Alþýðublaðið - 28.04.1994, Síða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FLOKKSSTARFIÐ
Fimmtudagur 28. apríl 1994
RAÐAUGLÝSINGAR i
Auglýsing
um framlagningu kjörskrár
við kosningu til kirkjuþings
Kjörstjórn við kosningu til kirkjuþings hefur samkvæmt lög-
um um kirkjuþing og kirkjuráð íslensku þjóðkirkjunnar nr.
48 frá 11. maí 1982 samið kjörskrá vegna kosningar til
kirkjuþings, sem fram fer í maí og júní nk.
Kjörskráin liggurframmi til sýnis á Biskupsstofu, Suðurgötu
22, Reykjavík, til 24. maí 1994. Jafnframt verður próföstum
landsins sent eintak kjörskrárinnar að því er tekur til kjós-
enda úr viðkomandi.
Kærur til breytinga á kjörskránni þurfa að hafa borist for-
manni kjörstjórnar Biskupsstofu, Suðurgötu 22, 150
Reykjavík, fyrir 25. maí 1994.
Reykjavík, 26. apríl, 1994,
Hrund Hafsteinsdóttir,
Ragnhildur Benediktsdóttir,
Þórir Stephensen.
VINNUSKÓLI REYKJAVÍKUR
Engjateigi 11,105 Reykjavík.
Sími: 882590. Myndsendir: 882597.
Vinnuskóli Reykjavíkur tekur til starfa í byrjun júní nk. og
starfar í júní og júlí.
í skólann verða teknir unglingar fæddir 1979 og 1980 sem
voru nemendur í 8. og 9. bekk grunnskóla Reykjavíkur
skólaárið 1993-1994 og eiga lögheimili í Reykjavík.
Skráning fer fram í afgreiðslu Vinnuskóla Reykjavíkur
að Engjateigi 11, jarðhæð, sími 882590, dagana frá 2.
maí til 13. maí nk.
Opið: Kl. 08.20 - 16.30 virka daga.
Gefa þarf upp kennitölu.
Vinnuskóli Reykjavíkur.
Lóöaúthlutun í Reykjavík
Til úthlutunar eru eftirtaldar lóðir í 1. áfanga Borg-
arhverfis:
★ Lóðir undir 22 einbýlishús og 20 íbúðir í
raðhúsum og keðjuhúsum við Dofraborgir
og Tröllaborgir.
★ Lóðir undir 24 íbúðir í parhúsum við
Jötnaborgir ogÆsuborgir
★ 6 lóðir fyrir fjölbýlishús við Dofraborgir,
Tröllaborgir, Jötnaborgir og Hulduborgir.
Gert er ráð fyrir að 7 einbýlishúsalóðanna og lóð-
ir undir 14 íbúðir í keðjuhúsum verði byggingar-
hæfar í sumar, en að öðru leyti verði lóðirnar
byggingarhæfar á næsta ári.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu
borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð, sími
632310. Þar fást einnig afhent umsóknareyðu-
blöð, skipulagsskilmálar og uppdrættir.
Tekið verður við umsóknum um lóðirnar frá og
með föstudeginum 29. apríl nk. á skrifstofu borg-
arverkfræðings.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
62-91-M
Aukaþing Sambands
ungrajaftiaðarmanna
verður haldið 4. til 5. júní
Samband ungra jafnaðarmanna heldur
aukaþing helgina 4. til 5. júní næstkomandi.
Þar munum við undirbúa þau málefni sem
farið verður með inn á áætlað flokksþing Al-
þýðuflokksins sem haldið verður helgina á
eftir, 10. til 12. júní. Aukaþingið mun einnig
taka til samþykktar þá fulltrúa sem félög
ungra jafnaðarmanna hafa valið til setu á
flokksþingi.
Staðsetning aukaþings SUJ hefur ekki verið
ákveðin á þessari stundu, en öruggt er að
það verður á höfuðborgarsvæðinu. Nánari
staðsetning aukaþingsins verður auglýst síð-
ar ásamt dagskrá. Ekki verður kosið í emb-
ætti innan SUJ á aukaþinginu og lagabreyt-
ingar eru ekki leyfilegar á slíkum þingum.
Rétt til þátttöku hafa allir þeir félagar í
Sambandi ungra jafnaðarmanna sem til-
kynntir hafa verið sem þátttakendur af
stjórnum félaganna til framkvæmdastjórn-
ar SUJ fyrir þingið.
Bestu kveðjur,
Magnús Arni Magnússon
- formaður Sambands ungra jafnaðarmanna.