Alþýðublaðið - 12.05.1994, Side 2
2 (a) ALÞÝÐUBLAÐIÐ
PÓLITÍK
Fimmtudagur 12. maí 1994
ALMUBLMB
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Alprent hf.
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140
Sjúkdómseinkennin
á þjóðarlíkamanum
Félagsmálaráðherra hefur látið taka saman skýrslu um
skuldastöðu heimilanna. Það em svartar tölur sem blasa við á
síðum skýrslunnar. Samanlagt skulda heimilin lánastofnun-
um um 256 milljarða króna við árslok 1993. Það svarar til um
114% af ráðstöfunartekjum. Áætlanir benda til þess að skuld-
imar hafi aukist um 18 milljarða króna á síðasta ári eða um
7% að raungildi. Skuldir heimilanna em tæp milljón á hvem
íslending eða um 4 milljónir á hveija fjögurra manna fjöl-
skyldu. Skuldir em hlutfallslega hæstar hjá þeim sem minnst-
ar hafa tekjumar.
Fyrir utan ofangreindar skuldir almennings við lánastofnanir
nema skattskuldir einstaklinga við ríkissjóð 7,3 milljörðum í
árslok 1992 samkvæmt Ríkisreikningi. Greiðslukortaskuldir
nema um 8 milljörðum króna auk nokkurra annarra skulda ut-
an lánastofnana. Þá em ennfremur ekki taldar með skuldir
milli einstaklinga, en þær em vemlegar. Má nefna í því tilefni
að löngum hefur tíðkast að greiða íbúðarhúsnæði að hluta
með handhafabréfum.
Skuldasúpan verður enn meiri ef litið er til skulda íslenska
ríkisins erlendis en hvert mannsbam á íslandi skuldar rúma
milljón krónur vegna lántöku íslenska ríkisins erlendis. Sam-
anlagt er það jafnstór upphæð og heildarskuld heimilanna í
skýrslu félagsmálaráðherra.
Þetta er ekki glæsileg staða. í hnotskum segir skuldastaða
heimilanna allt sem segja þarf um íslenskt efhahagslíf og ís-
lenskan vemleika í dag. Skuldastaðan segir okkur sögu um
þjóð sem lifað hefur í áratugi, sennilega allt frá stríðslokum,
um efni fram. Það em ekki aðeins einstaklingamir sem hafa
eytt til hægri og vinstri, heldur hafa stjómvöld ekki hikað við
að taka erlend lán og sent greiðsluseðlana áfram til komandi
kynslóða.
Offjárfestingar í atvinnulífi, pólitískar íyriigreiðslur, ríkisfor-
sjá atvinnuveganna, sjálfvirkni í ríkisútgjöldum og skollaleik-
ur efnahagslífsins á öllum sviðum hefur kostað sitt. Eftir
höfðinu dansa limimir. Einstaklingar hafa tekið upp eyðslu-
steíhu stjómvalda undir kjörorðinu „Þetta reddast einhvem
veginn." Þetta slagorð var sérstaklega ríkjandi meðan óða-
verðbólga ríkti og verðtrygging vísitölu var ekki til.
En þessar tölur segja einnig aðra sögu. Þær segja einnig
hvemig stéttaskipting peninganna hefur hreiðrað rækilega um
sig í íslensku þjóðfélagi. Æ færri eiga sífellt meira; fyrirtæki,
eignir og auðlindir þjóðarinnar. Þeir tekjulægstu skulda mest.
í samdrætti, atvinnuleysi og dýrtíð eiga tekjulitlir einstakling-
ar ekki margra kosta völ. Gamlar skuldir hrannast upp á okur-
vöxtum. Nýjar neysluskuldir bætast við meðan enn em veð
fyrir hendi. Á sama tíma falla fasteignir í verði.
