Alþýðublaðið - 17.11.1994, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Vígstaðan fyrir kosningar
Nú eru aðeins tæpir fimm mánuð-
ir til kosninga og vígstaða flokkanna
er að skýrast. Samfylkingarhug-
myndir eru runnar út í sandinn í bili.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur að
mestu lokið uppstillingu lista og
framboð Jóhönnu
r jmk Vilhjálmur Þorsteinsson
skrifar
Sigurðardóttur PallhorrSírS
virðist vera stað 1 CLHUkJI VJlkJ
reynd.
Sem iyrr munu
flokkarnir leggja
áherslu á kjaramál
í kosningunum,
enda buddan hjart-
fólgin flestum
kjósendum. Kjör
fjölskyldna stefna í að verða megin-
þema í ljósi upplýsinga um skulda-
stöðu heimilanna. Allir flokkar
munu gera tilkall til að vera besti
kostur launafólks á einn eða annan
máta.
Sérstaða flokkanna mun einkum
mótast af afstöðu þeirra til fimm
málaflokka: Evrópu, aðgerða í at-
vinnumálum, umbóta í landbúnaði
og sjávarútvegi, ljármögnunar vel-
ferðarkerfisins og breytinga í kjör-
dæma- og kosningamálum. Alþýðu-
flokkurinn - Jafnaðannannaflokkur
Islands - hefur hér algjöra sérstöðu.
Hann er eini flokkurinn sem hefur
skýra, skynsamlega og óumdeilda
stefnu í öllum fímm málaflokkum.
Þetta á hann að nýta sér til hins ítr-
asta í kosningabaráttunni.
Sjálfstædisflokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn er klofinn í
Evrópumálum. Davíð Oddsson og
hans nánustu ráðgjafar halda uppi
tortryggnisstefnu gagnvart Evrópu-
sambandinu en ungir sjálfstæðis-
menn og fólk úr atvinnulífi vilja að
flokkurinn sýni meira frumkvæði.
Flokkurinn sveiflast milli frjáls-
hyggjusjónarmiða og pilsfaldakapít-
alisma í atvinnumálum og skirrist
ekki við að beita sjóðalausnum og
ríkisfyrirgreiðslu þegar á reynir, til
dæmis á Vestfjörðum. I landbúnað-
ar- og sjávarútvegsmálum berjast
fylkingar ríkisstyrktrar miðstýringar,
kvótakónga, talsmanna frjáls mark-
aðar og neytenda með þeim árangri
að flokkurinn hefur enga skýra
stefnu í þessum málaflokkum.
Breytingar í kjör-
dæmamálum og
jöfnun atkvæðis-
réttar standa einn-
ig mjög í flokkn-
um; Sjálfstæðis-
flokkur dreifbýlis
vill þar engu
breyta en Sjálf-
stæðisflokkur þétt-
býlis er á öðru
máli. Niðurstaðan er moðsuðutillög-
ur um smáskammtalækningar sem
fresta þessu mikilvæga mannrétt-
indamáli til næstu aldar.
Alþýdubandalagid
Alþýðubandalagið er í raun tveir
flokkar í einum: Ureltur flokkur rík-
issósíalista og örlítið nútímalegri
flokkur vinstrisinnaðra jafnaðar-
manna. Stöðug átök þessarra fylk-
inga naga Ilokkinn að innanverðu.
Evrópustefna Alþýðubandalagsins
einkennist af þjóðemishyggju, heim-
óttarskap og hræðslu. Flokkurinn var
á móti EES og virðist helst vilja gera
Island að alþjóðlegu Árbæjarsafni.
Alþýðubandalagið hefur alveg skýra
stefnu í fjármögnun velferðarkerfis-
ins: kerfið á skilyrðislaust að gera
allt fyrir alla, það á að byggja í kring
um kröfur þeirra stétta sem við það
starfa, og fjármagna með ótakmark-
aðri skattlagningu fyrirtækja og
fólks. I kjördæmamálum hefur Olaf-
ur Ragnar Grímsson ekki gert upp
við sig hvort kjördæmin eigi að vera
fjögur, eitt eða einhver önnur tala.
