Alþýðublaðið - 06.07.1994, Side 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
atviNna
Miðvikudagur 6. júlí 1994
STIMPLUN: Reglum um stimplun atvinnulausra hefur nú verið
breytt, þannig að þeir geta stimplað sig inn hjá annarri atvinnu-
miðlun en þeirri sem þeir eru skráðir hjá. Þetta œtti að auðvelda
mönnum atvinnuleitina sem borist getur um víðan völl.
Alþýðublaðsmynd/Einar Ólason
Reglum um stimplun atvinnulausra breytt:
Nú geta atvinnulausir
stimplað sig hjá annarri
atvimiumiðlun
Reglum um stimplun at-
vinnulausra hefur nú
verið breytt, þannig að
þeir geta stimplað sig inn hjá
annarri atvinnumiðlun en þeirri
sem þeir eru skráðir hjá. Það er
þó bundið því skilyrði, að þeir
fái tímabundið leyfí til þess hjá
atvinnumiðlun sem þeir eru
skráðir hjá. Þar þurfa þeir einnig
að taka sérstök eyðublöð sem
þeir nota í öðrum sveitarfélög-
um. Þetta kemur fram í upplýs-
ingum sem Alþýðusamband Is-
lands hefur sent frá sér.
Að sögn ASI hefur það valdið
ýmsum erfiðleikum, til dæmis
vegna atvinnuleitar sem borið
getur menn víða, að þurfa alltaf
að mæta á sama degi og á sama
stað til að stimpla sig, svo at-
vinnuleysisbætur falli ekki nið-
ur. Nú hefur sem sagt verið gerð
breyting á 15. grein reglugerðar
um vinnumiðlun, sem gerir til
að mynda atvinnulausum manni
í Reykjavík það kleyft, að fá
leyfi til að stimpla sig úti á landi
og öfugt.
Sá sem óskar eftir slíku leyfi
verður að tilkynna það reglulega
til þeirrar atvinnumiðlunar sem
hann er skráður hjá, hvar hann
verði staddur á viðkomandi
tímabili og hvar hægt verði að
ná í hann. Hægt er að gefa upp
símanúmer þar sem hægt er að
ná í viðkomandi eða láta liggja
fyrir skilaboð. Þetta er nauðsyn-
leg ráðstöfun svo hinn atvinnu-
lausi geti tekið afstöðu til at-
vinnutilboðs þegar/ef það berst.
Tilkynning og skráning á nýja
staðnum á að gerast á þeim degi
sem viðkomandi á að stimpla
sig í viðkomandi sveitarfélagi.
Skráning í öðru sveitarfélagi fer
fram á sérstökum eyðublöðum
sem eiga nú að liggja frammi á
þeirri atvinnumiðlun þar sem
hinn atvinnulausi á að mæta til
skráningar.
Tf 'Tamkvœmdastjórn Al-
rf þýðuflokksins - Jafn-
Æ aðarmannaflokks ís-
lands fundaði í fyrradag.
Þetta var í fyrsta skipti sem
framkvœmdastjórnin kemur
saman frá því að hún var
kjörin á hinu sögulega 47.
flokksþingi sem haldið var
um miðjan síðasta mánuð í
Suðurnesjabœ. A fundinum í
fyrradag var farið yfir stöðu
mála að loknu flokksþingi og
drög lögð að starfl fram-
kvœmdastjórnar nœstu mán-
uðina. Það var létt yfirfólki
að fundi loknum og ljóst að
það er góður og samhentur
hópur sem ,Jramkvœmda-
stýra“ flokknum licestu tvö
árin. Frá vinstri eru Hervar
Gunnarsson, Valgerður M.
Guðmundsdóttir (ritari
flokksins), Guðmundur Árni
Stefánsson, Guðmundur
Oddsson (formaður fram-
kvœmdastjórnar), Magnús
Arni Magnússon (formaður
SUJ), Petrína Baldursdóttir,
Bryndís Kristjánsdóttir,
Steindór Haraldsson, Jón
Baldvin Hannibalsson (for-
maður flokksins), Sigurður
Eðvarð Arnórsson (gjaldkerí
flokksins) og Sigurður Tóm-
as Björgvinsson (fram-
kvœmdastjóri flokksins).
Á myndina vantar Arnór
Benónýsson.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
. —