Hjól atvinnulífsins snúast hægar þar sem hagvöxtur er eng-
inn. Áfram er treyst á fiskveiðar sem lífakkeri hins unga lýð-
veldis. Og stjómmálamennimir standa í hópum niður á Al-
þingi og beijast með kjafti og klóm gegn öllum framfömm í
íslensku atvinnulífi: Gegn EES, gegn GATT, gegn afnámi sér-
hagsmuna og einokunar, gegn eðlilegri samkeppni, gegn inn-
flutningi á matvöm og öðmm nauðsynjavömm sem stórlækk-
ar vömverð til neytenda, gegn sjálfvirkni í ríkisútgjöldum og
óhóflegri eyðslu á ljármunum skattgreiðenda.
Skýrsla félagsmálaráðherra er þörf lesning. Hún er skyldu-
lesning fyrir alla stjómmálamenn og embættismenn sem taka
veigamiklar ákvarðanir fyrir land og þjóð. Hún er ennfremur
áhrifamikil og nauðsynleg lesning lyrir alla þá sem vilja sjá
bemm augum sjúkdómseinkennin á helsjúkum þjóðarlíkam-
anum.
RÖKSTÓLAR
Senn líður að því að
þingmenn ljúki störfum
á Alþingi og fari í sumar-
ftí. Þess vegna hafa verið
miklar annir á þingi und-
anfamar vikur og unnið
langt ífam á nótt - stund-
um fram á rauðan morg-
un.
Tíðindamanni Rök-
stóla þótti því tilhlýði-
legt að fara niður á Al-
þingi til að fylgjast með
umræðum og því merka
starfi þingmanna að
koma helstu málum
áleiðis með þjóðarhag
og velferð lands og lýðs
fyrir augum.
Tíðindamaður hitti
þingmanninn sin í bláa
sófanum í innra anddyri.
Neftóbak
meðmeíru
- Blessaður, stundi
þingmaðurinn, viltu í
nefið?
Undirritaður hikaði
við og minntist eitthvað
á hvoit neftóbak væri
ekki bannað með lögum
núorðið.,
- Æ, minnstu ekki á
þau ósköp, stundi þing-
maðurinn og snýtti sér.
Tíðindamaður spurði
hvers vegna þingmaður-
inn væri ekki að hlýða á
umræðumar.
- Þetta er ekki fyrir
hvítan mann að hlusta á
þetta málþóf, svaraði
þingmaðurinn þung-
Íyndislega.
Rekstrar-
skýrslurSæ-
dýrasafiisins
- Málþóf? át undirrit-
aður upp eftir þingmann-
inum.
- Já, blessaður vertu,
þetta eru eintómar mála-
lengingar. Til dæmis er
þingmaður Framsóknar
þessa stundina að lesa
upp skýrslu ráðunauta-
fundar á vegum Búnað-
arfélags Islands og
Rannsóknastofnun land-
búnaðarins. Áður var
hann að lesa upp úr Æsk-
unni.
- Um hvað er verið að
ræða? spurði ég.
- Blessaður, ég hef
enga hugmynd um það.
Það eru allir löngu búnir
að gleyma því. Alþýðu-
bandalagsmaðurinn sem
situr við hliðina á mér
hélt að hann væri að tala
um villdýrafrumvarpið
þegar hann hóf lestur úr
rekstrarskýrslum Sæ-
dýrasafiisins en þá vor-
um við í raun að tala um
jöfnun á flutningskosm-
aði olíuvara.
- Varð ekki allt vit-
laust?
- Nei, blessaður vertu,
það tók enginn eftir
neinu, svaraði þingmað-
urinn.
Lærðræða
um tunglið
Ég spurði þingmann-
inn minn hvað væru heit-
ustu málin á þingi núna í
lok þinghaldsins.
- Heitustu málin? Ætli
það séu ekki stjóm fisk-
veiða, þróunarsjóður
sjávarútvegsins og verð-
jöfnunarsjóður sjávarút-
vegsins. Alla vega talaði
þingmaður Framsóknar í
16 tíma í gær og í nótt.
- Var þetta ekki lærð
ræða?
- Jú, talsvert, hún fjall-
aði um möguleika á líf-
rænni ræktun á tunglinu.
Þingmaðurinn geisp-
aði.
Drullusokk-
ar, meindýr
oggrasasnar
Tíðindamaður Rök-
stóla tyllti sér hjá þing-
manninum og spurði
hvort ekki ríkti skilning-
ur og vinátta milli þing-
manna þrátt fyrir mikið
vinnuálag og ábyrg
átök?