Framsóknarflokkurinn
Framsóknarflokkurinn kemur til
leiks með nýjan formann sem miklar
vonir voru bundnar við. Halldór Ás-
grímsson hefur ekki uppfyllt þær
vonir. Engra breytinga hefur orðið
„Alþýðuflokkurinn hefur því góða víg-
stöðu ef honum tekst að...lofta rækilega
út, endurnýja á framboðslistum og beita
fyrir sig fersku fólki og aðferðum”.
vart á áherslum Framsóknar nema ef
vera skyldi í átt til enn meiri íhalds-
semi, og formaðurinn kemur fyrir
sjónir sem syijulegur og hugmynda-
snauður. Framsókn er á móti öllu
sem heitir Evrópa þótt Steingrímur
Hermannsson hafi á sínum tíma átt
þátt í undirbúningi EES. Hugmyndir
flokksins í atvinnumálum byggja á
stórfelldum ríkisafskiptum og ríkis-
fmmkvæði með tilheyrandi lánum,
styrkjum og handafli. Formaðurinn
vill helst engu breyta í kjördæma-
skipaninni en þingmennimir Finnur
Ingólfsson og Jóhannes Geir Sigur-
geirsson fluttu þingsályktunartillögu
um að landið yrði eitt kjördæmi.
Kvennalistinn
Tilverugrundvöllur Kvennalistans
verður æ óljósari. Þó má segja að
hann styrkist ef hlutur kvenna á
framboðslistum annarra flokka verð-
ur fyrir borð borinn, eins og raunin er
hjá Sjálfstæðisflokknum. Það er á
engan hallað þótt sagt sé að stefna
Kvennalistans í þeim málum sem
hér em til umræðu sé sú allra íhalds-
samasta sem boðið er upp á í íslensk-
um stjómmálum. Hún sameinar and-
úð Framsóknar á Evrópu, gagnrýnis-
lausa eyðslupólitík Alþýðubanda-
lags í velferðarmálum, umfangsmik-
il ríkisafskipti í atvinnumálum og
áframhaldandi Ijötra á bændur með
tilheyrandi háu matvælaverði til fjöl-
skyldna. I kjördæmamálum hefur
Kvennalistinn ekki gert upp hug sinn
svo ég viti en hefur hneigst til
óbreytts kerfis, væntanlega vegna
þess hversu vel það hefur reynst kon-
um (!).
Frambod Jóhönnu
Framboð Jóhönnu Sigurðardóttur
er að mestu óskrifað blað. Málefna-
áherslur Jóhönnu meðan hún var í
Alþýðuflokknum vora ekki sérlega
skýrar utan velferðarmála. Eg starf-
aði á tveimur undanfömum flokks-
þingum að smíði stjómmálaályktun-
ar, í bæði skiptin í nefnd með Jó-
hönnu, og beindust hennar athuga-
semdir og innlegg nánast eingöngu
að velferðarmálum. Jóhanna fékk
þar svo að segja allt sitt fram enda
mikil málafylgjumanneskja og
flokksmenn almennt sammála henni
hvort eð var. Fylgi hennar mun mót-
ast af því hvemig gengur að fá fram-
bærilegt fólk á lista urn land allt og
einnig hvaða áherslur verða lagðar í
stefnuskrá. Um það er ekki gott að
spá.
Alþýduflokkurinn
Alþýðuflokkurinn hefur staðið sig
vel í ríkisstjóm undanfarin sjö ár og í
reynd verið hugmyndasmiður ís-
lenskra stjórnmála. Framganga
flokksins í Evrópumálum hefur ver-
ið með þeim ágætum að nú vildu all-
ir EES kveðið hafa. Málefnaáherslur
flokksins era skýrar og skynsamleg-
ar og um þær hefur verið ágæt sam-
staða, ef frá er talið brotthlaup Jó-
hönnu, sem sennilega á fremur rætur
að rekja til ágreinings um vinnu-
brögð og persónur en málefni. Al-
þýðuflokkurinn hefur því góða víg-
stöðu ef honum tekst að gera gott úr
hremmingum undanfarinna mánaða.
