVALSSTÖÐUM
CAPUT-hópurinn heldur tónleika á Kjarvahstöðum á laugardagskvöldið klukkan
20.30 og nefnast þeir „Fallega tónlisti'n". Þá verða flutt verk eftir Aldo Clementi,
John Cage og Atla Heimi Sveinsson.
Allir með ÖKUSKÍRTEINI í strætó
Ökumenn einkabíla fá tækifæri til að kynna sér hvemig er að ferðast með strætó dag-
ana 28. til 30. mars. Þeir þurfa aðeins að sýna strætóstjóranum ökuskírteini sitt og fá
fría ferð. Þetta verður gert hjá SVR, Abnenningsvögnum og Strœtisvögnum Akur-
eyrar. Tilgangurinn er að freista þeirra sem að staðaldri aka í einkabílum að sann-
reyna hagkvæmni og þægindi þess að keyra með strætó. Staðreynd er að tjölmargir
ættu að nota strætó til að komast í og úr vinnu, spara stórtellda fjármuni og hvíla
einkabílinn. Hugmynd sem vert er að skoða.
GUNNAR S.
MAGNÚSSON
opnar sýningu
Gamall og virtur listmálari, Gunnar
S. Magnússon hefur opnað myndlist-
arsýningu að Hverfisgötu 6, opið frá
klukkan 14 til 19 alveg til 27. mars.
Gunnar er 63 ára Reykvíkingur. nán-
ar tiltekið Skerfirðingur, og vakti
ntikla athygli jtegar á táningsárum
Stnum sem góður málari. Verk hans
er að finna í flestum listasöfnum
landsins. þar á ntcðal í Ustasafni ís-
lands. Gunnar nam við Myndlistar-
skólann í Reykjavtk en fór síðar í
kynnis- og námsferðir til ýmissa Evr-
ópulanda.
MYNDUST: Ein mynda Gunnars S. Magnús-
sotiar.
LOÐNAN mjatlast inn
Enn berast góðir farmar af loðnu til löndunar, frá mánudegi til tniðvikudags komu
skipin nteð um 10 þúsund tonn í bræðslu. Ljóst cr að loðnuveiði er að ljúka, - og enn
ent etitir um 150 Jtúsund tonn af kvótanum.