- Ha? geispaði þing-
maðurinn þinn. Vinátta?
Jú, blessaður vertu, við
eram öll fínir vinir. Til
dæmis kallaði þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins
þingmann Framsóknar í
nótt drallusokk, hálfvita
og meindýr. Og þing-
maður Framsóknar svar-
aði lyrir sig og kallaði
þingmann Sjálfstæðis-
flokksins fábjána, heila-
skaddaðan kjúkling og
grasasna.
— Hvað segirðu, greip
ekki forseti þingsins
lfam í?
- Jú, jú, hún barði
bjölluna nokkram sinn-
um og áminnti þing-
menn um að gæta mál-
fars.
- Hættu þeir þá dóna-
skapnum?
- Ha? stundi þingmað-
urinn, Nei, þeir sögðu þá
báðir að það yrði í minn-
um haft, að þingforseti
væri að grípa fram í mál-
efnalegar umræður á
þingi.
- Þingmennimir talast
vart við eftir þessar heift-
arlegi orðasennur í nótt?
- Ha? sagði þingmað-
urinn, jú blessaður vertu,
þeir era þama inni að fá
sér snæðing, þessir tveir
sem hlæja svo innilega
saman!
Símaskráin
frál956
Tíðindamaður Rök-
stóla var orðinn alveg
gáttaður á þessum hirð-
siðum þingsins og ætlaði
að standa upp þegar tvær
þingkonur stransuðu
framhjá.
Tíðindamaður heyrði
að önnur þeirra sagði:
- Þetta verður fínt þóf.
Ég er búin að ná mér í
Vera frá upphafi.
Hin sagði:
- Iss, það dugar ekk-
ert, ég náði mér í Hagtíð-
indi frá 1945, síma-
skrána frá 1956 og allar
bækumar hennar Guð-
rúnu ftá Lundi.
- Já, sniðug ertu, hve-
nær ætlarðu að lesa upp
úr Guðrúnu?
- Jaaa...sagði hin og
teygði lopann, ætli það
passi ekki nokkuð vel
þegar við föram að tala
um fúllgildingu ákvörð-
unar sameiginlegu EES-
nefndarinnar um bókun
47?
- Já, tók sú fýrri undir,
en hvað með stækkun at-
vinnu- og þjónustu-
svæða á Vestfjörðum,
heldurðu að lesning úr
Vera myndi passa þar?
- Nei, það gæti verið
svolítið á ská. Hvemig
væri að lesa úr Vera þeg-
ar kemur að kjarasamn-
ingi opinberra starfs-
manna? Ha?
Þær brostu báðar og
vora horfnar upp stig-
ann.
Gerpla og
rímur
Þingmaðurinn minn
var steinsofnaður og far-
inn að hijóta. Ég kunni
ekki við að vekja hann
svo ég reis varlega á fæt-
ur og læddist út með
ganginum. Á leiðinni út
fór ég framhjá þremur
þingmönnum sem stóðu
í hnapp við fatahengið.
- Hvað ætlarðu að tala
um þegar við föram aftur
í villidýraffumvarpið?
spurði sá fyrsti.
- Ég var að hugsa um
að lesa svolítið úr
Gerplu, svaraði annar
þeirra.
- Já, ég ætla að fara
með rímur Sigurðar
Breiðfjörðs, svaraði
hinn.
- En hvað eigum við
að taka þegar vog, mál
og faggilding verður tek-
in fyrir?
- Það er nú ekkert mál,
við föram bara og fáum
okkur bjór í miðbænum
á meðan, sagði sá fyrsti.
Stelpumar í þingflokkn-
um taka þá vakt. Þær era
búnar að ná sér í heil-
mikið lesefni, ég held
Lesbók Morgunblaðsins
frá upphafi og ættartal
Norðlendinga. Það ætti
að duga til að byija með.
Ég læddist út úr hús-
inu og hugsaði með
sjálfum mér að það væri
veralega vanþakklátt og
misskilið starf að vera
þingmaður.