Á því á hann möguleika með því að
lofta rækilega út, endumýja á fram-
boðslistum og beita fyrir sig fersku
fólki og aðferðum í kosningabaráttu.
Það er hins vegar efni í aðra grein.
Höfundur er kertistræðingur og stjórn-
armaður i Félagi frjálslyndra jafnaðar-
manna.
Þekkiði þennan mann? Hann
var vonglaður ungur hugsjóna-
maður á þingi Sambands ungra
jafnaðarmanna á Akureyri
1973. Úr andlitinu má lesa
skáldlegan eldmóð, sem er
sjaldgæfur eiginlciki hjá stjórn-
málamönnum. Ef þessi ungi
maður hefði haldið áfrani í pól-
itík væri hann ábyggilega helst-
ur valdamaður landsins núna.
Það væri nú aldeilis gaman.
Æskumynd
dagsins
s
Islandsrúta Alþýðubanda-
lagsins - eða Brúðubíllinn
einsog hún er reyndar köll-
uð - gerir víðreist um land-
ið. Gamlir Ijendur í forystu-
sveitinni hafa samið um
vopnahlé í bili, en það end-
aði næstum með skelfingu
um daginn.
Þá var rút-
an á ferð
um Vest-
firði og
Hjörleifur
Guttorms-
son Austfjarðagoði var við
stýrið, en fonriaðurinn, Ól-
afur Ragnar Grímsson, sat
við hlið hans. Sagan segir
að Ólafur Ragnar haíl sí og
æ verið að skipa Hjörleifi að
beygja til hægri, en bílstjór-
inn virti það að vettugi. Ól-
afur hclt hinsvegar áfram að
suða í Hjörleifi um að
beygja til hægri, beygja til
hægri - og það endaði með
því að Hjölli missti þolin-
mæðina, beygði til hægri og
endaði úti ískurði. Pólitísk-
um djúpsálarfræðingum
þykir þessi saga, sem við
seljum ekki dýrara en við
keyptum, í senn merk og
táknræn...
s
Islenskir rithöfundar era
vist ekkert ofsælir af kjör-
um sínum en stundum berst
þeim óvæntur glaðningur.
28. september barst félöguin
í Rithöfundasambandinu
sérstök orðsending sem bar
yfirskriftina Hvem langar
að sigla um Svartahafið? í
boði var semsagt ókeypis
ævintýraferð um Svartahaf í
félagsskap norrænna rithöf-
unda. Þrátt fyrir skamman
fyrirvara sendu 30 rithöf-
undar inn umsókn um að
komast í ævintýraferðina.
Stjórn
RSÍ er
nú búin
að fara í
gegnum
bunkann
og velja
ferða-
langana. Þau eru Jóhannes
Helgi, Sigurður A. Magn-
ússon, Sigurður Pálsson,
Steinunn Sigurðardóttir
og Þórunn Valdimarsdótt-
ir. Þessi lukkulegu skáld
flugu út á laugardaginn var
og era nú í sól og sælu á
Svartahafi...
s
IDV í gær var lítil en áber-
andi frétt þarsem sagði að
varaþingmaður nokkur teldi
það ekki samrýmast starfs-
hags-
munum
sínum
að taka
sæti á
Aiþingi.
Þetta
var eng-
inn annar en Guðmundur
Magnússon hinn valin-
kunni fréttastjóri DV. Það er
talsverð að blaðamenn á DV
fá ekki lengur að merkja
fréttimar sínar. En t' viðtali
(við sjálfan sig?!) sagði
Guðmundur að þótt það
hefði vissulega orðið „fróð-
legt“ að tylla sér í þingsal þá
væri það „ekki við hæfi“
vegna starfa hans á DV.
Þetta er synd - Guðmundur
hefði orðið fyrsti uppgjafa
Maóistinn á íslandi til þess
að láta til sín taka á Al-
þingi...
Hinumegin
Jæja, nú snúum við okkur að næsta verkefni.....Bernharður!
Er þetta fluga sem þú ert að smjatta á? Ég vona að þú hafir
komið með nóg fyrir okkur hin líka!
Fimm á förnum vegi Hvernig fer landsleikur íslands og Sviss í fótbolta?
Viti menn
Eru fílefldir karlmenn virki-
lega að kæra fegurðardrottn-
ingu fyrir harðræði?
Loki í DV. Lögreglumaður nokkur hefur
brugðist þannig við ásökunum Lindu Pé
um barsmíðar að kæra hana fyrir of-
beídií
Hægt að skipta um skoðun eft-
ir tvö ár.
Davíð Oddsson í samtali við norræna
blaðamenn um hugsanlega ESB-aðild
Islands. DV i gær.
Hvergi verður allsstaðar. Ekk-
ert erum við öll, kristilega
kannski. Kómísk örugglega.
Förum og sjáum. Sigrum á Sel-
fossi með Eyvindi & Co. Verð-
um aldrei söm. Förum nú. För-
um.
Guðbrandur Gislason, leikdómur um
uppfærslu Selfyssinga á Godot eftir
Samuel Beckett. Mogginn í gær.
Eggert Haukdal sagðist því
miður ekki hafa orðið þeirrar
gæfu aðn jótandi að borið hefði
verið upp vantraust á utanrík-
isráðherra en kæmi slíkt til at-
kvæða myndi hann styðja það.
Frásögn af þingfundi í fyrradag. Mogg-
inn í gær.
Kristilegir þjóðarflokksmenn í
Noregi hafa lent í vandræðum
með afstöðu guðs almáttugs til
ESB. Flokksmenn eru á móti
ESB en hafa orðið að fallast á
að leiðtogi lífs þeirra sé senni-
lega hlutlaus.
Frétt í DV í gær.
I luktum heimi er átakanleg og
ástríðufull saga, stútfull af
krefjandi hugleiðingum um
ástina, dauðann og tilgang lífs-
ins, saga sem mér reyndist
ómögulegt að leggja frá mér
fyrren hún var öll, svo seiðandi
er hún, mögnuð og sterk.
Sigríður Albertsdóttir, umsögn um nýja
skáldsögu Fríðu Á. Sigurðardóttur. DV í
gær.
Minningar Aðalheiðar Hólm
Spans eru sérstæð lesning. Sú
afstaða sem hún tekur hverju
sinni í lífínu er svo innilega laus
við fordóma eða móðursýki og
hefur því miklu að miðla.
Súsanna Svavarsdóttir, ritdómur um
ævisögu Aðalheiðar eftir Þorvald Krist-
insson. Mogginn í gær.
Ása Þorkelsdóttir, matvæla-
fræðingur: Það veit ég ekki, senni-
lcga 1-0 fyrir Sviss.
Kristján F. Valgarðsson, nemi:
Það er jafnteflislykt af þessum leik,
ég segi I -1.
Ásthildur Helgadóttir, knatt-
spyrnukona: Island verður yfir í
hálfleik 1-0, en leikurinn fer 1-1.
Amar Gunnlaugsson skorar mark Is-
lands.
Kristrún Heimisdóttir, laga-
nemi og „uppgjafa" knatt-
spyrnukona: 3-0 fyrir Sviss, ein-
faldlega vegna þess að þeir eru með
eitt sterkasta lið Evrópu.
Eva Helgadóttir, laganemi:
Hvaða landsleikur?
Svona vinnubrögð eru forkast-
anleg, þau stríða gegn rétti,
skynsemi og almennum hags-
munum. Þau eru misnotkun á
valdi. þau eru dæmd til að
hefna sín.
Ellert Schram í leiðara DV um verkfall
flugmanna sem beinist gegn Atlanta.
Eg leit útum gluggann og sá þá
bifreið sem líktist bifreið sem í
eigu móður Lindu. Ég sá ekki
hver ók bflnum en í Ijósi þess
að við áttum í þessum deilum
dró ég þá rökréttu ályktun
vegna atburða kvöldsins að
þetta gæti verið Les.
Maðurinn sem klagaði Lindu og Les í
lögguna. DV í gær.